Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 49
BREF TIL BLAPSIMS
Kennewick-maðurinn -
komust norrænir menn til
Ameríku fyrir níu þúsund árum?
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
FYRST er að spyija - síðan að segja
til og svara. Það sem gerðist í
Kennewick í Washington ríki í fyrra-
haust var þetta: Menn voru að ryðja
fyrir húsgrunni á stað nærri upptök-
um Colorado-árinnar, og kom þá
beinagrind upp með ruðningnum,
og virtist hún vera af Norður-Evr-
ópumanni. Fornleifafræðingum var
gert viðvart, og fengu þeir beina-
grindina til varðveislu; fyrsta álykt-
un var að þarna væri norrænn land-
nemi frá 19. öld, sem líklega hefði
verið myrtur og grafinn á laun. En
þá tóku menn eftir því, að spjóts-
oddur sem stungist hafði í aðra
mjöðmina, var af eldfornri gerð,
um 9.000 ára. Kolefnisrannsókn á
beinunum staðfesti fornleifafræð-
ina: 9.300 ár. Ráðgáta sú lá vissu-
lega fyrir, hvernig hánorrænn mað-
ur gat hafa borið beinin nærri
Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku
fyrir meira en 9.000 árum eða
skömmu eftir tok ísaldar.
Nú spurðist þetta út og Rauð-
skinnafélag vísaði til þess réttar sem
þeir hafa til að grafa sína menn
eftir fornum trúarsiðum, og vildu
fá beinin, en mótmæltu því að þau
yrðu frekar rannsökuð. Var þetta
þá orðið að deilumáli milli vísinda-
mannanna og indíána; hvort skyldi
meira metið: réttur trúmanna til að
greftra beinin áður en skorið væri
úr, hveijum þau bein tilheyrðu, eða
réttur vísindanna. En nú gerðist hið
óvænta. Menn frá Ameríska-Ása-
trúarfélaginu (AFA) gáfu sig fram
og heimtuðu að fá að veita hinum
látna Ásatrúargreftrun, þar sem
fornmaður þessi væri af norrænum
uppruna. Umsjónarnefnd menja
leyfði báðum að syngja yfir beinun-
um, en tók þau þó til varðveislu
fyrst um sinn. Málið er langt frá
því útkljáð, en víst er talið, af mjög
virtum fræðimönnum, að
Kennewick-maður hafi verið af
stofni indóevrópumanna, og mundi
hann þá teljast undanfari Leifs
heppna í því að nema Ameríku.
Málið hefur vakið geysilega at-
hygli. Þetta er reyndar elsta manns-
beinagrind sem fundist hefur í norð-
vesturríkjunum. Sjö síðna grein birt-
ist um málið í vor í The New Yor-
ker, en styttri greinar birtast í fjölda
blaða. - Tímaritið Runestone, gefið
út í Kaliforníu, rekur málið ítarlega
í sumarheftinu 1997, og er E-póst-
fang þeirra: asatruoro.net en vef-
fangið: http://runestone.org - Á
Internet, deild altavista, er sífellt
að bætast við efni af ýmsu tagi um
þetta mál.
Mér finnst ástæða til að íslend-
ingar fái að vita um þetta mál, og
þó sérstaklega, ef farið verður að
heiðra minningu Leifs heppna um
aldamótin nk. Má búast við að Leif-
ur heppni og Kennewick-maður
verði nokkuð oft nefndír saman, við
hátíðahöldin vestra.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Fram sagnar n ám skei ð
Hvunndagsleikhúsið heldur námskeið í framsögn
á mánudögum í átta vikur. Námskeiðið hefst 20.
október kl. 20.00—22.00.
M.a verður kennd raddbeiting, tjáning, hlustun
og öndun. Einnig verða kenndar aðferðir til að
standa fyrir máli sínu á árangursríkan hátt, efla
sjálfstraust og sjálsvirðingu.
Leiðbeinandi er Inga Bjarnason, leikstjóri.
Upplýsingar í síma 561 9919 milli kl. 10 og 12.
vss_________:______,______________________________
vegna prófkjörs Sjálfstœðisflokksins
í dag, sunnudag, kl. 15:00
í Austurstrœti 10
Stuðningsmenn
Kosningamiðstöðin Austurstræti
Símar: 561 9599/561 9526/561 9527
www.reykjavík. com
-kjarni málsins!
kest. klst. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Timi
Windows 8 6 13.10. 14.10. - - 18:00-21:00
Word 1 20 15 20.10. 21.10. 22.10. 23.10. 17:20-21:05
Word II 20 15 20.10. 21.10. 22.10. 23.10. 17:20-21:05
Word II 20 15 17.11. 18.11. 19.11. 20.11. 17:20-21:05
Excel 1 20 15 27.10. 28.10. 29.10. 30.10. 17:20-21:05
Excel II 20 15 13.10. 14.10. 15.10. 16.10. 17:20-21:05
Excel II 20 15 08.12. 09.12. 10.12. 13.12. 17:20-21:05
Internet kynning 8 6 - - 15.10. 16.10. 18:00-21:00
Vefslðugerð -HTML forr. 20 15 17.11. 18.11. 19.11. 20.11. 17:20-21:05
Vefsíðugerð -HTML forr. 20 15 08.12. 09.12. 10.12. 13.12. 17:20-21:05
PowerPoint 20 15 10.11. 11.11. 12.11. 13.11. 17:20-21:05
Tollskýrslugerð TOK 20 15 27.10. 28.10. 29.10. 30.10. 17:20-21:05
| Fjárhagsbókhald 1 TOK 20 15 03.11. 04.11. 05.11. 06.11. 17:20-21:05
Fjárhagsbókhald 1 - TOK 20 15 24.11. 25.11. 26.11. 27.11. 17:20-21:05
Lotus Notes 1 20 15 03.11. 04.11. 05.11. 06.11. 17:20-21:05
1 Lotus Notes 1 20 15 24.11. 25.11. 26.11. 27.11. 17:20-21:05
Lotus Notes II 20 15 10.11. 11.11. 12.11. 13.11. 17:20-21:05
Access1 20 15 01.12. 02.12. 03.12. 04.12. 17:20-21:05
Access II 20 15 08.12. 09.12. 10.12. 11.12. 17:20-21:05
Upplýsingar og innritun í síma 588 5810
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Faxafeni 10» Framtíðin »108 Reykjavík • Sími; 588 5810 • Fax: 588 5822
- alia virka daga milli kl. 9:00 og 17:00