Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR12. OKTÓBER1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ATHYGLISVERÐAR HUGMYNDIR EINARS ODDS EINAR Oddur Kristjánsson, alþingismaður Sjálfstæð- isflokks, hefur hreyft afar athygl- isverðum hugmyndum varðandi veiðar úr norsk-íslenzka síldar- stofninum. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu síðustu daga má ætla að verðmæti þess síldarkvóta, sem kæmi í okkar hlut úr þeim stofni, gæti numið allt að 20 milljörðum króna ef miðað er við gangverð á síldar- kvóta úr suðurlandssíldinni, sem er um 80-100 milljónir á hvern kvóta skv. upplýsingum LÍÚ. í grein í Morgunblaðinu í gær, þar sem fjallað er um norsk- íslenzka síldarstofninn og hvern- ig standa eigi að úthlutun úr honum á næsta ári, segir m.a.: „Einar Oddur sagði, að aðrar reglur hefðu gilt um veiðarnar á árunum 1995 og 1996 og hann mundi ekki samþykkja fyrir sitt leyti að veiðar á þeim árum yrðu lagðar til grundvallar við kvóta- úthlutun. Hann sagði að við um- ræður um veiðileyfagjald á Al- þingi á fimmtudag hefði hann sagt, að ef menn tryðu því, að auðlindaskattur gæti verið góður í hagfræðilegu tilliti, þá væri kannski rétt að prófa hann í veið- um á norsk-íslenzka síldarstofn- inum. Við værum ef til vill að ná árangri í auknum fiskveiðiarði hvað varðar veiðar uppsjávar- fiska, en um það væri ekki að ræða í þorskveiðum. Með tilliti til þess kæmi ef til vill til greina að gera tilraun með það, hvort auðlindagjaldskerfi virkaði í til- felli norsk-íslenzka síldarstofns- ins. Hann sagðist jafnframt hafa tekið það fram, að hann hefði enga fullvissu um að við værum að gera rétt með þessu, en það væri miklu nær að gera tilraun- ina, þar sem við sæjum að það hefði orðið einhver árangur af fiskveiðistjórnuninni heldur en standa í þessu eilífa karpi. Hann bætti því við að fiskveiðistjórnun- arkerfið hefði ekki náð neinum árangri hvað varðar þorskveiðar og jafnvel mætti halda því fram, að okkur hefði miðað aftur á bak. Hins vegar þættist hann sjá þess merki, að í uppsjávarveiðun- um væri þetta kerfi að ná ár- angri og „auðlindagjald byggist á þeirri hagfræðikenningu að sé fiskveiðunum stjórnað á réttan hátt þá verði til fiskveiðiarður umfram það, sem ella hefði orðið og þess vegna sé eitthvað til skiptanna““. Þessar hugmyndir þingmanns- ins eru athyglisverðar og jákvæð- ar, ekki sízt í ljósi þess hvernig hann hefur talað um fiskveiði- kerfið að öðru leyti. Vonandi fylg- ir hann þessum hugmyndum eftir innan sjávarútvegsnefndar Al- þingis. Verði ákvörðun af þessu tagi tekin verður hún mikilvægt skref í átt til þess að stuðla að sátt og samkomulagi um fisk- veiðistefnuna. ÚTLEND- INGAR OG AUÐLINDIN I^UMRÆÐUM á Alþingi sl. fimmtudag varpaði Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmaður Kvennalista, fram hugmyndum um leigu á veiðiheimildum til út- lendinga. í Morgunblaðinu í gær skýrði þingmaðurinn þessar hug- myndir nánar og sagði: „Það skiptir meginmáli, að arðurinn renni til þjóðarinnar, sem á auð- lindina, og gæti jafnvel verið skárra að leigja einum og einum útlendingi einhvern hluta auð- lindarinnar heldur en að láta sægreifana fá hana fría á silfur- fati. . .ef það væri ákveðið að leigja út afla frá ári til árs kæmi það allt eins til greina að leigja þá útlendingum, ef afrakstur auðlindarinnar skilaði sér þannig betur til þjóðarinnar.“ Segja má, að baráttan gegn veiðum útlendinga á ísiandsmið- um hafi staðið meirihluta þessar- ar aldar eða þangað til síðasti brezki togarinn sigldi af íslands- miðum hinn 1. desember árið 1976 fyrir 21 ári. Á þeim árum hefði engum dottið í hug að setja fram slíkar hugmyndir. Það segir hins vegar töluverða sögu um þau áhrif, sem núver- andi fiskveiðistefna hefur haft á viðhorf fólks, að þessi ummæli Guðnýjar Guðbjörnsdóttur hafa ekki vakið neina sérstaka athygli og því síður að þau hafi framkall- að einhverja reiðiöldu á meðal almennings. Niðurstöður og tilgáta AF því sem sagt hefur verið í þessum þáttum má draga nokkrar ályktanir hver sé lík- legasti höfundur Njálu; eða eigum við fremur að segja hver sé ekki höfundur sög- unnar. Við skulum leita að þeim eina manni sem uppfyllir öll skilyrði þess að hafa getað skrifað söguna. Þau leyna sér ekki: 1) Höfundur hefur verið mikill sagnfræðingur og sagnamaður og vel kunnur völundarhúsi og hug- myndaheimi samtíðar sinnar. 2) Hann hefur verið mikið skáld, og þá ekkisíður ljóðskáld og ber stíllinn þess merki, og þá orðfæri, myndvísi og líkingar, ekkisízt í sam- tölum (atgeirinn syngur; koma flugu í munn e-m; atgeir hans var heima; fögur er hlíðin...; eg gerði að bakverk Ásvarðar (þ.e. vó hann): eg var ung gefin Njáli; guð er mis- kunnsamur og mun oss eigi láta brenna þessa heims og annars). 3) Höfundur hefur kunnað margt fyrir sér í lögum og haft reynslu af málatilbúnaði á Alþingi, svo oft sem þess er getið. Hann hefur a.m.k. meiri áhuga á lögvísi en gengur og gerist um rithöfunda. 4) Hann hefur reynslu af forspám og draumum og leggur trú á hvort- tveggja, svo mjög sem öll sagan er undir því komin að lesendur telji ekki slíkt efni afskræmingu á veru- leikanum. Ef svo væri brystu for- sendur sögunnar og hún yrði um- svifalaust að skrípamynd umhverf- isins; furðusaga til afþreyingar í stað þess sígilda listaverks sem hún er. 5) Höfundur hefur þekkt eitthvað til um allt land og ratað víða, þótt ekki sé hann óskeikull um stað- hætti, enda á einskis manns færi, hvorki fyrrnésíðar. 6) Hann þekkir rækilega til Krístni sögu og hefur áhuga á slíku efni, vefur kristnitökuþátt inní söguna, þótt hún hefði getað án hans verið, ef áhugalaus höfundur um þau efni hefði spunnið þráðinn. Þessu er öðruvísi farið um kristni- töku þátt Laxdælu, hann er undan- fari harmleiksins. (Kjartan er kyrr- settur í Noregi, en Bolli fer heim). 7) Höfundur Njálu þekkir feikna- vel til íslenzkrar ritlistar, og þá ekkisízt til landnámuskrifa (Börkur blátannarskeggur í Njálu og Sturíu- bók Landnámu, en bláskeggur í Melabók og Hauksbók). Hann hefur fornaldar- og furðusögur í fíngur- gómunum, skemmtir sér við ævin- týraminni og jarteiknir. 8) Hann hefur kunnað nokkuð glögg skil á staðháttum erlendis og drukkið í sig andrúm slíks umhverf- is, ekkisízt í hirðsölum Noregskon- unga. 9) Njáluhöfundur kunni góð skil á bardögum og hefur sjálfur reynslu af þeim, svo mikla rækt sem hann leggur við slíkt efni og hefur lýsing- ar allar á hraðbergi. Hann hefur einnig farið margar sjóferðir. 10) Höfundur hefur sérstaka andúð á Kolbeini unga. 11) Þótt höfundur hafí marga fjöruna sopið og lent í bardögum og útistöðum, svo vel sem hann kann tök á slíku efni, er hann frið- samur í eðli sínu, veit að óráðlegt er að vega í knérum og hefur reynslu af því að sjaldan verður hönd höggp fegin. Hann þekkir brennur og lýsir þeim sem hveijum öðrum óhugnaði með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Hann er vel kristinn, en þekkir heiðna arfleifð útí æsar og hefur ímugust á ofbeldi og vígaferlum. Njála er ekkisízt áminning til ofstopamanna sturl- ungaaldar. 12) Njáluhöfundur er ekki einnar bókar maður, heldur þrautþjálfaður í list sinni. Hvaða maður skyldi nú hafa allt þetta til að bera á rítunartíma sög- unnar? Og hver skyldi þá uppfylla öll skilyrðin? Ýmsir uppfylla sum þeirra, einsog Þorvarður Þórarins- son og Árni byskup Þorláksson, en einn sturlungaaldamaður sem við þekkjum, og einungis einn, uppfyll- ir þau öll. Þessi eini maður sem við þekkjum og á sviðinu stendur, þegar aðrir hafa lokið hlutverki sínu, er Sturla Þórðarson. Að öðrum kosti einhver ónefndur snillingur sem við þekkj- um ekki og væri það þá með ólíkind- um. Snillingar leynast ekki. Þeir koma fram á sviðið fyrreðasíðar. Verk þeirra bera þeim vitni. En þetta skiptir ekki sköpum. Og ég er enginn trúboði. Njáls saga er slíkt meistaraverk, að hún getur staðið höfundarlaus um alla eilífð og kannski er slíkt verk höfundar- laust í raun og veru; einsog full- þroska ávöxtur án þess tréð geri tilkall til hans. Ekki persóna á sviðinu, heldur sviðið sjálft. Ég hef áður sagt í útvarpssam- tali við Einar Kárason og Stefán Jón Hafstein að Brennu-Njáls saga hafí skrifað sig sjálf; að við gætum sagt að þrettánda öldin sé höfundur hennar. En það fullnægir ekki forvitni okkar. Þessi dularfulli leyndardóm- ur dregur að sér. Og forvitni er skáldskapur sem við eigum að rækta. M. HELGI spjoll REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 11. október Aallmörgum und- anförnum árum hefur orðið skýr breyting á viðhorfi fólks til þess starfs, sem fram fer í skólum landsins. Hún byggist á mörgum þáttum en m.a. þeim, að fólk gerir sér gleggri grein fyrir mikil- vægi skólastarfsins og foreldrar telja sig geta gert meiri kröfur en áður um gæði þess og þeirrar menntunar, sem skólarnir veita. Samanburður á árangri nemenda í ein- stökum skólum, sem birtur hefur verið opinberlega á þátt í þessum breyttu við- horfum og það hefur auðvitað vakið at- hygli, að einstakir skólar hafa gert veru- legt átak í að bæta stöðu sína í þeim sam- anburði og náð töluverðum árangri. AI- þjóðlegur samanburður á þekkingu nem- enda í raungreinum, þar sem ísland hefur komið illa út, hefur vakið upp miklar umræður um, hvernig við skuli bregðast. Jafnframt blasir við, að augljós tengsl eru orðin á milli góðrar menntunar og þeirra tækifæra, sem við blasa á vinnu- markaðnum. Aukin afbrot og ódæðisverk hafa líka vakið fólk til vitundar um, að afbrotamenn verða ekki til af sjálfum sér heldur skiptir öllu máli hvernig æsku og uppvexti hefur verið háttað og skólastarf- ið skiptir ekki litlu máli í því sambandi, þótt enginn og ekkert geti komið í stað foreldra og þess umhverfis, sem börn og unglingar búa við í æsku. Foreldrafélög og samtök foreldra verða stöðugt virkari, gera meiri kröfur en áður og eru tilbúnari til að gera athugasemdir við það, sem fram fer í skólum. Foreldrum er orðið ljóst, að sumir skólar eru betri en aðrir og að það veltur ekki sízt á stjórn- endum skólanna og kennaraliði. Foreldrum er líka orðið ljósara en áður, að það getur ráðið úrslitum um velferð barna þeirra í framtíðinni, að þau eigi kost á skólavist í góðum skólum. Raunar er líka hægt að líta á þetta mál frá öðru sjónarhorni. Afkoma þjóðarinnar á næstu öld í samanburði við aðrar þjóðir mun að verulegu leyti byggjast á því, hvort okkur tekst að auka og bæta menntun landsmanna og standa þar a.m.k. jafnfæt- is öðrum þjóðum, sem lengst hafa náð. Þegar á allt þetta er litið má ganga út frá því, sem vísu, að kröfur um aukin gæði menntunar allt frá grunnskóla til háskólastigs eigi eftir að verða meiri og háværari á næstu árum. Gæði þeirrar menntunar, sem í boði er byggjast hins vegar að verulegu leyti á möguleikum skólanna til að laða til sín hæfa kennara, þótt betri tækjabúnaður og þá fyrst og fremst tölvubúnaður eigi þar líka mikinn hlut að máli. Trúnaðar- brestur á milli kenn- ara og sam- félagsins í UÓSI ÞESS, sem að framan hef- ur verið rakið er það því mikið áhyggjuefni, að sú kjaradeila, sem nú stendur yfír á milli sveitarfélaga og kennara sýnir, að alvarlegur trúnaðarbrestur er orðinn á milli kennara og samfélagsins. Kennarar hafa hvað eftir annað háð harða kjarabaráttu á nokkrum undanförn- um árum. Mörgum hefur þótt nóg um og þá ekki sízt, að þeir hafa stundum valið þann árstíma til verkfalla, sem komið hef- ur nemendum þeirra hvað verst. Enginn vafí er á því, að verkföll kennara hafa haft mjög neikvæð áhrif á þá nemendur, sem orðið hafa fómarlömb verkfallanna. Nú stefnir enn í kennaraverkfall, sem getur orðið bæði langt og erfitt, ef til þess kemur. Það sem fram hefur komið í þeirri kjaradeilu, sem nú stendur yfír sýn- ir hins vegar, svo tæplega verður um villzt, að upp úr er að sjóða í hópi kennara. Þeir telja sér misboðið með þeim launakjörum, sem þeir búa við. Þeir vilja ekki lengur láta fara svona með sig, eins og einhver úr þeirra hópi hefur sagt og margir þeirra eru bersýnilega tilbúnir til að hætta störf- um og freista gæfunnar á öðrum sviðum vinnumarkaðarins. Að þessu leyti er kenn- aradeilan nú alvarlegri en hinar fyrri. Nú hafa nokkrir hópar kennara sagt upp störf- um. Fyrirtæki verða þess vör, að kennarar og jafnvel skólastjórnendur eru í atvinnu- leit. Það er auðvitað hægt að deila enda- laust um kjör kennara, vinnutíma og möguleika á tekjuöflun. Það er hægt að sýna fram á, að í einstökum tilvikum geta kennarar komizt í býsna háar tekjur með mikilli yfirvinnu og vegna þess, að kennslu- skylda þeirra er orðin takmörkuð. Það fer hins vegar tæpast á milli mála, að tekjur meginþorra kennara eru í lægri kantinum miðað við það, sem gerist á hinum al- menna vinnumarkaði. Þetta á líka við um háskólastigið. Fyrir nokkrum dögum kom fram hér í blaðinu, að nokkrir Islendingar stunda nú háskóla- kennslu í Ósló og hafa þar tvöfalt hærri laun en þeim bjóðast við háskólann hér. Þeim prófessor við Háskóla íslands, sem byggt hefur upp kennslu í tölvunarfræði og með því starfi lagt menntunarlegan grundvöll að þeim blómlega hugbúnaðar- iðnaði, sem hér er að verða til, bjóðast tvöfalt til þrefalt hærri laun í háskólanum í Dublin á írlandi. í hnotskurn er hægt að halda því fram að kennarar segi við samfélagið: þið krefj- ist betri menntunar, aukinna gæða í skóla- starfi en þið eruð ekki tilbúin til að borga það, sem sú þjónusta kostar. Vandi viðsemjenda kennaranna er hins vegar mikill. Sveitarfélögin standa frammi fyrir því, að mikilvægir kjarasamningar hafa verið gerðir á hinum almenna vinnu- markaði, yfirleitt til u.þ.b. þriggja ára. Það er auðvitað ljóst, að það er ekkert einfalt mál að semja við kennara um meiri kjara- bætur en aðrir launþegar hafa fengið. Það getur haft tvíþætt áhrif. Annars vegar getur það leitt til óróa á vinnumarkaðnum, sem enginn sér fyrir endann á. Hins vegar getur það leitt til keðjuverkandi áhrifa að öðru leyti, sem raski þeim stöðugleika, sem við búum nú við í efnahags- og atvinnumál- um. Það er augljóslega þungt í sveitarfélög- unum vegna þeirrar stöðu, sem þau eru komin í. Sumir talsmenn þeirra telja, að þeir hafí keypt „svikna vöru“ af ríkisvald- inu með þeim samningum, sem gerðir voru um tilfærslu þessa málaflokks til sveitarfé- laganna. Með því eiga þeir við, að svo mörg óleyst og dulin vandamál hafi verið í samskiptum ríkisins og kennaranna, þeg- ar þessir samningar voru gerðir, að sveitar- félögin eigi kröfu á „skaðabótum" frá rík- inu af þeim sökum. Eins og mál standa nú er afar ósenni- legt, að samningar takist við kennara um sömu kjarabætur og aðrir hafa fengið. Verkefni samningamanna sveitarfélag- anna er þá kannski að átta sig á því hvað aðrir starfshópar geti fallist á miklar kjara- bætur til kennara umfram það, sem þeir sjálfir hafa fengið í sinn hlut. Samninga- menn kennara hafa á hinn bóginn byggt upp svo miklar væntingar meðal sinna félagsmanna um kjarabætur, að það getur verið óframkvæmanlegt fyrir þá að semja án undangenginna langra og harðra verk- falla. Nýjar vinnuað- ferðir? KJARAMÁL kennara eru aug- ljóslega í blindgötu. Eftir að þessi mála- flokkur er kominn í hendur sveitarfé- laganna vakna hins vegar spurningar um, hvort hægt sé að stokka þetta kerfi alveg upp og afnema m.a. þá miðstýrðu kjara- samninga, sem við höfum lengi búið við, raunar bæði á þessu sviði og öðrum. Þegar horft er til þess, sem fjallað var um í upphafi þessa Reykjavíkurbréfs um síauknar kröfur um gæði menntunar og bætt skólastarf má spyija, hvort nokkuð sé athugavert við það, að hvert sveitarfé- lag fyrir sig semji við þá kennara, sem starfa á þess vegum? Það mundi auðvitað þýða, að launakjör kennara væru ekki þau sömu alls staðar á landinu en staðreyndin er sú, að þau eru það ekki í dag. Minni sveitarfélög víða um land hafa boðið kenn- urum kjarabætur í ýmsu formi til þess að fá þá til starfa. í einstökum sveitarfélögum öðrum hafa kennurum verið greiddar upp- bætur á laun í ýmsu formi. Þessi röksemd dugar því ekki gegn hugmyndum um að bijóta samningagerðina upp. Ef hvert sveitarfélag semdi við sína kennara mundi skapast samkeppni þeirra í milli um beztu kennarana. Sú samkeppni mundi leiða til betri kjara fyrir þá kennara en jafnframt mundi hún verða mjög hvetj- andi fyrir aðra kennara um að auka mennt- un sína og starfshæfni á margan veg. Samkeppni á milli sveitarfélaga mundi áreiðanlega á nokkrum árum leiða til þess, að skólarnir almennt hefðu á að skipa betri og hæfari kennurum. Ekki er ólíklegt, að hugmyndir af þessu tagi mæti andstöðu í forystuliði kennara. Yfirleitt eru forystusveitir launþegasam- taka andvígar öllum hugmyndum, sem leiða til breytinga á þeirra eigin stöðu og högum. En kostirnir fyrir kennarana sjálfa eru augljósir og nánast öruggt, að þessi aðferð mundi leiða til umtalsverðra kjara- bóta fyrir þá sjálfa, sem ekki yrði hægt að ná við hið miðstýrða samningaborð. Yaldiðtil fólksins SL. VOR GAF Morgunblaðið út sérblað, þar sem á átta síðum var birt merkileg grein úr brezka blaðinu Economist um þróun lýð- ræðisins á 21. öldinni. Þar voru færð rök fyrir því, að lýðræðið hefði staðnað og þróun þess stöðvast vegna hernaðarátaka á þessari öld og ekki sízt vegna kalda stríðsins. Nú væri hins vegar tímabært að halda áfram að þróa það í nýjan farveg. Blaðið benti á, að fulltrúalýðræðið, sem við nú búum við, væri að ganga sér til húðar. Allur almenningur væri betur menntaður en áður og hefði sama aðgang að upplýsingum um málefni lands og þjóð- ar og þeir sem sætu á þjóðþingum. Þess vegna væri tímabært, að almenningur tæki ákvarðanir um veigamikil mál, sem nú væru teknar á þingum og í sveitar- stjórnum. Þetta eru skemmtilegar hugmyndir og sennilega mjög vel framkvæmanlegar hér á íslandi. Það væri áhugavert að stíga fyrstu skrefin í þeim efnum í einstökum sveitarfélögum. Morgunblaðið hefur áður bent á, að hægt væri að leggja undir at- kvæði kjósenda í sveitarfélögum ágrein- ingsmál á sviði skipulagsmála, vegagerðar o.s.frv. En það blasir líka við, að hægt er að spyija fólkið sjálft spurninga í sambandi við skólastarf. Nú er meira vitað en áður um mikilvægi þess fyrir framtíðarvelferð barna og unglinga, hvernig æsku og upp- vexti er háttað eins og áður var vikið að. Mestu skiptir hvað gerist á heimilunum. En leikskólar og grunnskólar eru líka mik- ilvægar stofnanir í þessu sambandi. For- eldrar hafa mikla hagsmuni af því, að öll börn hafí aðgang að góðum leikskólum og grunnskólum. Afar og ömmur sjá á degi hveijum hvaða þýðingu þetta hefur. Er fráleitt að spyrja íbúa í einstökum sveitarfélögum þeirrar spurningar, hvort þeir séu annaðhvort tilbúnir til að greiða hærra útsvar eða til að falla frá öðrum útgjöldum á vegum sveitarfélaga til þess að hægt sé að tryggja börnum þeirra beztu skóla, hvort sem er á leikskólaaldri eða grunnskóla? Kannski finnst kennurum að þeim vegið með því að stilla dæminu svona upp og gera í raun og veru kröfu tii þess, að aðr- ir íbúar sama sveitarfélags minnki ráðstöf- unartekjur sínar til þess að bæta skóla- starfið. En sannleikurinn er sá, að þessi kostnaður kemur bara fram annars staðar og stundum með hörmulegum afleiðingum. Sá kostnaður, sem foreldrar og aðrir út- svarsgreiðendur spara sér hugsanlega með lægri launagreiðslum til kennara en ella getur komið fram með auknum þunga á öðrum vígstöðvum, í auknum útgjöldum á vegum félagsmálastofnana vegna ung- linga sem eiga í vandræðum með sjálfa sig, vegna þeirra, sem leiðast út á braut afbrota og svo mætti lengi telja. Raunar má færa rök að því, að hið sama eigi við um ýmsa aðra starfshópa á vegum opinberra aðila, sem hafa Iýst megnri óánægju með launakjör sín á undanfömum árum, svo sem ýmsa starfshópa í heilbrigð- iskerfínu. Þjónusta við aldraða verður t.d. stöðugt umfangsmeiri en hún er í mörgum tilvikum erfið og að því kemur áreiðanlega að endurskoða verður launakjör þeirra, sem starfa á því sviði. Er það óhugsandi, að börn aldraðra foreldra vilji greiða hærri gjöld til þess að bæta umönnun foreldra sinna? Vangaveltur sem þessar leysa ekki þá kjaradeilu kennara, sem nú stendur yfír. Það er hins vegar tímabært að ræða, hvort tilefni sé til að beina kjaramálum þeirra í nýjan farveg. „Ef hvert sveitar- félag semdi við sína kennara mundi skapast samkeppni þeirra í milli um beztu kennarana. Sú samkeppni mundi leiða til betri kjara fyrir þá kennara en jafn- framt mundi hún verða mjög hvetj- andi fyrir aðra kennara um að auka menntun sína og starfs- hæfni á margan veg. Samkeppni á milli sveitarfé- laga mundi áreið- anlega á nokkrum árum leiða til þess, að skólarnir almennt hefðu á að skipa betri og hæfari kennur- um.“ T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.