Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ! að vinna sér létt og ekki nema kjarkmenn sem þorðu að sýna slíkt. Bn ég held að þetta hafi verið Karli eðlislægt, enda hafði hann stundað íþróttir á yngri árum og var alla tíð mikill útivistarmaður og stund- aði líkamsrækt eins lengi og þrekið leyfði. Karl fékk lyfsöluleyfið fyrir Apó- teki Austurbæjar árið 1950 og byggði hús yfir það. Það var meira en að segja það að byggja hús á þeim tíma, á árum hafta og skömmtunar. Þegar lóðin var feng- in var ijárfestingarleyfið eftir, en Karl leysti það verkefni eins og önnur og apótekið var opnað í eigin húsnæði 2. maí 1953. Síðla árs 1956 réðst ég sem yfirlyfjafræðing- ur til Karis í Apótek Austurbæjar og vann hjá honum allt til ársins 1963. Karl var mikill athafnamaður, stofnaði og átti mörg fyrirtæki og miklar fasteignir. Hann var einn af stofnendum Pharmaco hf. og sat í stjórn þess í 9 ár. Hann stofnaði flugeldagerðina Flugeldar sf. ásamt undirrituðum árið 1959. Ekki man ég lengur hvernig stóð á því að Karli datt í hug að stofna flugeldagerð, en það varð til þess að ég fór til Danmerkur til þess að kynna mér rekstur flugeldaverk- smiðju og framleiðslu á flugeldum og blysum. Byggð voru tvö sjálf- stæð hús að Lundi við Nýbýlaveg og þar var verksmiðjan til húsa uns hún var seld. Þetta var skemmtileg hugdetta hjá Karli og lærdómsrík fyrir mig, því það kom í minn hlut að stýra daglegum rekstri verk- smiðjunnar. Karl var í eðli sínu frumherji og fitjaði upp á ýmsum nýjungum. Sem dæmi má nefna að á árinu 1955 keypti hann vél til þess að fram- leiða lýsispillur fyrir barnaskólana. Þessar pillur höfðu áður verið flutt- ar inn frá Danmörku en Karl ákvað að taka upp samkeppni við innflutn- inginn og það tókst vel. Hin síðar ár hafa leiðir okkar Karls legið sjaldnar saman en ég vil nú að leiðarlokum þakka honum fyrir bæði samfylgdina og það sem hann kenndi mér þau ár sem við störfuðum saman, bæði á námsár- um mínum í Reykjavíkur Apóteki og á árunum hjá honum í Apóteki Austurbæjar. Fyrir hönd stjórnar Apótekarafé- • lags íslands flyt ég þakkir til Karls fyrir öll hans miklu og góðu störf í þágu stéttarinnar. Aðstandendum og ættingjum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Werner Rasmusson. Aldrei hélt ég að hann Karl færi að taka upp á því að deyja, það var svo ólíkt honum, sem var svo óvenju fullur af lífskrafti alla tíð, alveg fram undir það síðasta. En úr því að svona fór samt, er gott að minn- ast kosta hans, sem voru miklir og margvíslegir. Ég kynntist Karli fyrst á árinu 1955 og það fór svo að ég vann hjá honum í Apóteki Austurbæjar í 27 ár og tel mig hafa kynnst hon- um allvel á þeim tíma. Hann var einn fárra manna, mér kunnugra, sem sáu það sem hann horfði á. Hann tók svo vel eftir því sem gerð- ist í kringum hann og mundi það, og var sífellt að velta fyrir sér lífinu og umhverfi þess. Æði oft ræddum við stjórnmál dagsins, en deildum þó aldrei. Þó var hvor á sínum enda í þeim mála- flokki, en honum var það gefið að hlusta á hvað aðrir sögðu og hug- leiða það. Mér eru minnisstæðar nokkrar ferðir með Karli upp í sumarbústað hans við Elliðavatn, til að ræða málin og spekúlera. Þá sýndi hann mér gjarnan dagbókina, sem hann hélt um vatnið, silungsveiðina á liðnum árum, garðinn, húsið, veiði- staðina fram undan bústaðnum, umbætur á húsinu og ótalmargt annað. Á árum áður þegar hann var formaður Lyfjafræðingafélags ís- lands (þá stéttarfélag) mun hann hafa staðið fyrir fyrsta skriflega launasamningi þess félags fyrir sína meðlimi, sem áður sömdu hver fyr- ir sig í sínu horni. Hann hafði einnig forgöngu um, með fleirum, að stofna skóla til að mennta lyfjafræðinga til fýrrihluta- prófs. Sá skóli starfaði í nokkur ár og bætti úr brýnni þörf, því Há- skóli íslands hafði ekki undan að var hann af Guðs náð, hreint ótrú- lega fengsæll, og fór sjaldnast tóm- hentur heim úr veiði. Ég fór ótal sinnum með honum og naut ég góðs af kænsku hans við veiðina. Oft var farið eldsnemma á morgnana eða seint á kvöldin því „þá var hann við“. Með afa mínum er horfinn á braut mikill öðlingur og megi minningin um hann ætíð lifa. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn siðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Víðir Stefánsson og fjölskylda. Okkur langar í örfáum orðum að minnast Gumma frænda okkar. Við kynntumst honum vel í ferðum okkar upp í sumarbústað sem farn- ar voru ásamt ömmu Þórdísi. Ferð- anna var jafnan beðið með óþreyju enda alltaf mjög gaman og voru þær fastur punktur í tilveru okkar í mörg ár. Það var ekið af stað í Skodanum sem Gummi var alltaf jafnánægður með og alltaf hlegið þegar keyrt var fram hjá Skála- brekku. Sumarbústaðaferðirnar gengu aðallega út á tvennt; að veiða í Þingvallavatni og spila vist. Gummi reyndist meiri veiðimaður en við öll til samans þótt við gerð- um okkar besta. Allt var reynt, við köstuðum út á sama stað og hann hafði skömmu áður mokað upp fiski, fengum maðka hjá 'honum, beittum eins og hann en allt kom fyrir ekki, hann sló okkur alltaf við. Það var auðséð að gamall sjó- maður úr Vestmannaeyjum kunni meira fyrir sér í aflabrögðum en krakkar af mölinni. Þegar komið var upp í bústað á kvöldin eldaði amma oftar en ekki veiði dagsins og síðan var tekið í spil við undir- leik kvöldfréttanna. Spilakvöldin urðu oft æði löng og oft spilað til miðnættis. Það brást þó ekki að Gummi var kominn heim af Klöpp- inni úr vel heppnaðri veiðiferð þeg- ar við skriðum fram úr á morgn- ana. Hin síðari ár þegar sumarbú- staðarferðirnar höfðu lagst af var alltaf jafngaman og gott að hitta hann. Við viljum þakka Gumma fyrir samveruna og þá sérstaklega þessar skemmtilegu ferðir þar sem við lærðum um veiði, spilamennsku og ýmislegt fleira. Við eigum yndis- legar minningar frá þessum sumr- um sem við munum ávallt geyma. Guðmundur Þór og Guðný. Okkur systumar langar að minn- ast afa okkar Guðmundar Vigfús- sonar, afa Gumma, eins og við köll- uðum hann, með nokkrum orðum. Ævistarf afa var skipstjórn og hann var við stjórnvölinn í sínu eigin lífí alla tlð, fór sínar eigin leiðir og þurfti lítið á aðstoð annarra að halda. Vissulega gaf oft á bátinn í lífi hans en honum tókst vel að sigla milli skers og báru og kvartaði aldr- ei yfir sínu hlutskipti. Okkur er ofar- lega í huga fórnfýsi afa gagnvart ömmu og syni hans þegar hann flutti frá Vestmannaeyjum og skömmu síðar gaf upp á bátinn sitt ævistarf, til að geta betur sinnt þeim í áralöngum veikindum þeirra. Þessa sömu umhyggju bar hann til ættingja sinna og vina og sýndi það MINNINGAR mennta nægilega marga menn í faginu, svo flytja varð inn útlenda lyfjafræðinga til starfa í apótekun- um með tilheyrandi tungumála- vandræðum. Þetta er ansi lítill hluti af öllum þeim hafsjó minninga, sem í hugann koma eftir áratugalöng kynni af Karli Lúðvíkssyni. Ég þakka Karli samfylgdina og vinsemd við mig aila tíð. Afkomendur hans og aðstand- endur eiga samúð mína alla við missi hans. Ólafur Thorlacius. í dag kveðjum við Karl Lúðvíks- son, fyrrum lyfsala í Apóteki Aust- urbæjar og félaga í Lyfjafræðinga- félagi íslands. Karl hóf nám í lyfjafræði í Reykjavíkur Apóteki árið 1930 og lauk aðstoðarlyfjafræðingsprófi þaðan í október 1933. Hann starf- aði þar sem aðstoðarlyfjafræðingur næstu tvö árin en sigldi þá til Kaup- mannahafnar til frekara náms og lauk cand. pharm. prófi frá danska lyfjafræðingaskólanum árið 1937. Áð námi loknu í Kaupmannahöfn fluttist Karl heim aftur og starfaði bæði I Laugavegs Apóteki og Reykjavíkur Apóteki fram til ársins 1952, en árið 1950 hafði hann feng- ið lyfsöluleyfi. Hann stofnaði og var fyrsti lyfsali Apóteks Austurbæjar, sem hann rak þar til hann lét af störfum fýrir aldurs sakir. Karl tók virkan þátt í félagsstörf- um lyfjafræðinga. Hann var for- maður Lyfjafræðingafélags íslands á árunum 1945 til 1947 og sat í stjórn þess frá 1950 til 1951. Einn- ig átti hann sæti í stjórn Apótekara- félags íslands og var formaður þess um skeið. Karls verður minnst sem mikils athafnamanns. Hann stofnaði fjölda fyrirtækja sem hann átti og rak. Hann var m.a. einn af stofn- endum Pharmaco hf. og sat í stjórn þess í níu ár. Lyfjafræðingafélag íslands þakkar Karli framlag hans til fé- lagsmála lyfjafræðinga og sendir öllum aðstandendum hans innileg- ustu samúðarkveðjur. Mímir Arnórsson. oft í verki ef þörf var á. Á milli afa og systkina hans voru sterk kær- leiksbönd og þau höfðu náið sam- band sín á milli alla tíð. Afi naut sín vel í góðra vina hópi. Hann hafði gaman af að segja frá enda hafsjór af fróðleik um liðna tíma og stálminnugur fram til síð- asta dags. Frásagnir hans heilluðu okkur oft og virkuðu sem ævintýri á litla barnshuga enda hafði hann lent í sjávarháska, klifið björg og bjargað fólki úr lífsháska. Á árum áður hafði afi brennheitar skoðanir á mönnum og málefnum og lét þær óspart í ljósi og stoðaði þá lítið að vera á öndverðum meiði. I seinni tíð hélt hann skoðunum sínum meira fyrir sig og erfitt var að fá hann út í rökræður. Afí var farsæll fiskimaður allt sitt líf. Eftir að hann hætti til sjós undi hann hag sínum áfram best við veiðar. Hann stundaði silungs- veiði af kappi og kom oft færandi hendi með fisk í soðið, síðast fyrir nokkrum dögum. Afi setti markið hátt I sínum veiðiferðum enda fisk- inn með afbrigðum og honum féll betur að vera aflakóngurinn. Við teljum okkur hafa verið ein- staklega ríkar að hafa átt þrjár ömmur og þijá afa fram á fullorðins- ár. Nú kveðjum við þann síðasta úr þeirra hópi. Afi Gummi var stór hluti af fjölskyldu okkar og tók virkan þátt í lífi okkar. Það hafa verið rofín tvö stór skörð í okkar hóp á þessu ári. Afi og Guðný systir eiga örugg- lega góða samleið í fyrirheitna land- inu eins og þau áttu alltaf hér. Við þökkum algóðum Guði fyrir að afi fékk að kveðja þennan heim með fullri reisn og að við fengum tækifæri til að vera honum sam- ferða í lífinu. Elsku afi, hafðu þökk fyrir allt. Inga Þóra, Helga Björg og Elfa. SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 45 GUÐMUNDUR FREYR HALLDÓRSSON - + Guðmundur Freyr Halldórs- son fæddist í Reykjavík 11. júní 1941. Hann lést 1. október síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Víd- alínskirkju í Garða- bæ 9. október. Kynni okkar Guðmund- ar Freys Halldórssonar hófust árið 1967 þegar við báðir hófum æfing- ar í stórum hópi glímu- manna sem síðan sýndi glímu á heimssýningunni í Montreal í Kanada sumarið 1967. Guðmundur var góður ferðafélagi og jók jafnan gleði og kátínu í hópnum bæði á sýningum og utan þeirra. Hann var frábær sýningarmaður og sjálfkjör- inn til að vera fánaberi og sjá um fánakveðju á sýningum. Það gerði hann með slíkum glæsibrag að ekki verður til jafnað. Guðmundur var góður keppnis- maður og kappsamur sem sóttist eftir sigri en glímdi ávallt mjög drengilega og af prúðmennsku. Við háðum marga hildi um árabil í - 75 kg flokki í Flokkaglímu Reykjavíkur, Landsflokkaglímunni og ýmsum öðr- um mótum. Líklega höfum við átt lengstu viðureign sem sögur fara af eitt sinn í Flokkaglímu Reykjavíkur en það var samkvæmt tímamælingu næstum tíföid venjuleg lota. Þetta var í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og voru báðir að niðurlotum komnir þegar Guðmundi Frey tókst að sigra. Var alltaf jafn gaman að heyra Guð- mund Frey rifja upp þá glímu og þá endaði hann jafnan sögu'na með því að segja: „Aldrei hef ég séð þreyttari mann en Rögnvald eftir þá gllmu.“ Guðmundur Freyr hafði áhuga á erlendum fangbrögðum en ekki tíma né tækifæri til að iðka þau á yngri árum fremur en glímumenn í þá daga. Hann fékk þó tækifæri til að prófa þau þegar hann fór í mikla sýningarferð á vegum GLÍ til Frakklands 1988. Hann var þar sem áður góður fulltrúi glímunnar og gaf yngri mönnum ekkert eftir og þá ekki síst í leikgleði og fjöri. Guðmundur var glímudómari í tvo áratugi og skilaði því hlutverki með sóma eins og öðru er hann gerði fyrir glímuna. Vil ég fyrir hönd Glímudómarafélags Islands þakka hans ágætu störf og per- sónulega þakka allar þær drengi- legu glímur sem við áttum okkar á milli. Guðmundur var verðugur andstæðingur í glímu og góður fé- lagi utan sem innan glímuvallar. Aðstandendum hans votta ég sam- úð mína. Fyrir hönd Glímudómarafélags íslands, Rögnvaldur Ólafsson. glímukappi. Átti hann við skæðan sjúkdóm að glíma sem lagði hann að velli eftir skamma hríð. Guðmundur Freyr var félagi í Glímufé- laginu Ármanni lengur en þrjá og hálfan ára- tug. Hann tók jafnah þátt í félagsmálum, bæði innan glímudeild- ar og í atburðum vegum aðalstjórnar. A aðalfundum félagsins bar á honum í umræð- um og tillögugóður var hann. Glímufélagið Ármann gengst fyrir ýmsum hátíðum og fjölgreina viðburðum innan húss sem utan dyra. Eru þá borin merki og félags- fáni í forrúmi og þjóðfáninn, þegar það á við. Ármenningar hafa ávallt kappkostað að sýna íslenska fánan- um fulla virðingu og því aðeins valið sína bestu félaga til fánaburð- ar enda ekki sama með hvaða hætti það er gert. í aldarfjórðung hefur Glímufélagið Ármann notið þess að geta valið til þessa trúnaðar^ starfs fánabera af hæstu gráðu en slíkur var Guðmundur Freyr. íþróttastarf byggist á tveim meginþáttum, bæði iðkendum og ekki síður fórnfúsu starfi fjölda fólks sem stuðlar að því að íþrótta- mennirnir fái notið getu sinnar við æfingar og í keppni. Á báðum svið- um er Ármenningum ljúft og skylt að færa Guðmundi Frey Halldórs- syni þakkir fyrir hans frábæra og ósérhlífna starf. { hinum síðari þætti naut félagið hæfni hans og greiðvikni hvenær sem kallað vá£* til, hvort heldur snerti aðalatvinnu hans um árabil, flutningastarf, eða þar sem hugur og hönd kom að verki. í hinum fyrri þættinum skil- aði Guðmundur Freyr sínu dags- verki og vel það. Hann hóf glímu- iðkun 1960 og náði fljótt tökum á íþróttinni sér til gagns. Hann varð Reykjavíkurmeistari og íslands- meistari margoft í sínum þyngdar- flokki og fegurðarglímuverðlaun hlaut hann í fjölda móta. Skjaldar- hafi Ármanns varð hann 1977 en sigur í Skjaldarglímu Ármanns hef- ur jafnan þótt ganga næst því að verða Glímukóngur í Íslandsglí- munni allt frá því að stofnað var til Skjaldarglímunnar 1908. Við leiðarlok færir aðalstjóm Glímufélagsins Ármanns góðum fé- laga, Guðmundi Frey Halldórssyni, þakkir Ármenninga allra fyrir fram- lag hans til félagsstarfsins og að halda nafni félagsins á lofti með afrekum sínum. Aðalstjórn Glímufélagsins Ár- manns flytur ekkju Guðmundar Freys Halldórssonar og fjölskyldu hans dýpstu samúðarkveðjur. Minn- ingin um góðan dreng mun lifa. Aðalstjórn Glímufélagsins Ármanns. _ -í; Kveðja frá Ármenningum Fallinn er frá löngu fyrir aldur fram góður félagi og afreksmaður, Guðmundur Freyr Halldórsson • Fleiri minningargreinar um Guðmund Frey Halldórsson bíða birtingar ogmunu birtast í blað- inu næstu daga. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og sambýliskona, LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR Skúlagötu 40 A, sem andaðist 5. október s.l., verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. októ- ber nk. kl. 15.00 Guðjón Hansson, Sjöfn ingólfsdóttir, Bjarni Ólafsson, Birgir Sveinbergsson, Þórey Sveinbergsdóttir, Gfsli Sveinbergsson, Margrét Sveinbergsdóttir, Sigurgeir Sveinbergsson, Lára Sveinbergsdóttir, Erla K. Jónasdóttir, Ásgrímur Jónasson, Guðrún Benediktsdóttir, Baidvin Júlíusson, Margrét Böðvarsdóttir, Örlygur Jónatansson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.