Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Mynd sem
gerist á
morgnn
í kvöld verður íslenska kvikmyndin
Blossi/810551 eftir Júlíus Kemp frumsýnd
í Stjömubíói o g Sambíóunum. Lars Emil
Ámason er handritshöfundur myndarinnar
auk þess sem hann hannar leikmynd og
búninga. Hildur Loftsdóttir vill vita hvort
aðalpersónur myndarínnar, Robbi og Stella,
em ísland á morgun.
Ljósmynd/Úr Blossa
STELLA og Robbi eru unglingar í íslensku auglýsinga- og neyslusamfélagi.
LARS Emil er menntaður myndlist-
armaður á íslandi og í Hollandi.
Hann slæst nú í hóp hinna fjölmörgu
ungu kvikmyndagerðarmanna á Is-
landi sem láta til sín taka. Blossi
fjallar um Robba og Stellu; unglinga
í íslensku auglýsinga- og neyslusam-
félagi. En er þetta unga fólk sem
Blossi lýsir raunverulegt? Er þetta
eiturlyfjaumhverfi virkilega til? Hver
er framtíð hinna íslensku sérein-
kenna? Eru Robbi og Stella ísland
á morgun?
- Hvernig fékkstu hugmyndina að
Blossa?
„Ég hef verið grunnskólakennari
og unnið með unglingum á sama
aldri og aðalpersónurnar þau Stella
og Robbi eru á. Mér leist vel á þessa
kynslóð og fannst þessi tómhyggja
sem er ríkjandi i sambandi við til-
veruna athyglisverð. Hún einkennir
þessi barnabörn lýðveldiskynslóðar,
sem hafa mestan áhuga á því að
drepa tímann. Tómhyggja er af-
brigði af existensialisma og aðalat-
riðið er að „virðast". Allt snýst um
útlit, frasa og tilgerð, og þau eru
öll „ameríkaníseraðar steríótýpur“.
Myndin fjallar þar með mikið um
heim auglýsinga með sínum skyndi-
lausnum og skyndimat. En Island
er meðtækilegra fyrir áhrifum hans
en t.d. aðrar Norðurlandaþjóðir."
- Er sá heimur sem þú hefur skap-
að í Blossa raunverulegur?
„Já, þó að Blossi sé reyndar öfga-
kennt dæmi, er hann skjalfesting á
tímanum í dag. Ég er alls enginn
rithöfundur. Sagan er öll stolin frá
hinum og þessum. Þetta er eitthvað
sem maður hefur séð og upplifað
og skrifar bara niður. Robbi og Stella
eiga sér raunverulegar fyrirmyndir.
Finnur leikur Úlf, eiturlyfjasala á
skilorði, sem notar Robba sem burð-
ardýr og senditík. Úlfur er í líkams-
rækt og þangir á Vegas. Það er
hans líf. Ég átti mjög auðvelt með
að kynna persónurnar mínar fyrir
leikurunum, þar sem þeir þekktu
allir þessar týpur og settu sig strax
í réttu stellingarnar."
- Er sá eiturlyfjaheimur, sem lýst
er í myndinni, einnig til?
„Já, en í Blossa eru dóp, sælgæti
og kartöfluflögur allt sett undir
sama hatt. Öll neysla hefur sama
giidi, og undir niðri er Blossi ádeila
á þetta neyslusamfélag. Það er alls
ekki verið að mæla með eiturlyfja-
neyslu. Frekar vonumst við til að
svona öfgadæmi virki sem forvörn,
og að unglingarnir muni hugsa sig
tvisvar um þegar þeim bjóðast eit-
urlyf.“
- Kemur sá boðskapur nógu sterkt
fram í myndinni?
„Ég h£ld að þessi saga gefi mjög
raunsæja mynd af eiturlyfjaneyslu
ungs fólks og viðhorfi þeirra til henn-
ar. Robbi og Stella eru reyndar
bæði úr „biluðum" fjölskyldum, og
því eru ekki allir unglingar eins og
þau. Hún er lyklabarn og hann er
hálfur Ameríkani sem þekkir ekki
pabba sinn, nema það að hann fékk
einu sinni frá honum þrívíddar jóla-
kort. Bæði vitna þau í ömmu sína
þaðan sem þau hafa sína lífsspeki
þar sem foreldrarnir eru alltaf vinn-
andi. En það er einmitt sú kynslóð
sem hefði gott og líka gaman af að
sjá Blossa.“
- Er einhver stíll sem einkennir
hönnunina á myndinni sem undir-
strikar það sem þú vilt segja?
„Blossi er fyrst og fremst
skemmtun, en ekki listaverk. Ef hún
hefur einhvern stíl er hann í anda
poppmyndlistarinnar; Warhol, Liec-
htenstein, Rausenberg og Erró.
Myndin er mjög litrík. Heimilistæki,
lógó og neysluvara eru öll partur
af myndinni. Það eru stanslausar
útvarpsauglýsingar sem dynja á
krökkunum, en það eru ekki auglýs-
ingar sem hefur verið borgað fyrir.
Myndin lítur út eins og hasarblað,
en þaðan hefur Robbi sína heim-
speki. Við ákváðum líka í hljóð-
vinnslu að breyta ekki talanda
krakkanna. Þau tala bæði óskýrt og
rangt. Það gefur rétta mynd af göt-
unni í dag.“
- Hvað ert þú ánægðastur með í
kvikmyndinni Blossa?
„Ég er bara mest hissa á því hvað
þetta er mikil martröð. í handritinu
eru hljóð hluti af myndinni. Það eru
alls konar aukahljóð sem tilheyra
þessu neyslusamfélagi sem ég er að
lýsa. Þegar ég sá svo myndina, fann
ég hvað það er mikil martröð að
vera svona stanslaust mataður.
Krakkar í dag geta verið að lesa
undir próf, horfa á MTV, hlusta á
X-ið og borða, allt á sama tíma.“
- Afhverju gerist myndin íframtið-
inni?
„Hún gerist á morgun."
Hádegistónleikar
í Hallgrímskirkju
í DAG leikur Kjartan Sigur-
jónsson organisti og formaður
íslenskra organleikara á há-
degistónleikum Hallgríms-
kirkju kl. 12. Á efnisskrá Kjart-
ans eru tvö ítölsk verk eftir
Gabrieli og Zipoli, Fantasía og
fúga í c-moll eftir Bach, Sálma-
forleikure ftir Þorkel Sigur-
björnsson um sálm Péturs
GuðjohnssenLo/jrVJ Guð, ó lýðir
göfgið hann og verk eftir Max
Reger, Clerambault og César
Franck.
Kjartan Sigurjónsson nam
orgelleik hjá dr. Páli ísólfssyni
á árunum 1958-66 og hefur
gegnt organleikarastöðum víða
um land á fjórða áratug. Hann
hefur haldið fjölda tónieika hér
heima og erlendis og er nýkom-
inn heim úr tónleikaferð frá
Danmörku. Undanfarin tíu ár
hefur hann starfað í Seljakirkju
í Reykjavík en lætur af störfum
þar 1. september næstkomandi
og tekur við starfi organleikara
í Digraneskirkju.
í hádeginu á laugardaginn
16. ágúst leikur breski organ-
leikarinn James Parsons. Hann
leikur einnig á sunnudagskvöld
í tónleikaröð Hallgrímskirkju
Sumarkvöld við orgelið.
Ú • • vo r 11 I
V i 1! K 1
á fjölda notaöra bíla
Vegna gífurlegrar sölu á nýjum bílum hjá
Ingvari Helgasyni og Bílheimum seljum vib
fjölda notaöra bíla meb alvöru afslætti.
Þú kemur og semur
Opið til kl. 20 í kvöld
BÍLAHÚSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöföa 2 • Reykjavík
Símar; 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf 587 7605
og umboðsmenn um allt land
Einnig UTSALA á UTILEIKFÖNGUM frá BJARKEY