Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBERÍ 1997 D 25
ALVER RIS A GRUNDARTANGA
Morgunblaðið/RAX
íj; J SAMNINGAR Columbia Ventures Corporation við íslenska ríkið,
gíj Landsvirkjun og veitustofnanir Reykjavíkurborgar um bygg-
ingu álvers Norðuráls á Grundartanga voru undirritaðir 7.
ágúst. Áætlað er að álframleiðsla hefjist í júní og er unnið hörð-
um höndum að byggingu álversins og nauðsynlegra virkjana.
Myndin var tekin þegar starfsmenn Istaks luku við að steypa
upp 48 metra háan og 33 metra breiðan geymi undir súrál og
tók verkið aðeins 16 daga. Á árinu var lokið við stækkun álvers-
ins ÍSAL í Straumsvík og samið um stækkun Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga. Jafnframt hefur verið unnið að at-
hugun á fleiri stóriðjukostum. Þannig standa yfír viðræður við
norska fyrirtækið Hydro Aluminium um byggingu stórs álvers,
sem væntanlega verður byggt í Reyðarfirði, ef samningar nást,
og tilheyrandi stórvirkjana á Austurlandi.
ÞRÍR ungir menn, Björn Ólafsson,
Einar K. Stefánsson og Hallgrímur
Magnússon, náðu fyrstir Islendinga
tindi Everst, hæsta Ijalls heims, hinn
21. maí.
Ferð þeirra félaga á tindinn hófst 23.
mars þegar lagt var af stað frá íslandi en
7. apríl hófst aðlögun og gangan upp ljall-
ið. Fyrsta tilraun til að ná tindinum var
ISLENDINGAR
A TINDI EVEREST
gerð 19. maí en þá urðu þeir að hverfa frá
vegna veðurs. Daginn eftir var haldið af
stað á ný og tindinum náð kl. 7.15 að
morgni miðvikudagsins 21. maí.
Meðal þeirra sem óskað hafa fjall-
göngumönnunum til hamingju með
árangurinn er Sir Edmund Hillary
sem fyrstur komst á tindinn árið
1953. í heillaóskaskeyti forseta fslands
segir meðal annars að Islendingar hafi
fylgst stoltir með þessari afreksför, hún
verði lengi í minnum höfð.
KARL SIGURBJORNSSON
KJORINN BISKUP ISLANDS
K7
SERA Karl Sigurbjörnsson, sóknarprestur
í Hallgrímsprestakalli, var kjörinn biskup
Islands. Urslit í biskupskjöri lágu fyrir í
september og tekur Karl við af Ólafi
Skúlasyni nú um áramót.
Herra Ólafur Skúlason biskup vígði eft-
irmann sinn í Hallgrímskirkju sunnudag-
inn 23. nóvember. Doktor Signrbjörn Ein-
arsson færði son sinn, herra Karl Sigur-
björnsson, í biskupskápu, gullofinn kosta-
grip frá árinu 1898. Séra Sigurður Sig-
urðsson vígslubiskup fylgdist með ásamt
nálega öllum prestum landsins og voru
kirkjugestir alls yfir 1.200.
Morgunblaðið/Golli
TILFINNINGAÞRUNGNIR
ENDURFUNDIR
BANDARÍSK telpa á fimmta aldursári,
Zenith Helton, var í janúar tekin úr hönd-
um móðurömmu sinnar og eiginmanns
hennar, Connie Jean og Donald Hanes, að
kröfu bandarískra lögregluyfirvalda.
Hanes-hjónin voru sökuð um að hafa
numið stúlkuna á brott frá móður hennar
og falið sig hér á landi. Það urðu fagnað-
arfundir þegar Kelly Helton hitti Zenith
dóttur sína í bandaríska sendiráðinu.
Hanes-hjónin voru handtekin vegna
málsins en sleppt að lokinni skýrslutöku.
Kelly Helton fór með dóttur sína til Banda-
rikjanna. Kröfu bandarískra yfirvalda um
framsal Connie Jean og Donald Hanes hef-
ur verið hafnað af íslenskum dómstólum
og dvelja þau enn hér á landi.
SIÐASTA HAFTIÐ I HVALFJARÐARGONGUM SPRENGT
SÍÐASTA haftið í Hvalíjarðargöngum var
sprengt 3. október og ók Halldór Blöndal
samgönguráðherra eftir það í gegnum göng-
in, fyrstur manna. Framkvæmdir við göngin
eru langt á undan áætlun. Upphaflega var
áætlað að sprengja haftið í júlí á næsta ári,
en nú eru horfur á að hægt verði að opna
göngin fyrir uniferð á þeim tíma.
Morgunblaðið/Kristinn