Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 11 FRÉTTIR 85.000 tonn af þorski flutt milli fiskiskipa ALLS voru 85.000 tonn af þorski flutt á milli fiskiskipa á síðasta ári, en leyfilegur heildarafli til kvóta var 186.000 tonn. Flutningur aflaheim- ilda er með fernum hætti. Flutningur milli skipa innan sömu útgerðar, flutningur milli skipa frá sömu ver- stöð, flutningur milli skipa, þar sem um jöfn skipti er að ræða og loks flutningur veiðiheimilda milli skipa, sem ekki eru gerð út frá sömu ver- stöð. Flutningur samkvæmt síðasta hættinum var um 40.500 tonn. Þessar upplýsingar komu fram í svari sjávarútvegsráðherra á Alþingi í gær við fyrispurn Guðjóns Guð- mundssonar alþingismanns. Allur grálúðukvótinn fluttur milli skipa Rúmlega 20.000 tonn af þorsk- kvóta voru flutt milli skipa í sömu útgerð, 18.000 tonn milli skipa innan sömu verstöðvar og tæplega 6.500 tonn fóru á milli í jöfnum skiptum. Þá voru um 105.000 tonn af síld flutt á milli skipa, en það er langleið- ina í allan leyfilegan afla á síld á síðasta fiskveiðiári. Þar nemur flutn- ingur milli skipa, sem ekki eru gerð út frá sömu verstöð, um 42.200 tonnum. Athygli vekur einnig að nær allur skarkolakvótinn var samkvæmt þessu fluttur á milli skipa, eða um 10.500 tonn og allur grálúðukvótinn, 15.000 tonn. Loks voru 337.500 tonn af loðnu flutt milli skipa. Þess skal getið að tölur þessar segja ekki alla söguna, því algengt er að kvóti sé vistaður á öðrum skip- um en hann er skráður á. Sem dæmi um það má nefna að geymi skip 100 tonn fyrir annað um tíma og þau síðan flutt til baka, reiknast sem svo að 200 tonn hafi verið flutt milli skipa. Þá geta skipakaup einnig skekkt þessa mynd. Sveiflur milli útgerðarstaða Sé litið á það hve mikið af afla- heimildum í þorski hafa verið flutt- ar milli einstakra staða, kemur í ljós að það er mjög misjafnt hvort staðirnir hafa aukið hlut sinn eða ekki. Akureyri bætir við sig 950 tonnum af þorski, Garðurinn bætir við sig 2.000, Grindvík 3.000, Hafn- arfjörður 2.500, HornaQörður 2.200, Keflavík 4.800, Vogar 1.000 og Þorlákshöfn bætir við sig 1.000 tonnum. Dalvík tapar 2.000 tonn- um, Djúpivogur 900, Húsavik 1.900, ísafjörður 2.600, Raufarhöfn 1.600, Siglufjörður 2.600 og Skaga- strönd 1.200. Skýringar á þessum sveiflum eru af ýmsum toga. í einhveijum tilfell- um koma þær til vegna sameiningar fyrirtækja og flutnings innan þeirra. í öðrum tilfellum vegna skipasölu og í enn öðrum tilfellum má vera að verið sé að skila kvóta vegna „geymslu". Þingsályktun veg-na lokunar Goethe- stofnunarinnar Þingmenn úr öllum flokk- um taka hönd- um saman HJÖRLEIFUR Guttormsson, þing- maður Alþýðubandalags, mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar á Alþingi þar sem ríkisstjórninni er falið að leita eftir því við þýsk stjórnvöld að Goethe-stofnunin verði starfrækt áfram í Reykjavík. Þingmenn úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi eru meðflutn- ingsmenn að tillögunni. „Með þessari tillögu er lýst ein- dregnum vilja þingsins til að menn- ingarsamskipti íslands og Þýska- lands verði styrkt í stað þess að dregið verði úr þeim,“ sagði Hjör- leifur. Ágúst Einarsson, þingflokki jafnaðarmanna, og Sigríður Anna Þórðardóttir Sjálfstæðisflokki tóku einnig til máls og lýstu eindregnum stuðningi sínum við tillöguna. Lögðu þau áherslu á að tillagan fengi hraða afgreiðslu á Alþingi. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.30 í dag. Fyrst eru tekn- ar fyrir eftirfarandi fyrir- spurnir til ráðherra: 1. Til umhverfisráðherra: Förgun mómoldar og hús- dýraáburðar. 2. Til umhverfisráðherra: Losun koldíoxiðs í andrúms- loft. 3. Til landbúnaðarráðherra: Landbrot af völdum Þjórsár. 4. Til viðskiptaráðherra: Biðlauna- og lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisbankanna. 5. Til dómsmálaráðherra: Umferðaröryggismál. 6. Til dómsmálaráðherra: Framkvæmd áfengislaga. 7. Til dómsmálaráðherra: Lokun vínveitingastaða. 8. Til samgönguráðherra: Hvíldar- og þjónustustaðir fyr- ir ökumenn flutningabifreiða. 9. Til samgönguráðherra: Reiðvegir fyrir hestafólk. 10. Til samgönguráðherra: Starfsstöð Vegagerðarinnar í Rangárvallasýslu. 11. Til fjármálaráðherra: Þungaskattur. Síðan verða sjö mál á dag- skrá. Samkomulag sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytis Sveitarfélögum veitt ráðgjöf um aðgengi Aðgengi fyrir alla Ráðgjafarþjónusta um aðgengi fatlaðra er rek- in á grundvelli sam- komulags Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytis- ins um verkefni á sviði ferlimála fatlaðra. Sam- komulagið nær til árs- loka árið 1998. VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir að Guðrún S. Hilmis- dóttir, verkfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, hafi yfirum- sjón með vinnu í tengslum við sam- komulagið. Auk þess hafi Ólafur Jensson, fyrrverandi formaður íþróttasambands fatlaðra, verið ráð- inn tímabundið til verksins. „Við höfum gefið sveitarfélögun- um ítarlegar upplýsingar um samn- inginn og hvatt til að leitað sé eftir aðstoð og/eða úttektum ef þörf er á. Samningurinn gerir ráð fyrir að gerðar séu úttektir á stofnunum og umhverfi í tengslum við kröfur um aðgengi fatlaðra. Ekki er sérstaklega tekið fram við hvaða bygg- ingar er átt. Hins vegar er ekki óeðlilegt að líta svo á að fyrst og fremst sé litið til opinberra bygginga og stórra þjónustufyrirtækja. Nokkur viðbrögð hafa verið við erindinu og er fyrst og fremst ósk- að eftir ráðleggingum,“ segir Vilhjálmur. ítarleg handbók um áramót Hann nefnir að ósk- að hafí verið eftir því við sveitarfélögin að þau veittu upp- lýsingar um ferlinefndir og stofn- uðu nefndir þar sem þær væru ekki til staðar. „Kynningarmál eru stór liður í starfinu," nefnir hann. „Sam- band íslenskra sveitarfélaga stend- ur fyrir kynningum og svo verður haldin stór ráðstefna í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og umhverf- ismálaráðuneytið um aðgengismál fatlaðra 26. nóvember nk. Þar verð- ur farið ítarlega ofan í saumana á stöðu þessara mála. Fundað hefur verið með hagsmunaaðilum fatlaðra og ferlinefnd félagsmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Ekki má heldur gleyma því að við höfum beitt okkur fyrir því að hægt verði að ljúka útgáfu á handbókinni „Að- gengi fyrir alla.“ Bókin kemur að góðu gagni fyrir alla sem hafa með hönnun og byggingu á mannvirkj- um að gera, ekki síst sveitarfélögin," segir Vilhjálmur. Jón Ólafur Ólafsson og Sigurður Harðarson arkitektar hafa veitt rit- nefnd bókarinnar for- ystu. Auk ritnefndar hefur verið leitað til fjölmargra fagaðila. Stefnt er að því að handbókin kom út í byrjun næsta árs. Stendur nærri sveitarfélögunum Með breytingu á lög- um um málefni fatl- aðra, sem tóku gildi um síðustu áramót, er stefnt að því að málefni fatlaðra flytjist frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar árið 1999. Vilhjálmur segir að málaflokkurinn standi nær sveitarfélögunum en rík- inu. „Málaflokkurinn er í raun mjög tengdur félagsþjónustu sveitarfé- laganna. Sveitarfélögin ættu að hafa góða yfirsýn og geta unnið að skilvirkni að málaflokknum. Meira fjármagn hefur verið veitt til upp- byggingar í þágu málefna fatlaðra á undanförnum árum en áður. Sveitarfélögin koma því til með að taka við ágætlega útfærðu þjón- ustuneti víða um landið," segir hann og tekur fram að þörfin sé ennþá mikil og Ijóst að veita þurfi verulega mikið fé til þessa málaflokks til að koma á sómasamlegu ástandi, ekki síst í Reykjavík og víðar á höfuð- borgarsvæðinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Samstarf Rauða kross Islands, FRÆ og SAA Vímuvarnaskólinn í alla grunnskóla á landinu UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Fræðslumiðstöðvar í fíknivörnum, (FRÆ), SÁÁ og Rauða kross íslands um starf- rækslu Vímuvarnaskóla. Markmið skólans er að efla og styrkja for- varnastarf grunnskóla um allt land með því að fræða og upplýsa kenn- ara og annað starfsfólk skólanna um ávana- og fíkniefnamál og að vera skólunum til ráðgjafar við gerð vímuvarnaáætlana og framkvæmd forvarnaverkefna. Á skólaárinu 1995-1996 stóðu ofangreindir aðilar og Reykjavíkur- borg að stofnun Vímuvarnaskólans, sem fór á milli grunnskóla i Reykja- vík og stóð þar fyrir starfsdegi með fræðslu um vímuefnamál og vímu- varnir fyrir starfsfólk. Sigríður Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands, sagði það yfirlýsta stefnu Rauða krossins, að vinna með þeim sem minnst mega sín og því væri eðli- legt framhald eftir tveggja ára undirbúning að Vímuvarnaskólan- um að halda því verkefni áfram. Theódór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri SÁÁ, fagnaði því að fleiri aðilar kæmu að því verkefni að efla forvarnir í landinu og Sæ- mundur Hafsteinsson fram- kvæmdastjóri FRÆ, sagði löngu tímabært að sameina þá krafta sem ynnu að forvörnum. Guðríður Sigurðardóttir, ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðuneyt- inu, en ráðuneytið styrkir skólann, sagði að samstarfið hefði tekist vel til þessa og benti jafnframt á að mikil samstaða væri um varnir gegn vímu úti í þjóðfélaginu. „Þessi samningur er því heillavænlegt skref,“ sagði hún. Morgunblaðið/Þorkell FRIÐÞJÓFUR Karlsson úr stjórn FRÆ, Guðríður Sigurðardóttir, Sæmundur Hafsteinsson úr sljórn FRÆ, Sigríður Amadóttir og Theódór Halldórsson undirrita samning um rekstur Vímuvamaskóla. VETRARFlíRÐ1K - VWII VIH VALIÐ! KARIBAHAFIO - 0KKAR SERSVIÐ Skemmtisiglingar vikulega á nýjustu glæsiskipum heimsins, CARNIVAL - IMAGINÁTION, DESTINY O.FL. Fljótandi hallir færa þig rnilli blómskreyttra eyja undir hitabeltissól þar sem golan gælir við þig og ekkert mun skorta. DOMINIKANA - hvfldardvöl á fegurstu eyjunni með drifhvítar pálmastrendur, hálft fæði eða allt innifalið, matur, drykkir, skemmtanir. RIO MERENGE - nýjasta trompið, 5 stjömu glæsistaður, eða CAPELLA BEACH RESORT, afar vinsælt. Brottför vikulega. Bestu kjör. Flug 2 fyrir 1. Gistisamningar á hálfvirði. Sérverð í nóv. til des. Pantit) núna! THAILAND - ný ímynd, það besta á bestu stöðum á besta verði, allt árið fyrir einstaklinga, félög, klúbba, vinnuhópa o.s.frv. Hópferð með fararstjóra 15. jan. ‘98. Frábært verð! FERÐASKRIFSTOFAN SÉRFARGJÖLD til Asíu, Ástralíu, Afríku, Suður-Ameríku. Munið að betri ferðirnar eru oft ódýrari og ánægjulegri. Austlirstræti 17 4 hæð 101 Reykjavi% Reynslan mælir með feröum Heimsklúbbsins. simi 56 20 400 fax 552 6564 HEIMSKLUBBUR lGOLr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.