Morgunblaðið - 03.10.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 45
FRÉTTIR
Laugar-
dagsskóli á
Hjálpræð-
ishemum
HJÁLPRÆÐISHERINN,
Kirkjustræti 2, verður með
laugardagsskóla í vetur.
Skólinn er fyrst og fremst
ætlaður krökkum á leikskóla-
aldri og þeim sem eru í fyrstu
bekkjum grunnskóla, en einnig
er fijálst fyrir eldri krakka að
mæta. Verður kennsla úr Bibl-
íunni, tónlistarkennsla, föndur
og söguhorn m.m. Skólinn
hefst kl. 13 á laugardögum
og lýkur kl. 14.30.
Opinn fundur
um fóstur- og
nýburafræði
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands mun laugardaginn
4. október kl. 9-12.30 standa fyrir
opnum fundi fyrir félaga í Ljós-
mæðrafélagi Íslands, Félagi ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, Félagi
íslenskra fæðingar- og kvensjúk-
dómalækna og Félagi íslenskra
barnalækna.
Erindi flytja Arnar Hauksson dr.
med., Ásgeir Haraldsson dr. med.,
Elínborg Jónsdóttir ljósmóðir, Hild-
ur Harðardóttir læknir og Sveinn
Kjartansson dr. med.
Fjallað verður um: lífeðlisfræði
bijóstagjafar, ónæmisfræði og nær-
ingargildi bijóstamjólkur. Hvemig á
að láta bijóstagjöfina takast? Leið-
beiningar um greiningu og meðferð
sýkinga í meðgöngu og notkun
sýklalyfja í forvamarskyni. Flutn-
ingur verðandi mæðra og veikra
nýbura og samvinna sjúkrahúsa.
Fundurinn er hluti af námskeið-
inu „Veika fóstrið og veiki nýbur-
inn“ sem hófst í gær, 2. október,
og lýkur með þessum opna fundi á
morgun, laugardag.
Umsjónarmenn em þeir Atli
Dagbjartsson dr. med. og Reynir
T. Geirsson dr. med., en auk þeirra
halda fyrirlestra Nils Svenningsen
dr. med., prófessor í Lundi í Sví-
þjóð, læknarnir Guðjón Vilbergsson
dr. med., Hildur Harðardóttir,
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Þórhildi Líndal, umboðsmanni
barna:
„Vegna fréttar í fréttatíma Sjón-
varps hinn 29. september og um-
ræðna, sem fylgt hafa I kjölfarið,
um tillögur mínar til breytinga á
lögum til að styrkja stöðu barna í
kynferðisbrotamálum, óska ég að
eftirfarandi verði birt í Morgunblað-
inu:
Ein af mörgum tillögum mínum
til dómsmálaráðherra til úrbóta í
þessum málaflokki er, að samræði
eða önnur kynferðisleg mök við
böm og ungmenni yngri en 16 ára
aldri verði almennt lýst refsiverð.
Þessa tillögu mína byggi ég m.a. á
fordæmi úr norskum refsilögum.
Markmiðið er fyrst og fremst að
auka vernd unglinga á aldrinum
14-16 ára fýrir kynferðislegu of-
beldi. Af sjálfsögðu er þessi tillaga,
ekki frekar en aðrar, útfærðar af
minni hálfu í einstökum smáatrið-
um.
í norska refsilagaákvæðinu, sem
áður er nefnt, er m.a. að finna svo-
fellt ákvæði: Fella má refsingu sam-
kvæmt þessu ákvæði niður ef í hlut
Hörður Bergsteinsson, Þórður Þor-
kelsson og_ Gestur Pálsson, Vil-
hjálmur Árnason siðfræðingur,
Reynir Arngrímsson, sérfræðingur
í erfðasjúkdómum, sr. Ingileif
Malmberg og Guðrún Eggertsdóttir
yfirljósmóðir.
Námskeiðið og fundurinn er í
húsi Læknafélags íslands í Hlíða-
smára 8, Kópavogi. Nánari upplýs-
ingar eru veittar á skrifstofu Endur-
menntunarstofnunar Háskóla ís-
lands.
UM HELGINA verða seld merki og
pennar um allt land til styrktar
starfi Krabbameinsfélagsins. Auk
merkja eru að þessu sinni seldir
pennar og pennasett. Selt verður
við verslanir og gengið í hús, þar
sem því verður við komið. Allur
ágóði rennur til aðildarfélaga
Krabbameinsfélags Islands, en það
eru 24 svæðisbundin krabbameins-
félög og fimm stuðningshópar.
„Nokkur svæðisbundnu félag-
anna hafa að miklu eða öllu leyti
eiga einstaklingar á svipuðum aldri
og þroskastigi. Ég hef að sjálfsögðu
gengið út frá því að ákvæði þessu
líkt verði tekið upp í íslensk refíslög
nái umrædd tillaga mín fram að
ganga.
Það sem ég hef haft að leiðar-
Ijósi við gerð tillagna minna til úr-
bóta á sviði kynferðisbrotamála
gegn börnum og ungmennum er
eingöngu það að koma þeim um-
bjóðendum mínum til hjálpar, sem
hjálpar eru þurfí, en alls ekki að
setja skorður við eðlilegum sam-
skiptum unglinga. Þannig tel ég
óeðlilegt að refsa unglingum á aldr-
inum 14-16 ára fyrir að hafa
kynmök sín á milli ef þau eru á
svipuðu reki. Hins vegar verður
aldrei lögð nægileg áhersla á nauð-
syn þess að vernda þau börn og
unglinga, sem ekki hafa náð nægi-
legum þroska, gagnvart kynferðis-
legu ofbeldi af hálfu þeirra, sem
eldri og þroskaðri eru.
Að lokum vil ég minna á að til
grundvallar tillögum mínum liggur
viðamikil skýrsla um kynferðisbrot
gegn bömum og ungmennum, sem
m.a. hefur verið send fjölmiðlum til
kynningar."
Einleikstón-
leikar í Digra-
neskirkju
NÝRÁÐINN organisti Digranes-
kirkju, Kjartan Sigurjónsson,
heldur einleikstónleika nk.
sunnudag í kirkjunni og hefjast
þeir kl. 20.30.
Á efnisskránni verða verk eft-
ir A. Gabrieli, Zipoli, Buxtehude,
Bach, Þorkel Sigurbjörnsson,
Clerambault og Cesar Franck.
Kjartan Siguijónsson hefur
verið starfandi organisti víða
meira og minna síðan 1957. Hann
hefur haldið tónleika víða hér-
lendis og erlendis.
Á tónleikunum loknum verða
veitingar í safnarðarsal Digra-
neskirkju en ágóði af tónleikun-
um rennur til safnaðarstarfsins.
tekið við fræðslu- og forvarnastarfi
í sinni heimabyggð og gengið vel.
Mikill áhugi ríkir hjá fleiri félögum
að takast á við sams konar verk-
efni sem fyrst.
Stuðningshóparnir vinna marg-
víslegt og óeigingjarnt starf í þágu
sjúklinga og aðstandenda og hefur
það ómetanlega þýðingu.
Merkjasalan á að styðja þessa
starfsemi og væntir Krabbameins-
félagið þess að landsmenn taki sölu-
fólki vel og noti þetta tækifæri til
að sýna hug sinn og efla starf fé-
lagsins í baráttunni við krabba-
mein,“ segir í frétt frá félaginu.
Starfsemi Krabbameinsfélags ís-
lands felst meðal annars í leit að
krabbameini í leghálsi og bijóstum
kvenna, krabbameinsrannsóknum,
fræðslu um krabbameinsvarnir og
stuðning við sjúklinga. Félagið var
stofnað árið 1951.
♦ ♦ ♦------
Viðstaddur
biskupsvígslu í
Svíþjóð
CHRISTINA Odenberg verður fyrst
sænskra kvenna vígð til biskups
sunnudaginn 5. október nk. Er hún
eftirmaður KG Hammar sem tók
við embætti erkibiskups sænsku
kirkjunnar í febrúar í ár. En erkibis-
kupinn hafði fyrr verið biskup í
Lundar þar sem Christina Odenberg
tekur við biskupsþjónustu.
Vígslan fer fram í dómkirkjunni
í Uppsala og hefur verið lögð
áhersla á það af hendi sænska erki-
biskupsins að aðrir höfuðbiskupar
Norðurlanda verði viðstaddir. Ólaf-
ur Skúlason biskup tekur þátt í
vígslunni ásamt fleiri biskupum,
m.a. frá ensku biskupakirkjunni.
Athugasemd
Arleg merkjasala
Krabbameinsfélagsins
Fagna aðgerðum
til hagræðingar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun frá stjórn Félags íslenskra
sjúkraþjálfara vegna samkomu-
lags milli heilbrigðisráherra, fjár-
málaráðherra og borgarstjórans í
Reykjavík um uppstokkun og til-
færslur á deildum og starfsemi á
sjúkrahúsunum í Reykjavík, þar
sem segir m.a.:
„Stjórn Félags íslenskra sjúkra-
þjálfara (FÍSÞ) fagnar öllum þeim
aðgerðum sem geta orðið til hag-
ræðingar og betri þjónustu við
sjúklinga. Stjómin harmar þó þau
vinnubrögð sem virðast hafa verið
viðhöfð við gerð skýrslu um mál-
efni sjúkrahúsanna í Reykjavík og
síðar samkomulags milli ofan-
greindra aðila um uppstokkun og
tilfærslur á deildum innan þeirra.
Litlar sem engar viðræður hafa
farið fram við fagaðila um málið og
hefur samkomulagið komið flestum
starfsmönnum í opna skjöldu. í
mörgum tilfellum virðist lítið fara
fyrir faglegum sjónarmiðum og hag-
kvæmnissjónarmið byggjast ekki
alltaf á réttum forsendum.
Stjórnin hvetur því til þess að
samkomulag um ofantaldar breyt-
ingar verði endurskoðað, mörkuð
verði stefna í endurhæfingarþjón-
ustu og þjónusta við geðsjúklinga,
að fagleg úttekt verði gerð á hag-
kvæmni breytinganna, bæði hvað
varðar þjónustu og kostnað og að
samráð verði haft við fagaðila áður
en ákvörðun verður tekin um jafn
viðamiklar breytingar og hér er
um að ræða.“
Bubbi á Vestfjörðum
BUBBI Morthens er á tónleika-
ferðalagi hringinn í kringum landið
og leikur hann í næstu viku á Vest-
fjörðum.
Bubbi leikur á föstudagskvöld á
Úlfaldanum, Ármúla 40, en ekki
sunnudagskvöld eins og rangt var
farið með í Mbl. í gær. Á mánudag-
inn leikur hann í Skjaldborgarbíói,
Patreksfirði, kl. 21, Tálknafírði,
Dunhaga, kl. 21 þriðjudaginn 7.
okt., Bíldudal, Félagsheimilinu, mið-
vikudaginn 8. okt. kl. 21, Þingeyri,
Félagsheimilinu, kl. 21 fimmtudag-
inn 9. okt., Flateyri, Vagninum, kl.
21 föstudaginn 10. okt., ísafírði,
Bíóinu, kl. 21 laugardaginn 11. okt.,
Suðureyri, Félagsheimilinu, kl. 21
sunnudaginn 12. okt., Súðavík, Fé-
lagsheimilinu, kl. 21 mánudaginn
13. okt. og Hólmavík, Félagsheimil-
inu, þriðjudaginn 14. okt.
Fuglaskoðunardagar
ALÞJÓÐLEGIR fuglaskoðunar-
dagar 1997 eru 4. og 5. október.
Viðburðurinn er skipulagur af
BirdLife International sem eru
alþjóðleg félagasamtök sem
vinna að fuglavernd, verndun
búsvæða og verndun líffræði-
legrar fjölbreytni.
Fuglaverndarfélag íslands
tekur þátt í og skipuleggur dag-
skrá á íslandi en yfir 200 félög
frá tæplega 100 löndum taka
þátt í alþjóðlegum fuglaskoðun-
ardögum 1997.
Fuglaskoðun verður við Graf-
arvogsleirinn í Reykjavík 4.
október frá kl. 13-16. Þar má
sjá margar tegundir fugla, vað-
fugla, máfa og endur. Fólki er
bent á að koma með sjónauka
en reyndir fuglaskoðarar verða
fyrir neðan hús Pósts og síma
og verða þeir með sterka sjón-
auka og leiðbeina fólki við að
greina fuglana.
Alþjóðlegir fuglaskoðunar-
dagar hafa verið haldnir tvisvar
sinnum áður, fyrst árið 1993 og
svo 1995. Markmiðið 1997 er að
beina athygli fólks að þeim fjöl-
mörgu fuglategundum sem eru
í útrýmingarhættu en það eru
nær 11% af öllum tegundum sem
til eru.
Umferðaröryggi
rætt á fundi SSH
SAMTÖK sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, SSH, halda sinn 21.
aðalfund á morgun, laugardag, í
Hafnarborg í Hafnarfírði.
Aðalumræðuefni fundarins verða
umferðaröryggismál sveitarfélaga
og yfirtaka málefna fatlaðra.
Framsögumenn um málefni fatl-
aðra eru Páll Pétursson, félags-
málaráðherra; Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og
Jóhann Amfínnsson.
Um umferðaröryggismál ræða
þeir Þórhallur Ólafsson, formaður
Umferðarráðs, og Eiríkur Bjama-
son, bæjarverkfræðingur í Garðabæ.
Þá verður veitt sérstök viður-
kenning fyrir „Merkt framlag til
umhverfis-, útivistar- og skipulags-
rnála".