Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 19

Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 19 Tyrkneskir heittrúarmenn sakaðir um undirróður Erbakan ver Vel- ferðarflokkinn Ankara. Reuters. Norðmenn vonsviknir NORSKA utanríkisráðuneyt- ið hefur orðið fyrir vonbrigð- um með afstöðu Bandaríkja- manna, sem hafa ekkert gert til að koma í veg fyrir að Paul Watson og samtök hans, Sea Shepherd, stundi skemmdar- verk í Noregi, að sögn tals- manns ráðuneytisins, Ingvard Havnen, í dagblað- inu Nordlys. „Við höfum áður haft sam- band við Bandaríkjamenn en þeir vilja augljóslega ekki grípa til viðeigandi aðgerða gegn Sea Shepherd,“ sagði Havnen. Samtökin hafa ítrek- að hótað að sökkva norskum hvalveiðibátum. Fyrsta greiðslan RIVA Sifere heldur hér á ávísun upp á 400 Banda- ríkjadollara, andvirði 28.000 íslenskra króna. Sifere er fyrsta fórnar- lamb helfararinnar til að hljóta skaðabætur úr ný- stofnuðum svissneskum sjóði til styrktar þurfandi fórnar- lömbum helfararinnar. Réttarhöld í Berlín TVEIR Palestínumenn, tveir Þjóðverjar og einn Lýbíu- maður eru nú fyrir rétti í Þýskalandi, ákærðir fyrir sprengjutilræði í nætur- klúbbi í Vestur-Berlín árið 1986. Tilræðið varð tveimur bandarískum hermönnum og tyrkneskri konu að bana auk þess sem 230 manns særðust, margir alvarlega. Saksóknarar halda því fram að mennirnir hafí unnið samkvæmt fyrirmælum frá Lýbíustjórn. Þetta er annað dómsmálið sem tekið er fyrir í Þýskalandi á þessu ári þar sem fengist er við hryðjuverk sem tengjast erlendum stjórnvöldum. I apríl komst réttur þar að þeirri niður- stöðu að íransstjórn hefði staðið að baki morðum á Kúr- dum í Berlín árið 1992. Snúa ekki aftur heim LITLAR horfur eru á því að flóttamenn frá Bosníu snúi heim á næstu árum, að minnsta kosti þeir sem hafast við í Danmörku. Frá því stríðinu lauk hafa einungis 850 af 18.000 bosn- ískum flóttamönnum þar í landi gert tilraun til að snúa heim. Tveir þriðju þeirra dvöldust þar ekki lengi held- ur sneru til baka til Dan- merkur vegna húsnæðis- eða atvinnuleysis í heimalandinu, að sögn danska blaðsins Aktuelt. LEIÐTOGI tyrkneskra heittrúar- manna og fyrrum forsætisráð- herra, Necmettin Erbakan, kom fyrir stjórnarskrárdómstól lands- ins í gær og varði Velferðar- flokk sinn gegn ákæru um að hafa ætla að koma á múslímskum lögum i landinu, byggðum á Kóraninum. Dómsmála- ráðhexra, Vural Savas, hefur ásakað Erbakan og flokksmenn hans um að ógna undirstöðum lýð- ræðis í Tyrklandi, sem er opinber- lega veraldlegt ríki, og krefst Sa- vas þess að Velferðarflokkurinn verði lagður niður. Hefur hann lát- TUTTUGU og átta börn drukkn- uðu og 58 slösuðust er skólabif- reið ók út af brú og féll niður í fljót skammt frá Nýju Delhi í gær. Bifreiðin var á leið til Ludlow kastala þar sem börnin gengu í skóla. Bflstjórinn slapp ómeidd- KINVERJAR ýjuðu að því í gær að andófsmaðurinn Wang Dan kynni að verða látinn laus af heilsufarsástæðum, svo hann geti leitað lækninga í Bandaríkjunum. A sunnudag var andófsmaðurinn Wei Jiangsheng látinn laus af sömu ástæðu og liggur hann nú á sjúkrahúsi í Detroit í Bandaríkjun- um. Á blaðamannafundi í gær svar- aði Shen Guofang, talsmaður utan- ríkisráðuneytisins kínverska, ekki beint er hann var spurður hvort kínversk stjórnvöld myndu láta Wang lausan. „Eg tel þessa stöðu hafa oft komið upp áður. Ég held að hún muni halda áfram í framtíð- inni,“ sagði Shen. Wang er 28 ára og var leiðtogi friðsamlegra mótmæla náms- ið í veðri vaka að réttlætanlegt væri að leiðtogar flokksins yrðu líflátnir. Erbakan tjáði dómstóln- um að tilraunir yfirvalda til að fá flokk sinn bannaðan væru brot á alþjóðlegum mannréttindum. Áuk þess að geta bannað Vel- ferðarflokkinn gæti dómstóllinn einnig meinað Erbakan sjálfum af- skipti af stjórnmálum í fímm ár og lagt drög að lögsókn gegn honum fyrir meintan hatursáróður. Að sögn heimildamanna innan Vel- ferðarflokksins hélt Erbakan tveggja tíma ræðu fyrir dómstóln- um og minnti dómarana á skuld- bindingar Tyrklands við réttinda- sáttmála á borð við Mannréttinda- sáttmála Evrópu og Parísar- skrána. Stjórnmálaskýrendur segja að verði Velferðarflokkurinn gerður útlægur muni heittrúarmenn fara í 28 skólabörn drukknuðu ur. Að sögn vitna missti hann stjórn á rútunni í sandi í veg- kantinum og féll rútan um tíu manna sem voru brotin á bak aftur með grimmilegum hætti á torgi hins himneska friðar árið 1989. Wang var dæmdur til ellefu ára fangavistar á síðasta ári fyrir að grafa undan stjórnvöldum. Þá hafði hann setið inni í fjögur ár fyrir þátt sinn í mótmælaaðgerð- unum. Bandarísk yfirvöld hafa að und- anförnu lagt hart að kínverskum yfirvöldum að láta andófsmenn lausa. Hins vegar neitaði Shen því felur og mynda leynihreyfíngu og áhrif öfgasinna aukast í Velferðar- flokknum. Vestrænir mannrétt- indahópar hafa einnig sagt að þeim lítist ekki á þá skerðingu á tjáningarfrelsi og stjómmálaaf- skiptum sem fólgin væri í banni á starfsemi flokksins. Ekki er óalgengt að starfsemi stjórnmálaflokka sé bönnuð í Tyrklandi, en á undanförnum ár- um hafa einungis flokkar Kúrda og öfgasinnaðra vinstrimanna verið bannaðir. Erbakan lét af embætti forsætisráðherra í júní og stjórn hans fór frá eftir stormasamt ár við völd vegna þrýstings frá hern- um og veraldlegum hagsmunaöfl- um sem gáfu honum að sök að vilja grafa undan veraldlegu stjórnkerfi í landinu, sem Kemal Ataturk kom á undir lok Ottómanveldisins á þriðja áratugnum. metra niður af brúnni. 112 börn voru í rútunni er slysið varð. Fólki sem býr á bökkum fljóts- ins tókst að bjarga nokkrum börnum en björgunaraðgerðum seinkaði þar sem loka þurfti gátt- arstíflum áður en fólk lagði út í vatnið. að lausn Weis tengdist beint ný- legri heimsókn Jiangs Zemins, for- seta Kína, þar sem mannréttinda- mál voru ofarlega á baugi. Þá sagði Shen aðspurður að kínversk stjórnvöld hefðu ekki af því neinar áhyggjur að Wei myndi halda áfram andófi sínu gegn Kínastjórn nú þegar hann væri kominn til Bandaríkjanna. Bandarísk stjórnvöld vonast til þess að Wei verði leyft að snúa aft- ur til Kína og tjá stjórnmálaskoð- Botha hyggst kvænast að nýju Jóhannesarborg. Reuters. P.W. BOTHA, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, hyggst ganga að eiga konu sem er 35 árum yngri en hann. Botha er 81 árs og hefur verið kallaður Krókódfllinn mikli vegna andstöðu sinnar við frelsisbaráttu blökkumanna. Hann varð að víkja fyrir F.W. de Klerk, fyrrverandi forseta, árið 1989 þegar heilsu hans hrakaði. „P.W. Botha og Reinette te Water- Naude tilkynna hér með trúlofun sína. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær brúðkaupið verður,“ sagði í yfirlýsingu frá fjölskyldu Botha. Water- Naude rekur gistihús og hefur verið ekkja í sjö ár. Einmana stríðsmaður Dagblaðið Beeld skýrði fyrst frá samdrætti þeirra í ágúst og Botha lýsti sér þá sem „einmana stríðsmanni". „Biblían segir að það sé ekki gott fyrir menn að vera einir,“ sagði hann í viðtali við blaðið. Botha gekkst undir mjaðmaskiptaaðgerð fyrr á árinu og kona hans, Elize, sem hann kvæntist fyrir 54 árum, lést í júní. Sannleiksnefndin hundsuð Botha tilkynnti í vikunni sem leið að hann vildi ekki koma fyrir sannleiks- og sáttanefndina svokölluðu, sem hefur rétt til að veita mönnum sakaruppgjöf gangist þeir við pólitiskum glæpum sem þeir frömdu á tímum aðskilnaðarstefnunn- ar í Suður-Afríku. Desmond Tutu erkibiskup, formaður nefndarinnar, varaði við því á mánudag að forsetanum fyrrverandi yrði refsað ef hann virti nefndina að vettugi. Samkvæmt lögum á liann yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi neiti hann að bera vitni fyrir nefndinni. anir sínar óhindrað. Er talsmaður utanríkisiráðuneytisins kínverska var spurður hvort Wei yrði hand- tekinn við komuna til Kína, sagði hann það vera mál dómsmálayfir- valda. Fagna fulltrúa í málum Tíbeta Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, fagnaði í gær skipun Gregory Craig í embætti sérlegs fulltrúa Bandaríkjastjórnar í mál- efnum Tíbet. Sagði hann skipunina sýna stuðning Bandaríkjamanna við baráttu Tíbeta fyrir sjálfstæði frá Kína. Kínversk stjórnvöld hafa mótmælt skipuninni og sagt hana óviðunandi afskipti af innanríkis- málum. Necmettm Erbakan .. Reuters BJORGUNARMENN með lík eins barnanna sem drukknuðu er skólabfll féll í fljót skammt frá Nýju Delhi. Kínverskir ráðamenn láta undan þrýstingi bandarískra stjórnvalda Peking. Reuters. Ýja að lausn fleiri andófsmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.