Morgunblaðið - 02.07.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
PENIIMGAMARKAÐURINN
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1997 31
MINNINGAR
ERLEND HLUTABREF
Dow Jones, 1. júlí.
IMEW YORK VERÐ HREYF.
DowJones Ind 7651,5 J 0,5%
S&P Composite 882,8 1 0.5%
Allied Signal Inc 83,5 l 0,6%
AluminCoof Amer... 76.3 t 0,3%
Amer Express Co 74,9 l 1,0%
AT & T Corp 35,3 i 1,2%
3ethlehem Steel 10,5 i 0.6%
Boeing Co 53,3 i 0,4%
Caterpillarlnc 106,3 i 1,6%
Chevron Corp 73,7 t 1.3%
Coca Cola Co 69,9 i 1.6%
Walt Disney Co 79.6 i 0,5%
Du Pont 61,6 t 0,7%
Eastman Kodak Co... 77,9 i 0,8%
Exxon Corp 60,4 - 0,0%
Gen Electric Co 65,4 t 0,1%
Gen Motors Corp 55,8 i 0,1%
62,8 i 0,8%
Intl Bus Machine 92,5 t 1.4%
Intl Paper 48,9 í 0,4%
McDonalds Corp 48,3 i 1,0%
Merck&Colnc 101,9 j 0,6%
Minnesota Mining.... 100,0 J 1.7%
MorganJ P&Co 105,0 í 1.6%
Philip Morris 43,1 t 0.9%
Procter&Gamble 138,8 1 0,4%
Sears Roebuck 54,1 t 0,7%
TexacoInc 109,3 t 0,7%
Union CarbideCp 47.2 í 0,7%
United Tech 83,9 í 0,6%
Westinghouse Elec.. 23,7 - 0,0%
Woolworth Corp 24,5 - 0,0%
AppleComputer 1700,0 J 0,6%
Compaq Computer.. 100,4 t 2,0%
Chase Manhattan .... 97,1 i 0,3%
ChryslerCorp 33,1 t 1,0%
Citicorp 120,3 J 0,4%
Digital Equipment 35,9 i 0,2%
Ford MotorCo 38,8 i 0,5%
Hewlett Packard 54,6 t 0.1%
LONDON
FTSE 100 Index 4604,6 J 0,8%
Barclays Bank 1196,0 i 2,4%
British Airways 684,5 J 1,5%
British Petroleum 72,2 t 0,3%
British Telecom 847,0 i 0,4%
Glaxo Wellcome 1240,0 t 0,3%
Grand Metrop 581,5 J 0,5%
Marks & Spencer 502,5 i 0,7%
Pearson 695,0 i 1.1%
Royal & Sun All 0,0 J 100%
ShellTran&Trad 0,0 i 100%
EMI Group 0,0 i 100%
Unilever 0,0 J 100%
FRANKFURT
DT Aktien Index 0,0 J 100%
Adidas AG 0,0 i 100%
Allianz AG hldg 0,0 J 100%
BASFAG 0,0 i 100%
BayMotWerke 0,0 i 100%
CommerzbankAG.... 0,0 i 100%
Daimler-Benz 0,0 i 100%
Deutsche Bank AG... 0,0 i 100%
DresdnerBank 0,0 J 100%
FPB Holdings AG 0,0 i 100%
Hoechst AG 0,0 J 100%
Karstadt AG 0,0 J 100%
Lufthansa 0,0 i 100%
MANAG ; 0,0 i 100%
Mannesmann 0,0 i 100%
IG Farben Liquid 0,0 i 100%
Preussag LW 0,0 i 100%
Schering 0,0 J 100%
: Siemens AG 0,0 i 100%
Thyssen AG 0,0 i 100%
Veba AG 0,0 i 100%
Viag AG 0,0 i 100%
Volkswagen AG 0,0 i 100%
TOKYO
Nikkei 225 Index 0,0
AsahiGlass 0,0 J 100%
Tky-Mitsub. bank 0,0 i 100%
Canon 0,0 i 100%
Dai-lchi Kangyo 0,0 ) 100%
Hitachi 0,0 J 100%
Japan Airlines 0,0 i 100%
Matsushita EIND 0,0 i 100%
Mitsubishi HVY 0,0 i 100%
Mitsui 0,0 J 100%
Nec 0,0 í 100%
Nikon 0,0 i 100%
Pioneer Elect 0.0 i 100%
Sanyo Elec 0,0 J 100%
Sharp 0,0 i 100%
Sony 0,0 i 100%
Sumitomo Bank 0.0 i 100%
Toyota Motor 0,0 J 100%
KAUPMANNAHÖFN
Bourse Index 0,0 J 100%
Novo Nordisk 0,0 J 100%
Finans Gefion 0,0 i 100%
DenDanske Bank.... 0,0 i 100%
Sophus Berend B .... 0,0 J 100%
ISS Int.Serv.Syst 238,0 - 0,0%
Danisco 406,0 t 1,0%
Unidanmark 373,0 t 0,8%
DS Svendborg 342500,0 - 0,0%
Carlsberg A 365,0 - 0,0%
DS1912 B 237500,0 t 2,4%
Jyske Bank 572,0 t 0,4%
OSLÓ
OsloTotal Index 1194,3 t 0,1%
Norsk Hydro 399,0 t 0,8%
Bergesen B 173,0 - 0,0%
Hafslund B 39,8 - 0,0%
KvaernerA 443,5 J 0,3%
Saga Petroleum B.... 128,0 t 1,6%
OrklaB 497,0 t 1,4%
Elkem 143,5 J 1,4%
STOKKHÓLMUR
Stokkholm Index .... 2985,9 J 0.4%
Astra AB 144,0 J 0,7%
Electrolux 575,0 i 0,9%
EricsonTelefon 114,5 i 7,7%
ABBABA 108,5 1 1,4%
Sandvik A 48,0 J 1,0%
VolvoA25SEK 59,5 t 0,8%
Svensk Handelsb... 73,0 t 8,1%
Stora Kopparberg... 125,0 J 2,3%
Verð allra markaða er í dollurum. VERÐ: Verð
hluts klukkan 16.00 í gœr. HREYFING: Verð-
breyting frá deginum áður.
Heimild: DowJones
Mesta hækkun í Lond
on á einum degi í 5ár
FTSE 100 vísitalan í London hafði
í gær ekki hækkað um eins marga
punkta á einum degi í fimm ár.
Hækkunin kemur verðbréfasölum
og sérfræðingum á óvart, því að
fjárlagafrumvarp er í burðarliðnum
og varúðar hefur verið gætt í
nokkrar vikur. FTSE 100 mældist
við lokun 4728,3 punktar, sem var
123,7 punkta eða 2,69% hækkun.
í Frankfurt varð ný methækkun.
Mest bar á verðhækkun bréfa í
efnafyrirtækjum, sem eru háð út-
flutningi og hagnast á styrk dollar
sem seldist á 1,74 mörk. DAX-30
mældist við lokun 3819,85 punktar
og hafði hækkað um 34,08 punkta
eða 0,90%. í tölvuviðskiptum eftir
lokun mældist IBIS DAX vísitalan
3834,84 punktar og hafði hækkað
um 67,95 punkta eða 1,80%. í
París héldu hlutabréf áfram að
hækka síðdegis eftir góða byrjun
í Wall Street vegna hagstæðra
bandarískra hagtalna og nýtt met
varð á lokaverði. CAC-40 vísitalan
mældist við lokun 2944,04 punktar
og hafði hækkað um 85,78 punkta
eða 3%. í Zúrich hækkuðu hluta-
bréf á ný eftir rúmlega 1% tap á
mánudag. Svissneska markaðsvís-
italan mældist við lokun 5654,8
punktar, sem var 34,2 punkta eða
0,61 % hækkun. í Mílanó náð hluta-
bréf sér á strik síðdegis vegna
hinnar góðu byrjunar í Wall Street
og sterks dollars eins og annars
staðar. Mibtel-vísitalan mældist
við lokun 13477 punktar, sem var
295 punkta eða 2,24% hækkun.
AEX-vísitalan í Amsterdam mæld-
ist 871,31 punktar og hækkaði um
9,76 punkta eða 1,13%.
BJORN RAGNAR
EGILSSON
+Björn Ragnar
Egilsson fædd-
ist í Reykjavík 16.
október 1926 og
ólst þar upp. Hann
lést i Landspítalan-
um 25. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Jórunn
Jónsdóttir, húsmóð-
ir, f. 25.8. 1888, d.
15.2. 1962, og Egill
J.P. Jónasson, sjó-
maður, f. 27.2.
1888, d. 27.7. 1953.
Eignuðust þau sam-
an tvo syni sem báð-
ir eru nú látnir, Sverri, f. 1925,
og Björn, f. 1926. Þau ólu einn-
ig upp Ragnar Björnsson, f.
1934. Þá átti Egill fyrir soninn
Albert er fórst ungur á sjó.
Eiginkona Björns
var Jóhanna Rósa
Magnúsdóttir, f. 2.3.
1926, d. 6.9. 1977.
Saman áttu þau son-
inn Egil Jón, f. 1.4.
1969. Þá gekk Bjöm
í föðurstað börnum
Jóhönnu, Guðríði, f.
1947, og Magnúsi,
f. 1950.
Bjöm starfaði
lengst af sem bif-
reiðasljóri, en síð- <f"
ast sem húsvörður
í Hlíðaskóla i
Reykjavík.
Útför Björns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13:30. Jarð-
sett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Olíuverð á Rotterdam-markaði (NWE) frá 1. apríl
3ENSÍN (95), dollarar/tonn
/v\ ,.w 1 .JL/ 1 185,0
160-j
april ' maí ' júní
„Menntun for-
senda framfara“
DAGANA 20.-722. júní hélt Kvenfé-
lagasamband íslands landsþing sitt
á Akureyri. Yfírskrift þingsins var
„Menntun forsenda framfara".
Fundinn sóttu 150 fulltrúar víðs
vegar að af landinu enda er Kvenfé-
lagasambandið_ stærstu heildarsam-
tök kvenna á íslandi.
„Á þinginu voru menntamál í
brennidepli og var ákveðið að Kven-
félagasamband Islands myndi á
næstunni halda málþing um mennt-
un og símenntun. Símenntun er
hugtak sem hefur verið mikið til
umræðu að undanfömu og hefur
KÍ ásamt Bændasamtökunum og
Ungmennafélagi íslands nýlega
stofnað Fræðslusambandið Símennt
sem ætlað er að vekja umræðu um
mikilvægi símenntunar og standa
fyrir námskeiðum um efnið.
Á þinginu var Drífa Hjartardóttir
endurkjörinn forseti KÍ til næstu
þriggja ára. Nýr gjaldkeri var kjör-
inn Jónína Steingrímsdóttir.
Fjöldi ályktana var samþykktar á
þinginu og eru þessar þær helstu:
31. landsþing Kvenfélagasam-
bands íslands haldið á Akureyri
dagana 20.-22. júní hvetur konur
um land allt til virkrar þátttöku í
sveitarstjórnarkosningum vorið
1998. Einnig hvetur landsþingið
konur til að bjóða sig fram til sveit-
arstjórna og tryggja þannig hlut
kvenna á framboðslistum um land
allt. 31. landsþing Kvenfélagasam-
bands íslands haldið á Akureyri
dagana 20.-22. júní hvetur heil-
brigðisráðherra til að beita sér fyrir
því að feðrum verði trj'ggður sjálf-
stæður réttur til fæðingarorlofs.
Greinargerð:
Á undanfömum árum hefur verið
rætt um mikilvægi þess að karlar
sinni börnum og fjölskyldu til jafns
við konur. Einn liður í því er að
karlar fái fæðingarorlof á sama hátt
og konur. Á það hefur einnig verið
bent að atvinnurekendur eru margir
hveijir ófúsir að ráða konur á bam-
eignaraldri í vinnu vegna þeirrar
„áhættu“ sem í því felst. Ef karlar
tækju fæðingarorlof til jafns við
konur verða bæði kynin jafn
„áhættusamt" vinnuafl. Sjálfstæður
réttur karla til fæðingarorlofs er því
mikilvægur þáttur í baráttunni fyrir
jafnrétti karla og kvenna.
31. landsþing Kvenfélagasam-
bands íslands haldið á Akureyri
dagana 20.-22. júní samþykkir að
beina því til fjármálaráðherra að
tryggja að kvenfélög alls staðar á
landinu njóti sömu undanþágu frá
greiðslu virðisaukaskatts af góð-
gerðarstarfsemi og kveðið er á um
í reglugerð nr. 564/1989, um und-
anþágu á virðisaukaskatti vegna
góðgerðarstarfsemi, sbr. lög nr.
55/1997,“ segir í fréttatilkynningu.
Okkur hjónin iangar með nokkr-
um orðum að kveðja vin okkar,
Björn Egilsson. Við kynntumst
Birni fyrst í gegnum Hjört heitinn,
eiginmann Þóreyjar, móður og
tengdamóður okkar. En Hjörtur og
Björn voru miklir vinir og félagar.
í veikindum Hjartar reyndist hann
Þóreyju og fjölskyldu okkar mjög
vel. Ef einhvem í fjölskyldunni
vantaði eitthvað eða var í vand-
ræðum með eitthvað var Björn
alltaf boðinn og búinn til að að-
stoða.
Hvenær sem fjölskyldurnar
komu saman hvort sem það var
afmæli, jóla- og áramótaboð eða
ferðalög var Björn alltaf ómissandi
félagi.
Seinustu mánuði átti Björn við
nokkra vanheilsu að stríða sem
ekki virtist þó alvarlegs eðlis.
Við áttum því láni að fagna að
starfa með Birni sem var góður
verkstjóri og vel liðinn af starfs-
fólki. Marga góða vini höfum við
átt um ævina en nú er einn af
okkar bestu vinum horfinn yfir
móðuna miklu.
Elsku Bjössi, okkur tekur það
sárt að hugsa um það að nú sértu
farinn frá okkur. Hver hefði trúað
því þegar þú komst 17. júní að
borða með okkur eftir ánægjulegan
dag, að nokkrum dögum seinna
værir þú farinn frá okkur. Þú sem
varst alltaf brosandi, svo hress og
kátur og tókst okkur alltaf opnum
örmum.
Sonur okkar, Jón Rúnar, hafði
við þig góð samskipti 0g voru
margar stundir sem þið áttum sam-
an. Við viljum þakka þér fyrir þá
miklu aðstoð sem þú veittir í brúð-
kaupi dóttur okkar, Þóreyjar, sl.
sumar.
Núna fáum við ekki lengur að
hlusta á skemmtilegu sögurnar þín-
ar sem þú sagðir okkur með þinni
miklu frásagnargleði. Næstu jól og
áramót verða tómleg án þín. Þú
verður ávallt í huga okkar.
Við biðjum Guð að styrkja fjöl-
skyldu þína í þessari miklu sorg.
Jón og Rúna.
Þó að kali heitur hver,
hylji daii jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Elsku Bjössi minn.
Ég rita þessi orð með miklum
söknuði. Ég sá þig í hinsta sinn
kvöldið áður en ég lagði í þessa
stóru ferð. Þú varst glaður og ekk-
ert virtist vera að.
Það var miðvikudaginn 25. júní
sem hún amma mín hringdi og
sagði mér að þú hefðir látist um
morguninn. Og nú þegar þú hefur
lagt upp í þína hinstu ferð, streyma
fram í huga mér allar yndislegu
minningarnar sem eru mér svo
dýrmætar. Það var svo gott að tala
við þig, því að þú kunnir að hlusta.
Og allar þær kvöldstundir sem við'
borðuðum saman og fórum í bíltúr
með ömmu. Alltaf varstu tilbúinn
að hjálpa mér án skilyrða, en baðst
sjálfur sjaldan um hjálp.
Elsku Bjössi, þú varst ekki mað-
ur sem flíkaðir tilfínningum þínum
eða líðan þinni, en ég fann alltaf
hversu vænt þér þótti um mig og
þá miklu hlýju sem streymdi frá
þér og ég vona að þú hafir fundið
hversu vænt mér þótti um þig. Ég
er þess fullviss að Guð tekur vel át
móti þér í ríki sínu, þar er örugg-"*”
lega þörf fyrir laghentan mann eins
og þig. Nú ertu farinn frá mér, en
minninguna um þig mun ég alltaf
geyma í hjarta mínu.
Elsku amma mín, nú hefur þú
misst traustan félaga og ég vona
að góður Guð styrki þig í sorg þinni.
Þórey Gísladóttir.
Minningar vakna á kveðjustund,
góðar minningar frá unglingsárun-
um er mamma kynntist þér. Þú
komst inn í líf okkar haustið ’64.
Kvíði læddist að mér að karlmaður
kæmi á heimilið, en sá kvíði var
ástæðulaus þú komst sem „ferskur
andblær", svo glaður, kátur með
eindæmum, skiptir aldrei skapi og
tókst okkur systkinunum sem jafn-
ingjum. Þá man ég þegar ég var
17 ára með nýtt bílpróf, lyklarnir
að bílnum þínum lágu á borðinu,
notaðu bílinn þegar þú þarft, sagð-
irðu, þetta var traust, traust sem
maður reyndi að standa undir.
Svona mætti lengi telja.
Þegar börnin mín, Jóhanna Arn-
dís og Björn Magnús, voru að vaxa
úr grasi fannst þér ekkert of gott
fyrir þau. Þá átti Jóhanna alltaf
sérstakan sess í hjarta þínu og var
það vissulega gagnkvæmt. Yngsti
sonur minn, Yngvi, naut eins og
þau eldri af góðmennsku og hjarta-',•
hlýju þinni. Þetta og margt annað
viljum við þakka þér.
Björn og móðir mín giftust 29.
des. 1966. Eignuðust þau soninn
Egil Jón og er hann í sambúð með
Birnu K. Omarsdóttur. Móðir mín
lést í september 1977. Hélt Björn
heimili fyrir Egil upp frá því.
Elsku Bubbi, ég og fjölskyldan
mín þökkum samfylgdina og biðj-
um góðan guð að vaka yfir þínum
sem eiga um sárt að binda. Guð
veri með þér.
Guðríður Guðbjartsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskitegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld I úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
I bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðaliínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunumv-