Morgunblaðið - 02.07.1997, Síða 38
—38 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
OLAFUR VALGEIR
EINARSSON
+ Ólafur Valgeir
Einarsson, sjáv-
arútvegsfræðingur,
fæddist í Reykjavík
3. júní 1952 og ólst
þar upp. Hann lést
í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 22.
júní síðastliðinn eft-
ir stutta legu.
Foreldrar _ hans
eru hjónin Ásgerð-
ur Olafsdóttir, f.
1933, og Einar Eg-
ilsson, f. 1930. Ás-
gerður er frá Bæ í
Lóni og er af skaft-
fellskum ættum, en
Einar er frá Norður-Flankastöð-
um í Miðneshreppi og er af
skaftfellskum og rangæskum
ættum. Þau stofnuðu heimili í
Reykjavík 1951 og bjuggu þar
til ársins 1971 er þau fluttu með
fjölskyldu sína til Kópavogs og
hafa þau verið búsett þar síðan.
Ólafur var elstur fimm systk-
ina, sem öll lifa bróður sinn. Þau
eru: Þórunn, f. 1953, Sigurður
Egill, f. 1955, Birgir, f. 1956,
og Egill, f. 1963.
Ólafi varð fjögurra barna
auðið. Dótturina Jónu Vaidísi
eignaðist hann árið 1974. Móðir
hennar er Anna Kristín Hall-
dórsdóttir, f. 1952v
Fyrri eiginkona Ólafs var Sig-
ríður Br. Sigurðardóttir, f. 1951.
Saman eignuðust þau
dæturnar Ásgerði, f.
1979, og Valgerði, f.
1982. Fyrir átti Sigríð-
ur synina Ásgeir, f.
1968, og Róbert, f.
1972. Gekk Ólafur
þeim bræðrum í föður-
stað.
Eftirlifandi eigin-
kona Ólafs er Ásdís
Einarsdóttir, frá Læk
í Leirársveit, f. 1952,
sérkennari við Vest-
urhlíðarskóla. Saman
eignuðust þau soninn
Vilþjálm, f. 1988. Son-
ur Ásdísar af fyrra
hjónabandi og fóstursonur Ólafs
er Einar Örn, f. 1978.
Ólafur lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
árið 1968 og settist síðan í
Menntaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan stúdentsprófi 1972.
Ólafur tók fyrsta árs almennt
raungreinanám við University of
Aberdeen 1973-74 en árið 1977
fluttist hann til Tromsö í Noregi
og hóf þar nám. Árið 1983 lauk
hann M.Sc.-gráðu í sjávarútvegs-
fræðum frá Universitiet í Tromso.
Hann var aðstoðarmaður á Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins og
Hafrannsóknastofnun 1972-77.
Vann við skipulagsmál í sjávar-
útvegi á Hafrannsóknastofnun og
var leiðbeinandi við Universitiet i
Tromsö 1977-83. Við heimkom-
una frá Noregi 1983 gerðist hann
fyrsti útibússtjóri _ Hafrann-
sóknastofnunar í Ólafsvík og
gegndi því starfi til 1988. Á miðju
ári 1988 réð Ólafur sig til Þróun-
arsamvinnustofnunar íslands og
fluttist búferlum til Malawi í
Afríku. Þar var hann ráðgjafi í
fiskimálum í tæp þrjú ár. Kom
hann þá heim og starfaði á Ha-
frannsóknastofnun sem sérfræð-
ingur og verkefnisstjóri um eins
árs skeið. Ólafur réðst aftur til
starfa hjá Þróunarsamvinnu-
stofnun og flutti öðru sinni til
Afríku árið 1992. Starfaði hann
síðan sem ráðgjafi í fiskimálum
hjá namibísku ríkisstjórninni
með aðsetur í Windhoek, höfuð-
borg Namibíu. Starfi Ólafs
fylgdu mikil ferðalög um SADC
ríkin og var hann einmitt stadd-
ur í Tanzaníu er hann veiktist
hastarlega í maí síðastliðnum.
Ólafur var alla tíð mikill
áhugamaður um íþróttir og var
liðtækur íþróttamaður á sínum
yngri árum. Einkum beindi
hann kröftum sínum að sund-
íþróttinni. Æfði hann sund árum
saman og fór nokkrar keppnis-
ferðir utan á vegum sundfélags-
ins Ægis.
Þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á Minningarsjóð
Ólafs Valgeirs, sparireikningur
14-601510 í íslandsbanka, Lækj-
argötu (0513) en fé úr þeim sjóði
mun renna til styrktar bág-
stöddum í Namibíu.
Útför Ólafs fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15. Jarðsett verður í
Fossvogskirkjugarði.
Elsku besti pabbi minn. Nú ertu
farinn frá mér og ég vil ekki trúa
því. Þetta skeði svo snöggt og ég
►.'ar alls ekki tilbúin fyrir þetta. Ég
bara beið eftir að taka þig með mér
í bíltúr á nýja bílnum mínum. Mér
þykir svo sárt að hafa ekki getað
kvatt þig almennilega, a.m.k. tekið
utan um þig og Iátið þig vita að
mér þótti svo vænt um þig eða bara
haldið í höndina á þér. Elsku pabbi,
það var svo margt sem ég átti eftir
að segja þér og ég sakna þín svo
sárt. Það eina sem ég hef núna eru
myndir og æðislegar minningar.
Þegar ég hugsa um þig ertu alltaf
brosandi og í góðu skapi. Það var
alltaf svo gaman að tala við þig og
þú gast alltaf hjálpað manni með
allt. Skemmtilegast af öllu var að
fara með þér í ferðalög. Þú vissir
alltaf allt um alla staði og manni
leiddist aldrei, en nú ertu ekki hér
lengur til að rifja upp fyrir mér allt
það sem ég hef gleymt. En það er
eitt fjall sem ég mun aldrei gleyma
og það er Eldborg á Mýrum. Elsku
pabbi, þótt þú sért farinn og þó þetta
sé svona ofboðslega sárt veit ég að
þú átt eftir að vera hjá mér og fylgj-
ast með mér.
Ég sakna þín og ég elska þig.
Ég leitaði blárra blóma
að binda þér dálítinn sveig,
en fölleit kom nóttin og frostið kalt
á fegurstu blöðin hneig.
Og ég gat ei handsamað heldur
þá hljóma, sem flögruðu um mig,
því það voru allt saman orðlausir draumar
um ástina, vorið og þig.
(T. Guðmundsson.)
Þín dóttir,
Ásgerður.
Elsku pabbi.
Það sem mér fannst verst við lát
þitt er það að ég gat ekki kvatt þig,
ég gat ekki tekið utan um þig og
kysst þig og sagt þér hvað mér
þætti vænt um þig og mér líður illa
útaf því hvað ég var lítið með þér
þegar þú varst á íslandi. Nú í dag
skil ég hvað mér þykir óendanlega
vænt um þig og ég vona að þú leyf-
ir Guði að taka þig inn í sitt himna-
ríki. Ég mun aldrei gleyma þér,
pabbi, því hjá mér er andi þinn og
ég vona að börnin mín, barnabörnin
mín og barnabarnabörnin mín eigi
eftir að líkjast þér í útliti og innri
manni.
Mundu pabbi, ég mun ávallt elska
þig-
Mig styrk í stríði nauða
æ, styrk þú mig í dauða
þitt lífsins.ljósið bjarta
þá ljómi í mínu hjarta.
(P. Jónsson.)
Hvíl þú í friði.
Þín dóttir,
Valgerður Ólafsdóttir.
„Mjög erum trekt tungu að
hræra,“ kvað Egill Skalla-Grímsson
í harmi sínum. Mér er líkt innan
bijósts í dag, þegar ég sest niður
að skrifa nokkur orð um vin minn,
Ólaf Valgeir Einarsson. Hann minnti
um margt á Egil, heljarmenni í flestu
og traustur vinur, einn sá besti sem
ég hef átt.
Við kynntumst fyrir 33 árum í
12 ára bekk í Austurbæjarskóla. Ég
var nýr í bekknum, 12 ára D, fyrir-
myndarbekk, fluttur þangað af ein-
hverri óskiljanlegri heppni úr mun
vafasamari bekk. Fyrst ætlaði hann
að beija mig fyrir einhveijar gamlar
óuppgerðar sakir af fótboltavellin-
um, en fannst svo ekki taka því.
Ég var lítill en kjaftfor, en hann
stærstur og sterkastur, og lét verkin
tala. í staðinn urðum við vinir fyrir
lífstíð og hefur aldrei borið skugga
á. Þótt síðar yrði það svo að langt
gæti liðið á milli þess við hittumst,
var þráðurinn tekinn upp eins og við
hefðum skilið daginn áður. Það má
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
ÁRNI MARGEIRSSON,
Miðgarði 1a,
Egilsstöðum,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugar-
daginn 5. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélag Fljótsdalshéraðs og
Borgarfjarðar eystri, reiknnr. 0305-26-1990.
Anna Ingólfsdóttir,
Ásthildur Árnadóttir,
Erla María Árnadóttir,
Una Árnadóttir,
Ásthiidur Árnadóttir,
Erla María Sveinbjörnsdóttir,
Ragnhildur Margeirsdóttir,
Ásgeir Margeirsson,
Veigar Margeirsson,
Hafsteinn B. Hafsteinsson,
Sveinbjörg Einarsdóttir,
Sigríður R. Jónasdóttir
og systkinabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín,
BRYNHILDUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar-
daginn 5. júlí kl. 13.30.
Magnús Eiríksson.
segja að það hafí einkennt ævi Óla
að vera þeim minnimáttar hliðhollur
ef hann gat. Það var annars sama
hvar Óli bar niður, hann gat allt.
Hann var alltaf efstur í bekknum
og bestur í íþróttum. Um árabil átti
hann held ég flest met í sínum ald-
ursflokki í hinum ólíku sundgreinum.
Ekki hafði hann meira fyrir bolta-
íþróttum og hefði komist þar langt,
hefði hann viljað, en hann sagði mér
stundum að hópíþróttir ættu ekki
við sig. Hann vildi fremur synda,
þar var hann einn og stóð eða féll
á eigin getu og gerðum. Þannig var
Ólafur. Vinátta okkar þótti sumum
undarleg, hann, dúxinn, stór eins
og björn og grófgerður, en allra vin-
ur. Ég lítill, nettur og oftast til vand-
ræða. En við vorum bræður í andan-
um.
Þó að okkur stæði hvorki mennta-
fólk né ríkidæmi var alltaf ljóst
vegna námshæfni Óla að hann ætl-
aði að læra eitthvað mikið, en gagn-
legt. Að umgangast einhvern jafnm-
ikið og við gerðum hefur áhrif á
menn. Það má segja að sá staðfasti
ásetningur Óla að menntast hafi
smitað mig enda átti síðan fyrir
okkur báðum að liggja að fara í lang-
skólanám, og mitt jafnvel heldur
lengra. Átti Ölafur vinur minn ekki
minnstan þátt í því. Óli lærði m.a.
sjávarútvegsfræði í Noregi. Varð
hann síðan m.a. útibústjóri Hafrann-
sóknastofnunar í Ólafsvík. Áhugi
hans og greind gerðu hann að öflug-
um starfsmanni. Síðar átti ég eftir
að vinna við Breiðafjörð. Voru mér
þá sagðar margar sögur af Óla og
mun hann m.a. eiga stóran þátt í
að nú er þar nytjað sjávarfang, sem
enginn leit við áður. Óli var sífellt
að vinna að einhveiju sem komið
gæti að gagni. Mat hann veraldlegan
auð fyrir sig lítils. Hafði ég oft á
orði hvort ekki væri nær fyrir hann
að taka að sér eitthvað arðbærara,
en hann sagði þá að það kæmi
seinna, því það sem nú væri verið
að eiga við væri svo spennandi, og
gæti orðið hinni eða þessari starf-
semi til framdráttar.
Óli hóf störf hjá Þróunarsam-
vinnustofnun íslands 1988. Fór hann
sem starfsmaður hennar til Afríku,
fyrst Malawi og síðar Namibíu.
Starfaði hann þar að mestu sem
hann átti ólifað. Það er nú einu sinni
svo að ekki er öllum gefið að starfa
á þessu heimssvæði. Mér er til efs
að nokkur maður hafi jafn vel pass-
að í það starf sem Óli. Vinnuþjark-
ur, greindur og gríðarlega áhuga-
samur. Ekki síst hvers manns hug-
ljúfi. Engan greinarmun gerði hann
á innfæddum og öðrum._ Snobb og
hroka þekkti hann ekki. Ég og kona
mín áttum þess kost að heimsækja
hann og konu hans fyrir nokkrum
árum og ég var síðan samferða hon-
um í hans síðustu för frá Afríku.
Var augljóst á viðmóti allra og um-
tali um hann að hann var virtur og
dáður af þeim sem umgengust hann.
Óli elskaði Afríku með öllum
hennar kostum og göllum. Hann
þreyttist ekki á að lýsa dásemdum
þessarar undarlegu álfu, náttúrunni,
tækifærunum og ekki síst hinum
margbreytilegu íbúum hennar. Ég
held að Áfríka hafi elskað hann líka.
Innfæddir, sem ég hitti og þekktu
hann, töluðu alltaf með virðingu og
væntumþykju um „Mr. Einarsson".
Mér hefur skilist að ýmsir samstarfs-
menn hans, innfæddir, eigi frama
sinn honum að þakka. Hann þjálfaði
þá til verka og síðan fengu þeir betri
stöðu. Starfsfólk hans leit á hann
sem föður og kom með flest sín
vandamál, stór og smá til úriausnar
tii hans eða Ásdísar. M.a. mun hann
hafa sent suma til mennta á sinn
kostnað. Hefur Ásdís kona hans
stofnað sjóð til að halda því áfram
og er það í hans anda. Þannig var
hann og mun ég ávallt minnast hans
er ég heyri góðs manns getið.
Ég sakna þín nú þegar, kæri vin-
ur. Aldrei framar mun bjarnarfaðm-
lag þitt og glaðhlakkalegur hláturinn
fagna mér þegar við hittumst. Við
munum ekki framar, í þessu lífi, sitja
á bökkum Malawivatns, með gin og
tonic, og horfa á mánann speglast
í vatninu þínu og hlusta á seiðmögn-
uð hijóð hinnar svörtu álfu. Ég kveð
þig nú hinsta sinni, vinur minn.
Kannski hittumst við hinum megin
hressir og förum í fótbolta, tökum
eina skák eða bara gleðjum oss.
„Far vel, bróðir og vinur“.
Ásdís mín, megi guð og allar góð-
ar vættir styðja þig og styrkja. Þú
ert hetja, Vilhjálmur.
Jóna Valdís, Valgerður og Ás-
gerður, guð veri með ykkur. Ekkert
fær því breytt að hann pabbi ykkar
var góður maður, sá besti sem ég
hef þekkt.
Foreldrum, systkinum, Einari Erni
og öðrum aðstandendum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðbrandur Elling.
m
m
Það var okkur á Hafrannsókna-
stofnuninni þungbær raun að heyra
af fráfalli okkar góða vinar og
starfsfélaga, Óiafs Valgeirs Einars-
sonar. Þegar vip fréttum fyrir
nokkru síðan að Óiafur félagi okk-
ar, sem um árabil hefur verið við
störf í sunnanverðri Afríku, hefði
veikst af illvígum hitabeltissjúk-
dómi, trúðu allir og vonuðu að því-
líkt hraustmennni sem Ólafur var
myndi brátt vinna bug á meini sínu.
En raunin varð því miður önnur og
í blóma lífsins var þessi þrekmikli
og glaðværi maður burtu kallaður
úr þessum heimi.
Ólafur tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1972. Hann vann fyrst sem aðstoð-
armaður á Rannsóknastofnun Fisk-
iðnaðarinns og á Hafrannsókna-
stofnun. Seinna stundaði hann nám
í sjávarútvegsfræðum við háskótann
í Tromsö í Noregi. Að því námi
loknu, árið 1983, hóf hann aftur
störf á Hafrannsóknastofnuninni
þegar hann réðst til Ólafsvíkur sem
forstöðumaður útibús Hafrann-
sóknastofnunarinnar, þar sem hann
starfaði við góðan orðstír til ársins
1988. Það sem strax vakti athygli
í fari Ólafs var sá iífskraftur og glað-
værð sem alla tíð einkenndi hann.
Ólafur var einnig mikill verkmaður.
Auk mikils dugnaðar við vinnu kom
fljótt í ljós að hann hafði hæfileika
til að vinna með fólki, var ráðagóður
og hafði mikla skipulagshæfileika. í
margskonar rannsóknaleiðöngrum
Hafrannsóknastofnunar á sjó er þörf
á rösku fólki sem vel kann til verka,
til að framkvæma það sem gera
þarf, jafnt á sumri sem vetri, í slæm-
um veðrum sem blíðum. Vart er
hallað á nokkurn mann þótt fullyrt
sé að á þessu sviði hafi Ólafur verið
í sérflokki. Haft var á orði hér á
stofnuninni að þá væri vel mannaður
leiðangur þegar hann var með.
Ólafur var ekki aðeins stór maður
vexti heldur einnig í hugsun og hug-
ur hans stefndi lengra og að fleiri
verkefnum en svigrúmið við útibúið
gaf tilefni til. Hann sótti um starf
hjá Þróunarsamvinnustofnun íslands
og hélt síðan til Afríku á þeirra veg-
um. í Afríku gengdi Ólafur miklivæg-
um stjórnunar- og ráðgjafastörfum
sem fulltrúi Norðurlandanna hjá Þró-
unarsambandi ríkja í sunnanverðri
Afríku (Southern African Develop-
ment Community: SADC). Löndin
sem standa að þessu þróunarsam-
bandi, eru kölluð SADC-ríkin. Þessi
lönd, Angola, Botswana, Lesotho,
Malawi, Mozambique, Namibia,
Swaziland, Tanzania, Zambia og
Zimbabwe, ná til samans yfir mun
stærra svæði en öll Vestur-Evrópa.
Starf Ólafs var viðamikið. Hann
skipulagði og kom á framfæri sam-
starfsverkefnum á sviði fiskveiða og
verkefnum sem þeim tengdust. Sem
fulltrúi Norðurlandanna tók hann
þátt í fjölmörgum fundum í öllum
SADC-ríkjunum. Fyrstu árin bjó
hann í Malawi, þar sem var aðsetur
þróunarmiðstöðvar fiskveiðimála
fyrir SADC-ríkin. Seinna þegar
Namibia varð sjálfstæð voru höfuð-
stöðvar samstarfsverkefna um sjáv-
arútveg fluttar þangað. Ólafur varð
því meðal fyrstu ráðgjafa miðstöðvar
sem stýrði samstarfi Norðurland-
anna og SADC-ríkjanna í verkefnum
sem lutu að sjávarútvegi og markaði
mjög stefnu Norðurlandanna á þessu
sviði. Starf Ólafs var krefjandi og
vandasamt. Stór hluti af starfi hans
var fólginn í ferðalögum vegna
funda, ráðstefna og eftirlits en víð-
átta starfsumdæmisins gerði þann
hluta starfsins mjög erfiðan. Ferða-
lög á þessum slóðum eru ekki aðeins
erfið vegna fjarlægða heldur geta
þau einnig verið hættuleg. Slysa-
l
i
0
]
0
i
i
-J
*
ð
í
4
4
4
_r