Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 49
)
I
I
)
I
I
I
.
í
5
I
I
I
i
J
Umdæmisleiðtogar Hjálpræð-
ishersins heimsækja Island
HJÓNIN Margaret og Edward
Hannevik, kommandörar í Hjálp-
ræðishernum, heimsækja ísland
dagana 3.-10. október. Þau eru
miklir íslandsvinir og hafa oftsinn-
is komið til íslands m.a. þegar
herinn hélt upp á 100 ára afmæli
sitt. Þau starfa nú sem leiðtogar
hersins í Færeyjum, Noregi og á
íslandi.
Þau hitta hermenn og samheija
Reykjavíkurflokks á föstudags-
Edward Margaret
Hannevik Hannevik
kvöldið kl. 20 og halda síðan til
Akureyrar á laugardaginn þar sem
þau verða með samkomur á heimili
fyrir aldraða seinnipartinn og svo
í nýuppgerðum hersalnum kl. 20.30
sama kvöld. Fjölskyldusamkoma
verður kl. 16 á sunnudag og síðan
kvöldsamkoma í Reykjavík kl. 20.
Fimmtudaginn 9. október verða
þau í Reykjavík ásamt foringjum
frá Færeyjum og Islandi. Allir eru
velkomnir.
KENNARAR og starfsfólk viðskiptaskorar Háskóla íslands. Fremri röð frá vinstri: Runólfur Smári
Steinþórsson, dósent ojg umsjónarmaður meistaranáms í viðskiptafræði, Hildur Bjarnadóttir, fulltrúi
á skrifstofu, Snjólfur Olafsson, prófessor og skorformaður viðskiptaskorar, Kristín Klara Einarsdótt-
ir, skrifstofustjóri og Þráinn Eggertsson, prófessor. Aftari röð frá vinstri: Þórir Einarsson, prófessor
í leyfi frá störfum, Agnar Hansson, lektor, Axel Hall, stundakennari, Guðmundur Ólafsson, lektor,
Stefán Svavarsson, dósent, Bjarni Karl Guðlaugsson, stundakennari, Ingjaldur Hannibalsson, dósent,
Ágúst Einarsson, prófessor í leyfi frá störfum, Árni Vilhjálmsson, prófessor. Einnig starfar við deild-
ina Brynjólfur Sigurðsson, prófessor og deildarforseti, Krislján Jóhannsson, lektor, Tryggvi Þór
Herbertsson, lektor, og Guðbjörg Jóhannesdóttir, fulltrúi á skrifstofu.
16 nemendur í meistaranámi
í viðskiptafræði
16 NEMENDUR hófu nám til
meistaraprófs í viðskiptafræði
við Viðsldpta- og hagfræðideild
Háskóla íslands 1. september sl.
Meistaranámið er að lágmarki 45
einingar sem samsvarar fullri
vinnu í eitt ár. Nemendur hafa
þrjú ár til að ljúka náminu þann-
ig að það hentar einnig fyrir þá
sem vilja vinna með námi.
I skipulagi námsins er gert ráð
fyrir að þriðjungur þess eða eitt
misseri fari fram við erlendan
háskóla sem Viðskipta- og hag-
fræðideild er í samstarfi við.
Fyrstu nemendurnir munu dvelj-
ast erlendis á vormisseri 1998 og
meirihluti nemenda mun fara til
Verslunarháskólans í Árósum í
Danmörku ekki síst vegna þess
að fyrirmyndin að meistaranám-
inu er sótt til skólans. Viðskipta-
og hagfræðideild hefur í þessu
skyni gert sérstakan samning við
Verslunarháskólann í Árósum og
vinnur að því að gera sambæri-
lega samninga við aðra skóla á
Norðurlöndum og víðar.
Á skólaárinu 1997-1998 hafa
4 nemendur valið alþjóðaviðskipti
sem sérsvið, 3 nemendur völdu
sérsviðið rekstrarstjórnun og
kostnaðarstýring og 9 nemendur
hafa valið stjórnun og stefnumót-
un sem sérsvið. Námið fer þannig
fram að nemendur sækja svoköll-
uð grunnnámskeið á haustmisseri
og síðan sérhæfð námskeið á vor-
misseri, samtals 30 einingar. Að
námskeiðum loknum skila nem-
endur annað hvort 15 eða 30 ein-
inga ritgerð.
Nemendur sem innritast í
meistaranám í viðskiptum hafa
hið minnsta lokið BS-prófi í
viðskiptafræði eða skyldum
greinum. Nemendur með BS-
próf úr öðrum greinum eiga þess
kost að sækja undirbúningsnám
og á skólaárinu 1997-1998 eru
4 nemendur í undirbúningsnámi.
Umsóknarfrestur um inngöngu
í meistaranámið er einu sinni
á ári, næst hinn 1. maí 1998.
Ákvarðanir um inngöngu eru
teknar af 3 manna vísinda-
nefnd viðskiptaskorar sem hef-
ur forystu um þróun námsins
og framkvæmd þess. Formaður
nefndarinnar og umsjónar-
maður meistaranámsins er dr.
Runólfur Smári Steinþórsson,
dósent.
FYRSTI hópurinn sem innritaður var í meistaranám í viðskiptafræði skólaárið 1997-1998 ásamt um-
sjónarmanni námsins. Fremri röð frá vinstri: Inga Jóna Jónsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Runólfur
Smári Steinþórssson, umsjónarmaður meistaranáms í viðskiptafræði, Arna S. Sigurðardóttir og Ásgerð-
ur Halldórsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Helgi Baldursson, Einar Guðnason, Arnþór Gylfi Árnason, Jón
E. Unndórsson, Einar G.Ó. Einarsson, Úlfar B. Thoroddsen, Magnús í. Guðfinnsson og Helgi Gestsson.
Á myndina vantar: Eyþór Ivar Jónsson, Sigurgeir Sigurgeirsson, Auði B. Jónsdóttur og Eggert Claessen.
KIRKJAN í Krýsuvik.
Messuferð
FARIÐ verður í messuferð til Krýsu-
víkur frá Hafnarfjarðarkirkju sunnu-
daginn 5. október og lagt af stað
með áætlunarbíl og einkabílum frá
kirkjunni kl. 11. Sr. Gunnþór Ingason
mun messa í Krýsuvíkurkirkju þegar
þangað verður komið um kl. 11.40
og Natalia Chow organisti stjórnar
söng félaga úr Kór Hafnarfjarðar-
kirkju.
Við lok messunnar verður altaris-
tafla Krýsuvíkurkirkju eftir Svein
Björnsson listmálara tekin niður til
vetursetu í Hafnarfjarðarkirkju.
Sveinn málaði altaristöfluna skömmu
fyrir andlát sitt og hugðist gefa hana
Krýsurvíkurkirkju. Hún var vígð og
hengd upp í kirkjunni rétt eftir að
hann hafði verið jarðsettur í garði
kirkjunnar. Eftir messuna mun dr.
í Krýsuvík
Arni Daníel Júlíusson sagnfræðingur
segja frá kirkjustaðnum og lýsa nán-
ast umhverfi hans. Ef veður leyfir
veður ekið um Krýsuvík en lagt svo
af stað aftur til Hafnarfjarðarkirkju
þar sem altaritaflan verður hengd
upp. Að því loknu verður þeim sem
koma í messuferðina boðið upp á
léttan hádegisverð í Strandbergi,
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Altaristafla Krýsuvíkurkirkju verður
færð til síns heima er vorar á ný.
Messan í Krýsuvíkurkirkju kemur
í stað árdegisguðsþjónustunnar í
Hafnarfjarðarkirkju en sunnudaga-
skóli mun hefjast þar ki. 11 og tón-
listarguðsþjónusta kl. 18 sem sr.
Þórhildur Olafs mun annast. Eyjólfur
Egilsson, nemandi Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, leikur á þverflautu.
Átelur vinnubrögð varð
andi Yífilsstaðaspítala
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi ályktun frá fundi starfs-
mannaráðs Ríkisspítala sem haldinn
var 29. september 1997 um fyrirhug-
aðan flutning lungnadeildar Vífils-
staðaspítala hinn l._ nóvember nk.:
„í kvöldfréttum Útvarps þann 13.
september sl. var sagt frá samkomu-
lagi undirrituðu af heilbrigðisráð-
herra, fjármálaráðherra og borgar-
stjóranum í Reykjavík sem fólk meðal
annars í sér að flytja skyldi lungna-
deild frá Vífilsstöðum á Landspítalann
eða nágrenni hans ekki síðar en 1.
nóvember nk.
Þessi ákvörðun var tekin án fag-
legs samráðs og öllum sem til þekkja
er ljóst að engar líkur eru til þess að
af henni verði nema ráðuneytið sé
tilbúið að skerða stórkostlega alla
þjónustu við þá sjúklingahópa sem
nú njóta athvarfs á Vífílsstöðum og
þrengja enn frekar að rekstri lyfja-
deildar Landspítalans sem þó á við
ærinn vanda að etja í þessum efnum.
Afleiðing þessa fréttaflutnings er
aftur á móti ótti og öryggisleysi með-
al sjúklinga og aðstandenda þeirra.
Þessi framkoma yfirmanna ráðuneyt-
is heilbrigðismála Iýsir jafnframt full-
kominni fyrirlitningu og skeytinga-
leysi um starfsemi Vífilsstaðaspítala
og um leið á störfum annars heilbrigð-
isstarfsfólks á Ríkisspítölum. Fundur-
inn átelur þessi vinnubrögð harðlega
og undrast viljaleysi heilbrigðismála-
ráðuneytis til faglegrar framsýni í
samvinnu við heilbrigðisstéttir.11
Alþjóðleg sýning hundaræktenda
ALÞJÓÐLEG ræktunarsýning
Hundaræktarfélagsins verður að
þessu sinni haldin í reiðhöll Gusts í
Kópavogi um helgina. Dæmdir verða
260 hundar af 39 tegundum og hefj-
ast dómar kl. 11 laugardag og sunnu-
dag. Dómarar að þessu sinni eru
Jean Lanning frá Bretlandi og Niis
Molin frá Svíþjóð.
Keppni ungra sýnenda fer fram
á laugardeginum um kl. 16. Tuttugu
og sjö börn og unglingar keppa að
þessu sinni. Á sunnudeginum verður
valinn besti ungi sýnandi ársins, og
einnig verður stigahæsti hundur
ársins heiðraður.
Úrslit sýningar eru áætluð um
kl. 15.45 á sunnudag.
LEIÐRÉTT
Ekkí öllum sagt upp
í FRÉTT um uppsagnir hjá Sjávar-
fiski í Hafnarfirði kom ekki fram að
starfsfólki í harðfiskvinnslu fyr-
irtækisins hefur ekki verið sagt upp.
Þar starfa fimm manns.
Of fáar stjörnur
I kvikmyndadómi Sæbjarnar Valdi-
marssonar í blaðinu á miðvikudag
um Sigga Valla á mótorhjóli, sem
sýnd er í Háskólabíói, voru of fáar
stjörnur. Hann gefur myndinni
★ ★ ★. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
í meðförum blaðsins á fréttatilkynn-
ingu frá Þjóðminjasafninu í blaðinu
í gær var föðurnafn Elsu E. Guðjóns-
son ekki rétt. Beðist er velvirðingar.
Nafn féll niður
í inngangi minningargreina um Hall-
dór Órn Þórðarson 30. september
síðastliðinn féll niður nafn móður
hins látna. Hún hét Sigrún Símonar-
dóttir. Mbl. biðst velvirðingar á mis-
tökunum.
Sýning o g
hljóð í
Sýnirými
TUMI Magnússon opnar sýningu
í Galleríi Barmi á morgun. Verk
hans ber engan titil en mun vera
einkar notadijúgt til þess að opna
flöskur. Tumi hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga hérlendis sem
og erlendis og haldið fjölda einka-
sýninga.
Galleríin Hlust og Sýnibox
munu í samstarfi við undirróð-
ursmaskínuna RelaxFax heiðra
minningu rithöfundarins Williams
S. Burroughs með flutningi t
tveimur hljóðverkum hans í októ-
ber. Hægt verður að hringja inn
í síma 551 4348 frá og með 4.
október.
í Gallerí 20 m2, Vesturgötv
lOa, stendur yfir sýning Kristins
E. Hrafnssonar til 12. október.
Gallerí 20 m2 er opið frá kl. 15-18
frá miðvikudegi til sunnudags.