Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 41
-
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 41
)
)
l
)
)
)
I
j
I
I
I
I
I
-
I
a
i
i
i
í
t
I
(i
í
j
Ráðstefna
um gróður-
húsaloft-
tegundir og
atvinnulífið
VERKFRÆÐINGAFÉLAG íslands
og Framtíðarstofnun standa fyrir
ráðstefnu f dag, miðvikudaginn 19.
nóvember, sem ber heitið Gróður-
húsalofttegundir - hvað getur at-
vinnulífið gert? Ráðstefnan verður
haldin á Hótel Loftleiðum og hefst
kl. 10 með ávarpi umhverfisráð-
herra Guðmundar Bjarnasonar.
Ráðstefnunni lýkur kl. 17.
Markmið ráðstefnunnar er að
beina athygli að möguleikum at-
vinnulífsins til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Spáð verð-
ur í væntanlega niðurstöðu Kyoto
ráðstefnunnar og áhrif á þjóðarhag
metin. Fuiltrúar atvinnulífs skýra
frá því til hvaða aðgerða megi grípa
til að hemja losun á þeirra starfs-
sviði. Erlendur fyrirlesari verður
Dean Anderson frá Royal Institute
of International Affairs í London
(RIIA). Hann er sérfræðingur í
endurnýjanlegum orkugjöfum og
loftlagssamningum. Hann mun
kynna viðbrögð annarra iðnríkja,
leiðir til að taka tillit til sérað-
stæðna þjóða og hugsanleg við-
skipti með losunarkvóta.
Ráðstefnan er öllum opin. Skrán-
ing fer fram á skrifstofu Vfí og
Tfl, Engjateigi 9, 105 Reykjavík
eða við innganginn. Þátttökugjald
er 4.500 kr. og er hádegismatur
innifalinn. Námsmenn fá áfslátt.
Alþjóðlegar
sumarbúðir
barna
KYNNINGARFUNDUR Alþjóð-
legra sumarbúða barna verður hald-
inn á starfsemi félagsins fimmtu-
daginn 20. nóvember í Garðaskóla
í Garðabæ kl. 20 og eru allir vel-
komnir.
CISV, Childrens International
Summer Villages, Alþjóðlegar sum-
arbúðir barna eru friðarsamtök,
óháð stjómmálum og trúarbrögð-
um. Árlega senda samtökin börn
frá 11 ára aldri til sumarbúða er-
lendis. í búðunum, þar sem börnin
dvelja í tæpan mánuð, hitta börnin
fyrir börn frá öðrum þjóðum á sama
aldri. Þar læra þau að taka tillit til
annarra, þau kynna ísland og kynn-
ast öðrum þjóðum í gegnum þjóðar-
kvöld, segir í fréttatilkynningu.
LEIÐRÉTT
Aldraðir við 67 ára aldur
í VIÐTALI við Pál Gíslason, lækni
og formann Félags eldri borgara í
Reykjavík í Mbl. í gær var sagt að
við 75 ára aldurinn teldust fatiaðir
og öryrkjar eingöngu aldraðir.
Þarna átti talan að vera 67 og er
beðist velvirðingar á mistökunum.
Aldarafmæli
í frétt í gær um nýútkomna bók,
Hundrað ljóð og lausavísur, sem
gefin er út í tilefni 100 ára afmæl-
is Jóns Sigurðssonar frá Skíðsholt-
um, var ekki rétt farið með fæðing-
arár, en það er 1897. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Ekki fastráðinn í Dresden
Villa slæddist inn í fréttatilkynn-
ingu frá útgefanda varðandi hljóm-
disk Kristins Sigmundssonar og
Sinfóníuhljómsveitar íslands, í blað-
inu í gær. Þar segir að Kristinn sé
fastráðinn við Óperuna í Dresden,
en hið rétta er að hann hefur sung-
ið við ýmis óperuhús upp á síðkast-
ið og er bókaður langt fram í tím-
ann, en þessar vikurnar syngur
hann við óperuhúsið í Dresden.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Hvunndagsleik-
hússins
HVUNNDAGSLEIKHÚSIÐ fram-
leiðir nú jólakort til styrktar starf-
semi sinni. Jólakortasalan er liður í
fjármögnun uppsetningar á nýrri
óperu eftir Leif Þórarinsson.
Jólakortin eru öll handunninn af
starsfólki Hvunndagsleikhússins.
Erindi um orða-
bók Guðmundar
Andréssonar
FÉLAG íslenskra fræða boðar til
fundar með Gunnlaugi Ingólfssyni,
orðabókarritstjóra, miðvikudaginn
19. nóvember kl. 20.30 í Skólabæ,
Suðurgötu. 26 Gunnlaugur flytur
erindi um Guðmund Andrésson og
orðabók hans.
Um miðja 17. öld samdi Guð-
mundur Andrésson (d. 1654) ís-
lensk-latneska orðabók sem út kom
í Kaupmannahöfn árið 1683. Verk
hans hefur goldið þess að útgáfan
var illa af hendi leyst, morandi af
prentvillum og mislestrum. Orða-
forðinn var mjög sóttur í forn rit en
bók Guðmundur hefur ennfremur
að geyma drjúgt orðafar úr samtíð
hans og er verkið mikilvæg heimild
í íslenskri málsögu því að mörg orð,
orðatiltæki og málshættir komust
þar á bók í fyrsta sinn. Undanfarin
ár hefur verið unnið að nýrri útgáfu
verksins á Orðabók Háskólans og
er þess að vænta að það komi út
innan skamms.
Fundurinn er öllum opinn meðan
húsrúm leyfir. Eftir framsögu Gunn-
laugs verða almennar umræður og
léttar veitingar í boði.
Málstofa um
mannréttindi
MÁLSTOFA verður haldin um
mannréttindi miðvikudaginn 19.
nóvember kl. 20:30 í Litlu-Brekku,
sal veitingahússins Lækjarbrekku.
Mannréttindaskrifstofa íslands
boðar til málstofu um réttindi sam-
kynhneigðra til að gegna foreldra-
hlutverki. Framsögumaður verður
Hrefna Friðriksdóttir, héraðsdóms-
lögmaður og starfsmaður Barna-
verndarstofu. Erindið byggist á
mastersritgerð hennar við lagadeild
Harvard háskóla í Bandaríkjunum:
„Hjónabönd" samkynhneigðra á
Norðurlöndum: Engin börn leyfð.
Málstofa um mannréttindi mun í
vetur boða til funda um mál sem
eru og hafa verið ofarlega á baugi
í mannréttindaumræðunni hér heima
og erlendis. Þeim sem áhuga hafa á
því að kynna sér betur viðfangsefni
málstofunnar er bent á að hafa sam-
band við Mannréttindaskrifstofu ís-
lands.
■ OPNAÐ hefur verið fyrir skrán-
ingu í forval Alþýðuflokksins fyrir
prófkjör Reykjavíkurlistans. Allir
þeir sem áhuga hafa á að taka þátt
í forvalinu skili inn skriflegri yfirlýs-
ingu um það á skrifstofu Álþýðu-
flokksins fyrir kl. 22 föstudaginn
5. desember. Kjörgengi er ekki
bundin flokksaðild í Alþýðuflokkn-
um. Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélag-
anna í Reykjavík velur svo sjö full-
trúa til þátttöku í prófkjörinu á fundi
um miðjan desember.
FRÉTTIR
Rabb um rann-
sóknir og
kvennafræði
SIGRÍÐUR Þorgrímsdóttir sagn-
fræðingur flytur rabb fimmtudaginn
20. nóvember sem hún nefnir Misstu
þær marksins rétta? Ógiftar konur
um aldamótin. Rabbið er á vegum
Rannsóknastofu í kvennafræðum við
Háskóla íslands. Það fer fram í stofu
201 íOddakl. 12-13 ogeröllum opið.
Rabbið er byggt á MA-ritgerð
Sigríðar um ógiftar konur á íslandi
um aldamótin síðustu. Úrtak rann-
sóknarinnar er rúmlega 200 ógiftar
og barnlausar íslenskar konur fædd-
ar á árunum 1827-1898. Þær voru
ýmist menntaðar eða ómenntaðar
og tilheyrðu ýmsum starfsstéttum.
Sigríður hefur m.a. rannsakað lífs-
kjör þessara kvenna, viðhorf samfé-
lagsins til þeirra og ástæður þess
að þær gengu ekki í hjónaband.
Sigríður Þorgrímsdóttir lauk BA-
prófi í sagnfræði frá Háskóla íslands
árið 1989 og er nú að ljúka MA-
námi í sömu grein.
Erindi um
Einar Ben.
NÆSTI fræðslufundur Minja og sögu
verður haldinn í Þjóðminjasafni Is-
lands miðvikudaginn 19. nóvember
nk. og hefst kl.
17.30. Guðjón
Friðriksson sagn-
fræðingur flytur
erindi um Einar
Benediktsson,
heimildaöflun og
ævisöguritun.
Um þessar
mundir eru að
koma út fyrra
bindi af ævinsögu
Einars Benediktssonar, skálds og
athafnamanns eftir Guðjón. Nær það
til ársins 1907 en þá er Einar 43 ára
gamall.
Guðjón hefur nú í nær þrjú ár
unnið að heimildaöflun og ritun
ævisögunnar og dregur fram í dags-
ljósið mikið af nýjum heimildum um
skáldið og fjölskyldu hans.
í fyrirlestrinum segir hann frá
þessari heimildaöflun og nokkuð
nýstárlegri aðferð við ritun ævisög-
unnar. Meðal annars greinir Guðjón
frá dvöl sinni í London í fyrravetur
en þar fannst mikið af gögnum um
Einar Benediktsson og athafnir hans
sem ekki hafa verið dregin fram í
dagsljósið áður.
Fundurinn er öllum opinn.
ÍSLENSKA RITTS verkefnið stend-
ur fyrir ráðstefnu um nýsköpun og
byggðaþróun í Skíðaskálanum í
Hveradölum föstudaginn 21. nóv-
ember. Ráðstefnan hefst klukkan
13 og er öllum opin.
„RITTS stendur fyrir Regional
Innovation and Technology Trans-
fer Strategies og gengur út á svæð-
isbundna nýsköpun og tækniyfir-
færslu. íslenska RITTS verkefnið
er að hluta til styrkt af Evrópusam-
bandinu en samsvarandi verkefni
standa yfir, eða hefur þegar verið
lokið, á um 80 svæðum víðsvegar
í Evrópu. Megintilgangur RITTS
verkefnisins hér á landi er að leggja
drög að nýsköpunarstefnu fyrir Is-
land með sérstakri áherslu á að
efla nýsköpunargetu fyrirtækja á
einstökum svæðum," segir í frétta-
tilkynningu frá RITTS.
„ Byggðastofnu n, Rannsókna-
þjónusta Háskólans, Iðnþróunarfé-
lag Norðurlands vestra og Atvinnu-
þróunarsjóður Suðurlands standa
að verkefninu en auk íslensku þátt-
takendanna er RITTS unnið í nánu
samstarfi við tvö erlend ráðgjafa-
fyrirtæki. Verkefnið hófst í desem-
ber á síðasta ári og er áætlað að
því Ijúki í júní 1998.
Markmið ráðstefnunnar er að
kynna niðurstöður úttektar sem
Evrópskur sál-
fræðingadagur
SÁLFRÆÐINGAFÉLAG íslands
heldur upp á Evrópskan sálfræð-
ingadag laugardaginn 22. nóvem-
ber. Af því tilefni verður efnt til
dagskrár í Gerðubergi kl.
13.30-16.
Á dagskránni flytja eftirfarandi
erindi: Fátækt - firring. Ingvar
Guðnason sálfræðingur, Að vera
útlendingur. Aðlögun og fordómar.
Margrét Einarsdóttir sálfræðingur.
Tilfinningaleg vanræksla. Einar
Ingi Magnússon sálfræðingur.
Anna Valdimarsdóttir les úr ný-
útkominni ljóðabók sinni Úlfabros.
Hún segir frá tilurð hennar og tog-
streitunni milli sálfræðingsins og
skáldsins og eftir það flytur Einar
Gylfi Jónsson sálfræðingur erindið
Eru foreldrar einangraðir og
áhugalausir um uppeldi? Að því
loknu verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri er Jón Ársæll Þórð-
arson.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Jazz á
Fógetanum
BJÖRN Thoroddsen og Egill Ólafs-
son eru að leggja land undir fót á
næstunni og munu heimsækja Dani
og Svía. Þeir koma fram í Konst-
hallen í Lundi í Svíþjóð 30. nóvem-
ber og í Copenhagen Jazzhouse 2.
desember nk. Þar munu þeir leika
með dönskum og sænskum kolleg-
um.
I tilefni fararinnar hafa þeir fé-
lagar æft nýja dagskrá sem samin
er að öllu leyti af þeim. Tónlistin
er eftir Björn og Egill hefur samið
alla textana. Þessa dagskrá munu
Tríó Björns Thoroddsen og Egill
Ólafsson flytja miðvikudaginn 19.
nóvember kl. 22 á Fógetanum í
Aðalstræti. Með verða fastir tríó-
meðlimir þeir Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa og Ásgeir Ólafsson á
trommur.
Vistfræði klón-
plantna á norð-
læg-um slóðum
INGIBJÖRG Svala Jónsdóttir
grasafræðingur heldur fyrirlestur
miðvikudaginn 19. nóvember á veg-
um Líffræðistofnunar HÍ sem nefn-
starfshópur RITTS hefur unnið og
benda á leiðir til að efla nýsköpun-
argetu íslenskra fyrirtækja," segir
þar ennfremur.
Á ráðstefnunni mun sérfræðing-
ur um svæðisbundna nýsköpun,
prófessor Charles Sabel við Col-
umbia háskóla í Bandaríkjunum,
halda erindi. Ivo Clerix frá Limburg
í Belgíu mun segja frá reynslu af
svæðisbundinni áætlunargerð í
heimahéraði sínu. Axel Beck, for-
stöðumaður TIC miðstöðvarinnar í
Fredensborg amt í Danmörku mun
bera saman reynslu af atvinnuráð-
gjöf hér á landi og í Danmörku og
Claire Nauwelaers mun fjalla um
helstu niðurstöður íslenska RITTS
verkefnisins. Ráðstefnustjórn verð-
ur í höndum Sigurðar Guðmunds-
sonar og Þorsteinn Ingi Sigfússon,
formaður stjórnar verkefnisins,
mun stjórna pallborðsumræðum.
Megininntak RITTS verkefnisins
er að mynda aukin tengsl milli
þekkingar og atvinnulífs þannig að
þekkingarsamfélag framtíðarinnar
nái til landsins alls. Leiðin að því
marki er svæðisbundin nýsköpun-
aráætlun sem byggir á frumkvæði
heimamanna og þeim möguleikum
sem þegar eru fyrir hendi. Um þetta
málefni verður fjallað á ráðstefn-
unni.
Ráðstefna um nýsköp-
un og byggðaþróun
ist: Vistfræði klónplantna á norð-
lægum slóðum.
Erindið verður haldið í húsakynn-
um Líffræðistofnunar, Grensásvegi
12 í stofu G-6 klukkan 12.20.
Fjallað verður um ýmis atriði
varðandi vistfræði klónplantna þar
sem stuðst verður við rannsóknir á
ýmsum norðlægum stofnum
stinnastarar og stofnum annarra,
suðlægari klónplantna.
Eldsneytissag-
an í gönguferð
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
í miðvikudagskvöldgöngu sinni 19.
nóvember frá Hafnarhúsinu kl. 20
og gengur um Þingholtin suður í -w
Vatnsmýri síðan niður á Austur-
bakka í Gömlu höfninni. Þaðan með
hafnarbörkkum og bryggjum út í
Örfirisey og til baka að Hafnarhús-
inu.
Á leiðinni verður rifjuð upp elds-
neytisnotkun Reykvíkinga í gegn-
um aldirnar frá eldiviði, mó, taði,
mosa og þangi til kola og olíu.i All-
ir eru velkomnir.
Fyrirlestur um
börn alkóhólista
ÓLÖF Ásta Farestveit, afbrota- og
uppeldisfræðingur, flytur fyrirlest-
ur sem ber heitið Börn alkóhólista ■
á mömmu- og pabbamorgni í safn-
aðarheimilinu miðvikudaginn 19.
nóvember nk. kl. 10.30.
Erindið er öllum opið.
■ FÉLAG áhugafólks um Downs
heilkenni hefur opið hús fyrir að-
standendur fimmtudaginn 20. nóv-
ember að Suðurlandsbraut 22 kl.
20.30. Foreldrar yngri og eldri ein-
staklinga hvattir til að mæta, nýjar
bækur og myndbönd, kaffi og veit-
ingar í boði félagsins.