Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 11
HUGMYNDIR U M SAMRUNA BANKA
Landsbanki/íslandsbanki: Samruni gæti skilað mikilli hagræðingu en möguleikinn er lítið ræddur m Landsbanki/Búnaðarbanki: Mikill áhugi Landsbankamegin, en aðrir óttast að slíkur risabanki muni raska samkeppnisstöðunni Íslandsbanki/Búnaðarbanki: íslandsbankamenn sækja fast á um sameiningu, en andstaða er við hugmyndina í Búnaðarbanka Sparisjóðir/Búnaðarbanki: Sparisjóðir hafa viðrað hugmyndir um kaup á Bún- aðarbanka, en bent er á að sjóðirnir þurfi að breyta fyrst eignarhaldi sínu áður en málið komist á dagskrá
Bankar og sparisjóöir: Nokkar lykiltölur
Lands- banki íslands- banki Búnaðar- banki Sparisj.- banki Sparisj. samtals
Hreinar rekstrartekjur 6.203,1 4.362,2 3.569,1 347,9 4.172,9
Alm.rekstrark. samtals 4.120,8 2.693,6 2.453,0 152,3 1.276,0
Víkjandi skuldir 1.994,7 1.185,0 0 0 279,9
Eigið fé samtals 6.593,9 5.387,4 4.184,4 1.062,6 6.928,7
Hversu stórir yrðu sameinaðir bankar?
Hreinar rekstrartekjur
Alm. rekstr.kostn. samtals
Víkjandi skuldir
Eigið <é samtals
Afsieíósliisíaðir
jniiJánssíflfiiana
Viðskiptabankar
Landsbanki íslands
l,andsb. & Islandsb. Landsb. & Búnaðarb. íslandsb. & Búnaðarb. Sparisj.& Sparisj.b.& Búnaðarb.
10.565,3 9.772,2 7.931,3 8.089,9
6.814,4 6.573,8 5.146,6 3.881,3
3.179,7 1.994,7 1.185,0 279,9
11.981,3 10.778,3 9.571,8 12.175,7
SíarfsinannafjöJtii viöskijita-
öanka ðs sparisjöða
í árslok
1996
62
Búnaðarbanki íslands 35
íslandsbanki 33
Sparisjóðabanki íslands 1
Sparisjóðir 51
Póstgíróstofa 1
Afgreiðslustaðir samtals 183
'85 '86 '87 '88
'94 '95
um þessa hugmynd á aðalfundi
bankans skömmu síðar í marsmán-
uði 1996 og lýsti þeirri skoðun sinni
að slík sameining ríkisbankanna
tveggja raskaði samkeppnisstöð-
unni. Þá yrði erfitt fyrir ríkið að
selja hinn sameinaða ríkisbanka.
Hins vegar væru fleiri kostir til og
auðveldlega mætti sýna fram á að
rekstrarleg sameining íslands-
banka og Búnaðarbanka skilaði
mikilli hagræðingu. „Því eigum við
að leita leiða til að það geti gerst.
Eg tel því að Islandsbanki eigi að
lýsa sig fusan til að kaupa Búnað-
arbankann ásamt fleiri áhugasöm-
um aðilum. Það geti gerst með
beinum greiðslum, svo og með
hlutafé sem ríkið getur selt þegar
því þykir henta. Ekki verður fram
hjá því litið að við höfum mikla
reynslu af sameiningu banka. Loks
myndi sameining Búnaðarbanka
og Islandsbanka skapa mun jafnari
samkeppni því sameinaðir væru
þeir svipaðir að stærð og Lands-
bankinn."
Sparisjóðimir létu ekki sitt eftir
liggja og á aðalfundi SPRON árið
1996 lýsti Baldvin Tryggvason,
sem þá var að láta af starfi sparis-
sjóðsstjóra, því yfir að staðan væri
einfaldlega sú að ef einhverjar
innlánsstofnanir í landinu hefðu
raunverulega ráð á að kaupa Bún-
aðarbankann, þá yrði það spari-
sjóðafjölskyldan. Svo vildi til að
útibúanet Búnaðarbankans félli
vel að sparisjóðakerfinu og raun-
hæf og skjótvirk hagræðing gæti
átt sér stað með samhæfingu
sparisjóðanna og Búnaðarbank-
ans.
Pólitískan vilja
þarf til
Forráðamenn íslandsbanka hafa
ekki látið af fyrmefndri skoðun
sinni um að sameina beri íslands-
banka og Búnaðarbanka. Kristján
Ragnarsson segir að málið hafi
færst nær því að hægt sé að takast
á við það eftir stofnun hlutafélag-
anna um ríkisbankana. „Það þarf
fyrst og fremst pólitískan vilja til
að takast á við þetta mál. Að mínu
mati væri það mjög óskynsamlegt
að seija Búnaðarbankann einan og
sér og viðhalda þar með þessum
þremur bönkum. Fremur ætti að
leita leiða til að auka arðsemi
þessa kerfis og stuðla að eðlilegri
og betri samkeppni. Islandsbanki
gæti annaðhvort sótt sjálfur hluta-
fé til að geta keypt bankann eða
ríkið fengi markaðshæf bréf út úr
sameiginlegum banka í sammna
sem það gæti selt strax og gert sér
fjármuni úr verðmætum í Búnað-
arbankanum. Það þarf pólitíska
ákvörðun og vilja til að stuðla að
þessu. Það tel ég að hafi verið gert
þegar bankamir fjórir voru sam-
einaðir í íslandsbanka. Ég held að
allir hafi séð að það hafi verið
skynsamleg niðurstaða og það hafi
verið einn áfangi til bætts banka-
kerfis.“
Allir horfa á alla
Stöðu mála um þessar mundir
* virðist svipa á vissan hátt til
I stemmningar á sveitaböllum hér á
áram árum, þar sem karlmenn
sátu á bekk öðram megin í salnum
og konur hinum megin. I banka-
heiminum horfi allir á alla, en enn
sem komið er hafi engum verið
boðið upp í dans.
Forráðamenn íslandsbanka hafa
leitað fast eftir því við einstaka
I ráðherra að hefja umræðu um
, sameiningu Islandsbanka og Bún-
aðarbankans. Engar viðræður era
þó í gangi um þessar mundir en
þeir Islandsbankamenn era taldir
njóta ákveðins stuðnings við hug-
mynd sína. Með samrana Islands-
banka og Búnaðarbanka yrði til
töluvert stærri eining en Lands-
bankinn. Því er haldið fram að
kröftug samkeppni myndi án efa
skapast milli hins sameinaða banka
og Landsbankans.
Ekkert þykir útilokað í þessum
efnum og er alveg eins rætt um að
hagkvæmt geti verið að sameina
ríkisbankana eða jafnvel Lands-
bankann og Islandsbanka. Sa-
meining ríkisviðskiptabankanna
yrði hraðvirkasta uppstokkunin
sem völ er á og hún er sögð lækka
rekstrarkostnað um 1 milljarð
strax á fyrsta ári. Ahugi Lands-
bankamanna fyrir þessari hug-
mynd hefur greinilega ekkert
dvínað. Bent er á að þetta sé
einnig mjög spennandi kostur fyrir
ríkið því sameinaður banki yrði
mun verðmætari en bankarnir
hvor í sínu lagi. Aðrir benda á að
heilbrigðara sé af samkeppnisá-
stæðum að hafa tvær svipaðar
stofnanir á markaðnum, heldur en
eina gríðarstóra. Minna er i-ætt
um möguleika á samrana Islands-
banka og Landsbanka, en hann á
þó ekkert síður að geta skilað mik-
illi hagræðingu.
Landsbankinn hefur reyndar
nóg á sinni könnu því bankinn mun
á næstu áram eignast smám sam-
an helmings hlut í VIS ásamt því
að þróa samstarf við tryggingafé-
lagið. í því samstarfi felast mörg
sóknarfæri fyrir báða aðila. Von er
á nýjungum þar sem fjármálaþjón-
usta verður tengd tryggingum frá
VÍS. Bankinn gæti einnig notið
góðs af sterkri stöðu VIS varðandi
ýmiss konar fjármögnun og sölu-
tryggingar útboða auk þess sem
samnýta mætti einstaka rekstrar-
þætti. Bæði einstaklings- og fyrir-
tækjaþjónusta þessarar sam-
steypu gæti þannig orðið miklu
beittari en hjá Landsbankanum
einum og sér.
Lítill eða enginn áhugi virðist
vera fyrir hendi í Búnaðarbankan-
um á samrana við íslandsbanka
heldur virðast menn þar á bæ
þvert á móti mjög andsnúnir öllum
slíkum hugmyndum. Fyrirtækja-
bragurinn í þessum tveimur bönk-
um þykir einfaldlega svo ólíkur að
álíka erfitt yrði að renna þeim
saman eins og blanda saman olíu
og vatni. Á það er hins vegar bent,
að Búnaðarbankinn þurfi að marka
sér einhverja sérstöðu til að eiga
sér lífsvon. Mögulega gæti bank-
inn breyst í eins konar fyrirtækja-
banka og annast eingöngu við-
skipti við stærri viðskiptavini.
Fjárfestingarbankinn
ber víurnar í menn
Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins hefur blandast mjög inn í þá
umræðu sem fram fer um framtíð
bankakerfisins. Flest bendir til að
forráðamenn Fjárfestingarbank-
ans hafi í undirbúningi að bjóða
mun víðtækari fyrirtækjaþjónustu
en fjárfestingarlánasjóðirnir hafa
gert til þessa. Bankinn mun að öll-
um líkindum hefja beina sam-
keppni við bankana á sviði skamm-
tímalána til fyrirtækja, viðskipta
með gjaldeyri, verðbréfaútgáfu
o.fl. Til þess era allar heimildir fyr-
ir hendi og bankinn gæti jafnvel
sóst eftir lagaheimild frá alþingi
sem gerði honum kleift að taka á
móti innlánum frá fyrirtækjum.
Viðskiptabankamir era þegar
byrjaðir að finna fyrir samkeppn-
inni um hæfustu starfsmennina því
fullyrt er að Bjarni Armannsson,
forstjóri, sé þegar byrjaður að bera
víurnar í einstaka starfsmenn
þeirra.
Reyndar eru vonir bundnar við
að vegna stærðar sinnar muni
Fjárfestingarbankinn m.a. beina
kröftum sínum að mjög sérhæfðri
fjármögnun á borð við verkefna-
fjármögnun. Þar gæti verið um að
ræða verkefni í líkingu við fjár-
mögnun Hvalfjarðargangna, ál-
vers Columbia Ventures, orku-
framkvæmda o.s.frv., en slík fjár-
mögnun krefst mikillar sérþekk-
ingar.
Fyi-irmyndir að Fjárfestingar-
bankanum era upphaflega annars
vegar sóttar til danska iðnlána-
sjóðsins, FIH, og hollenska fjár-
festingarbankans, NIB. Þessar
stofnanir vora upphaflega ríkis-
reknar langtímalánastofnanir en
breytingar hafa orðið á eignaraðild
og viðskiptabankar eiga orðið stór-
an hlut. Danskir viðskiptabankar
eiga nokkum hlut í danska sjóðn-
um á móti Seðlabankanum og
ENG-bankinn á hlut í hollenska
bankanum á móti opinberam aðil-
um þar í landi. í báðum tilvikum
hafa þessar stofnanir haldið áfram
sinni sérgreindu fjárfestingarþjón-
ustu.
Það þykir líklegt að einhverjir
viðskiptabankanna og sparisjóðim-
ir muni sjá sér hag í því að gerast
kjölfestufjárfestar í Fjárfestingar-
bankanum. Má rifja upp að bank-
amir gerðu stjórnvöldum tilboð í
eignir fjárfestingarlánasjóðanna á
sínum tíma. I þessum efnum bein-
ast augu manna sérstaklega að
Búnaðarbankanum. Landsbankinn
hefur í nógu að snúast eftir kaupin
á helmings hlut í VIS, sparisjóðirn-
ir eiga aftur á móti Kaupþing sem
þeir hafa breytt í fjárfestingar-
banka og Islandsbanki starfrækir
sinn eigin lánasjóð, Verslunarlána-
sjóð. Búnaðarbankinn gæti hins
vegar sérhæft sig í þjónustu við
fyrirtæki, eins og áður er getið,
samhliða því að eiga stóran hlut í
Fjárfestingarbankanum.
Sparisjóðamenn
á fund ráðherra
Ekki er hægt að útiloka spari-
sjóðina frá þessari umræðu. Þeir
hafa fylgst grannt með þróuninni
og ætla sér hlut í þeim breytingum
sem munu eiga sér stað. Er fullyrt
að forráðamenn sparisjóðafjöl-
skyldunnar hafi þegar viðrað hug-
myndir sínar við einstaka ráðhema
og kynnt þeim áhuga sparisjóð-
anna á því að taka þátt í fjárfest-
ingum í tengslum við einkavæðing-
una.
Sparisjóðirnir hafa verið að
koma sér betur fyrir á fjármagns-
markaðnum og þétta þjónustunet
sitt undanfarin ár. Þannig hafa
þeir eignast alfarið Kaupþing, Al-
þjóða líftryggingafélagið og stofn-
að SP-Fjármögnun. Þeir hafa auk-
ið markaðshlutdeild sína á kostnað
bankanna og eru komnir upp fyrir
bæði Búnaðarbanka og Islands-
banka. Þar að auki hafa þeir hagn-
ast meira en aðrir, sem hefur skil-
að sér í því að samanlagt eigið fé
þeirra er orðið nokkuð meira en
Landsbankans, eins og sést á með-
fylgjandi töflu. Sparisjóðirnir telja
sig því hafa meiri burði til að fjár-
festa heldur en aðrir aðilar á
markaðnum. Engin ákveðin mark-
mið hafa þó verið sett um fjárfest-
ingar heldur hyggjast menn þar á
bæ bíða átekta þar til ljóst verður
hvemig samspilið verði milli Bún-
aðarbanka og Fjárfestingarbanka.
Ennfremur er horft til þess hvern-
ig tryggingafélög eiga eftir að
koma inn í þessa mynd. Við fyrstu
sýn þykir Fjárfestingarbankinn
koma til greina sem fjárfestingar-
kostur, þar sem hann félli vel að
núverandi starfsemi sparisjóð-
anna.
Sparisjóðir í einskis
manns eigu
Sparisjóðirair virðast hins vegar
litnir hornauga í bankakerfinu og
því haldið fram að ekki komi til
greina að þeir fái að kaupa Búnað-
arbankann fyrr en ljóst sé hverjir
séu í raun og vera eigendur sjóð-
anna. Eins og sakir standa séu þeir
í einskis manns eigu. „Það á að
breyta sparisjóðunum í hlutafélög
þannig að hægt sé að tala um eig-
endur en ekki einhverja eigenda-
klíku. Það era einn eða tveir menn
sem ráða öllu í stóra sparisjóðun-
um. Þeir verða að koma sínu
rekstrarformi fram í nútímann,"
sagði ónefndur viðmælandi blaðs-
ins. Annar bætti við að ef spari-
sjóðunum yrði breytt í hlutafélög
væri komið upp mjög öflugt fyrir-
tæki.
Sparisjóðamenn hafa ekki látið
slíka gagnrýni á sig fá heldur svar-
að því til að sparisjóðirnir séu
sjálfseignarstofnanir. Það eignar-
form sé alþekkt um alla Evrópu.
Hins vegar era sparisjóðimir með
það til skoðunar að gefa út stofn-
fjárskírteini í B-deild sem gætu
gengið kaupum og sölum á verð-
bréfamai’kaði. Þar með kæmu til
skjalanna nýir hluthafar sem gætu
haft áhrif á ákvarðanir á aðalfund-
um.
Sala bréfa dregur
úr áhrifum ríkisins
Línur hljóta að skýrast í þessum
málum um mitt næsta ár þegar
hefjast á handa við að selja nýtt
hlutafé í bönkunum og tæplega
helmings hlut ríkisins í Fjárfest-
ingarbankanum. Gert er ráð fyrir
að selja ný hlutabréf í Landsbank-
anum og Búnaðarbankanum í
dreifðri sölu í fyrsta áfanga til að
fjölga hluthöfum og uppfylla þar
með skilyrði fyrir skráningu á
Verðbréfaþingi. Á þennan hátt er
ætlunin að láta bankana verða að
sjálfstæðum hlutafélögum á mark-
aði sem lúti almennum lögmálum.
Það muni aftur draga úr áhrifum
ríkisins á þessar stofnanir. Hvað
Fjárfestingarbankann áhrærir er
gert ráð fyrir að hluti bréfanna
verði settur í dreifða sölu og ákveð-
inn hlutur boðinn upp meðal stærri
fjárfesta. Engar ákvarðanir hafa
þó verið teknar í þessu efni.
Á heildina litið má segja að vera-
leg andstaða sé við aðferð stjórn-
valda við hlutafjárvæðingu ríkis-
bankanna og sölu hlutafjár. í því
sambandi er sérstaklega bent á að
pólitísk stefnumörkun ríkisstjórn-
arinnar sé að selja ekki hlutabréf í
ríkisbönkunum næstu fjögur árin.
Þótt boðið verði út nýtt hlutafé sé
það málamyndagerningur sem í
reynd hafi engar breytingar í fór
með sér. Þetta tækifæri sem hægt
hefði verið að nýta til uppstokkun-
ar á bankakerfinu hafi ekki verið
nýtt. „Ég er hræddur um að hið ís-
lenska bankakerfi muni einfaldlega
þorna upp ef þar verða ekki breyt-
ingar. Mér finnst skorta róttæka
uppstokkun í þessu kerfi og held að
það hefði verið skynsamlegast að
losa ríkið út úr þessum fjármála-
stofnunum. Jafnframt hefði þurft
að tryggja dreifða eignaraðild með
erlendri þátttöku,“ sagði einn við-
mælandi blaðsins.