Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ummæli Banks ógna
ráðherradómi hans
Leiðtogar Verkamannaflokksins biðja Hague afsökunar
London. Daily Telegraph.
Reuter
CLARE Short, þróunarmálaráðherra Bretlands, lagði áherslu á bar-
áttuna gegn upprætingu jarðsprengna fyrir upphaf umræðna á flokks-
þingi Verkamannaflokksins í gær.
Övissa einkennir
andrúmsloftið
✓
Gyðingar í Israel fagna áramótum um
þessar mundir en andrúmsloftið í landinu
einkennist af óvissu um framtíðina segir
Sigrún Birna Birnisdóttir í Jerúsalem.
LIKUR eru á að Tony Banks eigi
ekki eftir að verma lengi stól
íþróttaráðherra í stjórn Tonys Bla-
irs. Leiðtogar Verkamannaflokks-
ins hafa neyðst til þess að biðja
William Hague, leiðtoga íhalds-
flokksins, afsökunar á ummælum
Banks um Hague en ráðherrann
kallaði yfír sig reiði Blairs með
þeim og ýmsum öðrum óvönduðum
ummælum um samflokksmenn.
Banks sagði að íhaldsflokkurinn
hefði kosið leiðtoga sem væri að út-
liti „eins og fóstur" og margir þing-
menn flokksins sæju nú eftir því að
hafa greitt atkvæði gegn fóstureyð-
ingum. Ummælin féllu á fundi, sem
haldinn var sl. þriðjudagskvöld
samhliða flokksþingi Verkamanna-
flokksins í Brighton. Viðstaddir á
sviðinu voru einnig Gordon Brown
fjármálaráðherra og Robin Cook ut-
anríkisráðherra. Steig hann niður af
sviðinu er Banks lét móðan mása
um þingmanninn Peter Mandelson
sem stjómaði kosningabaráttu
flokksins í þingkosningunum í vor
og er ráðherra án ráðuneytis í
stjórn Blairs.
Mandelson, sem er náinn vinur
Blairs, mistókst að ná kjöri í mið-
stjórn flokksins á
flokksþinginu og
hæddist Banks að
því. „Það er ekk-
ert gaman að
sparka í liggjandi
mann, en er það
samt ekki örugg-
ara,“ spurði hann.
Þegar hér var
komið sögu stóð Cook upp og gekk
niður af sviðinu. „Hann vill ekki láta
bendla sig við þessi ummæli,“ hraut
þá út úr Banks, sem bætti við: „Ur-
slitin í kosningunni til miðstjómar-
innar sýna kannski að ekki er um
náið ástarsamband milli hans og
flokksins að ræða, en að fá 68.000
atkvæði er þó á við býsna langan
forleik." Líkti Banks síðan Mandel-
son við persónu í sögunni um Dra-
kúla og varaði þá sem ekki hefðu
stutt hann við því að vera á ferðinni
eftir að skyggja tæki nema byrgja
sig áður upp af hvítlauk.
Sagði ráðherra
í einræktun
Þetta var þó aðeins byrjunin á
háðsglósunum um Mandelson því
hann vék að uppáhalds gæluverk-
efni hans, aldamótahvelfíngunni
svonefndu sem ráðgert er að reisa í
London, og spurði: „Læðist stund-
um að ykkur sá ótti að til séu fleiri
eintök af Peter Mandelson? Hvað
ætli sé eiginlega að gerast í Mill-
bank-turni? [Þar eru höfuðstöðvar
Verkamannaflokksins.] Okkur er
sagt að þar sé fjarskiptamiðstöð.
Ég held hins vegar að þeh- séu að
einrækta hann þar og búa sig undir
að geyma eintökin í aldamótahvelf-
ingunni í Greenwich. Þegar klukkan
slær svo á miðnætti á gamlárskvöld
1999 munu milljónir Mandelsona
birtast undan hvelfíngunni og verða
það endalok siðmenningarinnar eins
og við þekkjum til hennar.“
Fyndni á kostnað Blairs?
Banks hlaut stundum góðar und-
irtektir áheyrenda er hann lýsti
augnablikinu er Tony Blair bauð
honum ráðheiTastól. Er Blair
spurði hvort hann tæki boðinu sagð-
ist Bank hafa svarað með spuming-
unni hvort páfínn væri kaþólskur og
sagði: „Ég bjóst við að tilsvörin
féllu í kramið hjá Cherie [konu Bla-
irs] og vinum Brompton Oratory."
Ætlaði þakið nú að rifna af salnum
því eiginkona Blairs er kaþólsk og
sonur þeirra gengur í Brompton-
einkaskólann.
Háttsettir íhaldsmenn sögðu um-
mæli Banks „smekklaus" og hæfðu
ekki ráðherra. Þau væm í hróplegri
mótsögn við siðferðisboðskap Blairs
á flokksþinginu. Fallið var frá því að
lýsa yfir formlegum mótmælum
vegna ummælanna um William
Hague eftir að forysta Verka-
mannaflokksins baðst afsökunar á
framferði Banks fyrir hönd flokks-
ins. Yfirmaður íþróttaráðherrans,
Chris Smith menningarmálaráð-
herra, sagðist þegar hafa sett ofan í
við hann. Verst þykir forystumönn-
um Verkamannaflokksins að fram-
hlaup Banks hafí orðið til þess að
skyggja á velgengni flokksforyst-
unnar á flokksþinginu, en henni
tókst að afstýra boðaðri uppreisn á
þinginu vegna áforma stjómarinnar
um að stúdentar greiði kennslu-
gjöld í háskólum og synjunar á
kröfum verkalýðssamtaka um að
járnbrautir yrðu þjóðnýttar. Um-
ræðum um bæði málin lyktaði án at-
kvæðagreiðslu.
Þreklaus íþróttaráðherra
Blair er sagður Banks afar reiður
og verði hann látinn fjúka er hann
stokkar upp í stjórninni, sem
stjórnmálaskýrendur segja verði
fyrr en seinna. Vera kann að Banks
hafí sjálfur frumkvæði að því að
hætta því í viðtali við tímarit í gær
sagðist hann vera að kikna undan
starfsálagi. „Ég er ekki við það að
bugast, ekki alveg, en hvíld mundi
koma sér vel,“ sagði hann.
MÁNAÐARLÖNG hátíðarhöld
vegna „Rosh Hashanah“ , nýárs-
dags gyðinga, hófust í lok vikunn-
ar. Við undirbúning hátíðahald-
anna í Jerúsalem hefur hvarvetna
mátt sjá merki þeirrar óvissu sem
íbúar borgarinnar búa við.
Miðbærinn og markaðurinn Ma-
hane Yehuda, sem að jafnaði eru
iðandi af mannlífi, hafa undanfarna
daga staðið hálftómir en í sumar
vora gerðar sprengjuárásir á báða
þessa staði. Auk þess sem kaup-
menn í miðbænum segja verslun
fyrir hátíðirnar vera mun minni en
undanfarin ár segjast þeir hafa
tekið eftir því að þeir sem komi til
að sinna erindum sínum, ljúki ein-
ungis því nauðsynlegasta og flýti
sér svo í burtu.
Við hátíðarhöld á næstu dögum
má einnig gera ráð fyrir miklum
öryggisráðstöfunum, því auk þess
sem hryðjuverk í Israel era yfír-
leitt framin þar sem margir eru
samankomnir hefur sagan sýnt að
andstæðingar Israels velji gjaman
gyðinglegar trúarhátíðir til at-
hafna.
Erfitt ár að baki
I Israel talar fólk um að erfitt ár
sé að baki. Þeir sem höfðu trú á
friðarumleitunum Israela og Pal-
estínumanna hafa séð vonir um
friðsamlega lausn deilunnar
minnka dag frá degi með hryðju-
verkaárásum á ísraelska borgara
og áframhaldandi landnámi ísraela
á Vesturbakkanum. Andstæðingar
Benjamins Netanyahus forsætis-
ráðherra ásaka hann um að kveikja
daglega nýtt ófriðarbál en stuðn-
ingsmenn hans era vonsviknir með
að honum hafi ekki tekist að standa
við kosningaloforð um að binda
enda á hryðjuverk.
Þá era margir ósáttir við þá
ögran sem ríkisstjórn hans hefur
sýnt, bæði Palestínumönnum og
bandarískum stjómvöldum, en
Bandaríkin era helsti stuðningsað-
ili Israela, bæði í fjárframlögum og
á alþjóðavettvangi.
Likudbandalag Netanyahus,
samstarfsflokkar þeirra í ríkis-
stjórn og ný forysta Verkamanna-
flokksins, sem er helsti stjómar-
andstöðuflokkurinn, eru sammála
um réttlæti þess að byggja á
hernumdu landi í Austur-Jerúsal-
em og annars staðar á Vesturbakk-
anum.
Margir era hins vegar ósáttir við
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um
þenslu landnemabyggða og linkind
hennar gagnvart ólöglegum land-
nemum í Ras el-amud á sama tíma
og verið er að reyna að koma frið-
arferlinu, sem sigldi í strand eftir
að Netanyahu samþykkti nýbygg-
ingar í Austur-Jerúsalem, aftur af
stað. Menn hafa bent á að þrjósku-
legar yfirlýsingar forsætisráðherr-
ans ergi ekki einungis Bandaríkja-
menn, sem era að reyna að miðla
málum, Palestínumenn og sam-
herja þeirra heldur dragi einnig at-
hygli heimsins að óvinsælum fram-
kvæmdum sem á öðrum tíma gætu
fari fram í kyrrþey.
Daufar vonir
Þótt viðræður um endurlífgun
friðarferlisins hafi farið fram í
Washington undanfarna daga og í
næstu viku standi til að teknar
verði upp formlegar viðræður um
áframhald þess virðist fólk vera
varkárt í vonum sínum um árangur
að svo stöddu þar sem varla líður
sá dagur að Netanyahu og ríkis-
stjórn hans móðgi ekki yfirvöld á
palestínsku sjálfstjórnarsvæðun-
um. Nú síðast létu þau þekktan
leiðtoga og stofnanda Hamas-sam-
takanna, Ahmad Yasin, lausan úr
fangelsi - að því er talið er af ótta
við að hann létist í vörslu Israela -
eða í skiptum fyrir tvo útsendara
ísraels sem era í haldi í Jórdaníu
eftir að þeim mistókst að ráða ann-
an frammámann samtakanna af
dögum.
A sama tíma krefst Israelsstjórn
þess hins vegar af Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna, að hann
láti handtaka liðsmenn Hamas-
samtakanna og senda þar með
skýr skilaboð um að hann verði að
hlýða ákveðnum reglum á meðan
þau geri það sem þeim sýnist.
Tony Banks
Meirihluti í Sviss
hlynntur ESB-aðild
Reuter
Hér er greitt með evróum!
ÍTALSKUR bankastarfsmaður
sýnir nýja evró-seðla, sem í til-
raunaskyni verður sá gjaldmiðill
sem íbúar þorpanna Pontassieve
og Fiesole nærri Flórens ætla
næsta hálfa árið að greiða með
fyrir vörur og þjónustu í heima-
bæjum sínum. Nokkrir bankar
opnuðu um mánaðamótin sérstök
afgreiðsluborð þar sem fólk gat
skipt lírum fyrir hinn nýja gjald-
miðil, sem írá 1. janúar 1999 á að
verða sameiginlegur gjaldmiðill
Evrópusambandsríkjanna.
Ziirich. Reuter.
MEIRIHLUTI Svisslendinga er
hlynntur aðild Sviss að Evrópu-
sambandinu, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar dagblaðsins
Blick, sem birtar vora á þriðjudag.
Af 2.600 manna úrtaki sögðust
56,4% hlynnt aðild að ESB og
40,7% á móti.
Þar kom einnig fram að í meiri-
hluta svissnesku kantónanna, 14 af
26, er meirihluti fylgjandi ESB-að-
ild en í 9 kantónum era andstæð-
ingar aðildar fleiri en fylgjendur.
Kæmi til þess að Sviss semdi um
aðild að sambandinu yrði meiri-
hluti kantónanna að samþykkja
hana.
Fall EES-samningsins skað-
legt fyrir efnahagslífið
Andstaðan við ESB-aðild nú er
engu að síður minni en andstaða
við samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði, sem var lagður undir
þjóðaratkvæði í Sviss í desember
1992. Níu af kantónunum fjórtán,
sem á sínum tíma höfnuðu EES-
aðild, era þýzkumælandi kantónur
í austurhluta landsins, sem hafa
ævinlega verið tortryggnari í garð
Evrópusamstarfs en frönskumæl-
andi kantónur í vestri.
Svissneskir hagfræðingar segja
að ákvörðun þjóðarinnar um að
standa utan EES hafi skaðað sviss-
neskt efnahagslíf. í samtali við
Reuters-fréttastofuna segir Alex-
ander Kobler, hagfræðingur hjá
Union Bank í Sviss, að vemdaðar
atvinnugreinar hafi hagnazt á því
að standa utan Evrópumarkaðar-
ins, en á heildina litið hafi efna-
hagslífið tapað á því.
Langvinnar viðræður
um tvíhliða samning
Eftir að EES-samningurinn var
felldur hafa svissnesk stjórnvöld
staðið í löngum samningaviðræðum
við Evrópusambandið um gerð tví-
hliða samnings, sem myndi veita
Sviss einhvem hluta af þeim mark-
aðsaðgangi sem EES felur í sér. Á
móti gerir ESB ýmsar kröfur, til
dæmis um að Svisslendingar slái af
takmörkunum á umferð vörabíla
um Alpana og að þeir opni vinnu-
markað sinn í auknum mæli. Enn
hefur ekki náðst samkomulag í við-
ræðunum.