Morgunblaðið - 03.10.1997, Síða 50

Morgunblaðið - 03.10.1997, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska Smáfólk I STAYED UP TIL TEN O'CLOCK REAPIN6 ASOUT C0LUMBU5.. Ég vakti til klukkan tíu Ég lagði á minnið við að iesa um Kólum- stafsetninguna á bus ... hverju orði á þess- um lista ... Ég las alla Ég lagði á þessa bók minnið hverja tvisvar... höfuðborg í hverju fylki. Ég er með kopar- armband... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 VIÐ lærðum hvernig við losum okkur úr bílbelti í bíl á hvolfi. Verum í góða skap- inu í umferðinni Frá hópi 38 og 41: HÓPUR ungra ökumanna sem sótti námskeið Sjóvá-Almennra í Stykk- ishólmi og Reykjavík skoðaði meðal annars hvernig draga megi úr al- gengustu tjónum hjá ungum öku- mönnum í dag. Eftirfarandi tillögur komu fram: Aftanákeyrslur Flest tjón ungra ökumanna eða 27% má rekja til þessa fiokks. Því bendum við ykkur á að auka bil á milli bíla og fylgjast með bílunum í kringum ykkur. Jafna meira hrað- ann svo bilið haldist jafnt. Einbeita ykkur að akstrinum. Ekki draga snöggt úr hraða. Reiknið með að tafir geti átt sér stað í þéttri umferð síðdegis á föstudegi og því geti umferð stöðvast snögglega. Bakkaðá Hvernig getum við varast óhöpp þegar við bökkum? Við leggjum til eftirfarandi: Verið varkár og ein- beitið ykkur að akstrinum, horfið vel aftur fyrir bílinn, hugsið vel um utanaðkomandi aðstæður og nýtið vel spegla og hafið þá alltaf hreina og sömuleiðis rúðurnar. Fjarlægið óþarfa drasl úr afturglugga. Fjár- festið í „bakkvælu", hún varar ykk- ur við ef þið eruð of nálægt næsta bíl, og hafið bakkljósin í lagi. Forgangur á gatnamótum Til að forðast óhöpp á gatnamót- um hvetjum við ykkur til að vera þolinmóð, hægja á ykkur þegar þið nálgist gatnamót, skoða vel hvort umferðarmerki séu á gatnamótunum og ef svo er, virða bið- eða stöðvun- arskylduna. Akreinaskipti Akið á löglegum hraða og miðið aksturinn við aðstæður. Veljið réttar akreinar og verið meðviandi um hvert þið eruð að fara. Með auknu bili milli bíla eruð þið að skapa rými fyrir akreinaskipti. Notið stefnuljós og spegla og munið að huga að „blinda" blettinum!! Munið að lítil truflun eins og þegar við erum að stilla hljómflutningstæki getur truflað okkur við aksturinn. Að lokum hvetjum við ykkur til að vera þolinmóð og brosa í umferðinni. F.h. hóps 38og41, EINAR GUÐMUNDSSON, fræðslustjóri Sjóvár-Almennra. Opið bréf til tollstjóra- embættisins Frá Lúðvík E. Gústafssyni: HÁTTVIRTI tollstjóri. Ég segi farir mínar ekki sléttar vegna afgreiðslu embættis yðar á bókakaupum mínum. Miðvikudaginn 1. október barst mér tilkynning um bókasendingu frá Bretlandi. Þegar ég ætlaði að sækja sendinguna í tollpóststofuna við Ármúla var mér gert að greiða rúmlega 5.000 kr. í gjöld. Mér brá heldur betur við enda átti kaupverð bókanna ekki að vera nema um 2.000 krónur. í ljós kom að tollstjóraembættið ákveður gjöld ekki eftir söluverði heldur eftir upp- gefnu virði bókanna og vísaði starfs- maður tollpóststofunnar í vinnuregl- ur tollstjóra. Um er að ræða tilboð bókaklúbbs í Bretlandi þar sem menn geta fengið átta binda rit um hnignun Rómaveldis til forna fyrir um 18 ensk pund en virði bókanna er 184 pund samkvæmt upplýsing- um klúbbsins hvað sem orðið „virði“ þýðir í þessu samhengi. Mig langar að vita eftir hvaða reglugerðum eða lögum er farið í þessu tilfelli. Sök sér að menn þurfi að greiða há gjöld fyrir bókakaup erlendis og þurfi þar fyrir utan að bíða á tollpóststofum þessa lands, en að gjöldin séu ákveð- in eftir einhveijum tölum en ekki eftir sannanlegu söluverði vöru kalla ég nútíma sjórán. Að hún sé stunduð í nafni hins opinbera og þar með okkar allra tel ég til háborinnar skammar og ekki sæmandi þjóð sem kallar sig menningarþjóð. Sé virki- lega fótur fyrir þessu í lögum bið ég þingmenn um að beita sér fyrir því að lögunum verði breytt ellegar sýna fram á að slík vinnubrögð hafi bætandi áhrif á menningarstarfsemi. P.S. Ég hafnaði að greiða gjöldin á þessum forsendum og lét sending- una fara aftur til baka en sárnar að standa frammi fyrir menningar- snauðu skrifræði í framkvæmd. LÚÐVÍK E. GÚSTAFSSON Hagamel 26, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 11 15. NETFANG: MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.