Morgunblaðið - 14.08.1997, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný júgóslavnesk fjölskylda til Isafjarðar
Fjölskyld-
an sam-
einast á ný
hér á landi
Morgunblaðið/Þorkell
NÝJA júgóslavneska fjöiskyldan á ísafirði, f.v. Leo, Elze, Zeljko
og Djordje Sankovic.
FJÖGURRA manna fjölskylda
hefur bæst í hóp flóttamannanna
frá fyrrum Júgóslavíu sem sest
hafa að á ísafirði. Konan á móður
og systur á ísafirði og þriðja syst-
irin er væntanleg til Hornafjarð-
ar. Maðurinn er knattspyrnuþjálf-
ari og er verið að athuga mögu-
leikana á að hann taki að sér
knattspyrnuþjálfunina á staðnum.
Zeljko og Elze Sankovic og syn-
ir þeirra, Leo sem er sautján ára
og Djordje 14 ára, komu til lands-
ins í síðustu viku. Komu þau frá
Kýpur þar sem Zeljko hafði um
tíma unnið við þjálfun knatt-
spyrnumanna en landvistarleyfi
þeirra var útrunnið og átti að
vísa þeim úr landi. Þau eru frá
Krajina-héraði, Serbar í Króatíu,
og sjá enga framtíð í því að snúa
heim, telja það raunar hættulegt.
Héraðið og sérstaklega heima-
borg þeirra, Knín, varð ákaflega
illa úti í átökum Króata og Serba
um yfirráð þess.
Móðir Elze, Andjeline Krickic,
og systir hennar, Vesna Schally,
voru í flóttamannahópnum sem
kom til ísafjarðar í fyrra og þess
vegna ákváðu þau að reyna að
komast til íslands. Þess má geta
að þriðja systirin er í hópi flótta-
mannanna sem væntanlegur er til
Hafnar í Hornafirði. Elza og
Zeljko fengu loforð um vinnu hjá
Básafelli hf. Að sögn Sigríðar
Hrannar Elíasdóttur, fyrrverandi
starfsmanns Rauða krossins á
Isafirði sem hefur aðstoðað Júgó-
slavana hér á landi, kemur fjöl-
skyldan ekki sem flóttamenn
heldur tU þess að vinna. Hins veg-
ar falli þau undir stefnu stjórn-
valda um að sameina fjölskyldur
og hafi þau hug á að setjast hér
að. Þau búa hjá móður Elzu.
Vill komast í þjálfun
Elza og Zeljko segjast hafa
mikinn áhuga á að búa á íslandi
enda líki þeim vel það sem af er.
Ekki sé möguleiki að snúa aftur
til Króatíu. Zeljko segist hafa
mikinn áhuga á að þjálfa knatt-
spyrnulið enda hafi hann ekki
unnið við annað en knattspyrnu
alla sína ævi. Hann hefur verið í
viðræðum við forystumenn ís-
firskra knattspyrnumanna. Einn
þeirra segir að mikill áhugi sé á
því að nýta þekkingu og reynslu
Zeljko Sankovic. Það geti hins
vegar tekið nokkurn tíma að fá
niðurstöðu í málið vegna þess að
við fleiri en eitt félag sé að eiga
og allt svæðið þyrfti að standa
að ráðningu hans sem þjálfara.
Zeljko var atvinnumaður i
knattspyrnu með ýmsum liðum í
Króatíu, m.a. unglingaliði Hajduk
í Split og unglingalandsliði Júgó-
slavíu í einu móti, með liðum í 2.
og 3. deild og með Tresnjevka í
Zagreb í 1. deild. Jafnframt þessu
menntaði hann sig sem knatt-
spyrnuþjálfari.
Hóf þjálfaraferilinn 1982 hjá
FC Dinara i heimaborg sinni, Knín,
og var jafnframt um tíma umdæm-
isleiðbeinandi hjá Knattspyrnu-
sambandi Króatíu. Hann var að-
stoðarþjálfari og þjálfari hjá ýms-
um liðum, m.a. hjá Hajduk í Split,
Dinamo í Zagreb og OFK Belgrad.
Á þessum árum þjálfaði hann
meðal annars nokkur ungmenni
sem nú eru atvinnumenn með
heimsfrægum félagsliðum og
landsliði Krótatíu og nægir þar
að nefna Davor Suker. Árið 1992
fór hann til Kýpur og var knatt-
spyrnuþjálfari í Limassol í þijú
ár. Hann segist hafa lent í útistöð-
um við félagið vegna þess að ekki
var staðið við samninga um
greiðslur og fleira og að lokum
hafi landvistarleyfi þeirra runnið
út.
Við rýmum fyrir nýjum haustvörum.
Stórlækkað verð á gardínuefnum og dúkum,
aðeins í nokkra daga.
m
RUMFATA’
2EEMEEK
Skeifunni 13 Reykjavfkurvegi 72 Holtagörðum Norðurtanga3 ^
108Reykjavík 220 Hafnarfjörður v/Holtaveg 600 Akureyri H
104 Roykjavík w
Risalaxi sleppt
aftur í Vatnsdalsá
RISALAX veiddist í Vatnsdalsá
fyrir fáum dögum, en var sleppt
án þess að fara á vigt. Pétur Pét-
ursson leigutaki árinnar sagði að
tveir útlendingar hafi verið saman
við veiðar og drekinn hafi tekið
fluguna hjá öðrum þeirra í Hunda-
hyi sem er á efsta svæði árinnar.
„Þetta var klukkustundarlöng
glíma og þegar það átti að háfa
laxinn reyndist það ógerlegt, fisk-
urinn var of stór. Þá brugðu þeir
á það ráð að leggja háfskaftið við
laxinn þar sem þeir héldu fisk-
inum á grunnu vatni. Við erum
með sentimetramál á háfsköftun-
um hérna og karlarnir fullyrtu að
laxinn hefði verið 120 sentímetr-
ar,“ sagði Pétur.
Að mælingu lokinni var laxin-
um, sem var hængur, sleppt aftur
í ána. Erfitt er að ætla hversu
þungur lax þessi er. Til saman-
burðar má geta þess, að metra-
löngu laxarnir eru taldir um 20
pund og 105-107 sentímetra fisk-
arnir 23-24 punda. Lax sem Breti
nokkur veiddi í Hafralónsá í fyrra
og var mældur 113 sentímetrar
var talinn á bilinu 26-28 pund.
Samkvæmt því má fullyrða að
þessi lax hafi ekki vegið undir 30
pundum og líklegra að hann hafí
jafnvel verið heldur meira.
Að öðru leyti lét Pétur vel af
veiðiskap í Vatnsdalsá, „það er
allt í góðum gír hérna og við erum
komnir með um 500 laxa á land.
Það er gott fyrir þá sem koma í
september að vita, að 80% af þess-
um laxi eru enn sprelllifandi í
ánni,“ bætti Pétur við.
Vesturdalsá betri en í fyrra
Nú fyrir skemmstu voru komn-
ir 153 laxar á land úr Vesturdalsá
að sögn Lárusar Gunnsteinssonar.
Bleikjuveiði hefur einnig verið góð
og fiskur vænni en í fyrra. „Holl-
in hafa verið að fá þetta frá 6
löxum upp í 30 stykki, allir eitt-
hvað og alltaf silungur með,“
sagði Lárus og bætti við að þetta
væri betra en á sama tíma í fyrra
og nýr Iax væri að ganga nokkuð
um þessar mundir.
Glæðist í Hítará
Veiði hefur heldur glæðst í
Hítará að undanförnu og í gær-
morgun voru komnir 125 laxar á
land og 260 vænar sjóbleikjur.
Þá hafa laxar verið að veiðast á
Morgunblaðið/Stefán Á. Magnússon
RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir
með 15 punda hæng sem
hún veiddi á maðk í Hol-
unni í Sandá fyrir fáum
dögum. Þetta var annar
tveggja stærstu laxanna úr
ánni í sumar.
svæðinu „Hítará 2“ að undan-
förnu og þar eru nú komnir 15
laxar á land sem flestir hafa veiðst
síðustu tvær vikurnar. Þokkaleg
silungsveiði er einnig í bland.
Reytist úr Sandá
Síðasta holl í Sandá fékk 14
laxa og voru þá komnir 70 laxar
á land úr ánni, mest vænir smá-
laxar. Stærstu laxarnir í sumar
eru tveir 15 punda. Kunnugirtelja
reyting af laxi víða í ánni, þó
mest í efsta hluta hennar. Smálax
hefur aðeins verið að ganga að
undanförnu.
Úr ýmsum áttum
Um 160 laxar eru komnir á
Iand úr Gljúfurá. Flest holl eru
að reyta upp 7-15 iaxa og er
veiðin mest í ofanverðri ánni. Þar
er víða talsvert af laxi.
í vikubyijun var búið að skrá
7 laxa í veiðibókina að Laugar-
bökkum í Ölfusá. Eitthvað hefur
veiðst af sjóbirtingi.
Bleikjuveiði gengur prýðilega í
Miðá í Dölum og eru komnar á
þriðja hundrað bleikjur á land.
Laxinn er tregari, aðeins 7 hafa
veiðst.
GRENSÁSVEGUR 14
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til sölu 436 fm
skrifstofuhúsnseði ó 2. hæð.
Margvíslegir nýtingar-
möguleikar.
Frábær staðsetning með tilliti til
almenningssamgangna o.fl.
Hagstæð áhvílandi lán
ca. 10 millj. Verð 1 5,8 milli.
Fasteignasalan Kjörbýli
Nýbýlavegi 14,
Kópavogi,
sími 564 1400,
fax 554 3307.