Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
COME TQ ÐflDÐY
TVPMMHM sö?um fer af ÞVI hvað vaki
1 fyrir Richard James, sem kýs
að kalla sig Aphex Twin meðal annars; sumir
segja hann einfaldlega geggjaðan eða með
verulega skerta dómgreind á meðan aðrir
telja hann í hópi höfuðsnillinga. Hvað sem
því líður var stuttbreiðskífa hans Come to
Daddy með eftirminnilegustu plötum ársins
fyrir heillandi laglínur, geðveikislegar raddir
og brotakennda hrynskipan.
UARASHI
Quarashi frá því í fyrra er
með dýrustu safngripum ís-
lenskrar rokksögu sem segir sitt um stöðu
sveitarinnar. Hún brást og ekki vonum aðdá-
enda á fyrstu breiðskífu sinni sem var mergj-
að samkrull rokks, breakbeats og rapps.
Hössi og Steini fóru á kostum og Sölvi
Blöndal var hamrammur við tólin, en Richard
sá um að spasla i sprungurnar. Á skífunni var
og fyrsta alvöru íslenska rapplagið.
HABDIMOBMAL DADDY
hvoru koma fram tónlistarmenn sem
snúa öllu á annan endann og
þannig er því fariö með Squarepusher, öðru
nafni Tom Jenkinson. Hann hlustar á alla
tónlist að sögn, allt frá bíbopi í rafeinda-
steypu, en kýs að semja tónlist og fiytja á
hálfónýtum græjum og þess heldur sem þær
eru ódýrari. Tom Jenkinson, eða bara
Squarepusher, sendi frá sér tvær frábærar
skífur á árinu, en þessi hefur vinninginn.
FLAA VEROLD
í >v I ®1jj ári sendi Magnús Þór Jóns-
™ Ivl son, Megas, frá sér magn-
aða skífu, eins konar De profundis. Fláa ver-
öld er öllu aðgengilegri, en ekki síður beittari
og Magnús lét hnútasvipuna ganga á hrygg
smáborgarans um leið og hann brosti út í
annað. Textamir á plötunni voru magnaðir
og spilamennskan sá til þess að tónlistin var
aðgengilegri en á sfðustu skífu; gaf fyrirheit
um bjarta framtíð.
BEING THERE
R AWFI A R l^yff fi sveitapönksveitin Wilco
UMlttURlll Ullrt sendi frá sér eftirminni-
lega tvöfalda breiðskífu á árinu, rólyndislega
og gripandi plötu, upp fulla með góðum lög-
um og skemmtilega kæruleysislegri spila-
mennsku, líkast því sem sveitarmenn hefðu
verið að heyra lögin í fyrsta sinn í hljóðverinu.
Áður er getið endumýjunar tónmáls nýbylgju-
sveita vestan hafs en álíka átti sér stað með
þær sem sækja á þjóðlegri slóðir.
CENTRAL MAGniETIZM
ÍM|Mjl|D rappsveit lét í sér heyra á árinu,
•"jPJMjw bráðólík þeirri sem fyrr er getið
og nær upprunanum í rappinu. Frumraun
Subterranean var framúrskarandi skemmti-
legt og sveitarmenn, með Rögnu fremsta í
flokki, röppuðu af íþrótt og hugmyndaaugði.
Undirspil var og framúrskarandi vel heppn-
aö, djasskotið með lifandi hryngrunni og líkt
og góðra rappskífa er aðal var eins og hlust-
andinn hefði dottiö inn ( einkaskemmtun.
NEWEORMS
Size og félagar hans í Reprazent
gerðu Drum ‘n Bass að tónlist fyrr
fjöldann, að nútíma popptónlist. Sumir kunna
því eðlilega illa, vilja hafa sitt tónlistarform
fyrir sig, en aðrir taka því fagnandi, því ekki
er hægt að amast við vinsældunum ef tón-
listin er góð. Newforms verður seint kölluð
tilraunaskífa og varla talin byltingarkennd,
margt nýstáriegra á seyði, en hún er einfald-
lega skemmtileg og fjölbreytnin allsráðandi..
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 D 29
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
IkWo^Miywro:
(risiö^iatsKÍ JíL 3
lirwsia <fií UKÉMíte
urval af
d u r u mT
Z»0O |
a
9.00
jgöi
fiS'llíáföna
t>. ÞORGRÍMSSON & CO
ARMUL* 29 • PÓS7HOLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI553 8640 568 6100
BOKHALDSHUGBUNAÐUR
fyrir WIND0WS
Launakerfi
Stimpilklukkukerfi
gn KERFISÞRÚUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. janúar 1998 er 24. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 24 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.252,20
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
• 10. júlí 1997 til 10. janúar 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnaríjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 12. janúar 1998.
Reykjavík, 31. desember 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS
ÓDU EGLU
KHALDI...
HA6KVÆMNI TÍ/AASPARNAPUR ÖRYCCI ÍSLENSKT 06 VANDAÐ
..STEMMII
STÆRÐIN UKA!
Egla bréfabindin fást í 5 mismunandi
stærðum og litaúrvalið eykur enn á
fjölbreytnina. Sem dæmi um
hagkvæmnina má benda á að þau
stærstu taka 20% meira en áður —
en eru samt á sama verði!
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Fyrirtæki geta pantað þær möppur
sem þeim henta með því að hringja
í síma 562 8501 eða 562 8502 — og
möppumar verða sendar um hæl.
ROÐ OC RECLA
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500
Símbréf: 552 8819
Netfang: mulalundur@centrum.is
‘V