Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 28
JJ8 D MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Liðið íslenskt rokkár var ár nýrrar dögunar og ytra var einnig r sitthvað gott á seyði að mati Árna Matthías- sonar sem tínir til þær skífur sem honum þótti merkastar á árinu, innlendar sem erlendar í handahófsröð |H t Jt sólóskífa Bjarkar Guðmundsdóttir sýnir að hinar tvær voru æfingar; aðeins var verið að dagrétta og hreinsa út hugmyndir og strauma. Á Homogenic náði Björk í skottið á sjálfri sér og hélt fastar um stjórnvölinn en áður með frábærum árangri. Tónlistin var fjölbreyttari en forðum, þrátt fyrir yfirlýstan tilgang í titlinum, strengjaoktett kom sterkur inn. LIFE AFTER DEATH TViFðll; seinni breiðskífa Biggie Smalls hefst á því að Biggie liggur banaleg- una og Sean Puff Coombs situr grátandi við rúmið. Sem hann harmar hlutskipti vinar síns heyr- ist hvar hjartalínuritið hættir að ganga, en á meðan skífan var í framleiðslu var Biggie einmitt skotinn til bana af ókunnum óþokka. Víst hefur Coombs náð að hagnast á fráfalli félagans með metsmáskífu helgaðri honum, en ekki má gleyma því að Biggie var framúrskarandi rappari og platan tvöfalda bráðgóð og ekki bara í Ijósi sögunnar. LOF MER AO FALLA AO ÞINU EYRA Maus kom sá og sigraði með þriðju breiðskífu sinni, útpældri og -hugsaðri þar sem hvert lagið var öðru sterkara. Á plötunni má heyra að sveitin er í örri þróun þrátt fyrir langan starfsaldur; lagasmíðar eru hnitmiðaðri og um leið létt- ari, textar eru mergjaðir og flutn- ingur frábær. Hljómborðsleikari Cure kom við sögu, en skipti í raun litlu máli. ICAN HEAR THE HEART BEATING AS OIIIE BABBABISI(A;°kSvSo bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennimir og til að æra óstöðugan að henda reiður á útgáfum sveitar- innar eða hliðarverkefnum á fjöl- mörgum árum. Framúrskarandi breiðskífa Yo La Tengo sem Matardor-útgáfan gaf út, er dæmi um þá endurnýjun sem er að verða í bandariskri nýbylgju. FJOLLISTAMABURIHN Birgir Örn Thoroddsen sem kall- ast Curver sendi frá sér plötu þrungna tölspeki og merkingu, sjöorðabók tónlistarmannsins þar sem 7 var hvarvetna nálæg. Hann þurfti þó ekki að grípa til neinnar sölumérinsku enda er platan bráðskemmmtileg, sér- staklega fimmtudagur, og hvar- vetna vísanir og skemmtilegar hugmyndir. Smekkleysu, sjö diskar með Kvartett O. Jóns- son & Grjóna, Sigurrós, PPPönk, Soðin fiðla, Bag of Joys, Berglind Ágústsdóttir, Andhéri og Á túr, verður að telja það helsta sem kom út á árinu hérlendis; sum- ar skífurnar stuttar aðrar í fullri lengd og vi'st voru þær misjafnar að gæðum. Þær gáfu þó fágætt færi á að kynnast því helsta sem er á seyði í íslenskri nýtónlist og um leið að heyra í hljómsveitum fram- tíðarinnar. Sumar sveitirnar eiga sjálf- sagt ekki eftir að láta til sín heyra í framtíðinni eins og gengur, en útgáfuröðin Skært lúðrar u hljóma er til marks um nýja dögun í íslenskri rokktónlist Holmes tók sig upp og hélt tíl New York með segulband í farteskinu. Þangað kominn hljóðritaði hann furðufugla, krakkhausa og flækinga, hélt síðan heim til Bretlands og setti sam- an eftirminnilega plötu og frábæra. Sam- an við tónlistina fléttar hann bútum úr New York ferðinni eða notar þá til að skapa stemmningu eða sem hugmynd að laglínu. Fyrri skífa Holmes, This Film’s 0 Crap, Let’s Slash the Seats, var góð en þessi margfalt betri. LET'S GET KILLED SKÆRT LUORAR HLJOMA 3 DOLLAR BILL Y'flLL MUtl [A blómstraði vestan H h III hafs á árinu, ekki bara sveitó og óháð, heldur einnig kröftugt rappskotið póli- tískt rokk meðmagnaðri keyrslu. í þeim flokki er bandaríska sveit- in Limp Bizkit sem sendi frá sér fantagóða skífu á árinu, aðdá- endur Rage Against the Machine taki eftir. Bli Lárus Hjálmarsson, w sem stundum kallar sig Dr. Gunna, sannaði á Abbababb að hann er í hópi snjöllustu popplagasmiða. „Prumpulagið" vakti þvílíka hrifn- ingu barnanna og umtal hinna fullorðnu að það hvarf í skuggann hversu platan er vel heppnuð. Hlustið bara á Dodda draug. TRUIR ÞU A ENGLA? hDATI fyrirstanslausa »*•»** I I keyrslu undanfarin ár og fleiri plötur en á verður kastað tölu er Bubbi enn að senda frá sér afbragðsskífur. Trúir þú á engla? var upp full með vel sömdum lögum og óvenju góð- um textum þar sem tæpt var á ýmsu viðkvæmu. Guðmundur Pétursson leggur sitt af mörkum. WHENIWAS BORIM FQR THE 7TH TIME I j2 Q j| ft rokksveitin Corners- OitCðftH hop sýndi að enn er hægt að hræra í þjóðernissúp- unni á Bretlandseyjum og veiða upp góða bita. Á umræddri skífu má heyra allt frá indversku raf- eindapoppi í hreinræktaða sveitatónlist og aldrei er gaman- semin langt undan. Bráðfyndin plata og skemmtileg. WU-TANG FOREI/ER flokkurinn hefur verið áberandi í umfjöllun um allan heim, ekki síst fyrir breiðskífuna tvöföldu sem beðið var með mikilli eftir- væntingu. Víst er hún ekki eins góð og frumraunin, sem er með helstu rappskífum áratugarins, en góð engu að síður og Rza ruddi frá sér hugmyndunum eins og jafnan. FAR ÍQM AEL Guðnason saxófón- Milllll leikari hefur víða leik- ið og hvarvetna vel. Aldrei hefur hann þó náð eins hæðum og á eigin skífu, Fari, þar sem þeir fara og á kostum meðspilarar hans Matthías M.D. Hemstock, Hilmar Jensson og Skúli Sverris- son. Platan er tekin upp í kirkju á Snæfellsnesi sem skapar eftir- minnilega þrungna kyrrð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.