Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÞJONUSTA VIÐ SMA- SÖL UMARKAÐINN Á BREIÐU SVIÐI VIÐSKIPn AIVINNULÍF ÁSUNNUDEGI ►Guðmundur Björnsson er fæddur árið 1966 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Ár- múla og útskrifaðist síðan sem iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla íslands. Hann réðst til Ásbjörns Ólafssonar ehf. ár- ið 1991 og starfaði þar sem sölusljóri til 1996 þegar hann tók við starfi framkvæmdastjóra. eftir Súsönnu Svavarsdóttur MBOÐS- og heildverslun Ásbjöms Ólafssonar fagn- aði nýverið sextíu ára af- mæli fyrirtækisins. Frá stofnun hefur fyrirtækið verið í eigu og rekið af sömu fjölskyldu. Núver- andi eigandi er Ólafía Ásbjamar- dóttir og fjölskylda. Stofnandinn, Ásbjöm Ólafsson, rak fyrirtækið til ársins 1977 en þá tók tengda- sonur hans, Bjöm Guðmundsson, við. Björn rak fyrirtækið til ársins 1996 þegar núverandi fram- kvæmdastjóri, Guðmundur Bjömsson, tók við. Fyrstu árin má segja að Ásbjöm Ólafsson, umboðs- og heildverslun, hafí verið í öllu mögulegu. Flutti inn vefnaðarvörur, heimilisvörur, húsgögn, raftæki og matvæli. Fyr- irtækið var formlega stofnað 25. september 1937 en þá hafði Ás- bjöm Ólafsson rekið það í nokkur ár í eigin nafni heima hjá sér. En árið 1937 leigði hann húsnæði við Laugaveg 15 þar sem heildsalan var til húsa en á þessum tíma juk- ust umsvif hans og var hann einnig með smásölu. Fljótlega vatt fyrirtækið upp á sig og árið 1942 var heildsalan flutt að Grettisgötu 2a þar sem hún starfaði til 1967, þegar hún flutti í Borgartún 33 og þaðan í Skútuvog lla árið 1992. Umsvifin í smásöluverslun vom líka töluverð og rak Ásbjöm Ólafs- son um tíma þrjár verslanir og timbursölu: Kjólabúðina Mær í Lækjargötu 2, Húsgagnaverslun Austurbæjar efst við Laugaveg 116, síðar við Skólavörðustíg 16 og Véla- og raftækjaverslunina í Bankastræti, síðar í Borgatúni og timbursölu í Skeifunni. Á sjöunda áratugnum verður áherslan stöðugt meiri á rekstur umboðs- og heildverslunar eins og núverandi framkvæmdastjóri, Guðmundur Bjömsson segir og hefur verið svo síðan. Breytingar á sölu- og markaðsstarfi En hvert er hlutverk Ásbjörns Ólafssonar ehf. í dag? „Hlutverk okkar er að þjónusta smásöluverslanir á breiðu sviði og markmiðið er að styrkja okkur í heildsölu og dreifingu á smásölu og veitingamarkaðnum," segir Guðmundur. Síðastliðið ár höfum við unnið að stefnumótun fyrir fyrirtækið þar sem við svömm spumingum eins og: Hver er staða fyrirtækisins í dag? Hvert viljum við stefna í framtíðinni? Hvernig komumst við þangað? Þessi vinna er unnin af vinnuhóp- um innan fyrirtækisins undir verkstjórn ráðgjafarfyrirtækisins Forskots. Með þessari vinnu vilj- um við gera gott fyrirtæki betra. Það hafa miklar breytingar átt sér stað í verslun síðustu árin. Þróunin hefur verið í færri og stærri verslanir. Verslanir hafa einig í flestum tilfellum bundist samtökum á ýmsan hátt og sumar hafa stofnað til sameiginlegra inn- kaupafyrirtækja. Þessar breyting- ar hafa kallað á breyttar áherslur og vinnuaðferðir í sölu- og mark- aðsstarfi. Samkeppnin hefur líka harðnað mikið og það krefst þess að fyrirtæki séu mjög vel vakandi og fljót að bregðast við aðgerðum keppinauta og breytingum á markaðinum. Hlutverk sölumannsins er að breytast. Hann er í dag fremur þjónustuaðili en sölumaður. Það má líka segja að hinn ytri markað- ur hafi stækkað. Verðsamkeppnin er ekki lengur bundin við innlenda aðila, heldur einnig erlenda vegna þess að smásöluversluninni hér býðst einnig að kaupa beint frá framleiðendum eða millilagerum erlendis frá.“ Er heildsalan, eins og við höfum þekkt hana hér á landi, að leggjast af? „Já, kannski í þeirri mynd sem við þekktum hana áður en ekki eins og við þekkjum hana í dag. Heildsalar eru í dag fremur þjón- ustuaðilar en söluaðilar og því er það að í dag skilgreinum við okkur sem þjónustufyrirtæki. Það sýnir kannski breytta tíma. í því felst að fyrirtækið starfrækir alhliða heildverslun, bæði fyrir vörur sem það hefur umboð fyrir og aðra.“ „Við flytjum inn og dreifum vöru, stöndum vörð um vörumerk- ið og fylgjumst með markaðnum, auk þess sem við sjáum um að koma nýjungum á markað fyrir okkar umbjóðendur,“ segir Guð- mundur og meðal þess sem má fínna á vörulista fyrirtækisins eru Knorr súpur, krydd og pasta, hið sívinsæla Prince Polo súkkulaði- kex, Maryland og Cadbury kex, Sonax bílabón og bflahreinsivörur, Nokia gúmmístígvél, Den Gamle Fabrik sultur og marmelaði, Felix matvörur, amefa hnífapör, Rosti plastbúsáhöld, Hackmann pottar og pönnur og Lloyd skór. Hjá Ás- birni Ólafssyni ehf. eru 22 starfs- menn og segir Guðmundur fyrir- tækinu hafa haldist mjög vel á sínu starfsfólki. „Starfsaldur er með þeim hæsta sem þekkist hér á landi. Núna nýlega hættu þrír ein- staklingar sem höfðu starfað hér mjög lengi, tveir í rúmlega fimm- tíu ár og einn í rúm þrjátíu ár. Verslunarmannafélag Reykjavík- ur reiknaði út starfsaldursvísitölu fyrirtækja fyrir stuttu, ásamt fleiri gildum, og við vorum með hæsta gildið varðandi starfsald- ur.“ Guðmundur segir að hjá fyrir- tækinu hafi alla tíð ríkt góður starfsandi. Opinn og náin sam- skipti hafi verið milli stjórnenda og starfsfólks. Starfsandinn er m.a. styrktur með reglulegum fundum og starfsmannaferðum. Einnig hefur starfsfólkið tekið þátt í stefnumótuninni. Það hefur raðað sér í vinnuhópa í ýmsum málum og tekur þátt í stefnumót- un á fyrirtækinu og á eigin störf- um.“ Góð vörumerki og tryggir kaupendur Á þeim sextíu árum sem Ás- björn Ólafsson ehf. hefur staðið í umboðs- og heildsölu hafa mörg minni og stærri heildsölufyrirtæki lagt upp laupana. Hvernig hefur þetta fyrirtæki staðið af sér þær breytingar sem orðið hafa á þjóð- félaginu? „Ástæðan fyrir því að við höfum staðið af okkur mikla breytingar- tíma, held ég að sé sú að fyrirtæk- ið hefur þanist út og dregið saman eftir þörfum, verið óhrætt við að hætta með vörur sem ekki hafa gengið, auk þess sem það hefur verið með góð vöramerki og trygga kaupendur. Islendingar era mjög vanafastir sem sýnir sig kannski helst í neyslunni á Prince Polo sem er nokkuð jöfn. Salan hefur að vísu breyst úr stykkjatali yfir í stærri pakkningar og salan er að færast meira yfir í stórmarkaðina eins og margar aðrar vörur.“ Eruð þið þá ekki að auka við ykkur umboðum? „Jú, á þessu ári eram við að fá ný umboð, til dæmis frá Leaf í Svíþjóð og Finnlandi - en Leaf er einn stærsti sælgætisframleiðandi í heimi og þekktast hér er strumpanammið, Allsorts lakkrís og skólakrítar, svo eitthvað sé nefnt. Síðan er eitt þekktasta vöramerkið okkar Knorr. Það er mjög lifandi fyrirtæki og við höf- um vart undan að taka við nýjum vöralínum frá þeim. Við tökum megnið af okkar vöra frá dreifmg- unni í Danmörku vegna þess að við höfum komist að því að þær vörar sem Danir velja falla best að okkar smekk og kröfum. Við flytj- um inn vörar frá þeim fyrir heim- ili, mötuneyti og veitingahús og ég held að ég geti fullyrt að Knorr vörarnar séu einar vinsælustu hér á landi, þegar kemur að kryddum og sósum og skyndiréttum hvers konar.“ Helstu viðskiptalönd Ásbjörns Ólafssonar ehf. era Norðurlöndin, Pólland, Bretland og Þýskaland og er fyrirtækið í sérverslunarráði milli landa; þýsk-íslenska verslun- arráðinu og nú er verið að stofna bresk-íslenskt verslunarfélag. „Helsti liðurinn í því að rækta tengslin við útlönd era vörasýn- ingar en við eram ekkert á höttun- um eftir nýjum merkjum eða við- skiptaaðilum, heldur leggjum við áherslu á að bæta þau sem fyrir era með góðum og traustum sam- skiptum við birgjana. Við leggjum mikla áherslu á að rækta traust og góð samskipti við birgja fyrirtækisins, bæði með beinum heimsóknum til þeirra og á vörusýningum þar sem við hitt- um bæði núverandi birgja og höf- um jafnframt augun opin fyrir nýjum merkjum og viðskiptaaðil- um. Reyndar eru þrjú lykilatriði sem við höfum í heiðri hér: Góð samskipti við birgjana, góð sam- skipti við viðskiptavinina og góð samskipti við starfsfólkið. Ef þessi skilyrði eru fyrir hendi, má búast við að útkoman sé góð.“ Heildaveltan í ár og veltuaukn- ing er svipuð og í fyrra en þá var veltan 400 milljónir. Veltuaukning var 8% og segir Guðmundur fyrir- tækið vera að auka við sig í þeim vörategundum sem þeir hafa. Hann segir að rekstrarafkoman hafi verið viðunandi að mati stjórnenda. Meira aðhald í dag „í dag er meira aðhald á öllu vegna samkeppni," segir Guð- mundur. „Það leyfist engum að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.