Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 1
160 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 232. TBL. 85. ÁRG. 74 menn far- ast í flugslysi ARGENTÍNSK farþegaflugvél brot- lenti í Uruguay í fyrrinótt eftir að hafa tekið á sig krók vegna þrumu- veðurs. Allir um borð í vélinni, 74 menn, fórust. Vélin var í eigu argentínska flugfé- lagsins Austral og brotlenti í mýri skammt frá landamærum Argentínu. Hún var á leiðinni frá Buenos Aires frá Posadas í norðausturhluta lands- ins. Flugvélin missti samband við flug- umferðarstjórnina þegar flugmaður- inn reyndi að sveigja framhjá óveð- ursskýinu. 69 farþegar voru í vélinni, þar af þijú smábörn, og fimm í áhöfn- inni. Stal offjár handa konunni YASUYOSHI Kato, fjármálastjóri jap- ansks matvælafyrirtækis í Bandaríkj- unum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að draga sér andvirði rúmra átta milljarða króna á fimm ár- um og mun þetta vera mesti fjárdrátt- ur sem afhjúpaður hefur verið í Bandaríkjunum. Maðurinn kvaðst hafa stolið fénu vegna gegndarlausrar eyðslusemi konu sinnar, sem eyddi megninu af peningunum í hús, bfla, skartgripi, súraldinsbúgarð og safn villtra dýra, fugla og sjaldgæfra fiska. I safni kon- unnar voru m.a. 7.000 arnpáfar, níu lamadýr, tveir emúar og fjórar græneðlur. Konan kvaðst einnig hafa haft níu þjóna á heimili sínu og ráðið ellefu vopnaða lífverði, sem skiptust á um að vernda hana allan sólarhring- inn. Fyrirtæki Katos, Day-Lee Foods, er í eigu eins af stærstu ýötvinnslufyrir- tækjum Japans. Laun nokkurra af æðstu stjórnendum fyrirtækjanna voru Iækkuð vegna fjárdráttarins. Dæmd fyrir kyn- þáttafordóma FRANSKUR dómstóll hefur dæmt Brigitte Bardot til að greiða 10.000 franka, and- virði 120.000 króna, í sekt fyrir að kynda undir kynþáttafor- dómum. Leikkonunni fyrrverandi var enn- fremur gert að greiða mannréttindahreyfingu einn franka, jafnvirði 12 króna. Hreyfingin hafði höfðað mál gegn Bardot vegna blaðagreinar þar sem hún gagnrýndi slátrun sauðíjár við trúarathafnir múslima. SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/RAX Gleðskapur við Tjörnina Kosningaskjálftinn líður hjá í Danmörku Morgunblaðið. Kaupmannahöfn. ALLT benti til að Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefði alla þræði í sínum höndum er hann flutti stefnu- ræðu sína á þriðjudag, en eftir átök um að- haldsaðgerðir og kosningaskjálfta virðist hann enn einu sinni hafa misst tökin. Venstre og íhaldsflokkurinn þvinguðu stjómina til að semja um aðhaldsaðgerðir, sem hún hafði hafnað og Jafnaðarmannaflokkurinn var rækilega minntur á hve hann er háður sam- starfsflokki sínum, Róttæka vinstriflokknum. Átökin stóðu um tillögu stjórnarinnar um eitt prósent þvingaðan sparnað á næsta ári af fullum tekjum, er rynnu í opinberan líf- eyrissjóð. Þegar í ljós kom að allir áttu að fá það sama til baka úr sjóðnum sagði Mari- anne Jelved efnahagsráðherra (RV) að þetta væri í raun skattur og sama sögðu hægri- flokkarnir tveir, þótt forsætisráðherrann hafnaði þessari skilgreiningu. Hann virtist stefna á að láta stjómina springa í þessu máli og blása þá til kosninga. Flokkur hans stendur betur í skoðanakönnunum en oft áð- ur og keppinauturinn, Venstre, hefur dalað. Hugmyndin var vísast að kosningar gætu framlengt líf ríkisstjórnarinnar um 3-4 ár, en hún hefur nú setið í fimm ár. Féllst að lokum á samninga Eftir harðar þingumræður á flmmtudag, þar sem forsætisráðherrann sagði stjómar- andstöðuna ófúsa til samninga, lét hann þó undan ákafri hvatningu allra flokka til að freista samninga. Hann lýsti því síðan yfir kl. 1.30 um nóttina að grundvöllur væri til að semja við hægriflokkana tvo. I gær lá svo fyrir að þvingaði sparnaðurinn yrði í raun spamaður með góðri ávöxtun, auk þess sem sparnaðaráform er hægristjómin kom á, en Jafnaðarmannaflokkurinn afnam, yrðu tekin upp. Þetta er í annað sinn sem Nyrup Rasmus- sen er að því kominn að efna til kosninga, því í apríl var hann einnig kominn á fremsta hlunn með það. Eftir átök vikunnar hefur Nymp Rasmussen enn styrkt orðspor sitt sem óákveðinn og hikandi leiðtogi og verið rækilega minntur á að flokkur hans með rúmlega 30% fylgi er háður litlum miðflokk- um eins og Róttæka vinstriflokknum. Sá flokkur er ófús til kosninga því hann stendur illa samkvæmt skoðanakönnunum. Þó að hægriflokkarnir tveir tali stöðugt um að velta stjórninni vilja þeir tæplega kosningar sem stendur, þvi Ihaldsflokkurinn er enn óstyrkur eftii- formannsskipti í vor, er Hans Engell fór frá, og Venstre er á niðurleið. ■ Velferðarkerfið/24 BANKARÁ BIÐILSBUXUM 10 ÞJÓNUSTA VIÐ SMÁ VERSLANIR Á BREIÐU SVIÐI FJÆR t q OG -2 NÆR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.