Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 7 FRÉTTIR Ragnheiður Runólfsdóttir úr sundinu í sjávarútveginn Fiskifæla á Skaga „UMSVIF útgerðarfyrirtækis foreldra minna hafa aukist og ég ætla að liðsinna þeim við reksturinn. Ég er að vísu lífeðl- isfræðingur að mennt, en alin upp við útgerðina og var í ýms- um snúningum á sumrin. Ég fékk þó aldrei að fara á sjó, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, því pabbi kærði sig ekkert um konur um borð, hann var sann- færður um að þær væru hinar verstu fiskifælur," segir Ragn- heiður Runólfsdóttir, sund- þjálfari í Keflavík og lands- þekkt keppniskona á árum áð- ur, m.a. önnur tveggja kvenna sem náð hefur þeim árangri að vera kjörin íþróttamaður árs- ins. Ragnheiður hefur sagt þjálf- arastöðu sinni í Keflavík lausri. Frá 1. janúar starfar hún hjá útgerðarfélaginu Runólfi Hall- freðssyni á Akranesi. Fyrirtæk- ið, sem heitir eftir föður Ragn- heiðar, rekur fjölveiðiskipið Bjarna Ólafsson. „Nú leggjum við áherslu á frystingu um borð og þurfum að markaðssetja þessar frystivörur,“ segir Ragnheiður, sem er strax kom- in í stellingar framkvæmda- stjóra útgerðar, en tekur þó fram að fjölskyldan sé lítið gef- in fyrir titla af því tagi, svo óvíst sé að hún fái nokkurn slíkan. „Fjölskyldan er á kafí í þessu. Pabbi er hættur á sjó, en þrír bræður mínir eru skip- stjórar og tveir þeirra eru á Bjarna. Þá er bróðursonur minn líka að klára skipstjór- ann. Mamma sá alltaf um rekst- urinn í landi, á meðan pabbi var á sjó og ég reikna með að ganga inn í hennar störf við bókhald, útreikning launa og slíkt.“ Get áreiðanlega ekki hætt í sundinu Ragnheiður á ekki von á að hún fari að þjálfa sundfólk aft- ur. „Að minnsta kosti ekki fyrst í stað,“ segir hún. „Ég ætla að gefa mér tíma til að ná tökum á starfinu. Ég get áreiðanlega ekki hætt alveg í sundinu, ég er í fræðslunefnd Sundsambands- ins og hef áhuga á meira starfí innan íþróttahreyfíngarinnar.“ Unnusti og ungur sundkappi Ragnheiður segir að hún eigi eftir að fínna húsnæði fyrir Ijöl- skylduna á Akranesi, en þar sé töluverður skortur á íbúðarhús- næði. Unnusti Ragnheiðar, Hannes Viktor Birgisson, flytur með henni upp á Skaga en held- ur áfram málningarvinnu í Reykjavík, a.m.k. næstu mán- uði. Þriggja ára sonur þeirra, Birgir Viktor, „endar líklega á sjónum" að sögn móðurinnar. Það kemur vart á óvart að sá stutti var farinn að þeytast um sundlaugar á skriðsundi rúm- lega tveggja ára og núna er hann að læra baksund og bringusund. Hann hefur reynd- an þjálfara. Morgunblaðið/Kristj án RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir Þegar stóra fjölskyldan ætlar að ferðast saman er nauðsynlegt að hafa til taks vandaða bifreið sem uppfyllir allar óskir fjölskyldunnar. Space Wagon er fjórhjóladrifinn sjö manna fjölskyldubíll, bægilegur og rúmgóður. Öryggið er öllu ofar og í bílnum eru öryggispúðar ásamt voldugum öryggisbitum í hurðum sem vernda farþega, komi til umferðaróhappa. MITSUBISHI SPACE WAGON kostar frá kr. 2130000 A MITSUBISHI -i mUdttm mettmi! BILL HEKLA FYRIRST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.