Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 28

Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 19 . NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BLAÐAMANNA- FÉLAGÍ 100ÁR BLAÐAMANNAFÉLAG íslands er aldargamalt í dag. Það var stofnað föstudajginn 19. nóvember 1897 á Hótel ís- landi að forgöngu Jóns Olafssonar ritstjóra og stofnendurnir voru 9 ritstjórar og útgefendur þeirra blaða, sem þá voru gefin út í Reykjavík. Tilgangur félagsins var, eins og sagði í lögum þess, sem samþykkt voru 4. janúar 1898, „að styðja með samtökum atvinnuveg blaðamanna og hvað eina, er stendur í sambandi við hann, efla viðkynning fjelagsmanna hvers við annan og auka veg og gengi heiðviðrar blaðamennsku í landinu. . . Til- gangi sínum leitast fjelagið við að ná meðal annars með því að reyna að koma hagfeldu og réttvíslegu skipulagi á ýmis- legt það í löggjöf vorri, er varðar blaðamennsku og rit- mennsku. . .“ Þegar í upphafi settu stofnendurnir sér siðareglur um það hvernig þeir umgengjust hver annan og nefndu „aukalög ins íslenzka blaðamannafélags“. Þeir höfðu greinilega miklar áhyggjur af réttarstöðu blaðamennskunnar eins og það orða- lag ber með sér, að þeir vildu „fá æðri og ijettvísari mælis- stiku fyrir ijettum takmörkunum blaðamálfrelsis eða prent- frelsis yfir höfuð“. Gífurlegar breytingar hafa orðið í blaðamennsku frá því er stofnendurnir komu saman til þess að koma félaginu á fót. Samt er grundvallarafstaðan til tjáningarfrelsis enn hin sama. Blaðamannafélagið hefur Iíka breytzt. Það er nú orðið stéttarfélag þeirra, sem skrifa í blöð og taka myndir, félag sem semur um kaup og kjör starfsfólks fjölmiðlanna. Félagið fór að taka miklum breytingum um miðja öldina og breyttist í stéttarfélag, en jafnframt hefur það ávallt látið sig miklu varða frjálsa skoðanamyndun í landinu og varð- veizlu íslenzkrar tungu. Félagið hefur aðeins tvisvar frá upp- hafi efnt til verkfallsaðgerða og stóðu verkföllin, hvort um sig, í vikutíma. Morgunblaðið sendir Blaðamannafélaginu og félagsmönnum þess hamingjuóskir á þessum tímamótum og þakkar samfylgd- ina og samvinnuna frá upphafi. BLÓÐBAÐí LÚXOR MORÐ íslamskra heittrúarmanna á tugum ferðamanna við Hatshepsut-musterið í Lúxor í suðurhluta Egyptalands eru átakanlegt dæmi um baráttu í nafni trúar sem snúist hefur upp í andhverfu sína. Fjölmörg ódæðisverk hafa verið framin í nafni múhameðstrúar á síðustu árum í þeim yfir- lýsta tilgangi að bola ríkisstjórn Hosni Mubaraks frá völdum og koma á íslömsku stjórnskipulagi í Egyptalandi. Fórnarlömb- in hafa oftar en ekki verið ferðamenn, sem ekki höfðu neitt annað til saka unnið en að sækja Egyptaland heim. Morðin þjóna ekki öðrum tilgangi en að veikja egypskan efnahag og koma óorði á múhameðstrú. Egyptar hafa miklar tekjur af ferðamönnum og það hefði alvarlegar efnahagslegar og pólitískar afleiðingar í för með sér ef ferðaþjónusta drægist verulega saman. Þar með myndi pólitískt jafnvægisleysi og örbirgð í landinu aukast og vona heittrúarmenn að þeir geti nýtt sér upplausnina er því fylgdi til að komast til valda. Ferðalög um þriðja heiminn eru ávallt ákveðið hættuspil og reglulega berast fréttir af morðum og ránum á vestrænum ríkisborgurum. Bandarísk stjórnvöld vara bandaríska ríkis- borgara reglulega við að ferðast til tiltekinna svæða, þar sem pólitískar ástæður gera að verkum að öryggi þeirra kann að vera í hættu. í ljósi þróunar mála í Egyptalandi hafa fjölmarg- ar ríkisstjórnir varað fólk við að ferðast þangað og jafnvel má velta fyrir sér hvort ekki beri að hvetja fólk til að forð- ast flest ríki fyrir botni Miðjarðarhafs á meðan mál standa með þessum hætti. Færa má rök fyrir því að þar með hefðu öfgamenn náð sínu fram. Á hinn bóginn er ekki veijandi að fólk stefni lífi sínu í voða að tilgangslausu. Það er áhyggjuefni að egypskum stjórnvöldum hefur ekki tekist að koma böndum á hreyfingar öfgamanna þrátt fyrir að öllum ráðum hafi verið beitt til að uppræta starfsemi þeirra á undanförnum árum. Egyptaland er eitt fárra ríkja á þessum slóðum er reynt hefur að taka upp lýðræðislega stjórnarhætti í einhverju formi og Egyptar hafa verið ein helsta tryggingin fyrir þokkalegum stöðugleika í þessum heimshluta. Það gæti haft afdrifaríkar afleiðingar ef egypsk stjórnvöld misstu tök- in og átök við öfgamenn færðust í aukana. í Alsír hefur sú þróun kostað tugi þúsunda lífið í borgarastríði, landið hefur einangrast á alþjóðavettvangi og Vesturlandabúar hafa snið- gengið Alsír vegna stöðugra árása. Nái heittrúarmenn völdum í einhverju þessara ríkja mun það ógna öryggi mun víðar en fyrir botni Miðjarðarhafs. BLAÐAMANNAFÉLAG ÍSLANDS ALDARGAMALT Til að „auka veg og gengi heiðvirðrar blaðaniemisku“ Fyrír réttum 100 árum var Blaðamannafélag íslands stofnað. Það var í raun fyrst í stað klúbbur manna, sem unnu á rít- stjómum blaða, sem þá voru gefín út í Reykjavík, en breyttist í tímans rás í stéttarfélag sömu manna. Magnús Finnsson rifjar hér upp aðdraganda að stofnun félagsins, gerð þess í upphafi og drepur á nokkra þætti síðustu 100 ára. FYRSTA dagblaðið, sem kom út í veröld- inni, sá dagsins ljós á fyrsta áratug 17. aldar og því er unnt að segja að saga dagblaða sé brátt 400 ára. Hvar eða hvenær þetta átti sér stað er ekki vitað með vissu, en ljóst er að dagblöð fóru að koma út á árinu 1609 og þá í Augsburg, Strassburg og í borg í Neðra-Saxlandi, sem heitir Wolfenbúttel. Aðrar borgir í Mið-Evrópu fylgdu strax í kjölfarið og eign- uðust sín blöð. Fyrsta dagblaðið, sem kom út á Bretlandi, kom út 1622, í Frakklandi 1631 og í Danmörku mun fyrsta dagblaðið hafa komið út 1634. Fyrsta sænska dagblaðið sá dagsins ljós 1645 og í Rússlandi kom dagblað fyrst út 1703 og átti Pétur mikli sjálfur frumkvæði að því. Ári síðar eða 1704 kom fyrsta blaðið út í Ameríku og í Noregi kom fyrsta blaðið 1763. í Kína og Japan komu fyrstu blöðin ekki fyrr en um 1860 og það jafnvel þótt vísir að blaði hefði orðið til í Kína á 7. og 8. árhundraðinu. Prentlistin barst til íslands á ofanverðri 16. öld. Allt fram á síðari hluta 18. aldar var þó nær ein- göngu prentað guðsorð á íslandi. Kirkjan var þá eini aðilinn, sem hafði bolmagn til þess að starf- rækja prentverk hérlendis og gefa út prentað mál, bækur. Það er ekki fyrr en 1773 að tímamót verða í útgáfu prentaðs máls hér á landi og það án tilstyrks kirkjunnar. Þá hóf fyrsta íslenzka tíma- ritið Islandske maanedstidender göngu sína. Ritið var í 16 síðna broti og kom út mánaðarlega á dönsku í 3 ár. Efni blaðsins var að stærstum hluta ýmiss konar greinaskrif. Fjallað var um landsins gagn og nauðsynjar en einnig reynt að flytja frétt- ir. Þær voru flokkaðar eftir héruðum og einnig í „góðar fréttir og slæmar fréttir". í lok 19. aldar er útgáfa blaða orðin blómleg á íslandi og í upphafi 20. aldar fæðast eiginlegir ijölmiðlar í nútíma skilningi þess orðs. Reykjavík varð þá miðstöð blaðaútgáfu í landinu, efni blað- anna hafði aukizt og upplag þeirra orðið stærra. Fyrsta blaðið eða tímaritið á íslenzku var Minn- isverð tíðindi, sem Magnús Stephensen gaf út. Það hóf göngu sína 1789 og kom út árlega, eins konar annálaritun, og var gefíð út til 1808. 1826 hóf svo Magnús útgáfu mánaðarrits, sem hann nefndi Klausturpóstinn. Þegar þriðjungur 19. aldar er síð- an að baki færist líf í íslenzka blaðaútgáfu og út koma Ármann á Alþingi (1829-1833), Fjölnir (1835-1847), Sunnanpósturinn (1835-1837), Ný félagsrit (1841-1873), Þjóðólfur (1848), íslending- ur (1860), ísafold (1874), Baldur (1868), Göngu- Hrólfur (1873) og Skuld (1877), svo að ------- einhver séu nefnd. Fyrsta tilraun til þess að gefa út dag- blað var gerð 1897, þegar Einar Bene- diktsson hóf að gefa út blað, sem hann nefndi Dagskrá. Sú tilraun heppnaðist ekki. Hins vegar var fyrsta dagblaðið, ——— sem kom til þess að vera á blaðamarkaði hérlend- is Dagblaðið Vísir, sem kom fyrst út 1910. Þremur árum síðar eða hinn 2. nóvember 1913 kom Morg- unblaðið út í fyrsta sinni. Stofnun Blaðamannafélagsins Þegar Blaðamannafélag Islands er stofnað föstu- daginn 19. nóvember 1897 eru helztu blöðin Þjóðólf- ur, ritstjóri Hannes Þorsteinsson, ísafold, ritstjóri Bjöm Jónsson, Fjallkonan, ritstjóri Valdimar Ás- mundsson, Kvennablaðið, ritstjóri Bríet Bjamhéðins- Blaðamenn sameinuðust í sjálfstæðis- málinu dóttir, Dagskrá, ritstjóri Einar Benediktsson, ísland, ritstjóri Þorsteinn Gíslason og Nýja öldin, ritstjóri Jón Ólafsson og útgefandi Jón Jakobsson. Sagt er að Bríet hafi fengið hugmyndina að stofnun félags- ins, en Jón Ólafsson mun hafa gripið hana á lofti, því að hann er sá, sem undirritar bréf, er hann sendir til allra ofangreindra ritstjóra svo og Einars Hjörleifssonar, meðritstjóra ísafoldar. Hinn 18. nóvember ritar Jón Ólafsson ritstjóri bréfið, sem hljóðar svo: „Það eru vinsamleg til- mæli mín við yðr, að þér vilduð gera svo vel að koma niðr á salinn á Hótel ísland (þar sem Stúd- entafélagið er vant að halda fundi) á föstudaginn 19. Nóv. kl. 8'A síðdegis. Tilgangur minn er að bera þar upp við yðr tillögu um stofnun blaða- manna-félags, bæði í því skyni að efia hagsmuni stéttar vorrar á ýmsa lund og efla félagslega umgengni og viðurkenning blaðamanna á milli. Skal ég á fundi þessum reyna að skýra fundarefn- ið ýtariegar og bendi á ýmisleg verkefni, er mér hafa hugkvæmzt sem sennileg viðfangsefni fyrir blaðamannafélag, ef það kemst á.“ Fyrstu lögin Engar fregnir sérstakar eru til af þessum stofn- fundi, en líklegt er þó að Jón Ólafsson hafi fengið samþykkt af fundarmönnum að félagið skyldi stofnað, því að hinn 4. janúar undirrita Björn Jóns- son, Bríet Bjarnhéðinsdóttir Jón Ólafsson, Valdi- mar Ásmundsson, Þorsteinn Gíslason, Jón Jakobs- son og Einar Hjörleifsson „Lög fyrir hið íslenzka blaðamannafélag" í 13. greinum. Tveir þeirra, sem boðaðir voru á stofnfundinn, Einar Benediktsson og Þorsteinn Gíslason, undirrita ekki lögin, hvern- ig svo sem á því stendur. Lögin hljóðuðu svo: 1. gr. Hið íslenzka blaðamannaljelag hefir heim- ilisfang í Reykjavík. Það er stofnað af útgefendum og ritstjórum íslenzkra blaða í Reykjavík. 2. gr. Meðlimir geta orðið útgefendur, ritstjórar og aðstoðarritstjórar íslenzkra blaða eða tímarita, og aðrir þeir menn, er hafa ritun eða útgáfu blaða eða tímarita að atvinnuvegi eða stöðugu starfi, ef fjelagið veitir þeim viðtöku sem meðlimum. 3. gr. Nýja íjelaga skal bera upp á fundi og greiða atkvæði um; þarf % atkvæða þeirra, sem greidd eru, til að samþykkja upptökuna. 4. gr. Ef tillaga kemur fram um að gera mann rekan úr ijelaginu, verður hún að vera skrifleg og studd af tveim fjelagsmönnum auk tillögumanns. Skal þá til fundar boða með sjerstöku fundarboði og geta tilefnis. Atkvæði skulu greidd skriflega og þarf Vs þeirra atkvæða, er á fundi eru, til að gera mann rækan. Alla hina sömu aðferð skal við hafa, ef maður, sem rekinn hefir verið úr ijelaginu, ósk- ar upptöku á ný. 5. gr. Frá hveiju því blaði, sem full- ““1trúa hefir í ijelaginu, skal jafn atkvæða- ijöldi á fundum, þannig að fulltrúi eða fulltrúar hvers blaðs um sig skal hafa jafnmörg atkvæði sem fulltrúar þess, er flest hefir. 6. gr. Nú vill einhver segja sig úr fjelaginu, skal hann þá tilkynna ritara það skriflega, og er laus úr fjelaginu sólarhring eptir að ritari tók við tilkynningunni eða hún hefir afhent verið vottan- lega á heimili hans. Ritari skal tilkynna úrsögnina þeim fjelagsmönnum öllum, sem í Reykjavík eru, svo tímanlega að tilkynningin komi til þeirra innan 16 stunda, frá því er hann fekk úrsögnina. Björn Bríet Einar Einar Jónsson Bjarnhéðinsdóttir Benediktsson Hjörleifsson Hannes Þorsteinsson Jón Ólafsson _ Valdimar Ásmundsson Þorsteinn Gislason Stofnendumir BRÍET Bjarnhéðinsdóttir, útgefandi og rit- stjóri Kvennablaðaðsins, átti hugmyndina að stofnun Blaðamannafélags Islands og var það síðan Jón Ólafsson, ritsljóri Nýrrar aldar, sem gekkst fyrirí því að félagið yrði stofnað. Hann skrifaði boðsbréf á stofnfund félagsins og boðaði þá Bríeti og mann henn- ar Valdimar Ásmundsson, útgefanda og ritstjóra Fjallkonunnar til fundarins, auk eftirtalinna: Hannesar Þorsteinssonar, rit- sljóra og útgefanda Þjóðólfs, Björns Jóns- sonar, ritstjóra og útgefanda Isafoldar, Ein- ars Hjörleifssonar meðritstjóra Isafoldar, Einars Benediktssonar, útgefanda og rit- stjóra Dagskrár, Þorsteins Gíslasonar út- gefanda og ritsljóra Islands og Jóns Jakobs- sonar útgefanda Nýju aldarinnar. Morgun- blaðinu tókst ekki að fá mynd af honum. 7. gr. Tilgangur félagsins er að styðja með sam- tökum atvinnuveg blaðamanna (en með því er átt við tímaritamenn) og hvað eina, er stendur í sam- bandi við hann, efla viðkynning fjelagsmanna hvers við annan og auka veg og gengi heiðvirðrar blaða- mennsku í landinu. 8. gr. Tilgangi sínum leitast fjelagið við að ná meðal annars með því að reyna að koma hagfeldu og réttvíslegu skipulagi á ýmislegt það í löggjöf vorri, er varðar blaðamennsku og ritmennsku, svo sem burðargjaldslög, áskriptarlög, prentmáls saka- lög o.fl., svo og með samningum ijelagsmanna á meðal um sennilegar og hagfeldar ákvarðanir um auglýsingar og borgun þeirra, afslátt af þeim, sölu- kjör blaða, afstýring prettvísi í viðskiptum o.s.frv. 9. gr. Með því að ijelagið telur núgildandi saka- lög um prentmál að mörgu leyti óijettvís, óhagfeld og illa viðunandi, þá vill fjelagið reyna að styðja af fremsta megni að því, að fá æðri og ijettvísari mælistiku fyrir ijettum takmörkum blaðamálfrelsis eða prentfrelsis yfir höfuð. ní þessu skyni skuld- binda ijelagsmenn allir sig til þess, að leita aldrei úrslita dómstólanna um ágreining, er milli þerirra rís af móðgunar-ummælum þeirra hvers um ann- an, meðan þeir eru í fjelaginu, heldur skipar fjelag- ið kjördóm, er dæmir öll slík mál milli fjelags- manna. Skal dómur sá ekki dæma slík mál eptir landslögum, heldur eptir reglum, er ijelagið sjálft samþykkir í aukalögum um það efni. í þeim skal til tekin tala gerðarmanna og reglugerð ger um verksvið þeirra og starf. I samtök þau, er þessi grein ræðir um, leitast ijelagið við að fá, sem flesta rithöfunda íslenzka. Úrskurði kjördóms skuldbinda sig allir, er þeim aukalögum gerast háðir, til að halda svo sem hæstaijettardómur væri. 10. gr. Fjelagið kýs sjer stjórn: forseta, ijehirði, ritara, svo og varamenn sem þurfa þykir. Kosning gildir til 12 mánaða í senn. 11. gr. Tillag greiða ijelagsmenn eptir því sem ákveðið verður á aðalfundi, eða, ef til kemur, au- katillag, er viðtekið kann að verða með fundarsam- þykt. 12. gr. Ársfund heldur fjelagið í síðustur viku Júní eða fyrsta Júlí ár hvert, eptir því sem formað- ur ákveður, og má með fundarsamþykt ákveða, hve löngu fyrir fram hann skuli boðaður vera. F'yrsta og þriðja mánudagskveld í mánuði hveijum koma fjelagsmenn saman og ræða mál sín. Breyta má þessari ákvörðun með einfaldri fundarsam- þykt. Kveðja má formaður til aukafundar, ef nauð- syn krefur, en skyldur er hann til þess, ef 4 fjelags- menn óska þess skriflega. 13. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðal- fundum, og verða tillögur til breytinganna að vera bornar upp skriflega svo löngu tíma fyrir fram að ritara, að hann geti kunngert fjelagsmönnum þær samtímis fundarboðinu. Samþyktar verða slíkar breytingar því að eins, að 2/a atkvæða, þeirra er á fundi eru, sje með þeim greidd, enda sje 2A þeirra fjelagsmanna, er viðstaddir eru í bænum og ófor- fallaðir, á fundi. Forföll meta fundarmenn enn á þeim fundi. Viðauka við lög þessi má samþykkja á aukafundi, ef þeir koma eigi í bága við lögin. Þarf til þess 2A viðstaddra atkvæða, og gilda slíkir viðaukar aðeins til næsta aðalfundar." Siðareglurnar Þessum lögum fylgdu svo „Aukalög ins íslenzka blaðamannafélags um kjördóm í meiðyrðamálum“, ítarlegur lagabálkur í 16 greinum, eins konar siða- reglur. Þar afsala félagarnir sér með skriflegri skuldbindingu „öllum rétti til, meðan þeir eru í félaginu eða háðir skuldbindingu þessari, að leita úrslita inna lögskipuðu dómstóla landsins út af neinum þeim ummælum á prenti, er þeir þykjast meiddir af, ef höfundur eða ábyrgðarmaður um- mælanna er meðlimur blaðamannafélagsins eða háðr áðr greindri skuldbindingu". Leggja þeir fé- lagar öll slík mál fyrir kjördóm og skal úrskurður hans „vera svo bindandi fyrir málsaðila, sem hæsta- réttardómur væri eða sáttagerð fyrir sáttanefnd“. Jón Olafsson var fyrsti formaður félagsins og á fundi, sem í því var haldinn komu menn sér saman um að samræma stafsetningarreglur, en áður höfðu allmargar slíkar verið í gildi. Siðareglurnar sam- þykkti félagið, þar sem félagarnir skuldbundu sig til þess að „birta ekki á prenti persónuleg meið- yrði eða hnjóðsyrði hver um annan né neitt það er lýsir persónulegri óvild til þess félagsmanns er minnst kann að vera á heldur stunda sjálfir vin- semd og kurteisi í ummælum hver um annan og stuðla að því að aðrir, sem rita í málgögn vor, geri slíkt hið sama. Vanhaldi einhver þessa skuld- bindingu skulu aðrir félagsmenn bera sáttarorð á milli og gera sér allt far um að jafna yfir það sem fljótast og afstýra frekari brotum með góðum for- tölum eða öðrum hyggilegum ráðum er þeim kann að hugkvæmast". Samkvæmt siðareglunum var eftirfarandi sak- næmt að bera öðrum á brýn: að hann vilji svíkja eða skaða ættjörð sína; að hann hafi gert sig sekan í þjófnaði, ijár- drætti, fjárprettum, mútuþágu, sviksemi, fölsun, meinsæri, eða öðrum ámóta glæpum, er svívirði- legri eru að almenningsáliti; að hann segi í alvöru og vísvitandi ósatt; að menn fyrir eiginna hagsmuna sakir breyti gegn betri vitund; nokkuð annað það er svívirði- legt er eða ódrengilegt; saknæm eru og mannorðs- meiðandi illyrði, svo og spottyrði eða dylgjur, er fela í sér aðdróttun um eitthvað það, er saknæmt. í 11. grein aukalaganna eða siðareglnanna seg- ir síðan, að brot við 1. til 2. töluliðar varði sektum á bilinu frá 50 til 1.000 króna og brot gegn tölulið- um 3 til 7 varðar sektum að upphæð 25 til 500 króna. Ávarp til íslendinga Blaðamannafélagið virðist hafa verið talsvert virkt sem félag fyrstu ár sín. í nóvembermánuði árið 1906 birtu nokkrir félaganna „Ávarp til íslend- inga“. Þetta voru 6 ritstjórar áhrifamiirilla lands- málablaða og þar skýra þeir svo frá að þeir hafi komið sér saman um grundvallarkröfur þær, sem íslendingum beri að gera, þá er gengið er til samn- inga um réttarstöðu íslands. Ávarpið vakti mikla athygli og er það í umræðu manna almennt nefnt ,blaðamannaávarpið“. Þótti eigi litlum tíðindum sæta er gömul andstæðingablöð eins og til dæmis Þjóðólfur og ísafold, skipuðu sér undir sameigin- legt merki í jafnmiklu stórmáli. Ávarpið var svo- hljóðandi: „Vegna þess hvernig stjórnmál íslands nú horf- ir við, höfum við undirritaðir stjórnendur íslenzkra blaða komið oss saman um, að veita fylgi vort og styðja að því, að ákveðin verði staða íslands gagn- vart Danmerkurríki svo sem hér segir: Island skal vera fijálst sambandsland við_ Dan- mörku, og skal með sambandslögum, er Island tekur óháðan þátt í, kveðið á um það, hver mál- efni íslands hljóta eptir ástæðum landsins að vera sameiginleg mál þess og ríkisins. í öllum öðrum málum skulu íslendingar vera einráðir með kon- ungi um löggjöf sína og stjórn, og verða þau mál ekki borin upp fyrir konung í ríkisráði Dana. Á þessum grundvelli viljum vér ganga að nýjum lög- um um réttarstöðu Islands, væntanlega með ráði fyrirhugaðrar millilandanefndar. En eins og vér álítum brýna nauðsyn þess, að blöð landsins láti nú almenning hér á landi vita það, að vér viljum vinna saman að því, að búið verði með lögum þannig lagaða réttarstöðu ís- lands, eins er það og sannfæring vor, að þeim málstað verði greiðlegar sigurs auðið þess eindregnar og al- mennar, sem þjóð vor lætur í ljós samhuga fylgi sitt við þessa meginstefnu, hvar sem kemur til hennar kasta. Vér erum á þeim tímamótum, að einnig vor út á við í þessu máli er skilyrði velferðar vorrar og þjóðarsóma; og fyrir því viljum vér skora á landsmenn að halda nú fast fram og án ágrein- ings þessum undir- stöðuatriðum hinna væntanlegu nýju sam- bandslaga. Löggjafarfulltrúar landsins hafa komið fram sem einn maður erlendis í þessu máli. Blöð íslands og opin- berar raddir almenn- ings þurfa að eiga að koma fram á sama hátt, og vér treystum því, að þjóðin muni öll láta á sér finna, að hún vilji taka í sama streng með hveijum þeim hætti, er henni veitist færi á að lýsa yfir skoðun sinni Reykjavík, Bessastöðum og Akureyri 12. nóv- ember 1906.“ Undir ávarpið rita: Benedikt Sveinsson, ritstjóri Ingólfs, Björn Jónsson, ritstjóri ísafoldar, Einar Hjörleifsson, ritstjóri Fjallkonunnar, Hannes Þor- steinsson, ritstjóri Þjóðólfs, Sigurður Hjörleifsson, ritstjóri Norðurlands og Skúli Thoroddsen, ritstjóri Þjóðviljans. Friðrik VIII Danakonungur heimsótti síðan Island um mitt sumar 1907 og skipaði þá nefnd til að semja frumvarp um stöðu íslands í ríkinu. Þingvallafundur En ritstjórarnir létu ekki þar við sitja. Þeir efndu til Þingvallafundar um sjálfstæðismálið og bláhvíti fáninn var „löghelgaður“ á Lögbergi. Boðað var til fundarins 29. júní og var hann sá langfjölmenn- asti allsheijarfundur, er nokkru sinni hafði þá verið haldinn á Þingvöllum, en slíkir fundir höfðu hafizt þar 60 árum áður. Fundinn sóttu 92 fulltrúar allra sýslna landsins, nema tveggja. F'undinn sóttu menn úr ýmsum stjómmálaflokk- um, en „þó einkum þeir, sem halda vilja fram hinum fyllstu kröfum vorum á hendur Dönum í væntanlegum samningum“, segir í Öldinni okkar af fundinum. Áður en fundurinn hófst, hélt Bjami Jónsson frá Vogi ræðu fyrir bláhvíta fánanum ís- lenzka að Lögbergi og „löghelgaði" hann þar. Síð- an var gengið til fundarstarfa. Bjöm Jónsson, rit- stjóri ísafoldar, setti fundinn með ræðu og gat verkefnis þess, er fyrir lægi. Fundarstjóri var val- inn Sigurður Gunnarsson prófastur. Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur: a. Fundurinn krefst þess, að væntanlegur sátt- máli við Dani um afstöðu landanna sé gerður á þeim grundvelli einum, að ísland sé fijálst land í konungssambandi við Danmörku, með fullu jafn- rétti og fullu valdi yfir öllum sínum málum. En þeim sáttmála má hvor aðili um sig segja upp. Fundurinn mótmælir allri sáttmálsgerð, sem skemmra fer, og telur þá eigi annað fyrir höndum,"^-- en skilnað landanna, ef eigi nást samningar, sem nefndir voru. b. Fundurinn telur sjálfsagt, að ísland hafi sér- stakan fána, og fellst á tillögur stúdentafélagsins um gerð hans. c. Fundurinn krefst þess að þegnaréttur vor verði íslenzkur. Sökum þess að Alþingi var eigi rofíð, þegar afráðið var að skipa samninganefnd í sjálfstæðis- málinu, skorar fundurinn á Alþingi og stjþrn að sjá um, að nefndin verði eigi skipuð fyrr af Íslands hálfu, en kosið hefur verið til Álþingis að nýju. Blaðamannafélagið, stéttarfélag blaðamanna * Talið er að starfsemi Blaðamannafélagsins hafi lagzt í einhvers konar dvala, er Björn Jónsson varð ráðherra snemma árs 1909. Eftir hatramar deilur um skeytasendingar ákveða svo aðstandend- ur Dagblaðsins Vísis og fleiri að endurreisa Blaða- mannafélagið árið 1915. Morgunblaðsmenn viður- kenndu ekki þetta félag og töldu það fréttaskeyta- samlag andstæðinga sinna í deilum um frétta- skeyti frá útlöndum. Engu að síður gengu um 20 manns í félagið endurreist. Blaðamenn Morgun- blaðsins og Isafoldar voru þó ekki með fyrr en félagið var endurreist á ný árið 1918 og um 1920 verður félagið félagi í samtökum norrænna blaða- manna. Síðar gerðist félagið aðili að alþjóðasamtök- um_ blaðamanna. Á þessum árum var Blaðamannafélag íslands ekki orðið að stéttarfélagi, þótt það berðist fyrir ýmsum hagsmunamálum blaðanna og blaðaútgáfu. * Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, lét sér til að mynda talsvert annt um félagið og var í því fyrst framan af eða unz hann dró sig í hlé upp úr miðri öldinni, þá aðallega vegna þess að honum fannst fé- lagið vera að breytast í stéttarfélag blaða- manna. Hann var i raun báðum megin við borðið sem einn aðal- eigenda blaðsins ogf' stjómarmaður í Ár- vakri, útgáfufélagi þess. Á þessum ámm voru stjómmálaátök milli blaðanna oft hatröm og hið gamla upphaf Blaðamannafé- lagsins, að menn meiddu ekki í orðum hver annan hafði breytzt. Siðareglur voru þó við lýði, þótt í öðru formi væru. En pólitíkin skapaði vand- kvæði og lengi vel var sú regla höfð að for- menn félagsins voru^- aðeins kjömir tii eins árs í senn og þeir skiptust í milli blað- anna eftir ákveðinni hringreglu. Þannig gegndi Morgunblaðsmaður formennsku eitt árið, Alþýðublaðsmaður annað, Vísismaður hið þriðja, Þjóðviljamaður hið fjórða, þá Tímamaður o.s.frv. unz aftur kom að Morgunblaðsmanninum. Því gegndi hver maður formennskunni aðeins í eitt ár um langt árabil og líklegast hefur aldrei þetta tíma- bil sami maður aftur verið kjörinn formaður frá sama blaði. Formannshópur Blaðamannafélags ís- lands er því orðinn æði stór í gegnum tíðina. Síð- asti formaðurinn, sem kjörinn var eftir þessari reglu sat til ársins 1978 og frá því ári hafa aðeins þrír menn gegnt formannsembættinu. Endalok þessarar hringskiptareglu urðu, erS málgögn stjórnmálaflokkanna týndu_ tölunni og félagið breyttist í hreint stéttarfélag. Á síðari stig- um voru ljósmyndarar og teknir inn í félagið, próf- arkalesarar og yflrleitt allir þeir, sem vinna að útgáfumálum blaðanna á ritstjórnum þeirra, svo og frétta- og dagskrárgerðarmenn í sjónvarpi og útvarpi nema á ríkisíjölmiðlunum. í fé- laginu eru nú um 450 manns, og hefur fjölgað stórum á síðasta hálfum öðrum áratug. Á skrifstofu þess starfa þrír starfsmenn í hlutastarfi að meðtöldum formanni félagsins. Félagið á nú hluta af húseign í Síðumúla 23, á lítið raðhús í Glerárhverfi á Akureyri, sem notað er sem orlofs- bústaður, og tvo bústaði á það í Brekkuskógi 'S- Biskupstungum. Félagið hefur haldið upp á aldaraf- mælið þessa viku með kvöldvökum á Sóloni ísland- usi í Bankastræti og á laugardag verður hátíðar- skemmtun á Hótel Islandi. Það er skemmtileg til- viljun, að fyrir réttum 100 árum var félagið stofn- að á Hótel íslandi, sem stóð á horni Aðalstrætis og Austurstrætis og brann til grunna árið 1944. Fyrir réttum 10 árum var 90 ára afmælisfagnaðu^ félagsins vígsla hins nýja Hótels íslands. Igglpgifv ^ vr **T T pfi "rL^-fí&r, ~ Ev ; 'JÁJjSu uww -i J***f*vipi ********** % IgSPúíT’1 - ■ BREF Jóns Olafssonar er dagsett 18. nóv- ember 1897 og þar boðar hann til stofnfundar- ins daginn eftir. Félagið hefur verið endur- reist tvisvar sinnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.