Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 39 ist allra aðfangadagskvöldanna heima hjá ömmu og afa á Ægisíð- unni þegar Palla og Binni komu í heimsókn eftir kvöldmatinn ásamt Ellu dóttur sinni, manni hennar og sonum þeirra. Það tilheyrði alltaf að við hittumst öll saman á að- fangadagskvöld. Það var þvi oft mikið líf og fjör á þessum kvöldum enda margt um manninn. Ég er óskaplega þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman síðastliðinn vetur. Ég náði þá að kynnast mann- kostum Pöllu enn betur og var þá líka komin með þroska til að meta þá. Palla var alltaf svo glaðlynd og stutt í gamanið hjá henni þrátt fyr- ir mikil veikindi hin síðustu ár og man ég ekki eftir henni öðru vísi. Ég þakka henni fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með henni þegar ég kveð hana í dag. Fuglarnir hófu sig til himins, þar sem draumar vakna og sofna. Eins og maður sem kemst til draumsins fljúga þeir tignarlega til sólu. Fegurðin nkir þar ein þar sem friðurinn að eilífu ríkir. Skyndilega kveður sól himin eins og dagur nótt. í fyrstu varpar hún rauðum bjarma á bláan óendanleika himinsins, að lokum er minningin eftir og himinninn þar sem fegurðin býr. (Hrönn Thorarensen) Elsku Binni, Ella, Hjörtur, synir og aðrir aðstandendur, ég bið Guð að styrkja ykkur á þessari sorgar- stundu. Minninguna um þig, elsku Palla, mun ég ætíð geyma með mér. Hrönn. Þegar komið er að kveðjustund koma upp í hugann góðar minning- ar um Pöllu föðursystur mína. Palla var sérstaklega hjartahlý og sýndi öðrum einstaka umhyggju. Fyrir nokkrum árum varð bróðir minn Páll fyrir slysi, þá 9 ára gamall, og hefur ekki gengið heill til skógar síðan. Palla hafði ávallt tíma fyrir hann og sýndi honum mikla ró og þolinmæði, eitthvað sem hann hafði mikla þörf fyrir og býr að enn í dag. Það var alltaf notalegt að koma í heimsókn til Pöllu og Binna á Háaleitisbrautina. Ávallt tók hún mér og minni fjölskyldu opnum örmum og hafði mikinn áhuga því sem var að gerast í lífi okkar. Hún gekk undir nafninu Palla amma hjá börnunum mínum þremur og var mjög ánægð með þann titil. Eftirlifandi eiginmanni, dóttur og dóttursonum sendi ég mínar samúðarkveðjur. Þóra Þórisdóttir. Skjótt skipast veður í lofti. Á tæpum þremur vikum hafa tvær systur úr sömu fjölskyldunni okkar fallið í valinn, þær Klara og Pálina. Það er ekki lengra síðan en sjötta september að öll systkinin komu saman í brúðkaupi systur- dóttur þeirra. Hvern hefði órað fyr- ir því að þetta myndi bera svo brátt að? Er ég sat við dánarbeð Pöllu mágkonu minnar, rifjuðust upp minningarnar um liðna daga. Hver í fjölskyldunni man ekki áramótin hjá Klöru og Villa og brennuna á Ægisíðunni, þá var mikið fjör er systkinahópurinn ásamt mökum og aragrúa af börnum safnaðist saman til að fagna nýju ári. Fleira sækir að eins og sumarferðalögin eða jóla- boðin sem haldin voru á afmæli Binna þar sem borð svignuðu undan krásunum hennar Pöllu. Hvernig byijaði þetta annars? Minningarnar seilast sextíu ár aftur í tímann til Bergþórugötu 12, litla hússins er kúrði efst i lóðinni við Skólavörðu- holtið. Ég vissi þá, að í þessu húsi bjó ekkja ásamt börnunum sínum sjö, en þá grunaði mig ekki að síð- ar meir yrði þessi fallega skapgóða kona tengdamóðir mín og ég myndi tengjast krökkunum á 12 jafnnáið og síðar varð. Eftir að við Guð- mundur sonur hennar fórum að vera saman kynnti hann mig fyrir þessari stóru glaðværu fjölskyldu sinni. Móðir hans Elín Guðmunds- dóttir var mikil mannkostakona með stórt hjarta, glaðvær og allra vinur og munu margir muna hana enn því hús hennar stóð jafnan opið jafnt ungum sem öldnum. Ég horfi á Pöllu mágkonu mína þar sem ég sit hjá henni, hvað hún líkist mömmu sinni. Þær gerðu það reyndar báðar þessar systur, glæsi- legar, glaðværar og hinar mestu hannyrðakonur. Reyndar eru öll börnin hennar Elínar listfeng, það leikur allt í höndum þeirra, hvers og eins. Áfram streyma minning- arnar, þar sem ég sit, eins og óbeisl- að fljót. Systkinin byijuðu snemma að vinna og létta undir með móður sinni sem þau dáðu og virtu. Síðar stofnuðu þau, hvert af öðru, sín heimili ásamt lífsförunautum sínum og eignuðust sín börn, en ávallt var Bergþórugata 12 miðpunkturinn meðan Elínar naut við. Niðjum Elín- ar íjölgaði stöðugt og að því kom að farið var að halda jólaböll til að halda þessum stóra hópi saman, já og ættarmót héldum við líka. Nú er Bergþórugata 12 horfin og þar sem litla húsið stóð er komið bíla- stæði fyrir Iðnskólann. Ærslabelg- irnir er þar bjuggu orðnir mikið fullorðið fólk og ný kynslóð tekin við. í raun finnst mér svo stutt síð- an húsið hennar Elínar var og hét. í sumar höfðu systurnar tvær og við hin rætt um hvað hægt væri að gera á aldarafmæli móður þeirra hinn 1. október á þessu ári. Hvers vegna ekki að fara með stóla, borð, kampavín og glös að beði hennar og við tilhugsunina fannst mér ég næstum heyra hinn dillandi hlátur hennar. Nei, kannski væri þetta ekki nógu virðulegt og við vorum jú orðin svo mörg. Engan gat grun- að að dagsins yrði minnst á þann hátt sem fór. I vikunni eftir þrúð- kaup systurdóttur þeirra voru báðar þessar elskulegu mágkonur mínar lagðar inn á Sjúkrahús Reykjavík- ur. Klara fór í aðgerð er virtist heppnast vel og glöddumst við öll, ekki síst hún sjálf, Villi og börnin, en þá kom reiðarslagið. Sunnudag- urinn 14. sept. rann upp. Villi og Málfríður, dóttir þeirra, fóru í heim- sókn til Klöru, en þá var hún öll. Á einu andartaki hrundi heimurinn fyrir Villa og börnunum, þetta var mikil sorg og fyrir Pöllu, sem þá var orðin mikið veik varð þetta gíf- urlegt áfall. Þær systur höfðu alla tíð verið mjög nánar og tæpast leið sá dagur að þær ekki heyrðust í síma. Þau hafa því verið Binna þung sporin að þurfa að færa konu sinni þessa válegu frétt. Fyrir hönd fjöiskyldu minnar vil ég færa Villa og hans fjölskyldu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur yfir þeirra mikla missi. Okkar hugur og bænir hafa verið með þeim í þeirra sorg. Heilsu Pöllu hrakaði óðum og í kjöl- far lærbrots á Sjúkrahúsi Reykja- víkur varð ekki aftur snúið. íjöl- skylda hennar vakti nótt sem dag og umvafði hana með allri sinni ást og hlýju. Hinn 2. október með sólar- geislann sinn Elínu sér við hlið slokknaði lífsneisti Pöllu að fullu. Enn á ný biðu Binna þung spor, þau þyngstu, enda voru þau þjón einstaklega samrýnd, vinir og félag- ar, stoð og stytta hvort annars. Daginn áður á 100 ára afmæli móður þeirra var aska Klöru lögð til hinstu hvílu við hlið móður sinn- ar eins og hún hafði óskað eftir. Það munaði því aðeins einum degi að fæðingardagur móður, sem þær líktust svo mjög tengdi þær allar saman. Ég þakka af alhug fyrir að fá tækifæri til að kynnast þessum systrum. Það er mér mikil og stór gjöf sem ég geymi í hjarta mínu til hinstu stundar. Elsku Binni, Ella og fjölskylda! Missir ykkar er mik- ill og söknuðurinn sár. Ég og fjöl- skylda mín biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur og styðja. Bænir okk- ar og hugur munu vera með ykkur. Brynhildur Bjarnarson. Það hefur myndast stórt skarð í hóp okkar systkina af Bergþóru- götu 12. Við hefðum ekki trúað því hinn 6. september sl., þegar við hittumst í brúðkaupi dóttur minnar, að innan þriggja vikna væru báðar systur mínar látnar. Þrátt fyrir það að bæði Klara og Palla hefðu átt við sjúkleika að stríða var ég svo bjartsýn á að við ættum eftir margar notalegar stundir saman. Höfðum við einmitt ráðgert að hittast á 100 ára fæðing- arafmæli móður okkar þann 1. október. Við systur vorum alla tíð mjög samrýndar og ósjaldan spjölluðum við saman í síma. Eiginmenn okar hentu oft gaman að tíðum og löng- um símhringingum okkar systra á milli og sögðu þá í gríni: Er það Klara systir eða Palla systir? Ég hugsa til þess með söknuði að geta ekki hringt í stóru systur mínar ef mér liggur eitthvað á hjarta. En ég þakka fyrir öll árin sem ég átti þær að og minnist með þakklæti margra góðra stunda sem við áttum og ríkulegrar hjálpsemi og góðvildar þeirra beggja í minn garð. Ég þakka Klöru fyrir öll lögin og bænirnar sem ég lærði af henni í æsku þegar hún svæfði okkur þijú yngstu systkinin. Seinna hrærði það hjarta mitt þegar Palla, svo oft, birt- ist með fangið fullt af fötum og sagði: Steinka mín getur þú ekki notað þetta á þig eða bömin? Elsku systur mínar, þið hafið gefið mér svo margt í gegnum lífið. Eg kveð ykkur með þessari bæn, sem við systkinin þekkjum öll: + Steinþór Þór- ormsson fædd- ist á Búðum, Fá- skrúðsfirði, 30. maí 1941. Hann andað- ist á heimili sínu 1. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þórormur Stefánsson, f. 23.4. 1894, d. 12.5. 1981, og kona hans Stef- anía Indriðadóttir, f. 4.5. 1898, d. 7.11. 1959. Steinþór var yngstur af fjórtán systkinum og eru fimm þeirra á lífi. Fyrri kona Steinþórs er Guð- leif Sigbjörnsdóttir og áttu þau þrjú börn, Sigbjörn, f. 17.6. 1963, sambýliskona Ásthildur Guðjónsdóttir, dóttir hans Sandra Dögg, f. 24.2. 1989, Rósa Kristborg, f, 9.8. 1965, maki Borgþór Harðarson, börn þeirra Bryiyar Örn og Bryndís Arna, f. 12.1. 1994, Þórunn Stefanía, f. 29.5. 1976, sambýl- ismaður Guðmundur Jónasson. Seinni kona Steinþórs er Guðný Þóra Valdi- marsdóttir, f. 17.7. 1955, og áttu þau einn son, Sigurð Valdimar, f. 19.12. 1986. Fósturdóttir Steinþórs er Elísa- bet Matthildur, f. 26.9. 1973, sambýl- ismaður Sigurður Geir Einarsson, barn þeirra Eva Katrín, f. 24.2. 1995. Steinþór starfaði lengi sem verkstjóri hjá Hrað- frystihúsi Fáskrúðsfjarðar og um árabil sem fiskeftirlitsmað- ur hjá Sjávarafurðadeild Sam- bandsins, en síðustu árin starf- aði hann sem sendibílstjóri, aðallega fyrir Johan Rönning hf. og íslenskar sjávarafurðir hf. Útför Steinþórs fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. október og hefst athöfnin klukkan 13.30. STEINÞOR ÞÓRORMSSON Vertu yfír og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfír minni. Elsku Villi og Binni, við Ragnar sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Steinvör Bjarnadóttir. Með aðeins tveggja vikna milli- bili hafa tvær systur föður míns, þær Klara og Palla, kvatt þennan heim. Missir fjölskyldna þeirra er mikill og meðal ættingjanna er þeirra sárt saknað. Þegar ég var drengur var mikill samgangur á milli föður míns og systkina hans. Ég gleymi því aldrei hvað mér fannst gaman að fara í afmælisboðin á Ægisíðunni. Útsýnið út á hafið af svölunum hjá Klöru og Villa var stórkostlegt og fjaran fyrir neðan hreinn ævintýraheimur. Þar kenndi ýmissa grasa og það var mjög spennandi að sjá hveiju hafíð hafði skolað upp í ijöruna og oft var ekki síður spennandi að sjá innihald- ið. Bamahópurinn var stór og oft gekk mikið á en þrátt fyrir það man ég ekki eftir skömmum eða ávítum enda Klara og Villi með afbrigðum þolinmóð og lagin við börn. Gamlárskvöldin eru mér sérstak- lega minnisstæð en þá komu til okkar í Skógargerðið þau Binni, Palla og Ella. Mikil var eftirvænt- ingin að fá þau því brunavörðurinn lumaði oft á einhveiju spennandi sem hæfði deginum og hjartahlýrri manneskju en Pöllu var vart hægt að hugsa sér. Um páskana var svo komið að okkur að fara til þeirra. Það var alveg sérstök stemmning, allt að því virðuleg. Allt var svo snyrtilegt og vel til haft og svo var Palla líka frábær kokkur. Hún átti reyndar ekki langt að sækja það því að „Ella amma“ var þekkt fyrir að elda góðan mat. Núna seinni árin hefur samgang- urinn ekki verið eins mikill og æski- legt væri en þannig vill það oft verða. Jólasamkomurnar sem systkini föður míns héldu til skiptis til margra ára, gerðu þó sitt til að tengja fjölskyldurnar saman. Þar fengum við barnabörnin hennar „Ellu ömmu“ ómetanlegt tækifæri til að viðhalda kynnum okkar við systkini foreldra okkar og börn þeirra og kynnast nýjum barna- börnum. Þegar sorgin steðjar að er vont að vera fjarri ástvinum sínum. Geta ekki tekið þátt í sorg þeirra og verið þeim innan handar. Ég sendi fjölskyldum Klöru og Pöllu og öðr- um ættingjum mínar dýpstu samúð- arkveðjur og hugur minn verður hjá ykkur á þessari erfiðu stundu. Sama gerir Éyrún. Sturla R. Guðmuudsson. „Láttu nú Ijósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti signaði Jesú mæti.“ (Höf. ók.) Elsku pabbi minn. Nú ertu farinn frá okkur mömmu. Þú varst búinn að vera veikur svo lengi. Það verð- ur erfitt að vera án þín en við mamma vitum að þú verður hjá okkur og fylgist með okkur. Ég mun alltaf muna eftir því þegar við fórum að veiða saman eða fórum í fjöruferðir og tíndum skeljar,- Elsku pabbi minn, ég ætla að passa allt smíðadótið þitt og svo hittumst við seinna í Nangijala. Þinn, Sigurður. Fréttin um andlát Steinþórs Þór- ormssonar kom okkur ekki með öllu á óvart. Hann hafði um nokkurt skeið háð hetjulega baráttu við þann sjúkdóm sem engum vægir. Fyrir skömmu hafði hann verið með okkur starfsfólkinu á góðri stund á fögrum degi og því höfðum við alið þá von í bijósti að hann mætti enn um skeið fá að njóta samvistanna við sína nánustu. Því miður átti sú von ekki fyrir sér að rætast. Ævistarf Steinþórs var tengt sjávarútvegi og fískvinnslu. Hann hafði um nokkurt skeið umsjón með fiskumbúðalager Sjávarafurðadeild- ar Sambandsins, sem þá var til húsa á Kirkjusandi í Reykjavík, en var síðan um árabil verkstjóri hjá Hrað- frystihúsi Fáskrúðsfjarðar. Á tíu ára tímabilinu frá 1979 til 1989 var Steinþór gæðaeftirlitsmaður hjá Sjávarafurðadeildinni. Hann var einn í þeirri vösku sveit sem var á stöðugum eftirlitsferðum um landið til þess að líta eftir því að freðfísk- framleiðslan mætti á hveijum tíma þeim miklu kröfum sem gerðar voru Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess (minning@mbl.is) — vinsam- legast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línuleng -• eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Crfisdrykkjur um gæði hráefnis og afurða. Yfír- burða vörugæði íslenskra freðfískaf- urða eru ekki aðeins viðurkennd í orði, heldur hafa þau í reynd orðið til þess að tryggja framleiðendum hæstu markaðsverð. Frá 1989 og allt þar til heilsan tók að bila starfaði Steinþór sem sendibílstjóri. Hann gerði sér far um að vera með góða bíla og gera þá vel út og varð honum því vel til viðskiptavina. Má segja að aðalstarf hans síðustu árin hafi verið að sinna akstri fyrir Johan Rönning hf. og íslenskar sjávarafurðir hf. Flutn- ingar fyrir ÍS gerðu honum kleift að halda uppi góðu sambandi við fyrri samstarfsmenn sína. Það varð og til að treysta tengslin að eftirlif- andi eiginkona Steinþórs, Guðný Þ. Valdimarsdóttir, hefur um margra ára skeið verið samstarfs- kona okkar, fyrst í Sjávarafurða- deild og síðan hjá íslenskum sjávar- afurðum. Með okkur starfar einnig Elísabet Richardsdóttir, dóttir Guðnýjar, sem Steinþór gekk í föð- urstað. Það er ekki nema tæpt ár síðan Steinþór og Guðný voru með í glöðum hópi ÍS-starfsmanna, sem brugðu sér í helgarferð til Dublin. Þá var ekki vitað annað en að allt væri í góðu lagi með heilsufarið og því eiga hér við orð skáldsins, að skjótt hefur sól brugðið sumri. Að leiðarlokum þökkum við Steinþóri fyrir góða og langa sam- fylgd. Guðnýju, Sigurði Valdimar syni þeirra, Elísabetu, börnum Steinþórs af fyrra hjónabandi og öllum öðrum ættingjum sendum við dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Steinþórs Þórormssonar. Starfsfólk íslenskra sjávarafurða hf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.