Morgunblaðið - 19.11.1997, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
Heittrúarmenn
lýsa yfír ábyrgð
Lúxor, Kaírð, London. Reuters.
ISLÖMSK strangtrúarsamtök lýstu í
gær ábyrgð á blóðbaðinu í Lúxor í
fyrradag á hendur sér. Málgagn eg-
ypsku stjómarinnar, al-Ahram, sagði
að 60 erlendir ferðamenn hefðu týnt
lífi og fjórir Egyptar auk tilræðis-
mannanna sex sem féllu eftir skot-
bardaga við lögreglu. Breyttu þeir
sólbökuðu 4.600 ára drottningarhofi,
Hatshepsut eða öðru nafni Deir al-
Bahri, í blóðvöll. Drápu þeir fyrst
lögreglumenn við hofið og klæddust
einkennisfótum þeirra áður en þeir
létu til skarar skríða gegn ferða-
mönnum. Ríkir mikil reiði í garð
strangtrúarmanna í Egyptalandi í
kjölfar atburðarins.
Sjónarvottar sögðu að tilræðis-
mennimir hefðu ekið bifreið upp að
fordymm hofsins. Fjórir þeirra réðust
til inngöngu og egypsk leiðsögukona
sem var innandyra sagði
þá hafa skotið á allt sem
fyrir þeim varð. „Skot-
hvellir virtust berast frá
fjöllunum og eitt augna-
blik hélt ég að hryðju-
verkamenn væra komn-
ir á kreik en gestimir
hlógu og sögðu að stríð
hefði brotist út. Ég íyr-
irskipaði mínum hópi að
leggjast niður og er mér
varð litið upp stóð rúm-
lega tvítugur maður yfir
okkur og hóf skothríð.
Ég get ekki lýst harm-
leiknum sem fylgdi.
Stuttu seinna kom fólk
og hjálpaði okkur sem
lifðum af,“ sagði konan.
„Þeir réðust inn í hof-
ið skjótandi í allar áttir.
Þeir vora einnig vopn-
aðir handsprengjum og
þegar skothylkin tæmdust drógu
þeir upp hnífa og héldu slátruninni
áfram,“ sagði rútubílstjóri, Mahmoud
al-Rawi, sem særðist. Annar rútubíl-
stjóri, Hagag al-Nahas, sagðist hafa
verið rétt búinn að losa fulla rútu af
ferðamönnum við hofið er vopnaðir
menn réðust inn í hana. „Þeir vora
sex, fimm þeirra í lögreglubúningi,
einn í gallabuxum og skipuðu mér að
aka brott. Ég ók þeim í nokkra
hringi. Þeir höfðu labbrabbstöðvar
lögreglumannanna sem þeir myrtu
og gátu fylgst með viðbrögðum lög-
reglunnar.“ Að sögn egypskra sjón-
arvotta tók það lögreglu allt að 90
mínútur frá því tilræðið hófst að
koma liði á vettvang.
Heilu fjölskyldurnar hurfu af sjón-
arsviðinu í tilræði egypsku hryðju-
verkamannanna í Lúxor. Fimm ára
bresk stúlka, 24 ára móðir hennar og
amma týndu allar lífi en alls biðu sex
Bretar bana í tilræðinu. Fem nýgift
og ung japönsk hjón í brúðkaupsferð
til Lúxor fóru á vit rómantíkur og
ævintýra en mættu þar örlögum sín-
um í hinum fornu musteram. Alls
biðu 10 Japanir dauða í Lúxor.
Stjórnvöld í Tókýó fordæmdu at-
burðinn og japanskar ferðaskrifstof-
ur aflýstu frekari ferðalögum til Eg-
yptalands.
Að minnsta kosti 35 fórnarlamba
egypsku hryðjuverkamannanna voru
svissneskir. Vöraðu svissnesk stjórn-
völd þegna sína eindregið við ferða-
lögum til Egyptalands. Aflýstu sviss-
neskar ferðaskrifstofur ferðum og
Reuters
HOSNI Mubarak, forseti Egyptalands, og Kmal Ganzouri
forsætisráðherra (l.t.h.) skoðuðu í gær vettvang
fjöldamorðs egypskra hryðjuverkamanna í Lúxor.
hófu að flytja ferðamenn sína heim í
gær.
Loftbrú til Bretlands
Breskar ferðaskrifstofur komu í
gær á loftbrú fyrír mörg hundrað
skjólstæðinga sína sem voru á þeirra
vegum í Egyptalandi. Sendar voru
sjö tómar farþegaþotur til suðurhluta
Égyptalands frá London. Aflýstu
ferðaskrifstofur jafnframt ráðgerð-
um ferðum þangað á næstunni vegna
fjöldamorðsins í Lúxor en um áfram-
hald ferðalaga verður beðið eftir ráð-
leggingum breska utanríkisráðuneyt-
isins. Kemur allt eins til álita að
hætta ferðum þangað fyrir fullt og
allt en það þykir fremur ólíklegt. Eg-
yptaland hefur verið vinsæll áfanga-
staður breskra ferðalanga en 350.000
slíkir fóra þangað í fyrra.
Franska utanríkisráðuneytið hvatti
franska þegna til að gæta mikillar var-
úðar í Égyptalandi en gekk þó ekld
það langt að leggjast gegn ferðum
þangað. Fjöldi franskra ferðaskrif-
stofa bauð viðskiptamönnum sínum að
snúa þegar í stað heim og aflýsti frek-
ari ferðum ótímabundið en sumar
skrifstofur héldu áfram sölu ferða til
Egyptalands eins og ekkert hefði í
skorist. Rúmlega 240 þúsund Frakkar
fóra þangað í fyrra.
Óp og grátur gegnum
skothríðina
Breskur túristi, Victoria
Mcllvenna, var sjónarvottur að til-
ræðinu í Lúxor og lýsti reynslu sinni
í Daily Mail í gær. „Þeir skutu
handahófskennt úr smárútu sem
þeir höfðu rænt. Ferðamenn reyndu
að forða sér á hlaupum,
skelfingu lostnir. Óp
þeirra og grátur hvein í
gegnum vélbyssuskot-
hríðina en það þyrlaðist
upp svo mikið ryk og
sandur að ekki sást
mikið,“ sagði hún.
Breskar vinkonur
lifðu tilræðið af með því
að hlaupa í skjól inní tó-
bakssöluskúr er kúlna-
hríðin lék allt í kring.
„Lögreglan notaði
skúrinn sem felustað til
þess að skjóta á tilræð-
ismennina er þeir
reyndu að komast und-
an. Við voram því í
miðju brjálæðisins,“
sagði Ann Futter við
komuna til Bretlands.
„Við vorum fóst í skúrn-
um í tvo klukkutíma
ásamt 30 til 40 enskum, frönskum og
ítölskum ferðamönnum,“ bætti vin-
kona hennar, Marilyn Lee, við. Voru
þær Futter á lokadegi ferðalags um
Egyptaland er þær lentu í skothríð-
inni við Hatshepsut-musterið.
Lýsa ábyrgð
Egypsku hryðjuverkasamtökin al-
Gama’a al-Islamiya, eða íslamssam-
tökin, lýstu ábyrgð á verknaðinum í
Lúxor á hendur sér. Tilgangurinn
var að fá andlegan leiðtoga sinn,
blinda klerkinn Omar Abdel-Ra-
hman, lausan úr bandarísku fangelsi,
segir í yfirlýsingu samtakanna. Ætl-
unin hafi verið að taka hóp erlendra
ferðamanna í gíslingu en allt hafi
farið úr böndum „vegna óábyrgra
viðbragða öryggissveita stjórnarinn-
ar.“
SW ....
p
PRIMAVERA
RISTORANTE
Andstaðan meðal
Dana eykst
Kaupmannahöfn. Reuters.
STUÐNINGURINN meðal Dana
við Amsterdam-sáttmála Evrópu-
sambandsins hefur minnkað og and-
staðan aukist síðasta mánuðinn, ef
marka má skoðanakönnun sem
danska viðskiptadagblaðið B0rsen
birti á fimmtudag.
42,8% aðspurðra sögðust styðja
sáttmálann og 32,2% voru á móti
honum. I samskonar könnun, sem
birt var í október, voru 45,7% hlynnt
sáttmálanum en 30,5% sögðust
hafna honum.
Samkvæmt nýju kcnnuninni hef-
ur tæpur fjórðungur Dana ekki enn
gert upp hug sinn í málinu. Niels
Helveg Petersen, utanríkisráðherra
Dana, kvaðst telja að þótt andstaðan
hefði aukist yrði sáttmálinn sam-
þykktur með miklum meirihluta
þegar hann verður borinn undir
þjóðaratkvæði í Danmörku 28. maí.
AUSTURSTRÆTI 9 - SlMI 561 8555
Efnahagsráðstefnunni í Qatar lokið
Reuters
PALESTINSKAR konur halda uppi mynd af Etaf Elian, sem hefur
verið í hungurverkfalli í ísraelsku fangelsi sfðastliðna 22 daga.
Hörð gagnrýni
á Israelsstjórn
Doha. Reuters.
HÖRÐ gagnrýni á ísraelsstjórn
setti mark sitt á þriggja daga efna-
hagsráðstefnu Norður-Afríkuríkja
og Miðausturlanda sem lauk í Qatar
í gær.
Hamad bin Khalifa al-Thani Qat-
arprins ávarpaði gesti við upphaf
ráðstefnunnar og sagði m.a. að að-
gerðir ísraela hefðu kallað hættur
yfir heimshlutann sem sjái enn ekki
fyrir endann á. Þá sagði Jawad al-
Anani, aðstoðarforsætisráðherra
Jórdaníu, afskipti ísraela af efna-
hagsmálum palestínsku sjálfstjóm-
arsvæðanna óviðunandi brot á frið-
arsamkomulagi þeirra við Palest-
ínumenn. Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna hélt
einnig ávarp við upphaf ráðstefn-
unnar þar sem hún hvatti Israels-
menn til að láta land í skiptum fyrir
frið.
Krafan um að Israelsmenn láti
land í skiptum fyrir frið var einnig
áréttuð í opinberri yfirlýsingu ráð-
stefnunnar. Fulltrúar Israels skrif-
uðu undir yfirlýsinguna þótt þeir
skiluðu einnig inn séráliti þar sem
gerð var grein fyrir áhyggjum
þeirra af orðalagi hennar.
Fjölmörg arabaríki hættu við
þátttöku í ráðstefnunni í mótmæla-
skyni við aðgerðir ísraelsstjórnar á
hernumdu svæðunum og brot henn-
ar á skuldbindingum Öslóarsamn-
ingsins. Natan Sharansky, við-
skiptaráðherra ísraels, sem staddur
er í Qatar, sagðist taka meira mark
á þeim sem sátu heima en þeim sem
mættu til þess eins að úthúða ísra-
elsstjórn.
Unnið að nýjum
viðskiptasamningum
A ráðstefnunni var m.a. unnið að
gerð viðskiptasamninga milli ísra-
els og Qatar og ísraels og Jórdaníu
en ráðstefnan, sem haldin er árlega
að undirlagi Bandaríkjastjórnar,
hefur það að meginmarkmiði að efla
viðskiptatengsl Israela og nágranna
þeirra.
Það hefur hins vegar verið harð-
lega gagnrýnt bæði í ísrael og með-
al þátttakenda í Qatar að David
Levi, utanríkisráðherra ísraels,
sótti ekki ráðstefnuna. Áður en ráð-
stefnan hófst bar hann því við að
hún kæmi greinilega ekki til með að
hafa stjórnmálalega þýðingu og því
væri engin ástæða til þess að hann
tæki þátt í henni.
Mozart og alpafíf-
ill á austurrískum
evró-peningum
Vín. Reuters.
WOLFGANG Amadeus Mozart
og alpafífill eða „Edelweiss"
mun prýða aðra hlið þeirrar
evró-myntar, sem þegar þar að
kemur fer í umferð í Austurríki.
Austurríski
seðlabankinn
tilkynnti þetta á
dögunum.
Hvert aðild-
arríki Efna-
hags- og mynt-
bandalags Évr-
ópu, sem stend-
ur til að hleypa af stokkunum í
ársbyrjun 1999, fær að móta að
vild aðra hlið allra myntpen-
inga, sem fara í umferð af hinni
nýju sameiginlegu Evrópumynt,
evróinu, en hin hliðin verður
eins á öllu evró-svæðinu. Til
stendur að myntin fari í umferð
árið 2002 og komi í stað fyrri
gjaldmiðla aðildarlanda mynt-
bandalagsins.
Um er að ræða átta myntpen-
inga, að verð-
mæti 1, 2, 5,10,
20 og 50 sent og
1 og 2 evró. Á
þeim fyrst-
nefndu þremur
leggur austur-
ríski seðlabank-
inn til að verði
myndir af Alpablómum, á næstu
þremur myndir af byggingum,
en á eins evrós-peningnum verði
mynd af Mozart og af friðarverð-
launahafa Nóbels, Berthu von
Suttner, á tveggja evróa-mynt-
inni.