Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 D 43
J
farið vaxandi. Allt eru þetta vís-
bendingar um að atvinnulífið sé
komið á rétta braut og að hagur
þjóðarinnar fari batnandi. Ef til
vill eru þessi umskipti hvergi eins
greinileg og í mannvirkjagreinum,
enda var ástandið þar verst. Þar
er nú meira um að vera en undan-
farin tíu ár.
Teflt á tæpasta vað
Kjarasamningar hafa verið
gerðir til óvenju langs tíma sem
vekur vonir um að friður muni ríkja
á vinnumarkaði fram yfir aldamót.
Hér er þó ef til vill ekki allt sem
sýnist. Þegar þetta er skrifað er
algjör óvissa um hvernig til tekst
með kjarasamninga sjómanna. Enn
er því ekki tryggður vinnufriður á
öllum sviðum atvinnulífsins. Þeir
kjarasamningar sem gerðir voru á
almenna markaðinum á fyrri hluta
ársins fólu í sér umtalsverðar
launahækkanir umfram það sem
gerist í helstu viðskiptalöndum
okkar. Samkvæmt mati Seðla-
bankans munu laun á almennum
vinnumarkaði hækka um 5,6% milli
ársmeðaltala 1996-1997, en laun
í helstu viðskiptalöndum um 3,0%.
Fyrir næsta ár eru spár um launa-
hækkanir hér á landi 6,6% saman-
borið við 4,2% í viðskiptalöndunum.
Þessi þróun felur vissulega í sér
versnandi samkeppnisstöðu inn-
lendra fyrirtækja.
Ljóst er að sá slaki sem varð í
íslenska hagkerfinu á árunum eftir
1990 er nú horfinn og verulegrar
aðgæslu og aðhalds er þörf ef
tryggja á áframhaldandi stöðug-
leika. Samkvæmt könnun á at-
vinnuástandi í september kemur
fram mikill vilji í nær öllum grein-
um til að fjölga starfsfólki og hef-
ur eftirspurn ekki verið svo mikil
síðan í september 1991. Vegna
harðrar verðsamkeppni geta fyrir-
tækin ekki látið kostnaðarhækkan-
ir velta út í verðlagið í sama mæli
og áður. Ástæðan er sú að verð-
hækkanir skaða markaðsstöðu
þeirra, sem í flestum tilfellum hef-
ur tekið langan tíma að byggja
upp. Kostnaðarhækkanir, sem ekki
tekst að mæta með hagræðingu
og aukinni framleiðni, koma niður
á afkomu fyrirtækjanna. Svigrúm
fyrirtækja til að mæta kostnaðar-
hækkunum umfram framleiðni-
aukningu, án þess að velta þeim
út í verðlagið, er uppurið enda af-
koman orðin léleg bæði í sögulegu
og alþjóðlegu samhengi.
Svigrúm fyrir atvinnulífið
Til þess að koma í veg fyrir
þenslu verða stjórnvöld að leggja
sig fram um að minnka sín um-
svif. Samneysla hér á landi er
meiri en víðast hvar eða 21% af
landsframleiðslu samanborið við
16% að meðaltali í OECD ríkjunum.
Með því að draga úr vexti sam-
neyslunnar getur hið opinbera
hæglega skapað nægilegt rúm til
að atvinnulífið geti dafnað. Þetta
á auðvitað ekki síður við um sveit-
arfélögin enda er um fjórðungur
opinberra útgjalda kominn í hendur
þeirra eftir að þau tóku við grunn-
skólanum. Áhrif aðgerða þeirra á
vinnumarkaðinn og hagkerfið í
heild eru því orðin umtalsverð og
tímabært að þau axli samsvarandi
ábyrgð í hagstjórn.
Mennt er máttur
En nú að allt öðru. í stefnumót-
unarvinnu Samtaka iðnaðarins
hefur greinilega komið fram mikil
áhersla á fræðslu- og menntamál.
Þess sér líka stað í starfi Samtak-
anna þar sem fræðslumál og
endurmenntun verða sífellt fyrir-
ferðarmeiri þáttur. Fáum blandast
hugur um að við íslendingar erum
eftirbátar annarra þjóða hvað varð-
ar fjölbreytni iðn- og starfsmennt-
unar. Seinustu 10-20 árin hafa
átt sér stað grundvallarbreytingar
í iðnnámi á Norðurlöndunum.
Helstu breytingarnar hafa orðið í
stærri greinum, en minni greinarn-
ar frekar setið á hakanum. Þetta
á sér þá eðlilegu skýringu að erfið-
ara er að halda uppi kennslu í fá-
mennum iðngreinum en þeim fjöl-
mennari vegna kostnaðar. Þetta
varð til þess að Norræna ráðherra-
ráðið, ipennt amálaráðuneyti Norð-
urlandanna fimm og norræn sam-
tök iðn- og handverksgreina hafa
sl. þrjú ár unnið að samstarfsverk-
efni til að efla menntun í einstökum
fámennum iðngreinum. Markmiðið
er að koma á samstarfsneti um
skólahald. Hugmyndin er að koma
á fót í hveiju landi kennslumið-
stöðvum einstakra iðngreina sem
munu þjóna þörfum allra Norður-
landanna. Það kann að koma á
óvart að erfiðlega gangi að halda
uppi kennslu í ýmsum greinum á
hinum Norðurlöndunum og reynd-
ar um alla Evrópu vegna fámennis.
Samtök iðnaðarins ásamt
menntamálaráðuneytinu hafa lagt
áherslu á að bjóða fram okkar
þekkingu og aðstöðu sem nýtast
mætti fámennum iðngreinum á
öðrum Norðurlöndum, enda höfum
við mikið að sækja í þetta starf.
Ég vil að lokum óska félags-
mönnum Samtaka iðnaðarins og
landsmönnum öllum velfarnaðar á
nýju ári og þakka samstarfið á
árinu sem er að líða.
Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB
Knúið á um
réttinda- og
kjarabætur
í UPPHAFI árs voru öll teikn á
lofti um að árið yrði íslensku efna-
hagslífi gjöfult; ytri skilyrði já-
kvæð, aflabrögð með eindæmum
góð, verðlag á afurð-
um þjóðarinnar hag-
stætt og í samræmi
við þetta voru spár um
hagvöxt. Nú hefur
komið á daginn að
hagvöxtur hefur
reynst jafnvel enn
meiri en spáð var í
upphafi ársins eða
4,5% og er það talsvert
umfram efnahags-
vöxtinn í flestum
grannlöndum okkar.
Góðærið til allra
í ársbyijun hafði
hafist undirbúningur
kjarasamninga og
ekki að undra að við
þessi hagstæðu skilyrði væri mál-
flutningur samtaka launafólks
fyrst og fremst á þá leið að tryggja
hlutdeild launafólks í efnahagsupp-
sveiflunni, góðærið til allra varð
kjörorð verkalýðshreyfingarinnar.
í kjarasamningunum var lagt
höfuðkapp á að hækka kauptaxta
auk þess sem leiða var leitað til
sð treysta kaupmátt. Um mitt ár
var sett á laggirnar verðlagseftirlit
í samstarfi samtaka launafólks og
Neytendasamakanna og hefur það
starfað af krafti síðan. Þá lögðu
samtök launafólks mikið kapp á
að hafa áhrif á ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í skattamálum. Ekki
náðist samkomulag í jaðarskatta-
nefnd ríkisstjórnarinnar þar sem
verkalýðshreyfingin átti aðild og
varð niðurstaðan sú að ríkisstjórnin
boðaði einhliða skattabreytingar
sem færðu hinum tekjuhærri fleiri
skattkrónur í afslátt en hinum
tekjulægri. Þetta var í samræmi
við fyrri áherslur ríkisstjórnarinnar
í skattamálum og vegur þar þyngst
fjármagnstekjuskatturinn sem
byggði á því að smásparendum var
þröngvað til að niðurgreiða skatt-
afslátt til umsvifamikilla fjár-
magnseigenda og fjárfesta.
Enda þótt samtök launafólks
væru gagnrýnin á skattastefnu rík-
isstjórnarinnar og litu almennt
ekki á áform hennar um almenna
tekjuskattslækkun sem hluta
kjarasamninga var það engu að
síður tekið óstinnt upp þegar ríkis-
stjórnin ætlaði að hætta við hluta
áður boðaðra skattabreytinga.
Hörð viðbrgögð við stefnubreyt-
ingu ríkisstjórnarinnar ber öðru
fremur að líta á sem kröfu til
stjórnmálamanna að standa við
gefin fyrirheit og hreyfa ekki við
forsendum sem launafólki hefur
verið sagt að það geti gengið út
frá sem vísum.
Samneyslan verði efld með
réttlátari skattheimtu
Staðreyndin er svo aftur sú að
innan samtaka launafólks hefur
verið varað við almennum skatta-
lækkunum sem leið til kjarabóta.
Samtök launafólks hafa viljað að
byrðunum væri réttlátar skipt en
þau hafa jafnframt lagt áherslu á
að skattbreytingar verði ekki til að
svelta almannasjóði sem fjármagna
velferðarþjónustuna. Fjárþröng þar
kemur launafólki í koll, rýrir lífs-
kjörin og grefur undan jöfnuði í
þjóðfélaginu. í þessu sambandi er
rétt að minnast þess að skatttekjur
hins opinbera eru lágar hér á landi
eða um 31% af vergri landsfram-
leiðslu á móti 41% á Norðurlöndum
og 47,8% í Evrópuhluta OECD.
Almennur tekjuskattur er mun
lægri hér en í þessum ríkjum en
mest sláandi er munurinn þegar
kemur að skattlagningu fyrirtælqa.
Þannig eru launa- og tiygginga-
gjöld hér á landi 2,5% af vergri
landsframleiðslu á móti 8,6% á
Norðurlöndunum og 14% í Evrópu-
ríkjum OECD, og tekjuskattur fyr-
irtækja er hér 1% af vergri lands-
framleiðslu, 2,5% á Norðurlöndum
og 3,4% í Evrópuríkjum OECD. Á
undanförnum árum hafa verið gerð-
ar umfangsmiklar breytingar á
skattkerfínu á þá lund að létt hefur
verið sköttum af fyrirtækjum og
byrðarnar færðar yfír á launafólk.
í ljósi alls þessa hlýtur það að verða
verkefni samtaka launafólks að
beita sér fyrir breyttum áherslum
í skattkerfinu launafólki í hag í stað
þess að draga úr skattheimtu og
þar með tekjustreymi til almanna-
þarfa.
Krafa um félagslega
samninga og
opið kerfi
Ekki eru öll kurl
komin til grafar enn í
frágangi kjarasamn-
inga hjá hinu opinbera
og er mikilvægt að
samtökum launafólks
takist að stuðla að því
að samningar innan
einstakra stofnana
verði á félagslegum
grunni og samkvæmt
skýrum umsömdum
reglum. Því miður
bendir margt til þess
að framundan sé löng
og ströng barátta hvað þetta varðar
því við samningaborðið hefur launa-
fólk alltof víða mætt þröngsýnum
viðhorfum forstöðumanna sem virð-
ast staðráðnir í að koma á launa-
leynd. Þessi afstaða þarf engum að
koma á óvart því launaleyndin er
forsenda forstjóravaldsins. Hið
opna kerfí þar sem ekkert er falið
er hins vegar forsenda félagslegra
samninga og þess að unnt verði að
draga úr launamisrétti og þar með
launamisrétti kynjanna.
Það er ljóst að baráttan fyrir
opnu samfélagi verður mikilvægur
þáttur í réttindabaráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar á komandi árum
og hér erum við að fást við einn
anga þeirrar baráttu. Þegar gætir
aukinnar tilhneigingar til að loka á
upplýsingar sem hafa verið öllum
opnar og ein ástæðan fyrir ákafa
margra forsvarsmanna stofnana í
almannaeign að þær verði gerðar
að hlutafélgögum er einmitt sú að
þannig komast þeir úr sviðsljósinu,
undan kastljósi almennings með
kjör sín og hlunnindi. Á fínu máli
heitir þetta að komast í eðlilegt
rekstrarumhverfi.
Mikilvægir áfangar -
lífeyrismál
Á árinu hefur barátta launafólks
skilað mikilvægum áfangasigrum.
í fyrsta lagi tókst að hnekkja mjög
alvarlegri aðför að félagslegum líf-
eyrissjóðum en fjármagnsfyrirtæki
sóttu hart að fá í sínar hendur líf-
eyrissparnað launafólks. Enda þótt
nýsamþykkt rammalöggjöf um líf-
eyrissparnað beri þess vott að um
málamiðlun er að ræða er hér tví-
mælalaust um mikilvæga lagasetn-
ingu að ræða. Og það sem meira
er ríkisstjórn og; Alþingi viður-
kenndu í verki að löggjöf um lífeyr-
isréttindi verður ekki sett nema
með samþykki samtaka launafólks.
Þetta er eðlilegt því lífeyrisréttindi
snerta þjör og réttindi sem launa-
fólk hefur barist fyrir og bundið í
samninga en auk þess er mjög mik-
ilvægt að festa sé í lífeyrismálum
þannig að viðræður fari fram og
samkomulag gert áður en ráðist er
í breytingar. Enda þótt mikilvægir
áfangar hafí náðst í lífeyrismálum
á undanfömum tveimur árum eru
enn ófrágengin mál á þessu sviði
sem bíða komandi árs og er þar
átt við lífeyrismál starfsmanna
margra sveitarfélaga sem reka
sjálfstæða sjóði en framtíðarskipan
þeirra er enn ófrágengin.
Fæðingarorlof feðra og
stytting vinnutíma
Framfaraspor var stigið með því
að tryggja feðrum sjálfstæðan rétt
til fæðingarorlofs. Enda þótt aðeins
sé um að ræða hálfan mánuð er
þetta mikilvægur áfangi og ber að
fagna honum. Á árinu var stigið
annað skref sem mun hafa miklar
breytingar í för með sér þegar fram
líða stundir og er þar vísað til sam-
komulags sem verkalýðshreyfíngin
gerði við atvinnurekendur um stytt-
ingu vinnutíma. Þetta er angi af
evrópskri samhæfingu en mun
sennilega hafa meiri áhrif hér á
landi en víðast hvar annars staðar
því í íslensku þjóðfélagi hefur
vinnutími verið óhóflegri en víðast
hvar annars staðar. Það er fjöl-
skylduvænt að stytta vinnutímann
og þegar saman fer aukin ábyrgð
feðra í barnauppeldi með sjálfstæðu
fæðingarorlofi þeirra og stytting
vinnutímans þá mun draga úr
kynjamisrétti á vinnumarkaði.
Almannatryggingar og
landbúnaður
Af öðrum áföngum ber að fagna
að við þessi áramót steig ríkisstjórn-
in það mikilvæga skref að lögfesta
að bætur almannatrygginga skuli
taka mið af launaþróun en aldrei
verða lakari en almenn verðlagsþró-
un. Þetta þýðir að öryrkjar og lífeyr-
isþegar munu ekki verða fýrir
kjaraskerðingu ef kaupmáttur
launa rýrnar. Hins vegar verður
áfram verk að vinna fyrir samtök
launafólks, aldraðra og öryrkja að
halda stjómvöldum við efnið og
tryggja þessum hópum hlutdeild í
auknum kaupmætti launataxtans
þegar um slíkt er að ræða. Frá því
ríkisstjórnin ákvað að taka bætur
almannatrygginga úr sambandi við
þróun launataxta hafa fyrmefnd
samtök lagt áherslu á að hlutur
aldraðra og öryrkja verði ekki fyrir
borð borinn. Aðgerðir ríkisstjómar-
innar nú sýna að dropinn holar
steininn en meira þarf ef duga skal.
Á árinu hafa fulltrúar launafólks
víða komið við sögu og er ástæða
til að lýsa ánægju yfir því að enn
skuli hafa náðst víðtækt samkomu-
lag um breytingar á sviði landbún-
aðarmála, að þessu sinni mjólkur-
framleiðslu, og er það sigur fyrir
þá sem vilja að kerfisbreytingar séu
gerðar á yfirvegaðan og skipulegan
hátt í stað þess að láta duttlunga
markaðarins stýra för með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum í lífskjörum
Qölda fólks.
Réttindi atvinnulausra
verði tryggð **
Það er áhyggjuefni að þrátt fyrir
upppsveifluna í efnahagslífínu
ganga enn á fímmta þúsund Islend-
ingar atvinnulausir. I nýjum lögum
um atvinnuleysistryggingar og
vinnumarkaðsaðgerðir er að finna
þætti til skerðingar á kjörum at-
vinnulausra sem samtök launafólks
mótmæltu harðlega. Hins vegar er
í þessum lagabálkum einnig að
fínna ýmsa réttarbót sem fulltrúar
launafólks höfðu beitt sér fyrir við
lagasmíðina. Mikilvægt er að þaniij^
ig verði búið um hnúta að það sem
til framfara horfir í þessum lögum
verði meira en orð á blaði. Fyrirsjá-
anlegt er að atvinnulaust fólk kunni
að þurfa á aðstoð og réttindagæslu
að halda í nýju lagaumhverfi og er
brýnt að samtök launafólks efli
tengslin við atvinnulausa félags-
menn sína og búi sig undir að veita
þeim aðstoð í erfíðum álitamálum
sem upp kunna að koma í tengslum
við framkvæmd laga um vinnu-
markaðsaðgerðir. Öll félög og sam-
tök launafólks þurfa að hyggja að
þeim gerbreyttu forsendum sem nú
eru uppi í kjölfar nýrra laga. Ný lög
kalla á ný vinnubrögð.
Samtök launafólks
og framtíðin
Á árinu hefur nokkuð verið rætt
um mikilvægi þess að endurmeta
starf samtaka launafólks. Víða
innan hreyfíngar launafólks hafa
komið fram hugmyndir og tillögur
um að teknar verði upp viðræður
um leiðir til að styrkja verkalýðs-
baráttuna og gera skipulagða
hreyfingu launafólks að enn kröft-
ugri baráttufylkingu en hún er nú.
Meðal annars hefur þeirri hug«4.
mynd verið hreyft að undirbúið
verði eins konar stjórnlagaþing
samtaka launafólks þar sem skipu-
lag hreyfingarinnar allrar yrði end-
urmetið frá rótum. Mikilvægt er
að menn komi að þessari umræðu
án fordóma í farteskinu og með
það eitt að leiðarljósi að efla sam-
takamáttinn. Það er margt sem
gefur ærið tilefni fyrir samtök
launafólks að hugsa sinn gang. í
því sambandi er mikilvægast að
hafa í huga að samfélagið þarf á
sterkri verkalýðshreyfingu að
halda til þess að stuðla að heil-
brigðu og réttlátu þjóðfélagi;
verkalýðshreyfingu sem er sjálf-
stæð og sjálfri sér samkvæn^
verkalýðshreyfingu sem er óháð
stjórnmálaflokkum en kappkostar
að stjórnmálaflokkar reisi stefnu
sína og afstöðu á viðhorfum sem
frá hreyfingu launafólks eru runn-
in; verkalýðshreyfingu sem sam-
fylkir með þeim hópum í þjóðfélag-
inu sem beita sér fyrir jöfnuði og
félagslegu réttlæti. Það er þörf á
slíkri verkalýðshreyfingu. Og slík
hreyfíng á framtíðina fyrir sér.
Thórlo
HEILSUSOKKARISIIR
Mest seldu HEILSUSOKKARNIR í Bandaríkjunum
_
Einstakir útivistarsokkar
Hannaðir af bandarískum fótasérfræðingum
Nýtt líf með Thórlo
Lagaðir fullkomlega að fætinum og styrktir undir hæl og il
ÚTSÖLUSTAÐIR
Seglagerðin Ægir • Sportkringlan • Ellingsen • Versl. Hjólið
Hestamaðurinn • Músík & Sport • Kaupfélög og Apótek
Ögmundur
Jónasson