Morgunblaðið - 12.10.1997, Side 12
12 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Olafur þjálfar
Fylkismenn
Olafur Þórðarson, fyrirliði
Skagamanna undanfarin
ár og einn leikreyndasti knatt-
spyrnumaður landsins, skrifaði
undir samning til þriggja ára við
Fylki árla í gær, laugardag. Olaf-
ur verður þjálfari meistaraflokks
og 1. flokks auk þess sem hann
kemur til með að leika með Fylk-
isliðinu en Aðalsteinn Víglund-
son, fyrrum samheiji Ólafs hjá
IA og leikmaður hjá Fylki und-
anfarin fimm ár, verður aðstoð-
arþjálfari hans. Sigurður Þórir
Þorsteinsson, sem hefur þjálfað
yngri flokka hjá Fylki með hléum
og var þjálfari meistaraflokks
kvenna hjá Breiðabliki á nýliðnu
tímabili, verður þjálfari 2. flokks
og umsjónarþjálfari yngri flokka.
„Það hlaut að koma að því að
ég tæki þetta skref og þetta er
góður dagur, laugardagur til
iukku,“ sagði Ólafur eftir undir-
skriftina. „Vissulega eru mikil
viðbrigði að yfirgefa Skagamenn
en samt er ekki um áfall að ræða
- ég fer úr gulum í appelsínugul-
an búning og stefnan er að koma
þessu liði í toppbaráttuna í efstu
deild á þremur árum.“
Ámundi Halldórsson, varafor-
maður knattspyrnudeildar Fylk-
is, sagði að nú væri horft til
lengri tíma en áður varðandi
uppbyggingu Iiðsins og horft yrði
til yngri flokkanna. „Við teljum
okkur vera með góða, unga
stráka og ætlum okkur ekki í
eltingaleik við leikmenn utan fé-
lagsins en dyrnar standa öllum
opnar."
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓLAFUR Þórðarson og Ámundi Halldórsson, varaformaður knattspyrnudeildar Fylkis, undir-
rita samnlnginn en standandl eru leikmennirnir Ólafur Stígsson og Kristinn Tómasson.
Ronaldo skorar og skorar
en Pele gerði fleiri mörk
*
besti!
Reutxírs
„ÉG öfunda engan og ég er ekki að leita að hagstæðri niður-
stöðu samanburðar við einhverja aðra knattspyrnumenn,
allra síst Pele eða Romario," segir Ronaldo.
KIMATTSPYRIMUMAÐURIIMN
Ronaldo Luiz Nazario da Lima,
varð 21 árs fyrir nokkrum dög-
um. Þótt drengurinn sé ungur
hefur hann náð mjög langt í
íþrótt sinni og er af mörgum
talinn besti knattspyrnumaður
heimsins um þessar mundir -
sumir vilja jafnvel taka svo
djúpt í árinni að hann sé besti
knattspyrnumaður allra tíma
og hafa þá borið hann saman
við Pele og Maradona.
rátt fyrir að vera aðeins 21 árs
getur Ronaldo státað sig af
því að hafa náð lengra en flestir
knattspyrnumenn geta látið sig
dreyma um. Þessi vingjarlegi
krúnurakaði knattspyrnumaður
sem hefur áhuga á hraðskreiðum
bílum var valinn heimsins besti
knattspyrnumaður, en hann hefur
ekki ofmetnast af þessum titli. „Ég
öfunda engan og ég er ekki að leita
að hagstæðri niðurstöðu saman-
burðar við einhveija aðra knatt-
spyrnumenn, allra síst Pele eða
Romario," segir kappinn og bætir
við: „Ég hef mínar hugmyndir um
hver sé besti knattspyrnumaður
allra tíma, en ég ætla ekki að segja
ykkur hver það er.“
Skjótur frami og mörg mörk
Frami Ronaldos hefur verið
skjótur sem sést til dæmis á því
að hann á fast sæti í brasilíska
landsliðinu og í liði Inter Milan á
Italíu. Flestir góðir knattspyrnu-
menn eru eflaust að huga að fram-
tíð sinni þegar þeir eru 21 árs, en
framtíð Ronaldo virðist ráðin enda
hefur drengurinn gríðarlega
reynslu þó ungur sé. Hann varð
bikarmeistari með Barcelona á
Spáni og hann hefur einnig orðið
bikarmeistari í Brasilíu og í Hol-
landi. Hann var í sigurliði Brasilíu
í Suður-Ameríku keppninni og
næsta sumar er ætlunin að veija
heimsmeistaratitilinn með Brasilíu-
mönnum í Frakklandi.
Ronaldo hefur geysilega gott
auga fyrir því að skora mörk og
hann virðist ætla að sýna það á
Italíu að hann getur skorað mikið
af mörkum hvar sem er. Þegar
hann var táningur hjá Cruzeiro of
Belo Horizonte í Brasilíu gerði hann
58 mörk í 60 leikjum. Eftir að hann
kom til Evrópu hefur hann verið
iðinn við kolann, gerði 30 mörk í
33 leikjum tímabilið sem hann Iék
með PSV í Hollandi og 34 mörk í
37 leikjum fyrir Barcelona. Og byij-
unin hjá Inter er ekki slæm. Hann
gerði annað marka liðsins í UEFA-
keppninni á móti Neuchatel frá
Sviss og hefur því gert 15 mörk í
jafnmörgum Evrópuleikjum. Ron-
aldo hefur því sannað sig, alls stað-
ar nema í heimsmeistarakeppninni.
Sat hjá á HM í Bandaríkjunum
Hann var valinn í brasilíska
landsliðshópinn fyrir HM í Banda-
ríkjunum, en fékk ekki tækifæri til
að reyna sig. Þá var hann aðeins
17 ára, jafngamall Pele þegar hann
lék sinn fyrsta leik í heimsmeistara-
keppninni 1958. Pele lék einnig
árið 1962, þá 21 árs eins og Ron-
aldo er núna. Ronaldo segist von-
svikinn með að hafa ekki fengið
að reyna sig á HM í Bandaríkjunum
og segir það mestu vonbrigði lífsins
og það mun því mæða mikið á hon-
um í Frakklandi næsta sumar; þar
ætlar hann að sanna sig.
Svipað og Pele og Ronaldo var
Maradona valinn í landsliðshóp síns
föðurlands, Argentínu, fyrir HM
1978, þegar hann var 17 ára. Hann
lék fyrst í argentínsku deildinni 15
ára gamall og fyrsta landsleikinn
ári síðar en þegar fækkað var í
landsliðshópnum fyrir keppnina ’78
var hann einn þeirra sem ekki fengu
tækifæri. Þetta urðu hinum unga
snillingi mikil vonbrigði og þegar
hann mætti til leiks á HM á Spáni
1982, 21 árs, þoidi hann ekki þá
ábyrgð sem sett var á hans ungu
herðar. Það var ekki fyrr en 1986
að hann sannaði sig sem knatt-
spyrnumaður á HM.
Maradona hefur aldrei verið sú
„markamaskína“ sem þeir Ronaldo
og Pele voru og eru. Hann gerði
aðeins 10 mörk í þeim 23 landsleikj-
um sem hann lék áður en hann
varð 21 árs og alls gerði hann 33
mörk fyrir Argentínu í 88 leikjum.
Hann hafði gert 144 mörk í 206
leikjum í argentínsku deildinni þeg-
ar hann gekk til liðs við Barcelona
21 árs að aldri. Ef þeir Maradona
og Ronaldo eru bornir saman verð-
ur að hafa í huga að sá fyrrnefndi
lék ekki stöðu dæmigerðs framlínu-
manns, lék frekar fyrir aftan þá
og átti ófáar sendingar á samheija
sína sem gáfu mark.
Pele og Ronaldo eru líkir
Ronaldo svipar mun meira til
Pele en Maradona, bæði hvað varð-
ar leikstí! og eiginleika. Þeir, og
hundruð annarra snjallra leik-
manna frá Brasilíu, byrjuðu knatt-
spyrnuferil sinn í hliðargötum
heimabæjarins, en Ronaldo er frá
Bento Riveiro sem er stutt frá Rio
de Janeiro. Pele hefur rifjað æsku-
árin upp: „Við lékum án mark-
stanga, án vallar, þjálfara, dómara,
deilda og í rauninni án alls sem
minnir á knattspyrnu, nema hvað
við höfðum knött, sem reyndar var
lítið annað en notaður sokkur sem
í var troðið dagblöðum eða hálmi.“
Það er alltaf erfitt að bera leik-
menn saman, ekki síst þegar ald-
ursmunurinn er 36 ár eins og á
Pele og Ronaldo. Pele var uppá
sitt besta á sjöunda áratugnum
þegar Brasilíumenn lögðu meginá-
hersluna á að sækja en Ronaldo
er að hefja fjórða keppnistímabilið
í Evrópu. Þegar Pele varð 21 árs
státaði hann af þremur meistara-
titlum með Santos í Brasilíu en
Ronaldo á enn eftir að hampa
meistarabikar.
Hér að framan var rætt lítillega
um hversu mikið Ronaldo skoraði,
en Pele skoraði enn meira. Hann
varð 21 árs 21. október 1961 og
hafði þá leikið 383 meistaraflokks-
leiki og skorað 443 mörk í þeim.
Hann hafði skorað 31 mark í 26
landsleikjum, þar af fjórar þrenn-
ur. Skömmu áður en hann varð
tvítugur var hann einstaklega
markheppinn því á 18 dögum lék
lið hans sex leiki og í þeim gerði
Pele 23 mörk.
Ronaldo hefur nýtt síðasta mán-
uðinn sem hann er tvítugur með
því að gera þrjú mörk í fimm leikj-
um með Inter Milan, þar af eitt í
UEFA keppninni, en þrátt fyrir að
það sé dálítið frá því sem Pele
gerði á sama aldri eru Italir hæst-
ánægðir með Ronaldo og telja víst
að hann muni halda áfram að skora
mikið, eins og hann gerði í Hol-
landi og á Spáni.
Þótt Ronaldo sé orðinn þroskaður
á knattspyrnuvellinum er hann
óharðnaður piltur utan vallar og í
nýlegu viðtali í ítölsku dagblaði
sagði hann að uppáhaldsfríið sitt
væri að fara með kærustuna í 1
Evró-Disney í Frakklandi. Sem
ungan dreng dreymdi Ronaldo oft
um að verða hermaður, en nú snýst
líf hans um kærustuna, tenginguna
við alnetið, sem hann hefur mjög
gaman af, og jeppann hans að
ógleymdri knattspyrnunni. Hann
var spurður að því í síðustu viku
hvers hann óskaði sér í afmælisgjöf j
á mánudaginn: „Sigurs á sunnu-
dag,“ sagði Ronaldo. Inter vann 1
Fiorentina 3:2 þannig að hann fékk I
góða afmælisgjöf.
: