Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 36
,.36 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Kópavogur er
' bær framtíðar
UNDANFARIN ár
hefur átt sér stað mikil
uppbygging í Kópavogi
og hefur íbúum sveitar-
félagsins fjölgað um
meira 1.200 á nýliðnu
ári. Þessi mikla fjölgun
íbúa á ekki aðeins rætur
að rekja til þess góða
byggingarsvæðis fyrir
^ íbúðarhúsnæði, sem
’ Kópavogur hefur verið
að bjóða upp á, heldur
einnig vegna þess að á
þessu svæði er gert ráð
fyrir góðum verslunar-
miðstöðvum, þjónustu-
stofnunum, skólum og
leikskólum. Allir þessir
þættir hafa án efa haft mikil áhrif á
viðhorf fólks þegar það ákveður hvar
það vill byggja upp framtíðarheimili
sitt.
Ibúum Kópavogs hefur ekki ein-
ungis verið að fjölga, heldur hefur
einnig átt sér þar stað mikil atvinnu-
uppbygging, bæði í Kópavogsdalnum
og á hafnarsvæðinu.
^ Öflugt atvinnulíf í „Miðjunni"
I Kópavogsdalnum, austan og
vestan Reykjanesbi'autar í hinni
svokölluðu Miðju, er nú að rísa eitt
öflugasta atvinnusvæði á landinu.
Miðjan er miðsvæðis á svæði sem
telur um 150 þúsund íbúa sem er
tengt nýju og öflugu gagnkerfi. For-
svarsmenn R-listans í Reykjavík
hafa séð ofsjónum yfir hinni miklu
uppbyggingu verslunar á þessu
svæði. R-listafólk fékk erlendan ráð-
gjafa, sem er á mála hjá verslunar-
miðstöð í Reykjavík, til að mæla
gegn slíkri uppbygginu því hún muni
hafa neikvæð áhrif á verslun í
Reykjavík. Það eru ekki aðeins hinar
margumræddu verslunarmiðstöðvar
sem eru að rísa í Miðjunni heldur
einnig þjónustustofnanir eins og
bankar, bókasafn, heilsugæslustöð,
veitingastaðir, o.fl. Á
jöðrum Miðjunnar eru
iðnaðarfyrirtæki að
hasla sér völl. Bæjaryf-
irvöld hafa skipulagt
svæðið með þarfir fyrir-
tækja og íbúanna í
huga. I skipulagi bæjar-
ins er gert ráð fýrir
nægum bílastæðum og
góðu aðgengi fyrir ak-
andi og gangandi veg-
farendur. Verslunar- og
þjónustuaðilar hafa
sjálfir valið þennan stað
til að hasla sér völl
vegna þeirra augljósu
möguleika sem svæðið
hefur upp á að bjóða.
I náinni framtíð verður þetta
svæði því sannnefnd miðja verslunar
og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu
sem mun ekki aðeins geta þjónað
hinum nýju íbúum Kópavogs heldur
stórum hluta höfuðborgarsvæðisins.
Gróin atvinnusvæði
Það á sér ekki aðeins stað mikil
uppbygging atvinnusvæða í Miðj-
unni heldur er nú einnig að fara af
Kópavogur er eitt
eftirsóttasta íbúðar-
svæði landsins, að mati
Sigurrósar Þorgrfms-
dóttur, og atvinnulífið
blómstrar þar.
stað mikil uppbygging á hafnarsvæði
Kópavogs. Með tilkomu nýs hafnar-
garðs hefur eftirspurn eftir atvinnu-
lóðum á því svæði stóraukist. Innan
fárra ára mun því verða enn blóm-
legra atvinnulíf á þessu svæði en
verið hefur. Viðlegukanturinn á eftir
að verða mikil Iyftistöng fyrir at-
Sigurrös
Þorgrímsdóttir
Hvers vegna keppast
menn við að sópa ljóð-
hefðinni undir teppið?
ÞEGAR rætt er eða
skrifað um arfleifð okk-
ar í bókmenntum er
óspart vitnað í fornsög-
unar og og mikilvægi
þeirra, sem allir eru
sammála um að séu
ómetanlegar.
Hins vegar vekur
nokkra furðu, þegar
rætt er um ljóðhefðina,
ekki síst fyrir og eftir
lýðveldisstofnun, þá
gleymist arfleifðin mjög
skynddega en alls konar
prósi eða óljóð gerast
mjög áberandi. Enginn
lærir eitt einasta prósa-
víljóð og sárafáir kaupa.
Hafa menningarpostulamir engar
áhyggjur af slíku?
Prósalofgjörð
Einn af okkar mest áberandi bók-
menntafrömuðum um þessar mund-
ir, Örn Ólafsson, prófessor í Noregi,
hefir verið mjög afkastamikill í sín-
um skrifum um þýðingar á íslensk-
um bókum á mál frændþjóða okkar.
Einnig um allskonar „isma“ í bók-
menntum. Samtímis er þessi marg-
rómaði prófessor sífellt að hossa
prósaljóðum, sem hann þó viður-
kennir að njóti mjög lítilla vinsælda
í Noregi rétt eins og hér. Það vakti
því nokkra furðu, þegar hann lét
birta í Lesbók stórar myndir af
Tómasi Guðmundssyni og Einari
Benediktssyni í lofgerðargrein sinni
um prósann. Þótt Tómas hafi ort
frábær ljóð órímuð, var hann alltof
mikill fagurkeri til að hagnýta sér
*‘ ekki stuðla, enda missteig Örn sig
rækilega á tilvitnuninni
í Tómas til réttlætingar
forleysunni. Sambands-
leysi númtíma ljóða við
þjóðina er alvarlegt
áhyggjuefni.
Síðan teflir Örn fram
stórskáldinu Einari
Benediktssyni. Skyldi
Einar hafa hlotið skáld-
frægð sína fyrir prósa?
Þótt Erni hafi tekist að
finna eitt laufblað með
snjöllum prósa í blóm-
strandi rósagarði þessa
skáldjöfurs, sannar það
aðeins snilld og anda-
gift Einars, sem ekki
fyrirfínnst í þeim leir-
prósa, sem tröllríður ljóðagerð okk-
ar um þessar mundir.
Farsótt
Líkja má prósaruglinu við eins
konar farsótt, sem er bráðsmitandi.
Líkja má prósaruglinu
við eins konar farsótt,
segir Guðmundur Guð-
mundarson, sem hann
telur bráðsmitandi.
Allir ruglukollar orðnir skáld. Þó er
alvarlegast að í kennslubókum í skól-
um hefir árum saman verið íjallað
um íslenskar nútímabókmenntir af
höfundum, sem eru mjög róttækir
kommúnistar, þannig að fjöldi kenn-
ara verður að mæla gegn betri vit-
und um fjarstæður og falsanir í boð-
Guðmundur
Guðmundarson
vinnulífið á Kársnesi en þar hafa
starfað mörg öflug og rótgróin fyrir-
tæki um árabU.
Yfir eitt þúsund, bæði stór og smá
fyrirtæki, eru starfandi í Kópavogi.
Gamalgróin atvinnusvæði eru t.d. í
Smiðjuhverfi og á miðbæjarsvæðinu
í Hamraborg en þar eru yfir eitt
hundrað fyrirtæki. Þessi mikla
gróska í atvinnulífi Kópavogs sýnir
það og sannar að bærinn er ekki
bara svefnbær frá Reykjavík heldur
er þar blómlegt atvinnulíf sem veith’
þúsundum atvinnu.
Aukin þjónusta við íbúana
Ekki er nægjanlegt að skipuleggja
atvinnubyggð heldur er nauðsynlegt
að huga að þjónustu fyrir íbúana. Nú
þegar er hafin uppbygging þjónustu-
stofnana í Lindahverfi. Fyrsti áfangi
Lindaskóla hefur þegar verið boðinn
út og er áætlað að honum ljúki
haustið 1998. Byrjað er á að reisa
leikskóla í Lindahverfi og verður
byggingu hans lokið um mitt þetta
ár. Þá verða hafnar framkvæmdir
við annan leikskóla í Lindahverfi nú
á vormánuðum. Heilsugæslustöð,
sem þjóna á þessum hverfum, mun
taka til starfa á næsta ári og einnig
er fyrirhugað að opna bókasafn á
svæðinu. I lok síðasta árs var opnuð
stór glæsileg þjónustumiðstöð í Gull-
smára sem veitir mikla möguleika
fyrir eldri borgara að efla enn frekar
hið gróskumikla starf þeirra í Kópa-
vogi.
Kópavogur - bær framtíðar
Með framtakssemi, bjai'tri fram-
tíðarsýn og metnaðarfullu skipulagi
hefur stjórnvöldum í Kópavogi lán-
ast að gjörbylta ímynd bæjarins á
aðeins örfáum árum. Hér áður fyrr
var litið á Kópavog sem annars
flokks sveitarfélag þar sem ófrá-
gengnar götur og ókláruð mannvirki
settu mark sitt á bæinn. Fasteigna-
verð hefur verið að hækka og lóða-
eftirspurn stöðugt að aukast. Nú er
Kópavogur eitt eftirsóttasta íbúar-
svæði landsins og atvinnulífíð
blómstrar. Kópavogur er því bær
bjartrar framtíðar bæði fyrir íbúana
og atvinnulífið.
Höfundur er formaður atvinnu-
málanefndar Kópavogs.
skap ljóða og lærdómsrita. Þessi sví-
virða er látin viðgangast árum sam-
an, þótt Berlínarmúrinn hafi hrunið
yfir hausinn á hirðfíflum þessarar
stefnu fyrir ótal árum. Auk þess var
ákveðið að iþyngja ekki börnum með
því að láta þau læra falleg ljóð. Af-
siðunin skal vera fullkomin!
Ungskáldin
Skáldgáfan er oftar en ekki tekin
að erfðum. Sú staðreynd er í fullu
gildi, þótt allir titli sig skáld nú um
stundir.
Ungskáldin, sem ekki þekkja
lengur einfóldustu bragreglur og
telja sig ekki þurfa á slíku drasli að
halda eru ófeimin að láta ljós sitt
skína í blaðaviðtölum. Aðeins tvö
dæmi: „Ég skil ekki alltaf mín eigin
ljóð. Þau eru svo torræð og svo hef
ég steingleymt, hvað myndmálið átti
að þýða“! ... „Annars leiðast mér
ljóð mjög mikið.“ Er þetta ekki frá-
bært?
Arfleifðin
Er blessaður Háskólinn að verða
löggilt óljóða og prósa-hreiður, þar
sem allar bragreglur eru orðnar úr-
eltar?
Stuðlar hafa verið arfleifð okkar
og aðalsmerki allt frá dögum Egils
Skallagrímssonar. Það gæti því orðið
áhugavert að fylgjast með, þegar
prósagarparnii' sem hæst er hossað
fara að spreyta sig á rímlausum og
óstuðluðum hátíðaljóðum í tilefni
1000 ára afmælis kristnitöku á Is-
landi!
Samt er stóra spurningin, þegar
örstutt er í að 21. öldin haldi innreið
sína. Er prósinn veganestið og sú
arfleifð, sem við óskum eftir að unga
kynslóðin og niðjar okkar taki sér til
fyrirmyndar í ljóðagerð á nýrri öld.
Að sjálfsögðu er allt leyfilegt í
ljóðagerð en ekki í ljóðlist!
Gleðilegt nýár!
Höfundur er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri.
Skipasmíðar
í Kína
LAUGARDAGINN
20. desemer var auglýstr
ur fundur í miðri jóla-
ösinni til að kynna
áhugasömum fiskiskipa-
útgerðum nýjar skipa-
smíðar. Til landsins voru
komnh- vorboðar gróðans
í íslenskum sjávarútvegi,
menn sem lofuðu vinnu-
afli á 2 dollara á dag, eða
útseldri vinnustund sem
nemur 2 dollurum á tím-
ann. Þetta voru fulltrúar
ríkisfyrirtækis í Kanton,
skipasmíðastöð eins og
best gerist á vestrænan
mælikvarða. Fulltrúar
sömu stjórnvalda og
höfðu í hótunum við Islendinga nýver-
ið ef þeir leyfðu sér að snæða snarl á
Þingvöllum með ferðamönnum að eig-
in vali. Gestgjafar þeirra hér á landi
og skipuleggjendur jólafóstufundarins
er fyrirtækið IceMac fiskvinnsluvéIal•.
Kína er ekld hvaða land sem er.
Hér er á ferðinni risi með yfir milljarð
íbúa, auðæfi til lands og sjávar sem
eiga vart sinn líka í heiminum, stór-
Ætlast er til að
skipasmíðar okkar
keppi við land, segir
Borgþór S. Kjærne-
sted, sem í mínum
huga er ekkert annað
en nútíma þrælabúðir.
veldi í uppsiglingu sem hefur sýnt í
verki hvað í því býr ef tækifærin gef-
ast.
Skriðdrekar sem rúlla yfir stúdenta
sem gera kröfu um hugsanafrelsi eru
sennilega mörgum enn minnisstæðir.
Kínversk sjómannasamtök (ríkisins)
bjóða félagsmenn sína til útgerðarfyr-
irtækja á Vesturlöndum fyrir 50 doll-
ara mánaðarkaup - og þeir hafa nóg
af þeim.
Það mun hafa komið íslenskri
sendinefnd í Kínaferð skemmtilega á
óvart hvað tæknileg gæði voru á háu
stigi - og iðjusemin. Hér voru engar
íslenskar skúringarkerlingar sem
aldrei blésu úr nös, jafnvel þó að von
væri á höfðingjum, eins og haft var á
orði á fundinum. Né heldur vinnur
bara helmingur iðnaðarmanna í einu,
nei, þar vinna allir og eru snöggir að
þvi, eins og Daníel Frið-
riksson skipaverkíræð-
ingur hafði uppgötvað.
Það hlýtur að hafa komið
mönnum enn skemmti-
legar á óvart hvað kaupið
var lágt.
Og verkafólkið er til
friðs. Framkvæmda-
stjórinn og skipaverk-
fræðingurinn Zhang Yu
Da margendurtók að fyr-
irtækið væri ríkisrekið.
Hvað ætli það þýði. Ég
gæti ímyndað mér að það
gæti þýtt herlögreglu
gegn þeim verkamönn-
um sem vildu hækka
launin, þó að ekki væri
nema um nokkur sent. En umfram
allt að um örugg viðskipti væri að
ræða.
Á sama tíma hafa íslensk stjómvöld
fallið frá smávægilegum stuðningi við
íslenskan skipaiðnað, sem átti að jaíha
samkeppnisaðstöðu hans við þá tak-
mörkuðu ríkisstyrki sem veittir eru
innan ESB og EES svæðisins og þar
með er ætlast til að skipasmíðar okk-
ar samfélaga keppi við land sem í mín-
um huga er ekkert annað en nútíma
þrælabúðir.
Mér finnst líka með ólíkindum að
boðberar frjáls hagkerfis og frjálsrar
samkeppni skuli ávallt missa niður um
sig um leið og þeir komast í „feitt" og
geta farið að græða ómælt á fátækt og
erfiðum aðstæðum annarra.
Og hvað fá menn fyrir útselda
vinnu á tvo dollara á tímann?
* Gæðastaðal ISO frá 1994.
* Þjónustu hátæknifyrirtækis sem
Bretar stofnuðu í Kanton 1845, sem
getm- ráðið við hvaða verkefni sem er.
* 3.500 starfsmenn, alla sívinnandi
fyiir lágt kaup, auk þess
* 500 hámenntaða tæknifræðinga,
* um 1.000 hafa háskólamenntun, þar
af eru 100 hagfræðingar.
Þetta fyrirtæki byggði fyrir Onassis
á sínum tíma, sem rústaði allar félags-
legar aðstæður til sjós á örfáum árum
og sló í sundur stéttarfélög farmanna
á skömmum tíma. Nú eru A.P. Möller
og P&O í hópi bestu viðskiptavina.
Og Bolli Magnússon skipatækni-
fræðingur var skýrmæltur. Menn
verða að vita hvað þeir vilja, ekki láta
Kínverjana búa eitthvað til sem þeir
halda að þú viljir, og þú verður að
vera fljótur, þetta tilboð stendur
væntanlega ekki lengi. Nei, vonandi
ekki.
Dæmið lítur svona út samkvæmt
mínum punktum:
Borgþór S.
Kjærnested
títseld vinna Kína Pólland Island Vestur-Evrópa
220 1.000 1.800 2.700 IKR ca
Byggingatimi 210.000 210.000 200.000 150.000 klst.
Búnaður 603.000 603.000 603.000 603.000 IKR
Efni 160.000 230.000 300.000 270.000
Ymis kostn. 18 millj. 45 millj. 65 millj. 65 millj.
Ymis annar kostn. 95 millj. 70 millj. 55 millj. 60 millj.
Launakostn 46 millj. 220 millj. 360 millj. 405 millj.
Samtals 922 millj. 1.168 millj. 1.383 millj. 1.400 millj.
Afgerandi munurinn hggur eins og
fyrr segir í launakostnaðinum. Á sama
tíma hverfa verulegir fjármunir út úr
okkar samfélagi inn í miðstýrt kúgun-
arsamfélag Kínverja, þar sem engin
fijáls skoðanaskipti fara fram, engin
frjáls samkeppni fer fram nema með
röngum formerkjum, engin frjáls fé-
lagasamtök líðast til að standa vörð
um mannúðlegar aðstæður og rétt
hins vinnandi manns til réttláts skerfs
af arði atvinnurekanda síns.
Félagsleg undirboð af þessu tagi
eru vaxandi vandi nútímans. Fátækt
heimsins eykst, launamisrétti milli
í-íkra og fátækra er mest þar sem
áhrif samtaka launafólks er minnst.
Þetta vita Kínveijamir líka. Og þeir
svífast einskis.
Það er full ástæða fyrir alþjóðasam-
tök launafólks, málmiðnaðarmanna,
sjómanna og annarra, að vera á verði
og grípa til þeirra ráðstafana sem
duga. Alþjóðasamband flutninga-
verkamanna mun ekki hika við að lýsa
kinverska fánann hentifána verði hon-
um breytt í það. Kínversk skip sem
mörg hver sigla undir hentifánum en
eru mönnuð Kínverjum, hafa nú þeg-
ar margsinnis verið stöðvuð á Vestur-
löndum vegna lélegra kjara um borð
og þeim atvikum mun því miður fara
fjölgandi. Við verðum að standa vörð
um allt okkar velferðarkerfi og gera
upp við okkur í hvers konar samfélagi
við viljum búa - samfélagi menningar
og mannlegrai- reisnar þar sem menn
greiða hlutina réttu verði og heimta
réttmæt laun fyrir sin störf - eða
samfélagi eymdarinnai- og ofrfldsins,
þar sem atvinnui-ekandinn skammtar
einn á diskana og hyglai- aðeins þeim
sem hann hefur mestan hagnað af
hverju sinni?
Það er þetta sem er eitt brýnasta
viðfangsefni íslenskrar sem annarrar
verkalýðshreyfingar á næstu ái’um.
Það kostar ærið erfiði að byggja í dag
upp samfélag félagasamtaka og lýð-
ræðis í heimshluta Sovétríkjanna nú
um stundir. Þar hugsuðu menn jafn
öðruvísi fyrrum og menn gera í dag í
Kína, og lýst var á nefndum fundi.
Höfundur er eftirlitsfulhrúi
ITF á íslandi.