Morgunblaðið - 08.01.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998 3&
Mig langar til að spyrja þig, löngu horfna kona,/ hvað
leiddi hendur þínar/ að sauma þessar rósir í samfelluna
þína?/ Og svona líkar fínar! Spyr Halldóra B. Björnsson
í upphafserindi sínu í kvæðinu „Á Þjóðmiiyasaffni".
Amtmannsstofa Þjóðminjasafns Islands hefur að
geyma mikið af hannyrðum úr fortfðinni. Áhugavert er
að dvelja þar um stund, skoða vel og gera sér í
hugarlund hvaðan hannyrðirnar eru sprottnar og velta
því fyrir sér hver skapaði þær og hvers vegna. Það er á
slíkum stundum sem manni tekst að láta nútíðina ijála
aðeins við fortíðina. Þannig fræða gamlar minjar oft
best um liðna tíma.
Sjálfsagt hafa margir fallið í nokkurs konar „fortíðartrans" inná
Þjóðminjasafninu. Þeirra á meðal er Halldóra Björnsson sem hefur tekist á
snjallan hátt að koma upplifun sinni í ljóðaform og gert hana þar með
ódauðlega, sem betur fer fyrir okkur hin sem vildum hafa sagt það sama en
ekki gefin sú gáfa að raða orðunum í svona fallega röð.
Fyrir utan allan útsauminn og vefnaðinn eru á safninu pijónaðar flíkur, þó
aðallega vettlingar, húfur og sokkar. Þar er t.d. að finna átta blaða
rósavettlinga og fingravettlinga sem vekja undrun manns fyrir það hversu
fínlegir þeir eru. Garnið er svo fínt að varla er hægt að gera sér í hugarlund
ptjónana sem þeir hafa verið pijónaðir með. Þeir hljóta að hafa verið eins
mjóir og títupijónar. í dag er pijónað úr grófara garni og þar með fljótlegra
að Ijúka heilli flík.
Janúar er nú runninn upp að nýju, mánuður áætlana og góðra íyrirheita og
því tilvalið að byija á einhveiju nýju, t.d. fallegri peysu á litla augasteininn í
Ijölskyldunni.
Nú er boðið upp á símunstraða peysu úr Smart-garni sem er sérstaklega
mjúk ull. Þá er bara að setjast niður með pijónana og láta hugann reika til
fortíðar, til allra sem hafa notið þess hins sama í gegnum tíðina; að setjast
niður við hannyrðir.
Var það þetta yndi, sem æskan hafði seitt þér/ f augu og hjarta?/ Eða fyrir
manniim, sem þú mættir fyrir nokkru,/ að þú máttir til að skarta?
STÆRÐIR 6 m 1 2 4 6 ára
Yfirvídd: 68 72 76 80 84 cm
Sídd: 30 34 38 42 46 cm
Ermalengd: 17 20 24 28 32 cm
Handvegur: Garn: SMART 16 17 18 19 20 cm
Dökkbl. nr. 875 3 4 4 5 6 d.
Grænt nr. 8901 1 1 1 2 2 d.
Rústr. nr. 8451 1 1 1 1 2 d.
Grænt nr. 895 2 dokkur í allar stærðir.
Lj.rústr. nr. 839 1 dokka í allar stærðir.
Blátt nr. 862 1 dokka í allar stærðir.
Bláyrjótt nr. 867 1 dokka í allar stærðir.
Einnig er hægt að nota PEER GYNT.
PRJÓNAR: 40 eða 60 cm hringprj.
nr. 2,5 (stroff)
50 eða 60 cm hringprj. nr. 4 (bolur)
40 cm hringprj. nr. 2,5 (hálslíning)
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 4 (ermar)
PRJÓNFESTA: 22 lykkjur í sléttu prjóni á
prjóna nr. 3,5 = 10 cm 22 lykkjur í tvíbanda-
prjóni á prjóna nr. 4 = 10 cm.
BOLUR: Fitjið upp með dökkbláu á hring-
prjón nr. 2,5, 138-144-152-158-164 lykkjur.
Prjónið stroff 1 sl., 1 br. í hring og rendur
þannig: 4 prjóna með dökkbláu, * 2 prjóna
með bláyrjóttu, 2 prjóna með dökkbláu *.
Endurtakið * til * 1-1-1-2-2 sinnum enn.
Prjónið 1 prjón sléttan með dökkbláu og auk-
ið í 14-16-20-22-24 lykkjum með jöfnu millibili
= 152-160-172-180-188 lykkjur. Skiptið yfir í
hringprjón nr. 4. Setjið merki á báðar hliðar
með 76-80-86-90-94 lykkjum á hvorum helm-
ingi. Prjónið munstur þannig: * 1 brugðin,
byrjið að prjóna við örina sem sýnir rétta
stærð og prjónið út að hliðarmerkinu *. End-
urtakið frá *-*. Brugðnu lykkjurnar í hlið-
unum halda sér alveg upp. ATHUGIÐ: Þegar
allur bolurinn mælist 26-30-33-37-41 cm er
komið að hálsmálinu að framan. Slítið frá í
hliðinni. Setjið 11-13-15-15-17 lykkjur í miðju
á nælu. Byrjið að prjóna vinstra megin við
hálsmálið og prjónið fram og til baka yfir all-
ar lykkjurnar. Fellið jafnframt af í byrjun
prjóns báðum megin við hálsmálið 4 lykkjur 1
sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinn-
um = 22-23-25-27-28 lykkjur á öxl. Prjónið
þar til allur bolurinn mælist 30-34-38-42-46
cm. Setjið lykkjurnar á nælur.
ERMAR: Fitjið upp með dökkbláu á sokka-
prjóna nr. 2,5, 34-36-38-40-42 lykkjur. Prjón-
ið stroff 1 sl., 1 br. í hring og rendur eins og á
bol. Prjónið 1 hring sléttan með dökkbláu og
aukið út í 48-48-56-56-58 lykkjur. ATHUGIÐ:
Síðasta lykkjan á hringnum er alltaf prjónuð
brugðin = merkilykkja. Skiptið yfir á sokka-
prjóna nr. 4. Prjónið munstur (teljið út frá
miðju hvernig á að byrja á munstrinu). Aukið
jafnframt í 1 lykkju báðum megin við merki-
lykkjuna með 1-1-1,5-1,5-1,5 cm millibili þar
til 72-76-80-86-90 lykkjur eru á erminni.
Prjónið þar til öll ermin mælist 17-20-24-28-
32 cm. Snúið henni við og prjónið 5 hringi
slétta (kantur). Fellið af.
FRÁGANGUR: Mælið breidd ermarinnar við
handveginn = 16-17-18-19-20 cm og merkið.
Saumið í saumavél 2 beina sauma með smáu
spori báðum megin við handveginn. Klippið á
Miðja
á ermi
V"
Endurtakið
□ = Grænt nr. 890
(Ö) = Rústrautt nr. 845
= Dökkblátt nr. 875
(5] = Bláyrjótt nr. 867
0 = Grænt nr. 895
0 =Bláttnr. 862
1/2 1
Byrjið hér
t t t
2 4 6. ára
SB = Lj.rústr. nr. 839
milli saumanna og sikk-sakkið þétt yfir sár-
kantinn. Lykkið axlir saman. Saumið ermarn-
ar í innan við kantinn efst á erminni og notið
hann til að hylja sauminn.
HÁLSLINING: Prjónið upp með dökkbláu í
hálsmálinu á hringprjón nr. 2,5, 80-84-88-90-
94 lykkjur. Prjónið stroff 1 sl., 1 br. í hring og
rendur þannig: 2 hringi með bláyrjóttu, 2
hringi með dökkbláu, 2 hringi með bláyrjóttu.
Prjónið áfram með dökkbláu þar til öll líning-
in mælist 6 cm. Fellið af með
sléttum og brugðnum lykkjum.
Brjótið líninguna tvöfalda yfír á rönguna og
saumið niður. Saumið þvottaleiðbeininga-
merki innan í peysuna.