Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Móðursystir mín og stjúpmóðir, ÞORBJÖRG MAGNEA JÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, andaðist föstudaginn 14. nóvember. Jarðsett verður frá Ingjaldshólskirkju, Hellis- sandi, laugardaginn 22. nóvember kl. 13.30. Rútuferð verður frá BSÍ kl. 9.00. Jóna B. Kristinsdóttir, Halley Sveinbjarnardóttir. t Ástkær dóttir mín, frænka og vinkona, HILDUR SVAVA JORDAN, flugfreyja, Laugateigi 23, Reykjavík, lést á gjörgsludeild Landspítalans mánudaginn 17. nóvember. Ásthildur Sigurðardóttir, Hanna Sigurðardóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Klaus Brandt, Bjarni Bergsson, Ásgeir Ebenezersson. + Systir okkar, HELGA K. OTTÓSDÓTTIR flugfreyja, Digranesheiði 19, Kópavogi, er látin. Ása G. Ottósdóttir, Elísabet S. Ottósdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLMI KRISTJÁNSSON, lengst af til heimilis á Rifi á Snæfellsnesi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 17. nóvember. Sveinbjörg Fjóla Pálmadóttir, Jón Helgi Óskarsson, Guðfinnur Georg Pálmason, Jóhanna Sigríður Emilsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARRÝ KRISTJÁNS KJÆRNESTED matreiðslumeistara, Vallargötu 16, Keflavík. Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks Landspítalans á deild 11G. Dagga Lis Kjærnested, Örn Kjærnested, Harrý Kjærnested, Dagný Ada Kjærnested Anna M. Kjærnested, Árni Kjærnested og barnabörn G. Elsie Einarsdóttir, Júlía Rós Guðmundsdóttir, Emil Á. Hermannsson, Ólafur J. Harðarson, t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og jarðarfarar HANSÍNU KRISTJÁNSDÓTTUR, Hlévangi, áður til heimilis á Suðurgötu 35, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hlé- vangs og Sjúkrahúss Suðurnesja fyrir umönn- unina á liðnum árum. Ellert Eiríksson, Eiríkur Guðnason, Steinunn Guðnadóttir, Árnheiður Guðnadóttir, Vignir Guðnason, Birgir Guðnason, Guðbjörg Sigurðardóttir, Þorgerður Guðfinnsdóttir, Neviile Young, Jónas H. Jónsson, Guðríður Árnadóttir, Harpa Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. GUNNAR SIGURÐUR JÓSEPSSON + Gunnar Signrð- ur Jósepsson fæddist á Seli í Sandvík í Norð- fjarðarhreppi 4. mars 1921. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu i Nes- kaupstað 11. nóv- ember síðastliðinn. Gunnar Sigurður var sonur hjónanna Jóseps Halldórsson- ar frá Þuríðarstöð- um í Eiðaþinghá og Sigurbjargar Hall- dórsdóttur frá Gerði í Norðfirði. Hann var þriðji elstur af sex systkinum, en þau eru: Arni, f. 13. janúar 1919, d. 22. maí 1996, Helga, f. 13. mars 1920, d. 13. júlí 1942, Óli, f. 4. júní 1924 og tvíbura- systurnar Laufey og Rósa, f. 20. maí 1935. Gunnar ólst upp á Seli í Sand- vík til 12 ára aldurs. Frá árinu 1942 til ársins 1960 starfaði hann við sjómennsku á ýmsum bátum. Meðal þeirra má nefna Skúla fógeta og Þráin, báða gerða út frá Neskaupstað en lengst af vann hann á bátum frá „Lárusarútgerð- inni“ í Neskaup- stað. Einnig fór hann á vetrarvert- íðir og síldarvertíð- ir og var þá á bát- um sem gerðir voru út meðal annars frá Hafnarfirði. Árið 1960 létu bræðurn- ir, Gunnar og Óli, smíða bát fyrir sig, Gylfa NK 40, sem þeir gerðu út í sameiningu í fjögur ár en eftir það gerði Gunnar bátinn út einn. Gunnar var heiðraður á sjó- mannadaginn 2. júní 1996 í Neskaupstað. Utför Gunnars Sigurðar fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hann Gunnar er dáinn. Þessi orð komu flatt upp á mig er ég kom heim frá vinnu að kvöldi þriðjudags- ins 11. nóvember síðastliðins. Þó að hann hafi verið orðinn 76 ára virkaði hann alltaf á mig svo hraustur og yfirvegaður. Síst af öllu grunaði mig, þegar ég kvaddi hann á flugvellinum í sumar, að ég myndi ekki hitta hann aftur á Grensás eins og venjulega þegar !íða tæki á nóvember. Þeir sem þekktu til Gunnars vita að sjómennskan var hans líf. Allt frá því að hann fór fyrst á sjó með föður sínum, þá aðeins 12 ára gam- all, hefur sjórinn átt hug hans að mestu. Sem ungur maður fór hann á ýmsar vertíðir en sá bátur sem ég held að flestir muni eftir honum á, hafi verið báturinn trausti sem Sveinn frændi smíðaði fyrir hann og Óla, Gylfi NK 40. Á Gylfa stund- aði Gunnar sjóinn frá 1960 þá ásamt Óla bróður sínum fyrstu §ög- ur árin en Óli flutti þá til Reykjavík- ur. Gunnar hætti svo útgerð Gylfa árið 1987 og fór í land. Hann gat þó ekki alveg hætt afskiptum af sjónum heldur fór að stokka upp línu fyrir vin sinn, Hört, útgerðar- mann í Neskaupstað. Eftir að foreldrar Gunnars keyptu húsið Bifröst í Neskaupstað, sem nú heitir Strandgata 6, átti Gunnar þar heimili til æviloka. Og eftir að Sigurbjörg móðir hans dó 19. nóvember 1961 hélt hann heim- ili á Strandgötunni ásamt föður sín- um Jósep, Óla bróður sínum og Laufeyju systur sinni. Laufey átti eina dóttur, Sigurbjörgu Helgu Bjarnadóttur sem er fædd 22. sept- ember 1958. Frá fyrstu tíð bar Gunnar mikla umhyggju fyrir Sig- urbjörgu og fylgdist vel með öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Má segja að hann hafi verið henni sem annar faðir. Ófáar voru þær gjafirnar sem hann færði systur- dóttur sinni og ef eitthvað bjátaði á var hann ætíð til staðar, tilbúinn að hjálpa. Eftir að Laufey og Sigur- björg fluttu til Reykjavíkur árið 1975 hélt Gunnar einn heimilið með föður sínum því Óli hafði einnig flutt til Reykjavíkur. Þannig var þetta þar til Jósep dó 15. nóvember 1990 en þá hóf Gunnar að hafa vetursetu í Reykjavík, á Grensás- veginum hjá systrum sínum, Lauf- eyju og Rósu. Fyrstu kynni mín af Gunnari voru einnig fyrstu kynnin af Jós- epi. Við Sigurbjörg vorum þá tiltölu- lega nýgift og fórum að sumarlagi til Neskaupstaðar með eldri dóttur okkar, Evu Ösp, þá eins árs gamla. í minningunni finnst mér að veðrið hafi verið gott allan tímann. Þarna lentum við í heyskap hjá þeim Gunnari og Jósepi, en þeir áttu lengi vel kindur sem þeir höfðu í fjárhús- um í útjaðri bæjarins. Svo var farið í sjóferð með Gunnari, á Gylfa, til Hellisljarðar og mér sýnt hvar fjöl- skyldan hafði búið í gamla daga, áður en hún settist að á Norðfirði. Að sjálfsögðu voru þær systur, tengdamóðir mín og Rósa, einnig með í för en þær fóru yfirleitt í sumarfríum sínum austur til Gunn- ars og Jóseps. Margar eigum við myndirnar í fjölskyldualbúminu frá þessari ferð og þær verða dýrmæt- ari með hverju árinu. Þær urðu líka nokkrar sumarferðirnar í austfirska blíðviðrið á Norðfirði til þess að heimsækja þá feðga og núna sein- ustu árin Gunnar. Þegar þetta er skrifað hefði ég viljað að þær hefðu orðið enn fleiri, svo ljúfar eru minn- ingarnar frá Strandgötunni og þeim sem þar bjuggu. Gunnar Jósepsson var mjög hreinskiptinn og hæglátur maður. Hann var örugglega ekki einn af þeim sem fóru um með hávaða og útmáluðu skoðanir sínar, nei Gunn- ar var iíkur föður sínum með það að hann naut sín best í vina- og ættingjahópi. Hann hafði góðan húmor og minnist ég margra stunda á Grensásveginum þegar setið var yfir fréttum í sjónvarpinu og Gunn- ar gerði góðlátlegt grín að mörgu sem var að gerast í þjóðlífinu. Hann var rólegur og orðvar að eðlisfari, en eigi að síður var lundin létt. Ekki er hægt að minnast Gunnars á Grensásveginum án þess að minn- ast á Laufeyju og Rósu í sama orð- inu. Þær hugsuðu vel um bróður sinn og voru þau systkinin mjög Crfídryííjt Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 HOTEL LOFTLEIÐIR O lCELANDAI samrýnd. Hjá þeim leið Gunnari greinilega vel. Bræður hans, Óli og Árni, komu oft í heimsókn til að ræða málin og heyrðist manni þá oftast vera talað um gamla tíma og nýja og einnig um það sem var að gerast í fjölskyldum þeirra, því Gunnar lét sér annt um allt það sem viðkom bræðrunum. Ekki fóru þeir bræður með tóman maga frá heim- sóknum sínum á Grensásveginn, þaðan fer enginn svangur, það sjá Laufey og Rósa um af sínum mikla myndarskap. Þau voru ófá matar- boðin hjá Laufeyju, Rósu og Gunn- ari og víst er að þau verða ekki eins nú eftir að Gunnar er fallinn frá. í seinni tíð eftir að Gunnar fór að búa hjá þeim á veturna nefndi maður þau yfirleitt öll saman í einu. Og ekki er hægt að minnast Gunn- ars án þess að nefna þá ættingja og vini á Norðfirði sem honum stóðu næst. Ég veit að hann var þeim ákaflega þakklátur fyrir vináttu þeirra og tryggð. Iðulega talaði hann um þá og greinilegt var að hann fylgdist vel með þeim. Gaman þótti Gunnari líka að tala við vini og ættingja að austan í síma, ræða málin og fá fréttir af því sem var að gerast fyrir austan. Þetta voru fyrst og fremst þau Sveinn og Gunna og Hulda og Tóti, svo og þeir Ari og Hjörtur. Fyrir hönd systkina Gunnars er þessu fólki þakkað hjartanlega fyrir ómetan- lega tryggð sína við hann. Einnig er ómetanleg sú góðvild og hjálpsemi sem Gunnar sýndi mér og fjölskyldu minni. Ég veit að hann var annað en bara frændi í augum Sigurbjargar konu minnar, svo mikla umhyggju hefur hann alltaf sýnt henni og ekki síður dætr- um okkar, Evu og Tinnu. í hugum þeirra verður alltaf viss ljómi yfir nafninu Gunnar frændi, enda held ég að hann hafi verið þeim hvort tveggja í senn, frændi og afi. Elsku Laufey, Rósa og Óli, ég veit að söknuður ykkar sem og okkar allra er mikill á þessari stundu en ég vona að vissan um að Gunnar er nú á æðri og betri stað muni verða huggun í harmi ykkar. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Gunn- ars Jósepssonar. Bergþór Jónasson. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem íjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. Sérfræðingar í blómaskrevtinnum við ()ll tækifæri I Wfcblómaverkstæði I lllINNA I Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.