Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 33

Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 33
32 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf.( Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRAMKV ÆMDIR A GELDIN GANESI * AKVORÐUN borgarráðs Reykjavíkur um grjótnám á Geldinganesi vekur spurningar um skipulag þess. Þar er fallegt stæði fyrir íbúðahverfi, en hugmyndir meirihlut- ans í borgarstjórn virðast miða að því að gera það að at- hafnasvæði, sem snúist um fyrirhugaða höfn. Það er eftirsóknarvert að búa við sjávarsíðuna og það virðist sjálfgefið að haga eigi framtíðarskipulagi borgarinn- ar þannig að slík svæði nýtist til íbúðabyggðar í stað þess að reisa gluggalausar vöruskemmur. Það er Ijóst að bæði er skortur á húsnæði fyrir atvinnu- starfsemi og íbúðir í Reykjavík. Sýnu minni fjölgun íbúa hefur orðið í höfuðborginni en á höfuðborgarsvæðinu und- anfarið. Með því að leggja áherslu á íbúðabyggð á stöðum á borð við Geldinganes er hins vegar ekki verið að segja að þrengja eigi að atvinnulífinu. Eins og kom fram í skýrslu, sem gerð var í upphafi liðins árs, eru nokkrir staðir aðrir í Reykjavík, sem ekki kemur síður til greina að nota sem athafnasvæði. í aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 er gert ráð fyr- ir því að austurhluti Geldinganess, sem er gegnt Mos- fellsbæ, verði hrein íbúðabyggð. Norðurhlutinn, þar sem útsýni er best á nesinu, er á skipulagskorti kallaður íbúða- eða athafnasvæði. Hætt er við að athafnaþátturinn verði yfirsterkari þegar upp er staðið verði haldið áfram á þeirri braut, sem mörkuð hefur verið í borgarstjórn, og við það gæti eitt ákjósanlegasta stæði, sem kostur er á fyrir íbúða- hverfi í Reykjavík, farið forgörðum. Þetta er mál, sem þarf að skoða betur. FRAMBOÐ OG EFTIRSPURN BORGARRÁÐ hefur ákveðið að lokað útboð fari fram milli tveggja aðila, sem sótzt hafa eftir aðstöðu í Laugardalshöll fyrir sjávarútvegssýningu á næsta ári. Borgarráð treysti sér ekki til að gera upp á milli þessara tveggja umsækjenda og ákvað að útboð færi fram. Eftir þessa ákvörðun lýstu fulltrúar beggja fyrirtækja, FishTech og íslenzku sjávarútvegssýningarinnar, von- brigðum sínum. Vonazt hefði verið til að borgarráð hyggi á hnútinn, en útboð myndi aðeins hækka kostnað sýn- enda, sem flestir yrðu íslenzkir. Borgarstjóri sagði borgaryfirvöld komin í mjög sérkenni- lega aðstöðu, að þurfa að skera úr um, hvora sýninguna ætti að setja á og hvora að dæma úr leik. Þau hefðu eng- ar forsendur til þess að dæma þar í milli. Morgunblaðið tekur undir sjónarmið borgarstjórans. Borgin var komin í þá aðstöðu að lokað útboð er réttlætan- leg leið út úr vandanum. Framboð og eftirspurn ræður ferð. Höllin er greinilega eftirsótt sýningarsvæði og færri komast að en vilja. Þá hlýtur andvirði aðstöðunnar að hækka og réttmætt að útboð skeri úr um það hvor aðilinn hlýtur hana. LÚÐUELDI FISKELDI Eyjafjarðar er almenningshlutafélag, sem um árabil hefur starfrækt tilraunastöðvar fyrir eldi á heilagfiski, seiðaeldisstöð í Eyjafirði og eldisstöð í Þor- lákshöfn, þar sem sprakan er alin í sláturstærð. Frá fyrstu klaktilrauninni árið 1989 hefur fyrirtækið unnið mikið rannsóknar- og þróunarstarf, sem smám saman hefur ver- ið að skila árangri. Áætlað er að 10 tonnum af eldislúðu verði slátrað á árinu 1998, 50 tonnum árið 1999 og 100 tonnum eftir þrjú ár. Lúðueldi er talið mun arðvænlegra en laxeldi, enda lúðan seld á fjórfalt hærra verði en laxinn. Á síðustu áratugum höfum við reynt sitthvað til að skjóta nýjum stoðum undir íslenzkt atvinnu- og efnahagslíf. Sumt hefur vel tekizt. Annað miður, þegar sótt var fram af meira kappi en forsjá. Feiknamiklir fjármunir töpuðust bæði í fiskeldi og loðdýrarækt. Að þessu þýðingarmikla verkefni, lúðueldinu, hefur á hinn bóginn verið vel staðið og líkur standa til að árangurinn verði í samræmi við það. Ef ekkert ófyrirséð kemur upp á getur lúðueldi orðið góð viðbót við annað fiskeldi í landinu. Fiskeldi hefur und- anfarin ár verið að rétta úr kútnum. Margs konar fiskeldi á eftir að verða vaxandi þáttur í atvinnu og afkomu íslend- inga í framtíðinni. Launagreiðendum gert að sundurliða greiðslur og mannahald nákvæmar en áður Mikil óvissa ríkjandi í ísraelskum stjórnmálum eftir afsögn utanríkisráðherrans Nákvæmari mæling á stöðu atvinnulífsins Með kröfu um nákvæmarí sundurliðun frá launagreiðendum hyggjast starfsmenn Hag- stofu íslands afla betri vísbendinga um stöðu atvinnulífsins hverju sinni en hingað til hefur verið gert. Eiríkur Hilmarsson, skrifstofu- stjóri á Hagstofu íslands, segir að um leið og öflun gagna aukist verði áhersla lögð á að ekki megi rekja upplýsingamar. Morgunblaðið/Kristinn FRAMKVÆMDIR eru einn mælikvarði á sveiflur í atvinnulífi en þær blasa ekki alltaf við. LAUNAGREIÐENDUR þurfa frá og með áramótum að gera nákvæmari skil á lau- nagreiðslum til ríkisskatt- stjóra en verið hefur. Þarf nú að fylla út reiti fyrir atvinnugreina- merkingu, starfaflokkun og starfs- hlutfall hvers starfsmanns. Með þessu móti á að vera auðveldara að taka púlsinn á atvinnulífinu. Eiríkur Hjálmarsson, skrifstofu- stjóri á Hagstofunni, sagði að þetta væri gert að beiðni Hagstofu íslands og Þjóðhagsstofnunar. Nýtt fyrirkomulag gagnasöfnunar Tilgangurinn er sá að afla ná- kvæmra upplýsinga um þróun og sveiflur í íslensku efnahags- og at- vinnulífi. Gert er ráð fyrir að fyrir- höfn launagreiðenda við að veita þessar upplýsingar sé lítil og benti Eiríkur á að sýnu umfangsmeira væri að safna þessum upplýsingum saman með því að senda út spurn- ingalista. „Þessar upplýsingar koma í stað- inn fyrir upplýsingar, sem hefur ver- ið safnað með launamiðum," sagði Eríkur. „Þar hefur verið beðið um upplýsingar um fjölda vinnuvikna á starfsmann. Mönnum hefur verið ljóst í nokkuð langan tíma að þessi gagnasöfnun gekk ekki upp. Upplýs- ingarnar, sem komu inn voru ekki nógu áreiðanlegar og góðar, og nýtt- ust til dæmis ekki nógu vel við gerð þjóðhagsreikninga.“ Hann sagði að með þessari ný- breytni væri verið að reyna að safna upplýsingum um heildarvinnuafl, skiptingu þess eftir atvinnugreinum og átta sig á vinnumagni og hve mikið væri unnið í hverri atvinnu- grein. Upplýsingar sem liggja fyrir „Við gerum þetta í raun í tveimur áföngum," sagði Eiríkur um það hvernig mælingu vinnumagns væri háttað. „Það var mikið um það rætt hvort spyija ætti um starfshlutfall eða vinnustundir. Mönnum er auðvit- að ljóst að vinnustundir eru nákvæm- ari mæling á vinnuframlagi en starfshlutfall. En þá vakna hins veg- ar aðrar aðferðafræðilegar spurning- ar um það hvort um sé að ræða unnar stundir eða greiddar stundir. Þegar farið hafði verið í gegnum þetta var orðið ljóst að ætti að halda upplýsingabyrðinni í lágmarki væri einfaldast að biðja um starfshlutfall, enda er það svo að flestir launagreið- endur með tíu starfsmenn eða fleiri eru með launakerfi þar sem þessar upplýsingar er nánast undantekning- arlaust að finna.“ Upplýsingar um starfshlutfali gefa hins vegar ekki til kynna yfir- vinnu eða svokallað um- framvinnumagn og kemur þar að seinni áfanganum í þessum útreikningum. „Úr því ætlum við að bæta með launakönnunum í samvinnu við kjararannsókna- nefndir opinberra starfsmanna og á almennum markaði," sagði Eiríkur. „Þar fáum við það sem á vantar til þess að meta heildarvinnuframlag- ið.“ Skipting vinnuframlags milli atvinnugreina Að sögn Eiríks verður með þessu fyrirkomulagi aflað upplýsinga um vinnuframlag og hvernig það skiptist milli atvinnugreina. Hér er ekki um úrtak að ræða heidur upplýsingar um alla launþega. „Ástæðan fyrir því að við förum út í þetta jafnvel þótt við höfum vinnumarkaðskannanirnar, er að í ákveðnum verkefnum hjá okkur þyrfti úrtakið einfaldlega að vera þetta stórt til að fá þá nákvæmni, sem til dæmis er nauðsynleg við gerð þjóðhagsreikninga. Þar sáum við til dæmis ekki fram á að fært væri að styðjast eingöngu við vinnu- markaðskannanimar." Hann sagði að einnig væru launa- greiðendur spurðir um starfaflokk- un. Þar er dyravörðurinn númer 91 eins og gluggaþvottamaðurinn. Bændur og fískimenn bera númerið 61, en verkafólk í landbúnaði og fisk- veiðum 92. Kvarði þessi virðist um leið vera nokkurs konar virðingar- stigi því að kjörnir fulltrúar og æðstu embættismenn bera töluna 11, en lífeyris- og bótaþegar 00. „Hagstofan styðst við alþjóðlega fjögurra stafa starfaflokkun," sagði hann. „Við förum fram á grófari flokkun upp á tvo stafi þar sem at- vinnugreinum er skipt upp í 27 flokka. Þar erum við að gera það sama, fá upplýsingar um vinnuaflið. Þarna erum við sérstaklega að horfa til þess með öflugri fyrir- tækjaskrá, sem byggð hef- ur verið upp á undanföm- um árum, að tvinna saman þessar upplýsingar til að átta okkur á því hvernig straumarnir eru á vinnumarkaðnum, hvaða fyrirtæki séu að hasla sér völl, hvers konar fólk þau ráði og til hvaða starfa." Samsetning fyrirtækja og líftími þeirra Sagði hann að hægt yrði að nota þessar upplýsingar til að átta sig á samsetningu fyrirtækja og líftíma þeirra. „Þetta er grundvallarhugmyndin að baki þessu", sagði hann. Með þessum upplýsingum ætti því að vera hægt að fylgjast með straumum og stefnum I íslensku at- vinnulífi. Undanfarið hefur mikið verið talað um grósku í tölvugeiran- um, en hins vegar getur verið erfitt að henda reiður á því hvað í raun er að gerast, meðal annars vegna þess að þróunin er að eiga sér stað innan fyrirtækja í annars konar rekstri. „Þetta er í fyrsta lagi hægt að sjá vegna þess að við vitum á hvaða skráningarnúmmeri starfsmenn tölvufyrirtækja eru og hægt er að byija á að einangra það,“ sagði hann. „I öðru lagi höfum við upplýsingar um hvert fyrirtækið er og getum talið hversu mörg fyrirtæki eru í þessum geira. Að auki höfum við upplýsingar um það hvað margir starfsmenn eru hjá þessum fyrir- tækjum. Áður höfðum við ekki upp- lýsingar um það hvort þeir voru í fullu starfi eða hlutastarfi, en getum nú komist að því. Einnig er hægt að sjá samsetningu starfsmanna hjá fyrirtækinu, hvort þar vinna fyrst og fremst tæknimenn eða viðskipta- fræðingar, svo að dæmi sé tækið. Á næstunni bætist við ný sundurliðun, sem er fyrir utan þetta. Það eru virð- isaukaskattskýrslurnar, sem eru brotnar niður eftir atvinnugreinum. Í blönd- uðum fyrirtækjum, sem eru meðal annars í tölvu- geiranum, er hægt að sjá hver umsvif þeirra eru í þessari at- vinnugrein." Tekur tíma að fá marktækar upplýsingar Hann sagði að ætla mætti að það gæti tekið um ár að fá marktækar upplýsingar um þróun í atvinnulíf- inu. Spuming væri hins vegar hversu snemma yrði hægt að byija að birta niðurstöður. „Við þurfum að safna þessum gögnum í dálítinn tíma til að fá til- finningu fyrir þeim,“ sagði hann. „Þegar við förum að fá samanburð milli ársfjórðunga kemst ákveðin mynd á það, sem við höfum í höndun- um. Ég á hins vegar ekki von á því að við förum að birta þessar upplýs- ingar að gagni á svo skömmum tíma vegna þess að við höfum enn verk að vinna í fyrirtækjaskránni að því leyti að við höfum ekki nákvæmt yfirlit yfir fyrirtækjaflóruna. Þegar fyrirtæki hættir starfsemi vitum við til dæmis ekki hvort það hefur verið lagt niður, sameinast öðru eða verið yfirtekið. Það er eðlilegt að við skrá- um inn þessar upplýsingar fyrst við höldum utan um fyrirtækjaskrá og það munum við gera. En verkefnið er stórt og við komumst ekki yfir að sinna öllum þessum þáttum." Hann sagði að vinnumarkaðs- kannanir Hagstofunnar yrðu síður en svo óþarfar, til dæmis vegna þess að aðeins þar væri hægt að fá upplýs- ingar um þá, sem væru atvinnulaus- ir, þá, sem hafa vinnu, hefðu of lítið eða gera eða þættu þeir vinna of mikið. „Við fáum enga vísbendingu um það hver þróunin er án vinnu- markaðskannananna. Okkur vantar í raun alla fyllingu. Við fáum grunn- upplýsingar og getum áttað okkur nokkuð fljótt á því hvað er að ger- ast á markaðnum, en til þess að fá nánari útskýringar á því þarf upplýs- ingar, sem við fáum meðal annars úr vinnumarkaðskönnununum." Áhersla lögð á trúnað Sú spurning vaknar einnig hvernig farið verði með þessar upplýsingar og hveijir hafi aðgang að þeim. „Það ríkir alger trúnaður líkt og með skattaupplýsingar,“ sagði Eirík- ur. „Það munu aðeins tvær stofnan- ir, Hagstofan og Þjóðhagsstofnun, hafa aðgang að þessum upplýsing- um. í raun er það Hagstofan, sem hefur umsjón með þessum gögnum, og þetta er alveg harðlæst." Hann sagði að Hagstofan upplýsti Tölvunefnd jafnan um áform sín og þar lægi jafnan fyrir vitneskja um það hvað stofnunin hygðist fyrir. Hagstofan hefði hins vegar ekki beð- ið Tölvunefnd um leyfi fyrir þessu, en á móti kæmi að engar athuga- semdir hefðu borist. Á sumum sviðum atvinnulífsins eru það fá fyrirtæki að auðvelt yrði að rekja þær upplýsingar, sem Hag- stofan kæmi til með að gefa út, til upprunans. „Þetta er í raun og veru stórmál," sagði Eiríkur. „Við höfum sagt frá upphafi að við munum halda á þessu með þeim hætti að ekki verði hægt að rekja upplýsingar til einstakra aðila. Við höfum nú þegar ákveðnar grundvallarreglur, sem við styðjumst við til að gera erfitt fyrir að rekja upplýsingar til einstakra aðila og við munum gera allt hvað við getum til að fyrirtæki hafí ekki ama af þess- ari gagnasöfnun." Þótt fyrirtæki vilji ekki að hægt sé að rekja upplýsingar beint til þeirra verða þær að koma að notum. „Meðalvegurinn er hins vegar vandrataður því að á móti kemur krafa frá markaðnum um að upplýs- ingarnar verði ekki svo almennar að þær verði gagnslausar," sagði hann. Komin væri reynsla á meðferð upplýsinga um atvinnuvegi þar sem eitt fyrirtæki væri einráða. „Ég get nefnt sem dæmi að í út- flutningstölum okkar hafa verið upp- Iýsingar um útflutning á áli,“ sagði hann. „Þar hefur ekki komið nema einn aðili til greina. Þegar þetta kem- ur fyrir höfum við samráð við stjórn- endur fyrirtækja. Hygðumst við birta upplýsingar um póst- eða símaþjón- ustu myndum við að sama skapi hafa samráð við stjórnendur þeirra fyrirtækja. Þarna er hins vegar oft um að ræða upplýsingar, sem þegar liggja fyrir.“ Vísbending um strauma á vinnumarkaði Ekki á að vera hægt að rekja upplýsingar B ENJAMIN Netanyahu, for- sætisráðherra Israels, berst nú fyrir pólitísku lífi sínu. Ríkisstjórn hans stóð að vísu af sér afsögn Davids Levys utanríkisráðherra en meirihlutinn á þingi er aðeins eitt atkvæði og kosn- ingafnykurinn er þegar tekinn að fylla pólitísk skilningarvit af öllum toga. Netanyahu á allt sitt undir duttlungafullum þingmönnum, sem kunna að snúast gegn honum án nokkurs fyrirvara. Forsætisráðherr- ann getur huggað sig við að hann er ekki sá eini sem stígur pólitískan línudans nú um stundir: helsti and- stæðingur hans, Yasser Arafat, er í svipaðri stöðu. Með afsögn Davids Levys síðasta sunnudag hefur fímm flokka sam- steypustjóm Netanyahus stuðning 61 þingmanns en 120 fulltrúar sitja á þingi ísraels, Knesset. Formlega var það ágreiningur um fjárlaga- frumvarp ríkisstjórnarinnar sem varð þess valdandi að Levy ákvað að taka pokann sinn. Enginn vafi leikur hins vegar á því að óánægja Levys með framgang friðarviðræðna við Palestínu- menn var mun djúpstæðari en deilurnar um ríkisútgjöldin. David Levy var sá maður sem stjórnvöld í Bandaríkjunum bundu einna mestar vonir við enda hafði hann reynst tilbúinn að sýna meiri sveigjanleika í viðræðum við Yasser Arafat, forseta sjálfstjórnar Palestínu- manna, en aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni. Afsögn hans er því áfall fyrir friðarferlið svo- nefnda í Mið-Austurlöndum. Samningsstaða Netanyahus hefur enn versnað við afsögn utanríkisráðherrans og svigrúm hans er lítið sem ekkert. Þetta gerir að verkum að sú áhersla sem Bandaríkjastjórn hefur að undanfömu lagt á að hleypa lífi á ný í viðræður Palestínu- manna og ísraela kann að skila litlu. Staðan í þessum viðræðum hefur trúlega aldrei verið erfið- ari, Netanyahu er nú sem aldr- ei fyrr öldungis háður stuðningi harðlínumanna innan stjórnar- innar sem hann leiðir. Flóð minningargreina Leiðtogar í línudansi Geysilega flókin staða hefur nú skapast í ísra- elskum stjómmálum eftir afsögn Davids Lev- ------------------------------------------- ys utanríkisráðherra. Asgeir Sverrisson velt- ir fyrir sér möguleikum Benjamins Netanya- hus forsætisráðherra, framgangi friðarvið- ræðna og erfíðleikum Yassers Arafats. Reuters síð- 18 Forsætisráðherrann bar sig að vísu vel er hann ræddi við fréttamenn eftir að hafa skilað íjárlagafrumvarpinu af sér. „Á ustu 18 mánuðum hafa menn sinnum sest niður og skrifað um mig pólitískar minningargreinar. En lítið á, hér er ég nú enn!“ Þessi ummæli áttu vissulega rétt á sér, því hefur oftlega verið spáð á þeim 19 mánuð- um sem liðnir eru frá því að Netan- yahu myndaði stjórn sína að fall hans sé á næsta leiti. Þótt spádóm- arnir hafi ekki reynst réttir til þessa er ekki þar með sagt að ríkisstjóm hans muni standast þær raunir sem hennar bíða á næstu vikum og mán- uðum. Það hefur að vísu gerst áður í ísra- elskum stjórnmálum að ríkisstjórn hafi stuðst við svo nauman meiri- hluta á þingi. Stjórn Yitzhaks Rabins hafði aðeins eins sætis meirihluta þegar fyrstu skrefin í friðarátt voru stigin í viðræðum við fulltrúa Palest- ínumanna. Rabin tókst að ---------- knýja fram þessa sögulegu ákvörðun og leiða þjóðina inn á nýjar brautir þrátt fyrir að stuðningurinn á þingi væri ótryggur. Netanyahu kann vissulega að tak- ast að feta í fótspor forvera síns en hafa ber í huga að verkefnin sem nú liggja fyrir eru önnur auk þess sem ætla verður að samstarfsflokkar hans í ríkisstjóm verði ekki tilbúnir til að sýna þann sveigjanleika sem nú er farið fram á til að tryggja við- gang friðarferilsins. Sú afstaða mun án nokkurs vafa verða til þess að spilla enn frekar samskiptunum við Bandaríkin sem eru með stirðasta móti um þessar mundir. Á hinn bóginn er almenna reglan sú að aginn innan ríkisstjórna sem styðjast við nauman meirihluta er að jafnaði meiri en sá sem einkennir samstarf þar sem staðan á þingi er BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, forseti sjálfstjórnar Palestínumanna, ræða við Bill Clinton Bandaríkjaforseta í síma eftir að hafa náð samkomulagi um brottflutning ísraelskra hermanna frá Hebron fyrir rétt rúmu ári. trygg. Miðflokkarnir tveir, Þriðja leiðin og Innflytjendaflokkurinn, sem taka þátt í stjórn Netanyahus eru að öllu óbreyttu líklegastir til að svikja lit. Þetta eru hins vegar litlir flokkar sem buðu í fyrsta skipti fram í síðustu kosningum og höfðuðu eink- um til óánægðra kjósenda. Forystu- menn þessara flokka munu trúlega hugsa sig tvisvar um áður en þeir slíta samstarfinu og halda út í kosn- ingar. Skoðanakannanir sýna að al- menningur í ísrael er tekinn að þreytast á smáflokkum, sem lengi hafa haft áhrif í stjórnmálum lands- ins langt umfram fylgið sem að baki býr. Þarf að þjóna tveimur herrum Ætla verður að harðlínumenn á hægri vængnum sem andvígir eru ---------- allri frekari eftirgjöf gagnvart Palestínumönn- um muni sameinast um að halda ríkisstjórninni á floti. Þessi öfl vita sem er ™að annar og enn ákveðn- ari forsætisráðherra en Netanyahu er ekki í boði. Niðurstaðan er því sú að ríkis- stjóm Netanyahus mun eiga í enn meiri erfíðleikum en áður að stand- ast þrýsting Bandaríkjastjórnar. Bill Clinton forseti hefur kallað þá Ara- fat og Netanyahu til fundar við sig síðar í þessum mánuði enda hyggst hann leggja þunga áherslu á friðar- ferlið í Mið-Áusturlöndum á seinna kjörtímabili sínu minnugur þess að friðarsamningar ísraela og Palest- ínumanna voru undirritaðir í Hvíta húsinu. Ekki verður séð hvernig ísra- elski forsætisráðherrann hyggst verða við kröfum Bandaríkjamanna um eftirgjöf landsvæða á Vestur- Svigrúm IMet- anyahus afar takmarkað bakkanum og halda friðinn við harð- línumenn innan stjórnar sinnar. Ná- kvæmlega hvernig þrýstingur Bandaríkjastjórnar verður útfærður mun skipta máli en ætla verður að öll spjót muni á ný standa á Netan- yahu er líða tekur á árið. Sótt að Arafat Hið sama á hins vegar við um Yasser Arafat, forseta sjálfstjórnar Palestínumanna, og má það að sönnu kallast söguleg kaldhæðni að erkifj- endurnir skuli nú sameinast í póli- tískum iínudansi til að halda völdum. Arafat hefur átt í útistöðum við þing Palestínumanna og fulltrúar þar sýna þess vaxandi merki að þeir hyggist ekki una öllu lengur við framgöngu formannsins. Palestínskir þingmenn hafa hótað að bera fram tillögu um ---------------------- vantraust efni Arafat ekki Arafat hefur það loforð sitt að skipta keVDt sér um þá ráðherra í ríkisstjórn etundarfriA sinni sem vændir eru um spillingu og vanhæfni. — Fjármálaóreiðan þykir þó verri. Því hefur lengi verið haldið fram að reikningsskil sjálfstjórnarinnar séu með öllu ófullnægjandi og hefur fjárstuðningur sem heitið hafði verið erlendis frá m.a. látið á sér standa af þeim sökum. Árafat hefur nú heitið því að til- nefna nýja ráðherra fyrir lok mars og honum hefur tekist að kaupa sér stundarfrið. Staða hans er hins veg- ar ótraust þótt tæpast sé hún jafn slæm og staða Netanyahus. Palest- ínska þjóðin hefur almennt orðið fyr- ir vonbrigðum með framgang friðar- ferlisins og kannanir sýna að sú skoðun nýtur miklis fylgis að stjórn formannsins sé bæði spillt og dáðlítil. Dvinandi vinsældir Skoðanakannanir í ísrael gefa Netanyahu forsætisráðherra ekki heldur mikið tilefni til bjartsýni. Samkvæmt þeim hafa vinsældir hans ört farið dvínandi og hefur Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokks- ins, 10-15% meira fylgi en forsætis- ráðherrann. í ljósi þessara óvinsælda hefur sú tilgáta verið sett fram að Netanyahu hyggist skipa Natan Sharansky, leiðtoga Innflytjenda- flokksins, utanríkisráðherra. Shar- ansky var forðum einn þekktasti andófsmaður Sovétríkjanna og kann hann að þykja álitlegri kostur en harðlínumaðurinn Ariel Sharon, sem telur sig eiga tilkall til embættisins. Sá ráðahagur myndi hins vegar mælast ákaflega illa fyrir erlendis og verða til þess að veikja stöðu Netanyahus enn frekar. Milli steins og sleggju Eru dagar Benjamins Netanyahu á valdastóli senn taldir? Staða forsætisráðherrans er að sönnu mjög erfið. Hann er nú nánast ofurseldur framgangi ísrael- skra stjórnmála í stað þess að móta þróunina. Hann er kominn upp að vegg í samskiptum sín- um við Bandaríkjamenn sem krefjast þess að umtalsverður brottflutningur ísraelskra her- ^ manna frá hernámssvæðunum á Vesturbakkanum fari fram í ár. Og víst má heita að þrýst- ingurinn frá Bill Clinton mun heldur fara vaxandi en hitt nú þegar skriðþungi forsetans fer minnkandi á heimavelli líkt og ævinlega gerist á seinna kjör- tímabilinu. Vera kann að hræðslan við kosningar verði til þess að tryggja agann innan ríkis- stjórnarinnar og þar með líf hennar. Hættan er hins vegar ' sú sama í ísrael og í öðrum lýðræðisríkjum þegar slíkt ástand skapast. Einstakir þing- menn geta unnið að framgangi hagsmunamála sinna og hótað því að finna sér annað föru- neyti verði ekki orðið við þeim. Sú staða mála getur lagt þung- ar byrðar á ríkissjóð sem stend- ur höllum fæti um þessar mund- ir. Hún mun ennfremur reyna mjög á þolinmæði forsætisráð- herrans og hæfni hans til að bera klæði á vopnin í átökum innan stjórnarinnar. Þótt pólitískir hæfi- leikar Netanyahus séu án nokkurs vafa umtalsverðir eru þeir yfirleitt taldir liggja annars staðar en í hlut- verki sáttasemjara. Tekur Netanyahu frumkvæðið? Loks er ótalinn sá möguleiki að þingmenn sem óánægðir eru með framgöngu Netanyahus gangi í lið með stjómarandstöðunni og felli for- sætisráðherrann án þess að gengið verði til þingkosninga. Þetta er unnt samkvæmt gildandi lögum í Israel sem innleidd vora fyrir kosningamar 1996 og kveða á um beint kjör forsætisráð- herrans. Samkvæmt þeim geta 80 af 120 þingmönnum Knesset fellt sitj- andi forsætisráðherra með van- trauststillögu. Þarf þá að kjósa eftir- mann hans án þess að frarn- fari almennar þingkosning- ar. Þetta kann mörgum þingmönnum að þykja álit- legur kostur. Kjörtímabil ““““ þingsins rennur ekki út fyrr en árið 2000 og margir kjömir fulltrú- ar kunna að telja það þjóna hagsmun- um sínum að vísa óvinsælum forsætis- ráðherra út í ystu myrkur í nafni póli- tískrar hreingemingar án þess að hætta sætum sínum Flókið pólitískt hagsmunamat mun móta þróunina í ísraelskum stjórn- málum á næstu mánuðum og líklegt. „ er að friðarferlið verði látið sitja á hakanum eins og þess er frekast kostur. Svigrúm Benjamins Net- anyahus verður afar takmarkað, sem seint verður talin draumastaða þeirra sem tekið hafa ást á valdinu. Forsæt- isráðherrann kann því að sjá sig knúinn til að taka frumkvæðið með því að boða til kosninga. *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.