Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 17 LISTIR Barokktónlist íÞjóð- minjasafninu BAROKKTÓNLEIKAR verða í forsal Þjóðminjasafnsins á veg- um tónlistarhátíðarinnar Norð- urljós 97, í kvöld, sunnudag kl. 20.30. A efnisskrá eru verk eftir bresk, þýsk og frönsk tónskáld 17. og 18. aldar. f tilkynningu segir: „Sagt er að Georg Philipp Telemann hafi samið meira en Bach og Handel sam- anlagt, aftur á móti hefur að- eins ein sónata varðveist eftir Andrew Parcham.“ Einnig verður verk úr kvikmyndinni „Tous les matins du monde“ eða Allir heimsins morgnar, eftir franska tónskáldið M. Marais. Flytjendur eru Camilla Söd- erberg blokkflauta, Guðrún Óskarsdóttir semball, Snorri Örn Snorrason teorba og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir víóla da gamba. VAKA-HELGAFELL gefur út um 70 titla bóka á þessu ári en það er svipuð útgáfa og síðustu ár. Halldór Laxness er áberandi á útgáfulista forlagsins en í ár á Nóbelsskáldið 95 ára afmæli. Vaka-Helgafell gefur út viðhafnarútgáfu Halldórs Laxness á Brennunjálssögu en þetta er nákvæm endurgerð útgáfu Helgafells frá árinu 1945. Fyrir nokkru hóf forlagið að gefa skáldsögur Halldórs Laxness út í kilju, ekki síst til þess að þær séu aðgengilegar skólafólki í ódýrum útgáfum. í tengslum við það kemur út Lykilbók að fjórum skáldsögum eftir Halldór Laxness. Þar skýra Guðrún Ing- ólfsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir yfir fimm þúsund orð, orðasambönd, tilvitnanir, persónur og kveðskap í skáldsögunum Brekkukotsannáll, íslandsklukkan, Salka Valka og Vefarinn mikli frá Kasmír en þær eru nú allar komnar út í nýjum kiljuútgáfum. í haust kemur út bók með völdum ljóðum Halldórs Laxness með málverkum eftir ýmsa listamenn. Listamennirnir sem eiga myndir í bókinni eru Kristján Davíðsson, Erró, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Eiríkur Smith, Magnús Kjartansson, Val- garður Gunnarsson; Magnús Tómasson, Gunnar Örn, Bragi Asgeirsson og Jón Axel. Vaka-Helgafell endurútgefur nokkrar af skáldsögum Halldórs Laxness á þessu ári og má þar nefna Sölku Völku, Paradísarheimt, Sjálfstætt fólk, Heimsljós í tveimur bindum og fleiri. Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent öðru sinni nú í haust en Vaka- Helgafell stendur að verðlaununum í samráði við fjölskyldu skáldsins. Ekki verður opinber- að hver hlýtur verðlaunin í ár fyrr en við afhendingu þeirra en þó upplýsir forlagið að hér sé um að ræða skáldsögu þar sem kveð- ur við nokkuð nýjan tón í íslenskum _____ bókmenntum. Meðal útgáfubóka er fyrsta skáldsaga Arnaldar Indriðasonar og nefnist hún Synir duftsins. Vaka-Helgafell gefur út tvær " " bækur eftir Guðrúnu Helgadóttur á þessu hausti. Sú fyrri er Englajól þar sem Brian Pilkington gerir myndir. Siðari bók Guðrúnar er Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna og hefur Vaka-Helgafell þar með lokið endurútgáfu sinni á bókunum þremur um tvíburana. Vestur í bláinn er ný bók eftir Kristínu Steinsdóttur. Sagan er afar óvenjuleg að sögn forlagsins. Hér segir frá 13 ára stelpu úr nútímanum sem kynnist íslenskri jafnöldru sinni frá síðustu öld og slæst í för með henni vestur um haf þar sem hún kynnist lífi land- nemanna í Kanada. Kristín hefur um árabil kynnt sér vesturferðir íslendinga og ferðast um á slóðum landnemanna. Laxness o g Roddy Doyle Halldór Laxness Roddy Doyle Kristín Steinsdóttir Pétur Sigurgeirsson Tvær bækur eftir Guðrúnu Heigadóttur Töfradalurinn nefnist ný bók eftir Elías Snæland Jónsson, saga úr veröld ævintýr- anna um krakka sem eiga í höggi við sjálfa bókanomina! Á liðnu vori kom út hjá Vöku-Helgafelli sagan Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson en fyrir hana hlaut hann íslensku barnabókaverðlaunin. Endurminningar biskups Líf og trú nefnast endurminningar og hugleiðingar Péturs Sigurgeirssonar biskups. ________ Hér lítur Pétur yfir farinn veg. í fyrra gaf Vaka-Helgafell út bókina Siglfirskar þjóðsögur og sagnir sem Þ. Ragnar Jónasson tók saman. Fyrír þá bók hlaut höfund- ” urinn menningarverðlaun Siglu- fjarðar. Nú gefur forlagið út nýja bók eftir Ragnar, Siglfirska söguþætti. Fyrir tveimur árum kom Stóra draumaráðningabókin út og seldist hún strax upp. Nú hefur ritstjóri henn- ar, Símon Jón Jóhannsson, endurskoðað rækilega fyrri útgáfu verksins og aukið við efnið. Amy Tan, Roddy Doyle, Harry Mulisch í haust kemur út hjá Vöku-Helgafelli skáldsagan Konan sem gekk á hurðir eftir Roddy Doyle í þýðingu Sverris Hólmarsson- ar. Doyle er einn virtasti og vinsælasti núlif- andi höfunda íra. Hann hlaut virtustu bók- menntaverðlaun Breta, Booker-verðlaunin, fyrir Paddy Clarke Ha Ha Ha en hefur einn- ig skrifað The Commitments, Snappers og The Van sem allar hafa verið kvikmyndaðar. Dóttir himnanna er ný bók eftir kínversk- bandarísku skáldkonuna Amy Tan en áður hafa komið út eftir hana á íslensku Leikur hlæjandi láns, sem vinsæl kvikmynd var gerð eftir, og Kona eldhússguðsins. Súsanna Sva- varsdóttur þýðir Dóttur himnanna. Hollenski rithöfundurinn Harry Mulisch nýtur mikillar virðingar á meginlandi Evrópu jafnframt því sem hann er vinsæll víðar um lönd. Vaka-Helgafell gefur nú út þekktustu bók hans, Tilræðið, en bók eftir hann hefur ekki verið gefín út á íslensku áður. Ingi Karl Jóhannesson þýðir bók- ”““““““ ina úr hollensku. Minnisbókin er fyrsta skáldsaga banda- ríska rithöfundarins Nicholas Sparks. Þegar hún kom út vestra í fyrrahaust áttu fáir von á því að þessi „hugljúfa og látlausa bók“ eins og segir í kynningu næði vinsældum, enda ekki hefðbundin metsölubók. Fjölmarg- ir hafa líkt bókinni við Brýrnar í Madison- sýslu. Sigríður Halldórsdóttir þýðir Minnis- bókina. Lát trumbuna tala eftir Lindu Lay Shuler er sjálfstætt framhald bókanna Konan sem man og Rödd arnarins. Álfheiður Kjartans- dóttir þýðir Lát trumbuna tala eins og fyrri bækurnar tvær. Halldór Laxness áberandií ár Þriðji tvíburinn er ný skáldsaga eftir Ken Follett sem nefndur hefur verið konungur spennusagnanna. Hann hefur á undanförnum árum skrifað sögulegar skáldsögur en snýr sér nú að nútímanum þar sem nýrri tækni í erfðafræði er beitt í vafasömum tilgangi. Bókin er í þýðingu Geirs Svanssonar. Bak við ystu sjónarrönd er fyrsta skáld- saga ungrar bandarískrar konu Jacquelyn Mitchard. Bókin komst óvænt á toppinn í Bandaríkjunum í fyrra og stendur fyrir dyrum að kvikmynda söguna. Björn Jónsson þýddi. Fjölbreytt úrval þýddra barnabóka Hjá Vöku-Helgafelli koma út fjölmargar þýddar barna- og unglingabækur á þessu ári. Meðal þeirra er bók sem er afrakstur samstarfs heimsmeistarans í skák, Anatolij Karpovs og Disney-fyrirtækisins og nefnist bókin Skák og mát. Helgi Ólafsson stórmeist- ari þýðir bókina og staðfærir. í bókinni er ungum skákmönnum kennt að tefla til sigurs. Af öðrum bókum frá Disney má nefna fjór- ar bækur um hetjuna Herkúles en samnefnd mynd verður frumsýnd nú um jólin. Hér er bæði um að ræða hefðbundnar textabækur en einnig bækur sem eru hvorttveggja í senn bók og leikfarig. Vaka-Helgafell hefur á árinu haldið áfram útgáfu barnabóka í flokknum Ævintýraheim- urinn en þar er að fínna ýmis sígild ævintýri í búningi Walt Disneys og koma út 12 titlar á þessu ári. Að auki koma út jafnmargir titl- ar í flokknum Myndasögusyrpa en það eru 256 síðna bækur í mjúku bandi með sögum af vinsælum teiknimyndahetjum úr smiðju Disneys. Vaka-Helgafell gefur út sex aðrar þýddar myndskreyttar bækur fyrir yngri lesendurna. í Leitinni að fjársjóðnum slæst lesandinn í för með Maríu í mikla ævintýraferð og hjálp- --------- ar henni að leysa spennandi mynda- gátur í leiðinni. Pétur Ástvaldsson þýðir bókina. Amaldur refur og grísirnir þrír er saga af góðhjörtuð- um ref sem dag nokkurn skömmu fyrir jól fer með vinum sínum grís- unum þremur að leika söguna um grimma úlfinn og grísina þrjá. Þýðandi bókarinnar er Valgerður Benediktsdóttir. Linda hittir Vetur konung segir frá ævintýrum sem Linda lendir í þegar hún ákveður að fara og hitta Vetur konung og biðja hann að losa eyjuna sem hún býr á úr klakaböndum. Pétur Ást- valdsson þýðir. Pétur þýðir einnig bókina Litlivængur sem fjallar um lítið ungakríli með agnarsmáa vængi. Mörg börn þekkja Rasmus Klump. Rasmus Klumpur og Móri er ný bók um ævintýri hans. Prinsessan afbrýðisama segir frá tveimur prinsessum sem báðar vilja vera aðalprinsessurnar i höllinni. Þetta er sá ávinningur sem íslensk heimili hafa fengið á einu ári vegna þess að FÍB kom á samkeppni í bílatryggingum. Við það lœkkuðu iðgjöld bílatrygginga um 1,1 milljarð króna á ári og skuldir heimilanna lœkkuðu um 1,2 milljarða króna* Samtals er sparnaðurinn 2.321.145.283.kr. Þessi ávinningur er til kominn vegna samstöðu 18 þúsund félagsmanna FÍB. , ^ En að auki njóta félagsmenn FÍB fjölbreyttrar þjónustu sem er ómetanleg rtb\\Ö að FÍB er fljót að DOty^ hverjum bíleiganda og veitir mikið öryggi. 'Skv. álilsgerð Hagfrœðislofnunar Háskóla Islands 7. okt. 1997 FÍB Borgartúni 33 Sími 562-9999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.