Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Foss-hótel bæta við tíunda hótelinu Taka við rekstri Hótels KEA af kaupfélaginu HÓTELKEÐJAN Foss-hótel ehf. hefur leigt Hótel KEA af Kaupfé- lagi Eyfirðinga til fimm ára. Mun hótelkeðjan taka við rekstrinum um áramót og verður þar með komin með meirihluta hótelgisting- ar í bænum. Hótel Kea er stærsta hótelið á Akureyri með 73 herbergi en þar er einnig rekinn danssalur og veit- ingastaðurinn Súlnaberg. Velta hótelsins nam nærri 200 milljónum á síðasta ári en rekstur þess hefur ekki gengið sem skyldi hin síðustu ár og nokkurt tap verið á honum samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Bættur rekstur með samnýtingu hótela Foss-hótel reka nú Hótel Hörpu, 28 herbergja hótel, sem stendur við hlið Hótels KEA. Með rekstrin- um á Hóteli KEA munu Foss-hótel samtals starfrækja 101 hótelher- bergi á Akureyri og verða þannig með meirihlutann í hótelgistingu þar í bæ. Ólafur Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Foss-hótelanna, seg- ist vera mjög bjartsýnn á rekstur Hótels KEA og hefur fullan hug á því að nýta betur möguleika Akur- eyrar sem ferðamannabæjar. „Við munum leitast við að samnýta rekstur Hörpu og KEA enda eru þau nánast í sama húsi. Þannig næst væntanlega hagræðing sem mun skila sér í bættum rekstri. Hótel KEA er fyrsta flokks hótel með nýuppgerð herbergi og við munum vinna að markaðssetningu þess í samvinnu við aðra ferðaþjónustuaðila." Tíunda hótel keðjunnar Hótel KEA er tíunda hótelið sem bætist við sívaxandi keðju Foss-hótelanna en fyrir rekur keðjan heilsárshótelin Hótel Hörpu á Akureyri, Hótel Lind og City hótel í Reykjavík og Hótel Vatnajökul við Höfn í Hornafirði. Þá rekur hún einnig sumarhótelin Hótel Bifröst, Hótel Hörpu í Kjarnaskógi við Akureyri, Hótel Hallormsstað og Hótel Aningu á Sauðárkróki og í Varmahlíð. Foss- hótel á misstóran hlut í flestum hótelunum en sér alfarið um rekstur þeirra, að sögn Ólafs. Að Hóteli KEA meðtöldu mun hótel- keðjan alls starfrækja 230 her- bergi í heilsársgistingu en 450 herbergi ef sumarhótelin eru talin með. Helstu eigendur Foss- hótela ehf. eru Guðmundur Jónas- son ehf., Úrval-Útsýn og Ómar Benediktsson. Eiga þessir aðilar 30% hlut hver en Halldór Bjarna- son, framkvæmdastjóri Safari- ferða, á 10%. Fólk Ráðin fram- kvæmda- stjóri hjá ISAGA •ANNA K. Jónsdóttir lyfja- fræðingur hefur verið ráðin einn þriggja fram- kvæmdastjóra hjá ÍSAGA hf. Anna stýrir heil- brigðissviði fyr- _ irtækisins og ber Anna K. ,, * , Jónsdóttir m.a. abyrgð a sölu og þjónustu til sjúkrahúsa, rannsóknarstofa og einkaaðila, en þessir aðilar nota ýmsar lofttegundir. Anna K. Jónsdóttir var lyfja- kynnir hjá fyrirtækinu Hermes um nokkurra ára skeið en lyfja- fræðingur hjá Kópavogs Apóteki áður en hún réðst til ÍSAGA. Anna var borgarfulltrúi og varaborgar- fulltrúi í Reykjavík 1982-1994. Hún á fjögur börn. Maki hennar er Baldur Oskarsson viðskipta- fræðingur. Breskt-íslenskt verslunarráð Stofn- félasrar yf- ir 190 YFIR 190 fyrirtæki hafa gerst aðilar að Bresk-íslenska versl- unarráðinu sem sett var á stofn í síðustu viku. Stofnfund- urinn var bæði haldinn í London og Reykjavík og mættu um 130 manns til fund- arins í Reykjavík, en um 200 manns í London. Bresk-íslenska verslunar- ráðið er sjötta verslunaiTáðið sem stofnað er um viðskipti íslands og annarra landa, en ákvörðun var tekin um stofn- un þess í framhaldi af áskor- unum fyrirtækja í báðum löndum. Formaður ráðsins var kjörinn Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Islandsbanka. Aðrir í stjóm voru kjörnir Arngrímur Jóhannsson, Agnar Friðriks- son, Alan Skinner, Derek Howard, Halldór Vilhjálms- son, Huw Edwards, Matt Bates og Þórður Sverrisson. Magnús Magnússon var kjörinn heiðursfélagi ráðsins. Seðlabankinn eykur aðhald í efnahagslífínu með því að hækka vexti um 0,3% Ymis merki um aukna spennu íþjóðarbúskapnum BANKASTJÓRN Seðlabankans ákvað í gær að hækka vexti sína um 0,3 prósentustig. Með þessari hækkun er bankinn að bregðast við lækkandi vaxtamun gagnvart útlöndum, horfum um aukna verðbólgu á fyrri hluta næsta árs og ýmsum merkjum um aukna spennu í þjóðarbúskapnum. Nær vaxtahækkunin til viðskipta Seðlabankans við banka og spari- sjóði, svo og ávöxtunar í tilboðum bankans í ríkisvíxla á Verðbréfaþingi íslands. Þannig hækka t.d. vextir af endurkaupa- samningum Seðlabankans við inn- lánsstofnanir úr 6,9% í 7,2%, en þessir vextir hafa myndað einskon- ar „vaxtagólf" á peningamarkaði. Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi hækkun þyrfti ekki að koma á óvart þar sem því hefði verið lýst yfir í haustskýrslu bankans að hann myndi áfram reka aðhaldssama stefnu. „Það eru ýmis þenslumerki sem ástæða er til að bregðast við að okkar mati. Við höfum t.d. fengið nýjar tölur yfir útlán í bankakerf- inu í október sem eru nokkuð háar. Lán, endurlán og markaðsverðbréf hafa hækkað um 18% síðastliðna 12 mánuði. Peningamagn (M3) hefur aukist um 10,3% á þessu tímabili sem er meiri hækkun en sést hefur um langan tíma. Það er síðan spenna í vissum greinum á vinnu- markaði og útlit er fyrir metár í útgáfu húsbréfa. Síðan bendir verðbólguspá til þess að nokkur kúfur komi á verðbólguna á fyrstu mánuðum næsta árs í kjölfar launahækkana. Þá hefur það verið að gerast smám saman að munur- inn á peningamarkaðsvöxtum hér á landi og í öðrum löndum hefur farið minnkandi. Munurinn fór í 3% snemma á þessu ári en hefur nú lækkað í 2,4%. I Bretlandi eru peningamarkaðsvextir orðnir tæplega 0,5% hærri en hér á landi. Bretar eru sú þjóð sem við lítum helst til vegna þess að hagsveiflan hjá þeim er í svipuðum takti og hjá okkur.“ Ávöxtun ríkisvíxla hækkar Vaxtahækkun Seðlabankans mun koma fram á peningamarkaði strax í dag með samsvarandi hækkun á ávöxtun ríkisvíxla á Verðbréfaþingi. Birgir Isleifur kvað hins vegar erfitt að segja til um hvemig hún skilaði sér í vöxt- um banka og sparisjóða. Hækkun- in gerði það að verkum að lán Seðlabankans til bankanna yrðu dýrari en ella. Ársreikningar þorra hlutafélaga aðgengilegir hjá Ríkisskattstjóra Skil á ársreikningum fynr 1996 komin yfír 80% ARSREIKNINGAR hlutafélaga hafa að undanförnu streymt inn til ríkisskattstjóra í kjölfar þess að áminningarbréf stofnunarinnar um skilaskyldu reikninganna var sent út nú í haust. Að sögn Guðmundar Guðbjarnasonar hjá ríkisskattstjóra hafa nú borist jdir 90% af ársreikn- ingum hlutafélaga í landinu fyrir árið 1995 og yfir 80-85% reikninga fyrir árið 1996. Samkvæmt lögum um ársreikn- inga ber öllum skráðum hluta- félögum og samvinnufélögum að skila inn ársreikningum sínum til ríkisskattstjóra. Félög á hlutabréfa- markaði þurfa að skila inn sínum reikningum strax eftir aðalfund en önnur félög eiga að skila þeim inn innan mánaðar frá aðalfundi. Þau félög sem ekki halda aðalfund á fyrri hluta hvers árs eiga að senda inn sína reikninga fyrir liðið ár í síðasta lagi íyrir lok ágústmánaðar. 100 kr. gjald fyrir hverja síðu Fyrirtæki sem ekki skila inn árs- reikningi geta átt von á því að máli þeirra verði vísað til skatt- rannsóknarstjóra og síðan áfram til yfirskattanefndar. Eru heimildir í lögunum um að beita sektum ef ít- rekanir skattayfirvalda bera ekki árangur. Einnig er Hlutafélagaskrá heimilt að taka hlutafélag af skrá hafi reikningar ekki borist á þriggja ára tímabili. Ársreikningarnir eiga síðan að vera aðgengilegir öllum almenningi, en tekið er 100 króna gjald fyrir af- rit af hverri blaðsíðu. Hefur orðið vart aukins áhuga almennings og íyrirtækja á að skoða einstaka reikninga. Guðmundur sagði að skráð hluta- félög í landinu væru nú rúmlega 8 þúsund talsins og bæri þeim öllum að skila inn ársreikningum, jafnvel þótt þau væru ekki með starfsemi. Samtals hefðu borist yfir 7 þúsund ársreikningar vegna ársins 1996. Morgunblaðið/Kristinn ÞEIR Lawrence W. Johnson, Jr. og David Bleazard hjá Polaroid gengu frá samningum við Hildi Petersen, framkvæmdastjóra Hans Petersen. Hans Petersen tekur við Polaroid-umboðinu HANS Petersen hf. hefur tekið við umboði fyrir fyrirtækið Pol- aroid hér á landi. Polaroid er þekktast fyrir framleiðslu á myndavélum og filmum sem framkalla sjálfkrafa myndir strax eftir að þær hafa verið teknar. Fyrirtækið veltir árlega yfir 2,2 milljörðum Bandaríkja- dala og er leiðandi á þessu sviði. Að undanförnu hefur dvalið hér á landi einn af helstu leiðbeinendum Polaroid, David Bleazard. Hann hefur haldið námskeið fyrir starfsmenn Hans Petersen um dreifingu og kynn- ingu á Polaroid vörum. Jafnframt hafa markaðsdeild- ir fyrirtækjanna unnið að áætl- un um markaðssetningu Pol- aroid hérlendis. Stefnt er að því að hefja sölu á nýrri tegund Pol- aroid myndavéla, nú fyrir jólin, Spice Cam, en hún var nefnd eftir hinni kunnu popp- hljómsveit, Spice Girls. Umboðið fyrir Polaroid var áður hjá Ljósmyndaþjónustunni hf. I ) ) ) ) r ) \ i > l > L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.