Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 1E
FRÉTTIR
Benedikt
Sveinsson
hættir í bæj-
armálum
BENEDIKT Sveinsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Garðabæ, tilkynnti á full-
trúaráðsfundi Sjálfstæðisfé-
laganna í Garðabæ að hann
hygðist hætta þátttöku í bæj-
armálapólitíkinni. Hann ætlar
ekki að gefa kost á sér í næstu
bæjarstjórnarkosningum.
Benedikt hefur verið aðal-
maður í bæjarstjórn í þrjú
kjörtímabil og 1. varamaður
eitt kjörtímabil. Þá sat hann í
skólanefnd áður en hann varð
varabæjarfulltrúi. Hann var
formaður í Sjálfstæðisfélaginu
í byi-jun áttunda áratugarins
og hefur því starfað fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ
í um 25 ár.
Nauðsyn að endurnýja
„Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur haft meirihluta í Garðabæ
allt frá því farið var að kjósa
pólitískt. Eg lít svo á að það
verði að endurnýja alltaf öðru
hvoru í bæjarfulltrúahópi
flokksins. Mér finnst kominn
tími til núna að ég hvíli mig.
Þegar sami flokkurinn er svo
lengi við völd verður endur-
nýjunin að koma innan flokks-
ins,“ sagði Benedikt.
Hann kvaðst ekki hafa hug-
leitt það hvort hann tæki þátt
í stjórnmálum á vettvangi
landsmálanna. Hann sagði þó
að það höfðaði ekki til sín.
„Eg hef haft gaman af því að
vera í bæjarmálunum og von-
andi hef ég gert eitthvert
gagn,“ sagði Benedikt.
Sýknaður af
manndrápsákæru
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands
hefur sýknað' 51 árs Akurnesing
sem ákærður var fyrir manndráp
af gáleysi með því að valda umferð-
arslysi á Vesturlandsvegi undir
Hafnarfjalli þar sem 28 ára gömul
kona á leið yfir þjóðveg frá kyrr-
stæðum áætlunarbíl beið bana í
september á síðasta ári.
Akæruvaldið taldi að maðurinn
hefði valdið slysinu, sem varð í
rökkri og hvössu skúraveðri, með
því að aka of hratt miðað við að-
stæður í átt að kyrrstæðri rútunni.
Konan hélt á 11 mánaða barni sínu
þegar hún varð fyrir bílnum og
beið hún bana samstundis en í
dóminum kemur ekki fram um
áverka barnsins.
Ökumaðurinn var sóttur til saka
og þess krafist að hann yrði dæmd-
ur til refsingar.
Héraðsdómur sýknaði manninn
og segir í dóminum að þótt sannað
þyki að ökumaðurínn hafi ekið
hraðar en eðlilegt var fram úr bif-
reið skömmu áður verði ekkert
fúllyrt um hraða bifreiðar hans
þegar slysið vai-ð. Hemlafór fund-
ust ekki á vettvangi. Því var byggt
á frásögn mannsins um að hann
hefði dregið eitthvað úr hraðanum
þegar hann nálgaðist rútuna.
Þá segir að ökumaðurinn hafi
verið kunnugur staðháttum og rút-
Morgunblaðið/Ásdís
Eitt
tekur
- við af
öðru
VIÐ höfnina fellur mönn-
um sjaldnast verk úr
hendi, enda ávallt nóg að
gera. Um leið og einu
verkinu er lokið tekur
annað við og gefist stund
milli stríða má alltaf nýta
tímann til að dytta að ein-
hverju smálegu.
an hafi verið kyrrstæð í vegarkanti
nokkuð fjarri afleggjara. Ösannað
sé að á rútunni hafi logað viðvörun-
arljós. Helst verði dregin sú álykt-
un að konan hafi skyndilega gengið
út á veginn aftan við rútuna. Öku-
manninum hafí því verið ómögu-
legt að sjá til ferða hennar fyrr en
örfáum andartökum áður en slysið
vai-ð „og verður því ekki séð að
ákærði hefði með eðlilegum akstri
getað komist hjá slysinu," segir í
niðurstöðum Hei’varar Þorvalds-
dóttur héraðsdómara.
TIL HAMÍN6JU
MEfi TOVUTUNA.
ÖMAR ö
VINNINGASKRA
NÚ
ER
S PURNINblN
f ÞESSARI VIKUVAHH
FRIÐRiK BORGARFERÐ
FVRIR TVÖ. BORGARFERÐIR
VERÖA DREGNAR ÚT
VIKULEGA.
ÚHVAL-ÚTSÝN
€or
í október byrjum við með nýjan pott sem fjöldi glæsitegra
vinninga verður dregin úr vikulega. Ef þú færð ekki vinning
á þrennuna þína, skaltu merkja hana og setja í pottinn.
Þú gætir unnið Toyota Corolla. More tölvu. utanlandsferð,
hljómflutningstæki, fjallahjól eða EINFALDLEGA MILUÓN.
Morgunblaðið birtir nöfn vinningshafa á hverjum föstudegi.
____fy
HASKOLAbTÖ
TOYOTA COROLLA
Ómar Örn Smíth. Iðalind 6,200 Kópavogi
BORGARFERÐ MEÐ ÚRVALI-ÚTSÝN
Friðrík Vestmann. Bylgjubyggð 67.625 Ólafsfirði
BÍÓMIÐAR - FYRIR TVO
Páll Guðlaugsson, Brekku. 410 Tálknafirði
Oddný M. Waage. Skipasundi 37.104 Reykjavík
Agnar Þ. Guðmundsson. Nesbala 34.170 Settjamanesi
Guðmundur Vignir Hauksson. Reykjavikurvegi 48.101 Reykjavik
Hafdis Odda Ingólfsdóttir. Bæjargili 24.210 Garðabæ
fvar Arash Radmanesh. Hjaltabraut 13.220 Hafnarfirði
Þorsteinn Gunnlaugsson. Breiðvangi 2.220 Hafnarfirði
Póra R. Kristjánsdóttir. Hólavöllum 16.240 Grindavik
Hatldóra Guðmundsdóttir. Orrahólum 7.111 Reykjavfk
Kristin Sigurðardóttir. Heiðvangi 34.220 Hafnafirði
HVER FIER HINA!