Morgunblaðið - 02.07.1997, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
»TTU VIP4P VIV UVTJUM OkttM?
»VFIR. í ADKA /VIVNOASÖQU.?^
O --'\XN/V^s^V *.
/a«l34 ÞAN6AI)
i'lP It«.ihalwin6í; sUa
J?*a P’AVfa m-i
f»ETTA ER FÁKAMLESr/JAFN-
VEL ÞÓ þAPSÉ l-APFÚ. í' PA&J
Tommi og Jenni
Smáfólk
50METIME5 I THINK ABOUT
MV BR0TMER5,ANPV ANP
m ac t i.iAiinci? i.iiiat
Kátur! Lubbi! Hvað eruð þið að gera
hérna?
Við yfirgáfum bóndabæinn ... við
vorum ekki hæfir ...
Við erum að leita að nýju heimili
... Við héldum að þið gætuð sagt
okkur hvar okkar líkar gætu
passað ...
Stundum hugsa ég um
bræður mína Kát og
Lubba ... hvað skyldu þeir
vera að gera núna?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Slmi 569 1100 • Símbréf 569 1329
BLOKK í Ljósheimum. Ónýtt RÁSUÐ einangrun. Takið eftir
múrkerfi eftir nokkur ár. Þjóð hvernig botnlistinn er látinn
sem vinnur svona nær aldrei skammta loftstreymi í gegnum
nokkurri framleiðni. Þetta er göt auk þess sem hann styrkir
ekki vitrænt. neðri kant einangrunar.
Ekki meir,
ekkimeir
Frá Magnúsi Þórðarsyni:
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
hver holskeflan eftir aðra gengið
yfir húseigendur og þeir skildir
eftir varnarlausir með sín vanda-
mál. Ekkert heyrist í þeim og virð-
ast þeir bara bíta á jaxlinn og taka
vitleysunni sem gefnum hlut. í
tuttugu ár, frá 1960 til 1980, var
framleidd hér ónýt steypa (með
söltu fylliefni). Síðan þá hafa þeir
staðið í ströngu við að iáta gera
við hús sín og þurft að kosta miklu
til og fengið allt í hausinn að
nokkrum árum liðnum.
Þá hefur verið gripið til þess
ráðs að klæða húsin að utan til
að hlífa þeim við ágangi hins sí-
breytilega veðurs sem er hér á
landi.
Loftræstar klæðningar eru
þannig að listar eru festir á vegg-
inn og einangrun þar á milli þeirra
og síðan kemur pappi og klæðning
sé hún sjálfloftræst svo sem málm-
klæðningar með kúlu eða trapisu-
bárum. Einnig eru til aðrar tegund-
ir málmklæðninga. Sé plötuklætt
eru notaðir loftunarlistar deildir
út eftir plötustærðum þannig að
loft leikur um plöturnar að innan.
Einnig hafa svokölluð múrkerfi
verið mikið notuð. Sú aðferð felst
í því að utan á vegginn er fest
einangrun ýmist steypt í mótin,
límd á eða borað í vegginn og
notaðar eru ákveðnar festingar
allt eftir því í hvaða kerfi er unnið.
I múrkerfum er farið niður fyrir
yfirborð lóðar og má segja að þar
hafi menn fundið upp eilífðarvélina
hvað varðar raka sem ekki kemst
út, sólin hitar vegginn, rakinn leit-
ar upp og svo koll af kolli, engin
loftræsting.
Annað sem gerir báðar þessar
aðferðir óhæfar er að engin loftun
er við húsvegginn en þar á sér
stað rakaþétting er hiti leitar út
um vegginn. Þessi raki kemst ekk-
ert og hleðst því upp og búast má
við að þessi hús verði dæmd „sjúk“
er fram líða stundir og er það leitt
því kostnaður á hveija íbúð hefur
farið yfír 1 milljón.
DRAINMOTTA. Þessi gatam-
otta leiðir allt vatn niður og
stuðlar einnig að því að einangr-
un leggst aldrei fast að vegg og
þess vegna loftar þar á milli.
Vestur í Ameríku hafa menn
notað múrkerfið í rúm 30 ár og
lent í mörgum skakkaföllum en
hafa nú eftir ítarlegar rannsóknir
komist að því að það þarf að loft-
ræsta og eða dreina bilið milli
veggs og einangrunar.
Ekki væri vanþörf á að loft-
ræsta ytrau byrðið í ímúr kerfinu
og hætta að grafa það í jörð.
I Ljósheimum (sjá mynd) er 9
hæða blokk með ónýtt múrkerfi
eftir aðeins 5-6 ár og er tjón upp
á marga tugi milljóna. Hvernig
væri að húseigendur tækju sig nú
saman og leituðu að þingmönnum
sínum og fengju þá til að veita fé
til ítarlegra rannsókna á öllum
þessum málum því svona getur
þetta ekki gengið. Það tekur hver
vitleysan við af annarri og staða
íbúðareigenda er slík að hann seg-
ir ekki meir, ekki meir.
MAGNÚSÞÓRÐARSON,
byggingameistari og matsmaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.