Morgunblaðið - 14.08.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997 39
AÐSENDAR GREINAR
í DEILUNUM um
auðlindaskatt eða
veiðigjald, eins og
sumir vilja kalla það,
hefur georgisminn
gengið aftur. Hvað er
það? Henry George
var bandarískur rit-
höfundur, sem varð
vitni að því í Kaliforn-
íu, að land gat hækkað
stórkostlega í verði,
þó að eigandinn kæmi
hvergi nærri með
jarðabótum eða öðrum
ráðstöfunum. Þetta
þótti George ranglátt,
og í bókinni Framför-
um og fátækt árið
1879 krafðist hann þess, að allur
arður af landareignum yrði gerður
upptækur með sérstökum land-
skatti. Með því mætti leysa fjár-
- hagsvanda ríkisins og tryggja fulla
nýtingu alls jarðnæðis.
Til að skýra hugsun Georges
skulum við líta á tvo iandeigendur.
Annar á jörð, sem er svo rýr, að
afraksturinn nægir honum rétt
aðeins til lágmarkstekna. Hinn á
jörð, sem hentar miklu betur til
búskapar, svo að hann hefur miklu
hærri tekjur. Munurinn á kjörum
þessara tveggja manna er ekki
þeim sjálfum að þakka eða kenna,
heldur stafar hann af muninum á
jörðunum tveimur. Umframtekjur
bóndans á betri jörðinni er ekki
framlag hans, heldur náttúrunnar,
svo að hann hefur ekki unnið til
þeirra. Hið sama er að segja, þeg-
ar jörð snarhækkar í
verði, vegna þess að
gull finnst þar, olía eða
jarðhiti eða vegna þess
að reisa á þar álver.
Henry George hafði
talsverð áhrif hér fyrir
síðustu aldamót.
Sveinn Björnsson for-
seti segir til dæmis frá
því í endurminningum
sínum, að marxistar
og georgistar hafi
keppt um hylli há-
skólanema í Kaup-
mannahöfn, og hafi
sér fundist georgism-
inn skynsamlegri. Það
kemur líka fram í
fyrsta bindi ævisögu Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu eftir Guðjón Frið-
riksson, að Jónas sneri heim til
íslands sannfærður georgisti rétt
Hugsun veiðigjalds-
sinna er hins vegar, seg-
ir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, í sjöttu
grein sinni, nánast hin
sama og georgistanna
forðum.
fyrir heimsstyrjöldina fyrri, þótt
síðar teldi hann sér ekki henta að
halda georgisma á lofti.
En hagfræðingar hafa séð ýmis
tormerki á þessari stefnu. George
ofmat í fyrsta lagi tekjurnar af
landskattinum. Þá hafa sumir
goldið fullt verð fyrir landareignir
sínar og aðrir fengið þær ókeypis,
svo að ranglátt kann að vera að
skattleggja þá alla á sama hátt.
Þótt landeigendur hafi ekki allir
unnið til tekna sinna af landi, er
ekki með því sagt, að aðrir hafi
frekar unnið til þeirra. Og sú al-
menna regla er vart framkvæman-
leg, að menn eigi aðeins að fá
það, sem þeir hafa unnið til, eins
og georgistar verða að krefjast til
að vera sjálfum sér samkvæmir.
Síðast, en ekki síst, er erfitt og
jafnvel ókleift að meta, hvað af
tekjum landeiganda er vegna hug-
kvæmni hans og atorku og hvað
er framlag náttúrunnar.
Hugsun veiðigjaldssinna er hins
vegar nánast hin sama og georgist-
anna forðum. Þeir segja, að út-
gerðarmenn hafi fengið aflaheim-
ildir sínar endurgjaldslaust. Rang-
látt sé, að þeir hirði fiskveiðiarð-
inn. Þess vegna eigi að gera þenn-
an arð upptækan með sérstöku
veiðigjaldi. Ég sé sömu tormerki á
kröfu þeirra. Tekjumar af gjaldinu
eru ofmetnar. Sumir hafa greitt
fullt verð fyrir aflaheimildir, þótt
aðrir hafi fengið þær endurgjalds-
laust. Aðrir hafa ekki frekar unnið
til fiskveiðiarðsins en útgerðar-
menn. Ef skattleggja á fiskveiði-
arðinn, þá á líka að skattleggja
arð af jarðhita, fallvötnum, hlunn-
indum og landareignum. Og hvað
af fiskveiðiarðinum er vegna
einkaréttar útgerðarmanna til að
veiða og hvað vegna þess, að snjall-
ir menn úr þeirra hópi hafa fundið
ódýrari tilhögun veiða?
Höfundur er prófessor í stjórn-
málafræði í félsgs vísindadeild
Háskóla íslands.
Gömul hugmynd
gengur aftur
Hannes Hólm-
steinn Gissurarson
Fyrir þá sem vilja ná lengra...
•¥ þá er núna rétti tíminn til að margfalda lestrarhraðann...
+ þá er núna rétti tíminn til að stórauka námsgetuna...
+ þá er núna rétti tíminn til að auka vinnuafköstinn.
Ef þú vilt ná lengra, skaltu skrá þig strax á næsta hrað-
lestrarnámskeið sem hefst 28. ágúst. Lestrarhraði þátt-
takenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst árangur!
Skráning er í síma 564-2100.
HRAÐLESTTÍARSKÓLJNN
Sértilboð
Skólatöskur - pennaveskl
Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við:
Skólatöskur og tvöfalt l Skólatöskur og einfalt
pennaveski, nú á aðeins • pennaveski, nú á aðeins
kr. 1.960* i kr. 1.390*
Mikið úrval af skólatöskum, pennaveskjum og
skólavörum fyrir alla aldurshópa á mjög góðu verði.
Sendum í póstkröfu.
Opifi laugardaga 10-14.
* Verö meö 20% afslsattl
CJE3DJIÍ
Bóka-, ritfanga- og gjafavöruverslun
MiBbae viB Háaleitisbraut 58-60 • Simi 553 5230
SuimaifMcs
£>ÍJJJJÍJJJJ£JÍS /JJíl /JJ-JJJJJ£ijdil£jJ ÍjJ 3UJjJjJjdíJ£j3
J dJJiJJJJ V3JJ3JiJJJiJJJJ xJíJ£jJsíJ!JjJ3''
aftiáHur a®
garðhúsgögnum
gas- og kolagrillum
hjólum
Utivistarvörum
garðvörum
*Ath. takmarkað úrval í verslunum Hagkaups Garðabæ, Hólagarði,
Grafarvogi, Eiðistorgi og Kjörgarði
Þú færð 25 punkta fyrir
hverjar 1OOO kr.
HAGKAUP
fMrirfjölskHlduna -