Morgunblaðið - 31.12.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 D 5
Fimm manna fjölskylda bjargaðist
úr eldsvoða á Stokkseyri
Nýtt hús rís á
gömlum grunni
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
ARNAR Guðlaugsson með Omar Guðlaug í fanginu, Róbert Daði og Fanný Elísabet í fangi móður sinnar
Aþenu Ómarsdóttur.
FIMM manna fjölskylda, ung
hjón með þrjú börn, bjargað-
ist giftusamlega út úr brenn-
andi íbúðarhúsi á Stokkseyi'i um
mánaðamót september og október.
Reykskynjari vakti heimilisfólkið
og hafði það naumast tíma til ann-
ars en að forða sér út á náttfótun-
um. Húsið brann til kaldra kola og
innbú allt. I dag er fjölskyldan bú-
sett á Selfossi, en uppbyggingin er
hafín. Nýtt hús skal rísa á grunni
þess gamla og fjölskyldan vonast
til þess að geta flutt „heim“ með
vorinu.
„Eg er nú mest að vinna í því
þessa dagana að koma nýju bygg-
ingunni af stað, en það er óhætt að
segja að það ætli að reynast dýrara
heldur en okkur óraði fyrir. Við er-
um þó búin að steypa grunninn og
höldum ótrauð áfram og vonandi
getum við flutt inn í mars,“ sagði
Ai-nar Guðlaugsson heimilisfaðir í
samtali við blaðið.
Ai-nar var á sjónum áður en
óhappið varð og var á bát sem réri
frá Sandgerði. Síðan er búið að
selja bátinn og sjómennskan fyrir
bí í bili að minnsta kosti. Arnar
segist hugsa fyrst og fremst um
bygginguna þessa dagana og spilar
þar úr gi'eiðslum sem fjölskyldan
fékk frá tryggingarfélagi sínu. Það
var ótrúlegt áfall sem á þessa ungu
fjölskyldu var lagt, en Arnar segir
að stuðningurinn og aðstoðin sem
fjölskyldan fékk hafí létt mjög und-
ir á erfiðum tíma.
„Það voni ótrúlega margir sem
buðu okkur liðveislu eða hjálpuðu á
annan hátt, t.d. komu margir fær-
andi hendi með fatnað, sérstaklega
á börnin og það kom sér sannar-
lega vel, því það brann nánast allt
sem brunnið gat,“ sagði Arnar.
Ljóstýra í myrkri
Fyrir kemur að ekki sé allt svo
illt að ekki grilli í eitthvað gott í
sortanum. Sem fram hefur komið
brann nánast allt sem brunnið gat
á heimili Arnars, Aþenu Ómars-
dóttur eiginkonu hans og barn-
anna þriggja, en þau heita Fanný
Elísabet, Omar Guðlaugur og Ró-
bert Daði. En það náði ekki allt að
brenna og það sem óvænt kom
nánast heilt úr öskunni var einmitt
með því dýrmætasta.
„Það kviknaði í út frá kerti sem
gleymdist að slökkva á. Rafmagn-
ið hafði farið af þorpinu um kvöld-
ið og menn gripu til kerta. Kertið
var nálægt hillusamstæðu og í
henni voru myndaalbúm fjölskyld-
unnar. Við héldum að þetta væri
allt ónýtt, en það var svo troðið í
hillurnar að eldurinn virðist ekki
hafa náð að smeygja sér í allar
smugur. Þegar búið var að þrífa
albúmin og myndirnar komu í ljós
reyndist mjög mikið af þeim enn
vera heilt. Það er kannski smá-
vægileg reykjarlykt af þeim, en
umfram allt eru myndirnar heilar.
Þetta er okkur afar mikilvægt, því
þarna eru myndir af börnunum og
minningar um margar liðnar
stundir. Við héldum okkur hafa
glatað þessu með öllu hinu, þannig
að þetta kom skemmtilega á
óvart,“ sagði Arnar.
^ ?Ofnasmiðjan
...á réttri hillu
SPORTBÚÐ GRAFARVOGS Reykjavík
APÓTEK Smiðjuvegi, Kópavogi
o
JMWA
D
S p
i
Canon i0!í*c*m«
flíUl
TÖLVU OG RAFEINDAÞJÓNUSTAN Selfossi
GULLSÓL Mörkinni, Reykjavík
B.T. TÖLVUR Grensásvegi, Reykjavík
Verslanir þessar eru í hópi þeirra sem vöidu innréttingar frá H. F. Ofnasmiðjunni á
nýliðnu ári. H. F. Ofnasmiðjan er umboðsaðili fyrir fjölmörg heimsþekkt vörumerki
og erum við jafnframt stolt af því að geta komið til móts við væntingar viðskiptavina
okkar með íslenskri hönnun, sérsmíði og þjónustu.
H. F. Ofnasmiðjan þakkar viðskiptin á árinu 1997 og óskar
viðskiptavinum farsæls komandi árs.
Verslun Háteigsvegi 7 - Sími 511 1100. Verksmiðja Flatahrauni 13 - Sími 555 6100.
fidia flPerstorp E9 'PERGö Lundiá