Morgunblaðið - 19.11.1997, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Matthías Eiðsson fær Möðrufell afhent
[
i
!
f
í
Átti von á hrepps-
nefndarmönnum
og sveitarstjóra
MATTHÍAS Eiðsson, hrossabóndi
á Brún á Akureyri, fékk jörðina
Möðrufeil í Eyjafjarðarsveit af-
henta í gær. Stefán Arnason, starfs-
maður á skrifstofu Eyjafjarðar-
sveitar, mætti að Möðrufelli fyrir
hönd hreppsnefndar og með honum
í för var Guðmundur Steindórsson
ráðunautur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar. Þeir fóru yfir lista yfir
vélar og bústofn frá í sumar með
Matthíasi og lögmanni hans, Helga
Jóhannessyni.
Hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar
samþykkti nýlega að afhenda
Matthíasi jörðina eftir að dómur féll
í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar var
kröfum hreppsnefndar hafnað en
hún hafði farið fram á að úrskurði
landbúnaðarráðuneytisins yrði
hnekkt en ráðuneytið hafði fellt úr
gildi ákvörðun hreppsnefndar að
nýta sér forkaupsrétt að Möðrufelli,
eftir að Matthías hafði keypt jörð-
ina. Málinu er þó ekki lokið, þar
sem hreppsnefnd áfrýjaði dómi
Héraðsdóms til Hæstaréttar.
Fjölgað um hænu-
stórt naut horfið
um ástand véla og heilbrigði bú-
stofns en því næst var skrifað undir
bréf þess efnis að Matthías hafi tek-
ið formlega við jörðinni.
Matthías sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa átt von á
hreppsnefndarmönnum og sveitar-
stjóra Eyjafjarðarsveitar á staðinn.
„Mér finnst ekki tilhlýðilegt að
þessir menn skuli enn ekki tala við
mig og þeir senda þess í stað starfs-
mann sinn til að ganga frá málinu."
Matthías sagði ýmislegt öðruvísi
á jörðinni en það var í sumar en
hann var þó að mestu leyti sáttur
við ástandið. „Það er eitthvað óljóst
varðandi gripafjöldann en mér sýn-
ist vélar og tæki í lagi og ég hef
ekkert við umgengni hér að athuga.
Það verður fljótlega farið í að
breyta fjósinu í hesthús og ég stefni
að því að vera kominn hingað með
allt mitt dót og mín hross um eða
uppúr næstu mánaðamótum. Ég
ætla nú að einbeita mér að mínum
hrossabúskap og trúi því ekki að
þetta mál tapist í Hæstarétti. Ef
það gerist hins vegar er eitthvað
mikið að íslenskum lögum,“ sagði
Matthías.
Við vettvangsskoðun kom í ljós að
vélar og tæki voru á sínum stað.
Hins vegar hafði fjölgað um eina
hænu, kvíga drapst við burð íyrir
nokkru og þá var stórt naut horfið
úr fjósinu. Matthías gerði fyrirvara
Velkomin í villta vestrið
Benedikt Hjaltason bóndi á
Hrafnagili keypti af Matthíasi í
sumar mjólkurkvóta Möðrufells,
samtals um 125.000 lítra og allar
Morgunblaðið/Kristján
MATTHIAS Eiðsson og lögmaður hans, Helgi Jóhannesson, telja kálfana í fjósinu á Möðrufelli. Kálfarnir
hafa hins vegar mun meiri áhuga á yfirhöfnum þeirra félaga.
kýr og kálfa, alls um 64 gripi. Bene-
dikt kom heim að Möðrufelli í gær
og skoðaði gripi sína. Hann ætlaði
strax með mjólkurkýrnar heim á
Hrafnagil en kálfana í næstu viku.
Benedikt er einn stærsti mjólkur-
framleiðandi landsins og eftir að
kvótinn á Möðrufelli bætist við, er
hann nú með um 340.000 lítra
mjólkurkvóta.
Við afleggjarann upp að Möðru-
felli, við Eyjafjarðarbraut vestari,
hafði verið komið fyrir skilti með
þremur blöðrum og kveðju til
Matthíasar og fjölskyldu frá „vel-
viljuðum nágranna“. Þar stóðu eft-
irfarandi skilaboð: „Verið velkomin
í villta vestrið en munið! Hér gilda
VIÐ afleggjarann upp að Möðrufelli, við Eyjafjarðarbraut vestari, hafði frumskógarlögmálin og sérstakt af-
verið komið fyrir skilti með kveðju til Matthíasar og íjölskyldu. brigði af sveitarstjórnarlögmálum."
FJORÐA UTKALLSBOK OTTARS SVEINSSONAR
STORBROTNAR
Uísbæ*ttlí^
AF LIFSREYNSLU
OTTAR SVEINSSON
Ingví Hallgrímsson Auðunn Kristinsson Hilmar bórarinsior
á I/ -.arfi-.' /ar óva-r.t •ágmaður lenti tvisvar 'æ maður fór l /i'.'/ar
ISLENSKA
BÓKAÚTGÁFAN
SÍÐUMÚLA 11, sími 581 3999
Einai Valsion
skipl íy:. -
þegar varösl- ,,
var við það a'.
Karl Guðmundsson
í Gvatemala.
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
i
>