Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 11
FRÉTTIR
Sumir sérfræðingar hafa starfað utan Tryggingastofnunar ríkisins í rúma þrjá mánuði
Aðsókn minni en samt
er mikið að gera
Morgunblaðið/Þorkeil
AÐSÓKNIN hefur líklega
eitthvað minnkað, en ég hef
þó alveg nóg að gera. Fólk
hefur þessi vandamál og þau þarf að
leysa hvað sem öllum kjaradeilum
líður,“ sagði Þorsteinn Gíslason
þvagfæraskurðlæknir, en uppsögn
hans á samningi við Trygginga-
stofnun ríkisins tók gildi 1. septem-
ber sl. Þorsteinn vill að TR borgi
reikninga sjúklinga samkvæmt
gamla samningnum þrátt fyrir upp-
sagnirnar, en aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra segir að slíkt væri
lögbrot og með slíkri leið væri auk
þess verið að innleiða ameríska
kerfið sem væri faglega og fjár-
hagslega óhagkvæmt.
Þorsteinn sagði að langflestir
þeirra sjúklinga sem hann væri að
sinna gætu ekki leitað annað. Eitt-
hvað gæti heilsugæslan ráðið við, en
flest verkefnin væru sérhæfð. Hann
sagði að engin göngudeildarþjón-
usta í þvagfærasjúkdómum væri á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og því gæti
fólk ekki leitað þangað. Hægt væri
að setja fólk á biðlista, en þeir væru
langir og auk þess væri alls ekki
hagkvæmt að leggja fólk inn á spít-
ala vegna aðgerða sem auðvelt væri
að gera á stofu út í bæ.
Þorsteinn sagði að sjúklingar
borguðu 3.500 kr. fyrir viðtal hjá
sérfræðingi sem ekki væri á samn-
ingi við TR. Fyrir eftirlit væri borg-
að 2.500 kr. Blöðruspeglun ásamt
viðtali og 1.100 kr. efniskostnaði
kostaði samtals 10.100 kr.
„í sjálfu sér má segja að það sé
hægt að búa við þetta ástand. Þetta
bitnar mest á þeim sem þurfa að
koma oft, t.d. sjúklingar með
krabbamein í blöðruhálskirtli eða í
þvagblöðru og fólk með erfiðar sýk-
ingar í blöðruhálskirtli og þvag-
blöðru."
Þorsteinn sagði að viðræður við
TR hefðu skilað þeim árangri að
menn hefðu verið búnir að koma sér
niður á módel um hvernig ætti að
reikna út kostnað og laun. Þegar
átti að fara setja einingar inn í mód-
elið hefðu viðræður farið í strand.
„Ég held að menn verði að fara að
líta á lausn í þessu máli fyrir sjúk-
lingana en ekki fyrir sérfræðingana.
Aðsókn til sérfræði-
lækna, sem sagt hafa
upp samningi við
Tryggingastofnun,
hefur minnkað, en
þeir segja þó að engu
að síður sé mikið að
gera hjá þeim. Þeir
sem ekki geta frestað
því að leita til sér-
fræðinga eiga ekki
annan kost en að
borga þá reikninga
sem sérfræðingar
leggja fram.
Tryggingastofnun var sett á stofn
til að sinna sjúklingum en ekki sér-
fræðingum. Stofnunin hlýtur að
þurfa að velta fyrir sér hvað hún
ætlar að gera fyrir sjúklinga sem
eru að borga þjónustu sem þeir eru
í rauninni búnir að borga með skött-
unum.“
Þorsteinn sagðist telja að Trygg-
ingastofnun ætti að halda áfram að
greiða sjúklingum eftir gamla
samningnum hvað svo sem liði upp-
sögnum sérfræðinga á samningn-
um.
Kröfur um allt að 270% hækkun
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði að það
væri alveg skýrt að Tryggingastofn-
un væri ekki heimilt að greiða fyrir
þjónustu sérfræðinga sem ekki
væru með samning við stofnunina.
Hann sagði að þó að það væri heim-
ilt væri það ekki góður kostur að
halda áfram að greiða eftir gamla
samningnum. Þar með væri það al-
farið orðið í valdi sérfræðinga að
ákveða hvaða upphæð væri inn-
heimt af sjúklingnum. Meðan sér-
fræðingar væru á samningi við TR
hefðu þeir ekki þetta frelsi. Ef þessi
leið yrði farin gæti TR ekki varið
hagsmuni sjúklinga að þessu leyti.
Þessi leið myndi ennfremur leiða
okkur inn i ameríska kerfíð sem
flestir væru faglega og fjárhagslega
mjög ósáttir við.
Þórir sagði að sérfræðingar
beindu mjög háum kröfum að
Tryggingastofnun. Dæmi væru um
kröfu um allt að 270% hækkun á
einingaverði í einstakri sérgrein.
Það væri viðurkennt að TR borgaði
vel fyrir aðgerðir í sumum sérgrein-
um og verr í öðrum. Það væri hins
vegar mjög erfítt að ná fram leið-
réttingum á þessu vegna þess að
eðlilega héldu sérfræðingar í hverri
sérgrein fast um sína hagsmuni.
Hann sagði að heilbrigðisyfirvöld
hefðu miklar áhyggjur af þessari
deilu og gerðu sér grein íyrir alvar-
leika málsins. Það væri hins vegar
erfítt að ná samningum þegar kröf-
umar væru svona miklar.
Bolli Héðinsson, formaður trygg-
ingaráðs, sagði að sér væri ekki
kunnugt um að neinn sjúklingur
hefði látið reyna á hvort hann gæti
fengið reikninga borgaða vegna
þjónustu sérfræðinga sem sagt hafa
upp samningi við TR. Hann sagðist
telja slíkt þýðingarlaust því að lögin
væru alveg skýr hvað það varðar að
stofnuninni væri óheimilt að borga
reikninga frá sérfræðingum sem
ekki störfuðu samkvæmt samningi
við stofnunina.
Sjúklingar varnarlausir
Ekki er að sjá að sjúklingar sem
verða að leita til sérfræðinga, sem
ekki eru með samning við TR, eigi
marga kosti aðra en að borga reikn-
ingana geti þeir ekki frestað því að
leita til læknis. Ástráður Haralds-
son, lögmaður ASÍ, sagði að sjúkra-
sjóðum verkalýðsfélaganna væri al-
mennt ekki heimilt að greiða íýrir
læknisverk. Hann sagðist ekki úti-
loka að einhverjir sjóðir greiddu
reikninga vegna læknisaðgerða fé-
lagsmanna vegna sérstakra félags-
legra aðstæðna. Tilgangur sjóðanna
væri hins vegar ekki að sinna hlut-
verki sem almannatryggingakerfið
hefði tekið að sér að sinna.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, tók í sama streng og sagði úti-
lokað fyrir sjúkrasjóðina að fara inn
á þetta svið. Þeir hefðu enga fjár-
hagslega burði til að taka á sig hlut-
verk almannatryggingakerfisins.
Það sama gilti fyrir sjúkrasjóð VR
þó að hann væri öflugur. Megin-
verkefni sjúkrasjóðs VR væri að
greiða fólki laun sem færi út aí
launaskrá vegna langvarandi veik-
inda. Sjóðurinn greiddi einnig fyrir
krabbameinsskoðun, skoðun hjá
Hjartavemd og íyrir heilsuvernd. Á
síðasta ári hefði sjóðurinn greitt um
90 milljónir til félagsmanna.
Tryggingafélögin bjóða ýmsar
persónutryggingar, m.a. sjúkra- og
slysatryggingar. Viðar Jóhannes-
son, markaðsstjóri Sjóvár-Al-
mennra, sagði að Sjóvá-Almennar
hefðu ekki enn farið út í að bjóða
tryggingar sem næðu til veikinda
fólks eða læknisaðgerða. Litið hefði
verið svo á að almannatrygginga-
kerfíð sæi um það svið. Fólk sem
ekki tæki laun samkvæmt kjara-
samningum og ætti því ekki aðgang
að sjúkrasjóði gæti keypt trygging-
ar hjá tryggingafélaginu. Sama ætti
við um fólk sem væri að flytjast til
landsins og væri ekki sjúkratryggt
fyrstu sex mánuðina á íslandi.
Miðbæjarsamtökin mótmæla
Hafnarstræti
lokað á ný
HAFNARSTRÆTI frá Pósthússtræti að Lækjargötu hefur enn á ný ver-
ið lokað fyrir almennri umferð. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra, samþykkti borgarráð í nóvember að opna Hafnarstræti fyrir
jólaumferðinni og þá til 5. janúar. Borgarstjóri sagði að ákveðnar mæling-
ar og skoðanir hafi verið gerðar á umferð um Hafnarstræti, sem þyrfti
að fara yfir en þær mælingar breyttu engu um samþykkt borgarráðs.
Fegurðarsamkeppni
íslands
Leit hafín
að fegurstu
stúlkunum
LEIT er nú hafin að keppendum í
Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur
1998 sem fram fer á Hótel íslandi
hinn 22. apríl nk. Leitað er að stúlk-
um á aldrinum 18 til 23 ára.
I fréttatilkynningu frá Fegurðar-
samkeppni Islands kemur fram að
allar ábendingar sé vel þegnar.
Valdar verði 14-18 stúlkur til að
taka þátt í keppninni um titilinn
Fegurðardrottning Reykjavíkur
1998 en auk sigurvegarans muni
efstu stúlkurnar halda áfram og
keppa ásamt stúlkum úr öllum
landshlutum í Fegurðarsamkeppni
Islands hinn 29. maí nk.
í frétt frá Miðbæjarsamtökum
Reykjavíkur er lokuninni harðlega
mótmælt og hafa samtökin óskað
eftir fundi með borgarstjóra. Fram
kemur að lokunin hafi komið hags-
munaaðilum í götunni á óvart þar
sem rætt hafí verið um að kanna
ákveðna þætti í umferð og umhverfi
Hafnarstrætis og kynna þær niður-
stöður áður en götunni yrði lokað á
ný. Upplýsingar frá verslunareig-
endum í götunni gefi til kynna að
lokunin skaði viðskipti þeirra veru-
lega og telja þeir að engin haldbær
rök séu að baki þessari aðgerð.
Vilja að málið verði sett í bið
Samtökin ítreka kröfur sínar um
að ákvarðanir um skipulagsmál í
miðborginni verði settar í biðstöðu
á meðan verið er að koma samstarfi
borgarinnar og hagsmunaaðila í
ákveðinn farveg. Þá segir: „Borgar-
yfirvöld verða að gera sér grein fyr-
ir því að ekki er hægt að taka
ákvörðun um viðkvæm skipulags-
mál í miðborginni án samráðs við
aðila sem reka þar fyrirtæki og hafa
mikilla hagsmuna að gæta.“
hefst
kl 8.00
TISKUVERSLUN
Kringlunni Sími: 553 3300