Morgunblaðið - 12.10.1997, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 51
IDAG
BRIPS
Umsjón (iuómundur Páll
Arnarson
ÞAÐ er hluti af spilinu að
lenda annað slagið í vond-
um samningum. Einstaka
sinnum er legan hagstæð
eða vörnin mistæk, svo það
er sjaldan ástæða til að
gefast upp fyrirfram. Nema
kannski í spilum eins og
þessu:
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 102
V K754
♦ K4
* KD1086
Suður
♦ KD93
V ÁD2
♦ 32
♦ G942
Vestur Norður Austur Suður
1 grand*
Pass 2 lauf Pass 2 spaðar
Pass 3 grönd Allir pass
* 12-14.
Útspil: Tíguldrottning.
Þetta er ömurlegt. Það
fannst sagnhafa líka þegar
spilið kom upp í leik á milli
Wales og Skotlands í Cam-
rose-keppninni 1994. Hann
leit til lofts, bað um tígul-
kóng og skráði skömmu
síðar 250 í dálk mótheij-
anna fyrir að fara fimm
niður! „Ekki svo alvarlegt,
makker," sagði hann: „Við
erum þrjá niður í einu
grandi."
Norður
4 102
V K754
♦ K4
4 KD1086
Vestur
♦ G7
V G86
♦ DGl 09765
+ 5
Austur
♦ Á8654
V 1093
♦ Á8
♦ Á73
Suður
♦ KD93
4 ÁD2
♦ 32
♦ G942
Spilið var sýnt á töflu
og þar sat Patrick Jourdain
við hljóðnemann og gaf út
yfirlýsingu: „Eitt grand
ætti að fara þijá niður, en
þijú grönd eru borðleggj-
andi!“
Áhorfendur . voru fjótir
að andmæla Jourdain. Auð-
vitað sáu þeir eins vel og
hann að þijú grönd vinnast
ef sagnhafi lætur lítinn tíg-
ul í fýrsta slag. Liturinn
stíflast, og þar eð austur
er með hliðarásana fær
vörnin aðeins fjóra slagi.
En hvemig á sagnhafí að
finna það að láta lítinn tíg-
ul úr borði í fyrsta slag?
„Einfalt," sagði Jourda-
in: „Sagnhafi þarf að bijóta
út tvo ása og verður að
gefa sér að austur eigi þá
báða, en engan tígul til að
spila. Þá er tvennt til í
dæminu, _ að spila vestur
upp á ÁDG áttunda og
austur einspil, eða reikna
með sjölit í vestur og ás
öðmm í austur. Hið síðar-
nefnda hlýtur að vera lík-
legra, því varla hefði vestur
þagað með hálfþéttan áttlit
í tígli.“
Arnað heilla
0/"iÁRA afmæli. Átt-
O \/ ræður er í dag, sunnu-
daginn 12. október, Jósef
Halldórsson, húsasmíða-
meistari, Fannborg 8,
Kópavogi, nú vistmaður á
Sunnuhlið, Kópavogi. Hann
og kona hans Ingibjörg
Gísladóttir taka á móti gest-
um í sal Meistarafélags
húsasmiða, Skiptholti 70, á
afmælisdaginn kl. 15-17.
/VARA afmæli. Sex-
Ovftugur verður þriðju-
daginn 14. október Bergur
Felixson, framkvæmda-
sljóri Dagvistar barna.
Eiginkona hans er Ingi-
björg S. Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur. Þau
hjónin taka á móti gestum
í félagsheimili Rafveitunnar
við Elliðaár frá kl. 17 á
afmælisdaginn.
rAÁRA afmæli. Á
Ovfmorgun, mánudag-
inn 13. október, verður
fimmtug Stefanía Bald-
ursdóttir, Fannafold 130,
Reylgavík. Eiginmaður
hennar er Atli Snædal Sig-
urðsson. Þau hjónin taka á
móti gestum í Kiwanishús-
inu Eldey, Smiðjuvegi 13a,
laugardaginn 18. október
frá kl. 20 - 23.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júlí í Garðakirkju
af sr. Hans Markúsi H_af-
steinssyni Sigríður Ás-
geirsdóttir og Gestur Þór
Oskarsson. Heimili þeirra
er að Hrísmóum 6,
Garðabæ.
Ljósmyndastofa Sigrlðar Bachmann.
BRUÐKAUP.
Gefín voru saman
12. júlí í Viðey af
sr. Óskari Inga
Ingasyni Rann-
veig Anna Jóns-
dóttir og Þor-
valdur Halldór
Gunnarsson.
BRUÐKAUP.
Gefin voru saman
9. ágúst í Garða-
kirkju af sr. Hans
Markúsi Haf-
steinssyni Elsa
Björnsdóttir og
Óskar Sigurðs-
son. Heimili
þeirra er að Lækj-
aríít 7, Garðabæ.
BRUÐKAUP.
Gefin voru saman
6. september í
Hallgrímskirkju
af sr. Karli Sigur-
björnssyni Hrafn-
hildur M. Geirs-
dóttir og Gísli
Þór Briem.
Heimili þeirra er á
Reyðarfirði.
Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann.
Pennavinir
FRÁ Noregi skrifar 28
karlmaður á ensku og
kveðst hafa áhuga á
íþróttum, teiknun, ferða-
lögum, hestum o.fl.:
Sascha Koch,
Carl Lumholtz gt. 18,
N-2600 Lillehammer,
Norway.
NÍTJÁN ára japösnk
stúlka með áhuga á frí-
merkjum o.fl.:
Chizuko Yunoki,
231 Kashiwaghima
Tamashima,
Kulashiki-shi,
Okayama-ken,
713 Japan.
BELGÍSKUR frímerkja-
safnari vill skiptast á
merkjum:
Jean-Louis Mathieu,
Ingenieur en Physique,
Licence en Electronique,
Sergeysstraat, 4
B-3020 Herent,
Belgium.
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drakc
YOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert öðrum þræði stað-
fastur en átt það til að
hlaupa eftirýmsum bóium.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl) **
Gættu þess að gera ekki svo
smásmugulegar kröfur til
sjálfs þín að þér takist ekki
að ljúka við einföldustu
verkefni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú tekur strax til hend-
inni, á dagurinn að duga
þér til þess að ljúka þeim
verkefnum sem fyrir liggja.
Tvíburar
(21. maí - 20.júnl) 1»
Láttu ekki minnimáttar-
kenndina ná tökum á þér,
heldur hristu hana af þér,
og gakktu vígreifur til
starfa.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H$£
Láttu ekki einhveija smá-
muni ná heljartökum á þér.
Festu augun á það sem
máli skiptir og haltu svo
þínu striki.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Það gerist ekkert nema þú
hættir að sitja með hendur
í skauti. Taktu þér tak og
þá gengur þér allt í haginn.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Það á ekki að þurfa að kosta
heimsstyijöld þótt einhver
smáágreiningur komi upp
innan fjölskyldunnar.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert mjög önnum kafinn
maður þessa dagana, en
gættu þess að ganga ekki
svo langt að þú hafir engan
tíma aflögu fyrir þig.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú mátt vera ánægður með
störf þín, ef þú gefur þig
allan í þau, hvort heldur um
er að ræða í starfi eða
heima við. Taktu vel á móti
góðum gestum.
Bogmaður
(22. nóv. — 21. desember)
Verkefni sem þú ert að fást
við, reynist snúnara en til
stóð í upphafi, en mundu
að þolinmæðin þrautir vinn-
ur allar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Margar forvitnilegar hug-
myndir rekur á fjörur þínar
þessa dagana. Það er vandi
að velja en þér er óhætt að
treysta dómgreind þinni.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar)
Óþarfa áhyggjur af lífinu
og tilverunni valda þér
þungum þönkum. Hrintu
þessu frá þér og mundu að
hver er sinnar gæfu smiður.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Í5
Það er alltaf ánægjulegt
þegar góðir vinir reka inn
nefið. Svo verður einnig hjá
þér. Óvænt uppástunga
verður þér til mikillar gleði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hafa allir megrunarkúrar brug
Attu við átvandamál að stríða?
m-al'V
Haldið verður námskeið fyrir fólk með bulimiu, anorexiu og
ofátsvandamál. Á námskeiðinu eru kenndar ábyrgar aðferðir
til þess að ná valcíi á þyngd sinni og lífstíðarprógram
til þess að ná bata á þessum sjúkdómum. Engar skammtíma-
lausnir eða niðurlægjandi mælingar og kúrar.
Leiðbeinandi er Inga Bjarnason.
Upplýsingar í síma 561 9919 milli kl. 10 og 12.
-Qí*
Jógastöðin Heimsljós
Jóga í umhverfi kyrrðar og fegurðar.
Byrjcndanámskcið,
14.-30. október,
þriðjud. og fimmtud. kl. 20.00-22.00.
Leiðb: Guðflnna St. Svavarsdóttir
,ÓGA
Byrjendanámskeið,
13.-29. október,
mánud. og miðvikud. kl. 20.00-22.00
Leiðb. Bima Guðmundsdóttir.
JÓGASTÖÐIN
HEIMSLJÓS
Kynningar og námskeið fýrir vinnustaði og hópa.
Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15, sími 588 4200 alla virka daga kl. 13-19-
■nMMHiws
Polunarmeðferð fyrir líkama og sál
Pólun (Polarity Therapy) er heildræn meðferð og hentar þeim sem
vilja viðhalda heilbrigði sfnu. Ójafnvægi á orkusviöi manneskjunnar
brýst fram í líkamlegum og andlegum einkennum. Með léttri
snertingu örvar pólun orkusviðið og stuðlar að bættu jafnvægi.
Unnið er með heilbrigðan kjarna sem er að finna í hverri manneskju.
Pólunarmeðferð byggist á osteopathy, ayurveda og jóga. Lisa Björg
Hjaltested, APP, er meðlimur í APTA, ameríska pólunarfélaginu.
Timapantanir eru i afgreiðslu Yoga Studios.
Y0GA$
STUDIO
Hátúni 6a
Sími 51 1 31 OO
Námskeið
til aukinna ökuréttinda
hefjast vikulega
Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl, vörubíl og
vörubíl með tengivagni. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.
OKU
£KOI,INN
IMJODD
Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sími 567-0-300
Stúdentar frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð!
Ut er komið veglegt afmælisrít í tiiefni af 30 ára afmæli
Menntaskólans við Hamrahlíð. í ritinu er m.a. að fínna
kennara- og stúdentatal allra áranna, sögu skólans í
samantekt fyrstu rektoranna, Guðmundar Arnlaugssonar og
Örnólfs Thorlacius, ásamt greinum eftir Stefán Briem og
Heimi Pálsson. Einnig er rakin saga kórastarfsins í
skólanum. Ritstjórí er Heimir Pálsson.
Nú stendur yfir sfmasala til stúdenta frá skólanum. Núverandi
nemendur bera hitann og þungann af sölunni. Allir stúdentar
skólans geta liaft gagn og gaman af ritinu og vonast er eftir
að þið takið sölufólkinu vel.
Innbundið kostar afmælisritið 3-500 kr. en óbundið 2.500 kr.
Ritið fæst einriig á skrifstofu skólans, bóksölu MH og í
bókabúðum Máls og menningar.