Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
LAIMDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
rétta mynd af byggingarlagi húss-
ins. Telja þau þó að skálinn sé tví-
mælalaust frá víkingaöld og geti
því verið bær Eiríks rauða. Náðu
þau viðarkolasýnum sem send verða
í aldursgreiningu. Guðmundur og
Ragnheiður leggja til að öll tóttin
verði grafin upp til þess að rétt
grunnmynd fáist af húsinu þar sem
fyrri teikningar hafi reynst óná-
kvæmar. Eins væri von til þess að
mannvistarleifar gætu leynst fyrir
utan húsið, á stöðum sem ekki voru
grafnir upp í fyrri rannsóknum.
Eiríksstaðanefnd leggur til að
leiðin úr Haukadal, út Skógarströnd
og út í Breiðafjarðareyjar, leiðin
sem Eiríkur rauði hraktist eftir
þegar hann fór til Grænlands, verði
merkt og segir Friðjón að vonandi
verði hægt að tengja þetta ferða-
þjónustu nútímans á þessu svæði.
Lifandi Vínlandssafn í
Búðardal
um í Haukadal, fæðinff-
arstað Leifs heppna,
sem þeir ætla að hrinda
í framkvæmd fyrir
árið 2000 þegar haldið
verður upp á 1000 ára
afmæli Vínlandsfundar.
Helgi Bjarnason
kynnti sér hugmynd-
irnar.
DALAMENN eru með hugmyndir
um ýmsar framkvæmdir til þess að
minnast þess að árið 2000 verða
1000 ár liðin frá því Leifur heppni
Eiríksson sem talinn er hafa fæðst
á Eiríksstöðum í Haukadal fann
Vínland hið góða. Telja þeir að það
geti haft mikla þýðingu fyrir Dalina
að halda á lofti þeirra þætti í landa-
fundunum.
Hreppsnefnd Dalabyggðar hefur
sýnt ákveðið frumkvæði í málinu
með stofnun svokallaðrar Eiríks-
staðanefndar í byijun síðasta árs
og fengið góðar undirtektir eins og
m.a. hefur komið fram í Bandaríkja-
ferð forseta íslands. „Við gerum
okkur grein fyrir því að þetta er
ekki okkar einkamál, heldur mál
allra íslendinga og vina okkar úti
í heimi. Við munum því vinna að
málinu í samvinnu við stjórnvöld
og aðra áhugaaðila," segir Sigurður
Rúnar Friðjónsson, oddviti Dala-
byggðar.
Dalirnir hafa átt í erfiðleikum í
atvinnumálum vegna þess hvað
þeir eru háðir landbúnaði. „Menn
hafa lengi talað um að við ættum
ómetanleg verðmæti í sögunni og
rætt hefur verið um Dalina sem
héraðið þar sem sagan drýpur af
hveiju strái. Okkur hefur hins veg-
ar ekki tekist að nýta þessa mögu-
leika nógu vel til eflingar ferðaþjón-
ustu sem er orðin næst stærsta
atvinnugrein landsmanna," segir
Sigurður Rúnar oddviti. Bendir
hann á að stór samgönguverkefni
sem nú þegar er unnið að í Gils-
fírði og Hvalfirði og væntanlegar
framkvæmdir við veginn yfir
Bröttubrekku og tengingu Gils-
fjarðarbrúar við Vestfirði gjörbreyti
stöðunni og hjálpi Dalamönnum til
að verða virkir þátttakendur í ferða-
þjónustunni. Var það í tengslum við
þannig umræður sem -------------
hreppsnefndin ákvað í
byijun síðasta árs að
skipa nefnd til að koma
með tillögur um það
hvemig Dalamenn gætu
haldið upp á 1000 ára afmæli landa-
fundanna.
Byggði bæ í Haukadal
í nefndina voru kosnir Friðjón
Þórðarson fyrrverandi ráðherra,
Jóhann Sæmundsson í Ási og séra
Óskar Ingi Ingason. „Við komumst
fljótt að því að verkefnið er marg-
þætt og vandasamt," segir Friðjón
sem er formaður nefndarinnar.
Nefndin skilaði tillögum sínum í
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
ÞRÍR fulltrúar í Eiríksstaðanefnd í tótt víkingaaldarskálans, f.v. Friðjón Þórðarson formaður, Sig-
urður Rúnar Friðjónsson oddviti og séra Óskar Ingi Ingason.
frá bandarísku þjóðinni til hinnar
íslensku árið 1930 til að minnast
landafundar Leifs heppna og stofn-
unar Alþingis á Þingvöllum. Einnig
hefur komið til tals að efna til sam-
keppni um nýtt listaverk og fleiri
hugmyndir verið ræddar.
Nefndin leggur til að ráðist verði
í uppbyggingu skála Eiríks rauða
og Þjóðhildar. Bærinn á Eiríksstöð-
um var snemma fluttur að Stóra-
Vatnshorni. Óskar Halldórsson síld-
arkóngur eignaðist Stóra-Vatns-
horn og þegar afkomendur hans
seldu jörðina héldu þeir eftir tveggja
hektara spildu i kringum rústir
gamla bæjarins. Eiríksstaðanefnd
hefur verið í viðræðum við eigendur
landsins enda er áhugi á að byggja
bæinn upp sem næst Eiríksstöðum
þó ekki megi hann vera of nálægt
tóttinni sem er friðlýst. Ef samning-
ar takast ekki stendur nefndinni til
boða að byggja bæinn í landi Stóra-
Vatnshorns þarna rétt hjá. Þorkell
Magnússon arkitekt vinnur að und-
irbúningi endurbyggingar Eiríks-
staða og er um þessar mundir að
reyna að glöggva sig á því hvernig
bærinn hefur litið út.
Minnisvarði
reistur um
Leif heppna
febrúar sl. og eftir það bað hrepps-
nefndin hana um að vinna áfram
að málinu og bætti í hana oddvita
sínum og sveitarstjóra, Sigurði
Rúnari og Marteini Valdimarssyni.
------- Grundvöllur þessarar
vinnu er að Leifur heppni
Eiríksson sé fæddur á Ei-
ríksstöðum í Haukadal.
_______ Um það eru ýmsar heim-
ildir en öðru hefur einnig
verið haldið fram. Faðir hans, Eirík-
ur rauði, flutti sig af Hornströndum
í Haukadal og gekk að eiga Þjóð-
hildi sem var heimasæta í dalnum.
Ungu hjónin settu saman bú á Ei-
ríksstöðum. Eiríkur hraktist síðan
úr Haukadal og fann Grænland.
Þaðan fann Leifur sonur hans Vín-
land hið góða. „Það er afar erfitt
að rengja þær heimildir sem segja
að Leifur heppni sé fæddur á Eirík-
isstöðum og a.m.k. óumdeilt að þar
bjuggu foreldrar hans,“ segir Frið-
jón.
Skáli Eiríks rauða
byggður upp
Nefndin lagði fram hugmyndir
að framkvæmdum vegna afmælis-
ins. Rústirnar á Eiríksstöðum eru
grónar og ómerktar og erfitt fyrir
ferðafólk að finna þær. Ákveðið
hefur verið að bæta úr því og einn-
ig að merkja leiðina þangað.
Áhugi er á því að reisa minnis-
varða um Leif heppna og foreldra
hans á fæðingarstað hans á Eiríks-
stöðum. Að sögn Friðjóns hafa
ýmsar hugmyndir verið ræddar um
framkvæmdina, m.a. að reisa þar
afsteypu af styttu Leifs heppna á
Skólavörðuholti. Hún er eftir
bandaríska myndhöggvarann Alex-
ander Stirling Calder og var gjöf
Vilja grafa upp tóttina
Fornfræðingar skoðuðu rústir
Eiríksstaða fyrir aldamót og Þor-
steinn Erlingsson skáld gróf tóttina
upp 1895. Hann þóttist sjá tvo sam-
liggjandi skála og þriðja húsið fyrir
neðan, hann fann langeld fyrir miðj-
um skála og eldstæði í báðum end-
um. Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður hreinsaði innan úr tóttunum
1936 og komst að því að skálinn
væri aðeins einn. Stað- ----------------------
festu rannsóknir hans Sagan drýpur
kenningar um að að þetta a| hverju
gæti verið bær Eiríks strái
rauða. Eiríksstaðanefnd ____________
taldi æskilegt að fram
færu frekari fornleifarannsóknir á
staðnum, meðal annars til þess að
sjá betur byggingarlag skálans
vegna fyrirhi gaðrar endurbygging-
ar hans. Koataði nefndin rannsókn-
ir sem foriiieifafræðingarnir Guð-
mundur Olafsson og Ragnheiður
T' austadóttir hafa nú lokið.
Fornleifafræðingarnir tóku þver-
snið af skálanum og næsta ná-
grenni. Rannsóknir þeirra benda til
að fyrri athuganir hafi ekki gefið
Langstærsta verkefnið sem til
tals hefur komið hjá Dalamönnum
við þessa vinnu er stofnun Vín-
landssafns í Búðardal. Í hugmynd-
um Þorkels Magnússonar arkitekts
kemur fram að safnið eigi að halda
saman og geyma fróðleik um
landafundina til langrar framtíðar.
Þar verði miðstöð þekkingar á
landkönnunarferðum og landa-
fundum íslendinga í Vesturheimi
fyrir þúsund árum. Það muni jafn-
framt gegna hlutverki sögusafns
fyrir héraðið. Áætlar Þorkell að
byggingarkostnaður gæti legið á
bilinu 100 til 150 milljónir kr. og
þar við bættist kostnaður við sýn-
ingarmuni og sérstakan búnað
safnsins.
Sigurður Rúnar oddviti hefur
mikinn áhuga á að ráðast í þessa
framkvæmd. Telur hann koma til
greina að byggja það í tengslum
við félagsheimilið Dalabúð sem þá
nýttist sem þjónustuhús. Bendir
hann á að bygging félagsheimilisins
hafi verið mikið átak fyrir þrjátíu
árum. „Ég tel að það verði minna
átak fyrir Dalamenn að byggja
safnahús fyrir 100 milljónir kr. en
það var fyrir Laxdælinga að byggja
félagsheimilið á sínum tíma.“
Hann vill að byggt verði upp lif-
andi safn, til dæmis með því að
hafa til sýnis kvikmyndir og mynd-
bönd sem tengjast viðfangsefni
safnsins. Fræðimenn fengju þar
aðstöðu. „Ég sé fyrir mér að þar
gæti verið öflugur tölvustýrður
stjörnukíkir svo við gætum
skyggnst inn í næstu sólkerfi á hlið-
stæðan hátt og forfeður okkar
gerðu þegar þeir lögðu upp í þau
miklu ferðalög sem leiddu til landa-
fundanna fyrir 1000 árum.“
Dalamenn eiga bókasafn,
byggðasafn, héraðsskjalasafn og
listasafn og eru þau öll í ófuilnægj-
andi aðstöðu. Sigurður Rúnar segir
æskilegt að tengja þau nýja safninu
þó Vínlandssafnið yrði þar í önd-
vegi. Friðjón Þórðarson nefnir
gamla hugmynd sína og segir gam-
an ef hægt væri að koma henni í
framkvæmd í nýju safnahúsi. Seg-
ist hann lengi hafa haft áhuga á
að Héraðsbókasafn Dalamanna
tæki sér sérstaklega fyrir hendur
að koma upp safni bóka eftir Sturlu
Þórðarson sagnaritara og um hann.
„Það er engum einum manni meira
að þakka hvað við Dalamenn vitum
mikið um sögu okkar,“ segir Frið-
jón.
Fengið hvatningu
Tíminn er að verða naumur
--------- vegna framkvæmda fyrir
árið 2000. Sigurður Rún-
ar telur að taka þurfi
ákvarðanir um fram-
_________ kvæmdir á síðari hluta
þessa árs. „Ég tel að við
eigum að hrinda í framkvæmd hug-
myndum um uppbyggingu á Eiríks-
stöðum þannig að þeim verði örugg-
lega lokið fyrir árið 2000. Einnig
er mikilvægt að tengja uppbygg-
ingu safnahússins við afmælið og
byija á framkvæmdinni en hún
getur tekið lengri tíma. Mér sýnist
að þetta sé mögulegt. Við höfum
fengið mikla hvatningu, bæði hér
innanlands og frá vinum okkar er-
lendis," segir Sigurður Rúnar.
Leifur Eiriksson
Dalamenn undirbúa 1000 ára afmæli Vínlandsfundar
Helluland
CRÆNLAND
P Vesturbyggb "" .....
982: Eirikur rauði
aux Meadows
Vínland
hlb gó&a
BREIÐA-
FJÖRÐUR
Hugmyndir um Vín-
landssafn í Búðardal
Dalamenn hafa áhuga á
að koma upp Vínlands-
safni í Búðardal. Þeir
undirbúa nú fram-
kvæmdir á Eiríksstöð-