Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 19
HÖGNI með Weenó vini sínum í Namibíu
Tillaga til þingsályktunar
Fjarkennsla jafni
aðstöðu til náms
LÖGÐ hefur verið fram tillaga til
þingsályktunar um fjarkennslu til að'
jafna aðstöðu til náms. Fyrsti ílutnings-
maður tillögunnar er Svanfríður Jónas-
dóttir.
Tillagan felur í sér að menntamála-
ráðherra skipi nefnd til að gera tillögu
um hvernig nýta megi fjarkennslu á
grunnskóla-, framhaldsskóla- og há-
skólastigi til að jafna aðstöðu til náms.
Nefndin taki mið af þeirri reynslu sem
fengist hefur af fjarkennslu hérlendis
og þeirri þekkingu . sem fyrir liggur í
öðrum löndum í fjarnámi og móti tillög-
ur sínar m.a. á þeim grundveili.
í greinargerð með tillögunni segir
m.a.:“Hvert viljum við stefna með fjar-
kennsluna? Mikill áhugi er fyrir því
meðal landsbyggðarfólks, ekki síst á
þeim stöðum þar sem ekki er boðið upp
á framhaldsnám, að fjarkennsla verði
nýtt skipulega til að nemendur geti ver-
ið lengur í foreldrahúsum og skipulag
skólamála valdi ekki röskun á högum
fjölskyldunnar. Jafnframt væri brýn
nauðsyn að skoða með hvaða hætti fjar-
kennslan getur komið að gagni þar sem
ekki er talið unnt að starfrækja efstu
bekki grunnskóla sakir nemendafæðar
og/eða skorts á sérhæfðum kennurum."
Högni býr í Namibíu
og stundar nám í
V erkmenntaskólanum
á Akureyri
Ekkert
síðra en
venjulegur
skóli
„ÉG DATT niður á grein um
bréfaskóla á flakki mínu um netið.
Eftir nánari eftirgrennslan komst
ég í samband við Hauk Agústsson
á Islandi. Hann sendi mér upplýs-
ingar og í framhaldi af því ákvað
ég að slá til og skrá mig í fjarnám-
ið. Núna er dálítið mikið að gera
hjá mér því bækurnar komu seint
og enn er ég að vinna upp frá því í
haust,“ segir Högni Brekason, 18
ára íbúi f Walvis Bay í Namibíu og
nemi í Verkmenntaskólanum á
Akureyri.
Högni segist hafa flutt með
Breka Karlssyni, föður sínum, til
Namibíu fyrir þremur mánuðum.
„Pabbi er að kenna í sjómannaskóla
í litlu sjávarþorpi hérna. Ég ákvað
að skella mér með og reyna að fá
mér einhverja vinnu hérna. Þegar í
ljós kom að ég gæti ekki fengið at-
vinnuleyfi til að starfa hjá
namibískum atvinnuveitanda ákvað
ég að reyna að fá pláss á íslensku
fískiskipi en vegna reglna um að
80% áhafnar yrði að vera namibísk
varð ekkert úr því,“ segist Högni.
Hann segist hafa farið í fram-
haldsskóla eftir grunnskólapróf á
íslandi. Árangurinn hafí hins veg-
ar látið standa á sér enda hafí
hann verið latur og lítið mætt í
skólann. Núna hafi hann ákveðið
að taka sig á og læra. „Fyrst var
dálítið erfitt að drífa sig í tölvuna
enda er ég einn heima allan dag-
inn. Smám saman hef ég hins veg-
ar verið að koma mér upp mynstri
og vakna til að vera í tölvunni frá
um kl. 8 á morgnana til kl. 13.
Lesturinn fer mikið fram á kvöld-
in,“ segir hann.
Högni leggur stund á stærð-
fræði, ensku, félagsfræði, sögu og
ísiensku. „Ég fæ verkefnaskammt,
þ.e. verkefni og fyrirmæli um les-
efni, í hverri viku. Tölvupósturinn
kemur að góðu gagni til að senda
spurningar til kennarans og oft
berst svarið samdægurs. Ef maður
leggur sig fram er fjarnám ekkert
síðra en venjulegur skóli. Eins og
alltaf er hins vegar hægt að slá
slöku við. Árangurinn kemur ein-
faldlega í Ijós í prófinu að lokum,“
segir hann.
Hann segir að ekki borgi sig að
setja markið of hátt. Hann stefni
að því að taka próf í áföngunum
fimm undir umsjón íslensks að-
stoðarskólastjóra sjómannaskólans
um áramót. Aframhaldið verði ein-
faldlega að koma í ljós. Högni seg-
ir ágætt að búa í Namibíu, nokkrar
íslenskar fjölskyldur haldi saman í
Walvis Bay, og fljótlega sé von á
móður hans og tveimur yngri
bræðrum.
EUROCARD/MAESTRO
korthafar!
Vegna breytinga í tölvukerfi má búast við
truflunum við notkun debet- og
kreditkorta milli klukkan 8.00 og 12.00,
sunnudaginn 12. október.
Sjálfsafgreiðslutæki svo sem hraðbankar
og bensínsjálfsalar verða lokuð meðan á
þessari breytingu stendur.
Við vonum að viðskiptavinir okkar sýni
skilning og þolinmæði.
EUROPAY
Í s l a n d
KREDITKORT HF.
ÁRMÚLI 28-30 • 108 REYKJAVÍK
Sími: 550 1500 • Fax: 550 1515