Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 26

Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ u ’M áttatíu óperuhús eru starfandi í Þýskalandi og varla til það bæjar- félag sem ekki býður upp á reglu- legar óperusýningar. Þetta gefur ungum söngvurum einstakt tækifæri til að komast í kynni við harðan heim atvinnu- mennskunnar að námi loknu, hefja feril sinn og öðlast dýrmæta reynslu. Það má segja að óperuhúsin í Þýskalandi séu af öllum stærðum og gerðum, óperuheimurinn birtist þar í hnotskurn. Nýtt starfsár er nú hafið hjá flestum íslensku söngvaranna við óperu- húsin í Þýskalandi. Hanna Dóra Sturludóttir sveif um í sjö- unda himni þegar blaðamaður spurði hana útúr um veturinn framundan. Hún er nýbúin að þreyta frumraun sína með Sinfóníuhljóm- sveit íslands þegar hún söng einsöng á opn- unartónleikum í Háskólabíói. Hanna Dóra sagði „það hafa verið frábært að bytja svona vel. Það voru haldnir þrennir tónleikar, alltaf fullt hús og svo fékk ég fína dóma í þokka- bót.“ Hanna Dóra mun halda áfram þar sem frá var horfíð á síðasta starfsári, en þá söng hún fyrstu dömu í Töfraflautunni við óper- una í Bonn þar sem hún er á gestasamn- ingi. Þá var Cosi fan tutte, einnig eftir Moz- art, frumsýnd í Rostock í lok ágúst og þar fór Hanna Dóra með hlut- verk Fiordiligi. Mozart verður því áberandi hjá Hönnu Dóru í vetur en hún segist þrátt fyrir það ekki gefa sig út fyrir aðsyngja Mozart frekaren annað. „Égert.d. meira fyrir ljóðræn ítölsk hlutverk," sagð hún. Hanna Dóra verður á töluverð flakki milli Bonn og Rostock en vex það, að eigin sögn, ekki í augum þar sem þannig stendur á að hún mun syngja á tónleikum í Berlín milli sýninga í Rostock og Bonn, „þannig get ég losað mig við ferða- þreytuna í Berlín sem er á'milli hinnaborgannatvegga.“ 13. og 14 desember syngur Hanna Dóra t.d. í Jólaóratoríu Bachs og 20. desem- ber Kantötur eftir sama höfund. I janúar eru, einnig í Berlín, á dag- skrá Hönnu Dóru tónleikar með ar- íum úr óperettum. Hanna Dóra hefur starfað án fasts samnings hingað til en sagði að „vel kæmi til greina að gera fastan samning við óperahús og þá jafnvel í öðru landi en Þýskalandi. Mér fínhst t.d. Norðurlöndin mjög spennandi. Ég hitti umboðsmannin minn núna næstu daga og þá skýr- ist kannski eitthvað.“ Á vængjum sönefsins h að hér er n Þeim íslensku söngvurum sem numið hafa land í Þýska- landi undanfarín ár fjölgar stöðugt. Næstum árlega bætast nýir í hópinn og flestir syngja nær eingöngu veigamikil hlutverk. Þórarinn Stefánsson spurði nokkra þeirra útúr um veturinn framundan. hún frumraun sína Múnchen í Bronislava Betlarastúdentinum eftir Carl Millöcker og 5. nóvember tekur við hlutverk Adele í Leður- blökunni eftir Strauss. Þá tekur Hlín þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Berlínar undir stjórn Caspars Richter. Fyrri tónleik- arnir verða 25. október en þeir seinni tveim- ur dögum síðar og þá í Fílharmoníunni í Berlín. STARFSÁRIÐ hjá Jóhanni Smára Sævarssyni bassa- söngvara hefst 3. október þegar hann stígur á svið í hlutverki Antonios í Brúðkaupi Fígaros eftir Mozart. Jóhann Smári, sem nú er að hefja þriðja starfsárið hjá óperunni í Köln, sagðist í samtali við blaðamann vera að leita að öðru óperuhúsi þar sem hann fengi tækifæri til að takast á við veigameiri hlutverk. Átta bassasöngvarar eru á samningi í Köln og sagðist Jóhann Smári „mega teljast heppinn ef hann fengi að takast á við meðalstór hlutverk. Stundum eru meira að segja sóttir gestasöngvarar til að syngja á frumsýningunum." Jóhann Smári nýtur stuðnings óperustýrunnar í Köln en þeim samdist svo um að sýningum hans yrði fækkað úr 120 í 40 til að auð- velda honum leitina að nýjum starfsvett- vangi. Tveir umboðsmenn á meginlandinu vinna fyrir Jóhann Smára en samstarf við aðra tvo, í Bandaríkjunum og á Englandi, er í deiglunni. í vetur mun Jóhann Smári syngja sex hlutverk, konunginn í Aidu eftir Verdi, Ang- elotti í í Toscu eftir Puccini, brynjumanninn í Töfraflautunni og Antonio í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart auk lítils hlutverks í Macbeth eftir Verdi. Elín Halldórsdóttir, eiginkona Jóhanns Smára, er einnig söng- kona en hún hefur í hyggju að þreyta frumraun sína á ljóðatón- leikum á íslandi á næsta ári. _____________ Erlingur Vigfússon er nú að hefja þrítugasta starfsár sitt við óperuna í Köln. Hann mun syngja „og leika“, eins og hann sagði við blaðamann, hérann í barnaó- peru um Lísu í Undralandi eftir Robert Chauls sem frumsýnd verður í Köln 11. októ- ber. Erlingur sagðist eiga eftir að syngja í fímm ár í viðbót til að eiga rétt á fullum eftirlaunum og að eigin sögn verður hann ekki í vandræðum með það, „þó auðvitað sé maður farinn að víkja fyrir yngri rödd- um“. Itarlegt viðtal við Erling mun birtast Morgunblaðið/Þórarinn Stefánsson VÆNTANLEGUR er á markað í nóvember geisladiskur þar sem Kolbeinn Ketilsson mun syngja íslensk sönglög við undirleik Hjálms Sighvatssonar. Upptökur hafa þegar farið fram í hljóðveri Hrólfs Vagnssonar í Hannover. í Morgunblaðinu á næstu vikum þar sem hann segir frá ferli sínum en hann hefur staðið á sviðinu í Köln samfleytt frá árinu 1967. Viðar Gunnarsson flutti sig um set um miðjan ágúst. Síðastliðin tvö ár hefur hann sungið við óperuna í Essen en er nú fluttur til Bonn. Viðar er þrátt fyrir það búsettur í Wiesbaden ásamt fjölskyldu sinni og á nú auðveldara með að fara heim um helgar þar sem aðeins klukkustundar akstur er á milli Bonn og Wiesbaden. V Mér finnstt.d. Norðurlöndin spennandi 'IÐAR hefur þegar sungið í fyrstu tveimur frumsýningunum á þessu starfsári, Fasolt í Rínargulli Wagners 7. september og Dr. Bartolo í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart 27. september. Gagnrýnendur allir voru mjög jákvæðir í garð Viðars. „Það verður brjálað að gera fyrri hluta árs,“ sagði Viðar spurður um veturinn framundan. Framundan eru frumsýningar á Madame Butterfly, Töfraflautinni og Nabucco þar sem Viðar mun syngja stærsta hlutverk óperunnar og draumahlutverk allra bassasöngvara, Zaccaria. í janúar syngur Viðar í tónleikauppfærslu á Valkyrjum Wagners undir stjórn Éliahu Inb- al í Bern í Sviss. Meðsöngvarar Viðars verða m.a. Cheril SLuder og danski tenórinn Stig Anderson. Kolbeinn Ketilsson er nú að helja fyrsta starfsár sitt við óperuna í Dortmund. Æfíng- ar á óperunni Trójumönnunum, „Les Troy- ens“, eftir Berlioz standa nú yfir en þar fer Kolbeinn með hlutverk Énée, sem jafnframt er aðalhlutverk óperunnar og með erfiðari tenórhlutverkum sem skrifuð hafa verið, að sögn Kolbeins. Hann syngur sína fyrstu sýn- ingu 3. október. Það er þó ekki frumraun hans á sviðinu í Dortmund því í apríl söng Kolbeinnhlutverk Max í Frískyttunni eftir Weber. í vetur mun Kolbeinn fást við hlutverk Cavaradossis í Toscu eftir Puccini, Erik í Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner og 22. nóvember verður ný ópera frumsýnd á sviðinu í Dortmund og mun Kolbeinn syngja þrjú hlutverk. Hér er um að ræða óperu eftir Gerhard Rosenfeld og er hún byggð á því þegar Willy Brandt þáverandi kanslari Þýskalánds kraup á kné í opinberri heimsókn til Varsjár í Póllandi. Þessi atburður þótti táknrænn og er nú efni í heila óperu. Kol- beinn lætur vel af sér í Dortmund en hahn söng áður við óperuna í Hildesheim. Væntan- legur er á markað í nóvember geisladiskur þar sem hann mun syngja íslensk sönglög við undirleik Hjálms Sighvatssonar. Upptök- ur hafa þegar farið fram í hljóðveri Hrólfs Vagnssonar í Hannover. Eiginkona Kolbeins er sópran- söngkonan Unnur Wilhelmsen en hún er nýkomin frá Ítalíu þar sem hún söng aríur með Teatro Mas- simo Hljómsveitinni í Palermo. ___ Framundan eru tónleikar á Ítalíu ogí Vín. Sú var tíð í Þýskalandi að Sólrún Braga- dóttir hélt ein uppi merkjum ísjenskra söng- kvenna á erlendri grund. Nú er öldin önnur. Hiín Pétursdóttirhóf söngferil sinn, eins og Sólrún, við óperuna í Kaiserslautem. Hlín er nú búin að gera samning við þá sögu- frægu óperu við Gártnerplatz í Miinchen. Hlín er nú búin að koma sér vel fyrir í einni af háborgum óperunnar í Evrópu og líst vel á veturinn framundan. 21. september song Hér þekkja margir Sieg linde ‘LÍN sagðist hlakka til vetrarins og að fá tækifæri til að spreyta sig í Múnchen. „Munurinn á því að syngja hér og í Kaiserslautern er að hér er nóg af söngvurum þannig að stjórn- endur geta valið í hlutverk eftir lit radd- anna,“ sagði Hlín. „Álagið er minna á söngv- urunum og útkoman er einfaldlega betri list.“ Tuttugu ár eru síðan Siegjinde Kahmann, sem var kennari Hlínar á íslandi, söng við óperuna við Gártnerplatz í Múnchen. „Hér þekkja margir Sieglinde ogt.d. stúlkan sem farðaði mig um daginn þekkti hana frá því fyrir tuttugu árum, en hún var að hefja störf hjá óperunni um það leyti sem Sieglinde var að hætta. Sieglinde söng í Brúðkaupi Figa- rós hér og ég líka búin að hitta greifann hennar. Hann sagði með stjörnur í augunum að hann hefði ekki hitt neina sem kæmist nálægt Sieglinde í hlutverki greiíýnjunnar." Fjórar ungar íslenskar söngkonur að auki munu vafalaust láta að sér kveða á óperusviðinu í náinni fram- tíð. Magnea Tómasdóttir hefur hlot- ið inngöngu í óperustúdíóið í Köln og Guðrún Ingimarsdóttirí Stutt- gart og Arndís Halla Ásgeirsdóttir í Berlín munu ljúka námi á næstu mánuðum en þær hafa þegar fengið tækifæri á sviðinu. Auður Gunnars- dóttirer á höttunum eftir föstum samningi við óperuhús en hún mun koma fram á íjölda tónleika víða um Þýskaland í vetur. íslendingar fá að njóta söngs Sólrúnar Bragadóttur óvenj u mikið á þessu starfsári. Hún hefur undan- farin ár sungið aðalhlutverk í ijöl- mörgum óperum vítt og breitt um Evrópu en „of lítið komið fram á íslandi, nema helst með Sinfóníu- hljómsveitinni", sagði Sólrún. í vet- ur verður breyting á því. Nú standa yfir æfingar á Cosi fan tutte hjá íslensku óperunni og fer Sólrún með hlutverk Fiordiligi, en þetta hlutverk söng hún m.a. í uppfærslu óperunn- ar í Liege í Belgíu sem sjónvarpað var um Evrópu. íslenska óperan mun frumsýna Cosi fan tutte hinn 10. október. Sólrún mun koma fram sem einsöngvari á Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í byij- un janúar og með Jónasi Ingi- mundarsyni á frönskum ljóðatón- leikum í byijun febrúar. Þá heldur Sólrún til Kassel í Þýskalandi og syngur þar hlutverk Angelicu í Orlando Palladino eftir Hándel. Magnús Baldvinsson bassasöngvari er að hefja annað starfsár sitt hjá sameinuðu borg- arleikhúsi Krefeld og Mönchengladbach, „Vereinigte Stádtische Búnen Krefeld- Mönchengladbach", en hann söng áður við óperuna í Detmold. II Trovatore eftir Verdi var frumsýnd 14. september og söng Magn- ús hlutverk Ferrados. Magnús mun verða með sjö hlutverk á takteinunum í vetur. Superintendent Budd í óperunni Albert Herring eftir Benjmin Britten, hlutverk læknisins í Wozzek og Krespel og Luther í Ævintýrum Hoffmans eftir Offenbach hefur hann ekki sungið áður en auk þess syngur Magnús hlutverk Elviros í Xerxes eftir Hándel og í óperunni Vitanum, „The Lighthouse" eftir Peter Maxwell Davies. Síðast en ekki síst má nefna hlut- verk í óperunni Við sólarupprás, „Wenn die Sonne Áufgeht“, eftir Cong Su en óperan var heimsfrumsýnd á síðasta ári við óperuna í Krefeld-Mönc- hengladbach. Cong Su fékk m.a. Óskarsverðlaun fyrir tónlistina við mynd Bertoluccis Síðasta keisar- ______ ann. Magnús verður með um 60 sýn- ingar á þessu starfsári en sér ekki fram á að syngja fyrir íslenska áheyrendur í bráð. Hann sagðist stefna á að starfa sem laus- ráðinn söngvari í framtíðinni og í því sam- bandi er Magnús á leið til Englands til að komast í samband við nýjan umboðsmann. Raddsvið Magnúsar hefur breyst nokkuð og er hann „við það að geta sungið hetjubari- ton. Það mundi gefa mér færi á að syngja fjþjda nýrra hlutverka eins og t.d. Votan,“ sagði Magnús í samtali við blaðamann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.