Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 31
AÐSENDAR GREINAR
Dagsbrún & Framsókn
- hagsmunafélag
þaulsetinna valdhafa
EINS og mönnum er ef til vill í
fersku minni urðu nokkrar umræð-
ur og blaðaskrif á sínum tíma um
fyrirkomulag og reglur um kosn-
ingu til stjórnar Dagsbrúnar um
þær mundir er núverandi stjórn
félagsins var kosin. Þótti ýmsum
félagsmönnun gildandi regiur um
það efni nokkuð fornfálegar og
ekki í anda lýðræðishugmynda um
sjálfsákvörðunarrétt manna í eigin
málum sem þekktar voru fyrir upp-
haf þessarar aldar, a.m.k. meðal
þeirra manna sem létu sig varða
mannfrelsishugmyndir.
Hin nýja stjórn lofaði bót og betr-
un og hugðist beita sér fyrir bættu
fyrirkomulagi er tryggði aukin áhrif
hins almenna félagsmanns innan
félagsins og taka mið af fyrrgreind-
um lýðfrelsishugmyndum 19. aldar.
Undanfarið hefur verið unnið að
sameiningu Dagsbrúnar og Fram-
sóknar og var sameinað félag stofn-
að hinn 6. desember sl. í tilefni af
sameiningunni voru lögð fram drög
að nýjum lögum félagsins sem kos-
ið var um í allshetjaratkvæða-
greiðslu. Margt má segja um það
hvernig að málum var staðið við
undirbúning og afgreiðslu lagatil-
lagnanna og eru ýmis ákvæði lag-
anna með ólíkindum.
Lagatillögurnar voru ræddar á
tveim félagsfundum sem boðað var
til að kvöldlagi í sal sem vart rúm-
aði fleiri en 100 manns enda ekki
vænst mikillar þáttöku eins og
fundartíma var háttað. Á þessum
fundum átti að ganga frá lagatillög-
um sem skyldu fara í allsheijarat-
kvæðagreiðslu. Undir hælinn var
lagt hvaða breytingartillögur fengju
afgreiðslu félagsfundar og var m.a.
tillögu um hlutfallskosningu til
stjórnar félagsins visað frá án nokk-
urrar lagastoðar og beinlínis í and-
stöðu við lög félagsins.
Er óhætt að fullyrða að hin nýju
Iög hafí það megineinkenni að efla
áhrif valdastofnana innan félagsins
á kostnað félagsmanna sjálfra. Hér
skulu tekin fáein dæmi: Enn sem
fyrr er stjórnin kosin listakosningu
án hlutfallskosningar, þannig að sá
listi sem hlýtur meirihluta atkvæða
fær alla sína menn í stjórn en minni-
hlutinn engann. Slíka tilhögun hafa
menn nefnt skrílræði til aðgreining-
ar frá hugtakinu lýðræði sem felur
þó í sér að gætt sé áhrifa minni-
hluta við ákvarðanatöku. Þá hafn-
aði laganefnd tillögu um persónu-
kosningu með þeim rökum að slík
tilhögun gæti valdið óeiningu innan
stjórnar félagsins, væntanlega sök-
um þess að fleiri skoðanir væru þá
uppi meðal stjórnarmanna. Þá er
tekið fram í lögunum að æðsta vald
í málefnum félagsins sé í höndum
trúnaðarráðs sé ekki annars getið.
Hvert er þá vald hins almenna fé-
lagsmanns og ályktunarbærni fé-
lagsfunda? Jú, í lögunum segir að
á félagsfundum megi taka til um-
ræðu mál og álykta um þau þó því
aðeins að ekki sé gengið gegn skoð-
un trúnaðarráðs. Vilji menn ná fram
niðurstöðu sem ekki er að skapi
trúnaðarráðs þurfa minnst 300 fé-
lagsmenn að sitja þann fund. Þegar
afgreiða skal önnur álitamái svo
sem lagabreytingar eða málefni
sem eru trúnaðarráði þóknanleg er
Hin nýju lög hafa það
megineinkenni, segir
Gunnar Guðmunds-
son, að efla áhrif valda-
stofnana innan félags-
ins á kostnað félags-
manna sjálfra.
ekki krafist lágmarks fundarsókn-
ar.
Þá er rúsínan í pylsuendanum sú
að fari svo að lögum félagsins verði
breytt á aðalfundi taka þær breyt-
ingar þó ekki gildi nema miðstjórn
ASÍ og framkvæmdastjórn VMSÍ
hafi gefið jáyrði sitt við gildistöku
lagabreytinganna.
Félagsfundur Dagsbrúnar og
Framsóknar er með öðrum orðum
gerður áhrifalaus sýndarsamkoma
sem stýrð er að ofan en ekki öfugt,
eins og almennt gerist í félögum
þar sem félagsfundir hafa æðsta
vald í málefnum hvers félags.
Mér er spurn hvort forvígismenn
nýja félagsins gleddust
nú ekki og teldu lýð-
frelsi og áhrifum lands-
manna best borgið með
því að taka upp þetta
ágæta kosningafyrir-
komulag og verklags-
reglur um ákvarðana-
töku á vettvangi lands-
mála. Þá yrði friður og
eining á þingi þar sem
sá stjórnmálaflokkur
sem flest fengi atkvæð-
in í þingkosningum
hreppti öll þingsætin
og þyrfti ekki að eyða
dýrmætum tíma í þref
og samningaumleitanir
við óþægan minnihluta.
Svo gætum við notast við Evrópu-
sambandið til þess að réttlætinu sé
nú fullnægt og krefjast samþykkis
þess svo afgreidd lög Alþingis tækju
gildi.
Það er nú svo að hagsmunasam-
tök og hópar gera oft kröfu til ann-
arra um réttsýni, sanngirni og að
gætt sé nútímaviðhorfa um ákvarð-
anatöku manna í eigin málum en
óskaplega eru kröfur innantómar
þegar þeir sömu fótumtroða þessi
viðhorf í eigin félagasamtökum.
Lýðræðið getur þvælst fyrir óvin-
sælum stjórnendum og ógnað veldi
þeirra og því að vissu marki skiljan-
legt að þeir vilji beita því í hófi
innan eigin samtaka.
Eins og málum er
nú komið tel ég að
miklu einfaldara og
hreinlegra hefði verið
fyrir stjórn Dagsbrún-
ar og Framsóknar að
hafa knúið þá ákvörð-
un í gegn að leggja
félagið niður en láta
stjórn og trúnaðarráð
lifa sínu sjálfstæða lífi
til þess að taka við fyr-
irmælum ASÍ og
VMSÍ. Félagsmenn eru
orðnir valdalausir inn-
an félagsins á meðan
haldið er áfram að
velja óhentugan fund-
artíma sem krefst aðeins fund-
arstaðar sem rúmar nokkra tugi
manna og þar með verður aldrei
300 manna takmarkinu náð sem
þarf til að ganga gegn skoðun trún-
aðarráðs.
í lokin get ég ekki sleppt því að
óska hinni nýju stjórn til hamingju
og efast ég ekki um að henni verði
langrar stjórnarsetu auðið í skjóli
hinna nýju laga. Hins vegar sam-
hryggist ég félögum mínum í hinu
nýja „verkamannafélagi" sem um-
breyst hefur í hagsmunafélag þaul-
setinna valdhafa.
Höfundur er verkamaður.
5^AjA,/)>/v\\t\^ - Gœðavara
Gjdfavara matar og kaíristell.
Allir veröflokkdr.
yiluAAyCVvvV ,
Heiiiisfræqir hönnuöir
in.d. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Gunnar
Guðmundsson
UTSALAN
er hafin
fierra
GARÐURINN
KRINGLUNNI