Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 40

Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐNY JÓNSDÓTTIR + Guðný var fædd í Holts- múla í Landsveit 22. september 1902. Hún lést á Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi 9. desember síðastliðinn. Faðir hennar var Jón bóndi þar, f. 1860, sonur Einars í Eystri-Tungu í Landbroti og síðar í r Holtsmúla, f. 1832, Gislasonar í Arnar- drangi, Gíslasonar hreppstjóra þar (er fæddur 22. maí 1900 og lést 21. febrúar 1975. Hann var son- ur Péturs bónda á Skammbeinsstöðum, f. 1874, Jónssonar á Stokkalæk, Péturs- sonar á Helluvaði, Jónssonar þar, Eyj- ólfssonar þar, f. 1733. Föðurbróðir Óskars var Egill á Stokkalæk, faðir Jóns á Selalæk. Móð- ir Óskars var Guðný dóttir merkishjón- anna á Árgilsstöð- flúði Skaftáreldana út í Árnes- sýslu en sneri aftur), Þorsteins- sonar á Efri-Steinsmýri, Þor- steinssonar á Ytra-Hrauni, Ólafs- sonar á Borgarfelli, f. 1632, Jóns- sonar gamla á Syðri-Steinsmýri, Eiríkssonar. Móðir Einars í Holtsmúla var Halldóra dóttir Odds Bjarnason- ar hreppslj. í Seglbúðum og Hörgsdal. Systir Halldóru var Guðríður á Kirkjubæjarklaustri, móðir Magnúsar þar, föður Krist- ínar í Haga í Holtum, móður Helgu, móður Guðmundar Har- aldar á Heiðarbrún. Annar sonur Guðríðar á Klaustri var Símon í Jórvík, faðir Páls þar, tengdaFóð- ur Jóns Gíslasonar alþingismanns í Norðurhjáleigu. Þessarar ættar eru alþingismennirnir Hjörleifur Guttormsson, Jón Helgason frá Seglbúðum og Gísli alþingisfor- seti Sveinsson, ennfremur Sveinn landgræðslustjóri og meistari Kjarval. Móðir Guðnýjar var Gislunn, f. ^,1866, dóttir Árna á Bjalla, Jóns- sonar á Heiði á Rangárvöllum. Móðir Gíslunnar var Helga í Holtsmúla, dóttir Gísla í Flag- bjarnarholti, bróður Guðmundar ríka á Keldum, föður Jóns á Æg- issíðu afa Jóns Þorgilssonar sveitarstjóra. Þeirrar ættar voru og Marsibil Jóhannsdóttir frá Öl- versholtshjáleigu og Jón Helga- son prófessor. Bróðir Gíslunnar var Jón rokkasmiður, faðir Helgu í Keflavík, móður Jóns í Hauka- gili, föður sr. Sigurðar í Odda. Systkini Guðnýjar eru: 1) Ein- ar, fyrr bóndi á Kaldárholti í Holtum, síðar starfsmaður MFB á Selfossi. 2) Árni, lengst bóndi í Holtsmúla, síðar á Selfossi. 3) Helgi bóndi í Kaldárholti. 4) Theodór skipstjóri í Boston. 5) Gíslunn húsfr. í Rvík. 6) Jón málmiðnaðarmaður í Rvík, lengst bóndi á Árbæ í Holtum, síðast gleriðnaðarmaður á Hellu. 7) Guðrún húsfr. í Rvík, og 8) Ólaf- ur, lengi bóndi í Árbæjarhjáleigu í Iioltum, sfðar verkamaður í Reykjavík. Guðný giftist Jóni Óskari Pét- urssyni 23. maí 1931. Hann var um, Kristjáns Jónssonar og Eyrúnar Jónsdóttur. Eyrún var dóttir Þuríðar á Árgilsstöðum, systur Odds á Sámsstöðum, föður Olafs Ijósmyndara í Rvfk, fóður Odds læknis, fóður Davíðs forsæt- isráðherra. Kristján á Árgilsstöð- um var sonur Jóns í Fagurhlíð í Landbroti sonur Önnu systur Guðríðar á Klaustri og Halldóru Oddsdætra sem fyrr voru nefnd- ar. Börn Guðnýjar og Óskars eru: 1) Unnur Sigríður, f. 9. apríl 1932. Hennar maður er Gísli Ást- geirsson og búa þau á Syðri- Hömrum. Þeirra börn: Ásta, húsm. Hafnarfirði, maki Guð- mundur Pálsson og eiga þau þrjár dætur. Erlingur, bifvéla- virki Hellu, maki Elín Heið- mundsdóttir og eiga þau eina dóttur. Hrafnkell, lést af slysför- um. 2) Eyrún, f. 29. janúar 1934. Starfsmaður á Dvalarheimilinu Lundi. Hennar maður er Sæ- mundur Guðmundsson fv. skóla- stjóri á Laugalandi. Þau búa á Hellu. Þeirra börn: Guðný Birna, hjúkr. fræðingur í Grindavík, maki Haraldur Tómasson og eiga þau tvo syni. Petrína Guðlaug, starfsmaður á Lundi. Kolbrún Ósk, maki er Egill Jónasson og búa þau á Hjarðarlandi í Biskups- tungum og eiga þijú börn. Guð- mundur, rafiðnaðarmaður í Dan- mörku, maki er Trine Ernst og eiga þau tvær dætur. Særún, kennari í Þykkvabænum, maki er Heimir Hafsteinsson oddviti. Þau búa í Smáratúni og eiga þrjú börn. 3) Bragi, f. 25. september 1938. Fyrr bóndi á Skammbeins- stöðum, sfðar bormaður Kópa- vogi. Fyrri kona er Guðný Há- konardóttir (skildu). Seinni kona er Guðlaug Þorsteinsdóttir. Börn Braga og Guðnýjar eru: Óskar, lést af slysfórum. Gísli, vélstjóri Rvfk, maki Elva Hrönn Guð- bjartsdóttir og eiga þau tvö börn. Sigurbjörg, maki er Ólafur Kjart- an Sigurðsson og eiga þau tvö börn. Guðný Anna, hárgreiðslu- kona, Kópavogi. Guðný var jarðsungin frá Mar- teinstungukirkju 18. desember. Þegar þetta er skrifað, stendur yf- ir sú hátíð sem er tákn fyrir ljós, feg- urð, mildi og kærleika. Þetta fernt er það sama og einkenndi nýlátna heið- urskonu, Guðnýju Jónsdóttur frá Skammbeinsstöðum. Hún var orðin öldruð og hafði orðið fyrir slysi nú í haust. Eftir það dró ört af hennar þreki. Henni hefur því orðið andlátið kærkomin hvfld en í huga þeirra sem þekktu hana, tengjast nú saman jóla- ljósin sem hvarvetna biakta, kyrrð jólanna og sá friður sem umvafði hennar persónu í daglegu starfí og lífi. Guðný fæðist í byrjun þessarar ald- ar. Hún fæðist inn í svipaða „veröld" og formæður hennar höfðu lifað við í þessu landi í u.þ.b. þrjátíu kynslóðh’. Þó var farið að rofa til í aðbúnaði, lífs- háttum og efnahag alþýðu manna og tengi ég það sem afleiðingu af þeim skrefum til aukins fullveldis sem þjóðin var þá farin að feta sig efth’. Guðný fæddist í vesturbænum 1 Holtsmúla í Landsveit og ólst þar upp í fjölmennum systkinahóp. Sú „mynd“ sem ég hef af þeim Holts- múlasystkinunum sem ég hefí þekkt og kynnst er að þar voru ljúfmenni og góðmenni, greind, glögg, aðgætin, at- hugul, verklagin, vinnusöm, hyggin og fóru vel með verðmæti. Flest voru þau orðvör mjög en Arni var sögu- maður mikill. Eg á Ama margt gott að gjalda frá því er hann var með mér í Veiðivötnum í fáein sumur og þykir mér miðui- að mér auðnaðist ekki að hafa tíma til að minnast hans þegar hann lést. Eg ætla að efnahagur foreldra Guðnýjar og viðurværi þar á bæ hafi verið allgott miðað við það sem þá gerðist. Þegar Guðný var á þrettánda ári lést faðh’ hennar. Þrátt fyrir það er ekki að sjá neinn bilbug á þessu fólki og næstu fímm árin er móðir hennar talin fyrir búi. Þá var á heim- ilinu Helga, amma Guðnýjar, rúm- liggjandi í tólf ár. Sem börn fengu systkinin að fara í berjamó á sunnu- dögum, en Helga hafði það fyrir venju áður en þau fengu að fara, að þá kallaði hún þau að rúmi sínu og lét hvert og eitt þeirra lesa upphátt kafla sem hún valdi úr Biblíunni. Þetta var nú eins konar „forskólanám" þess tíma enda var Guðný læs þegar bamaskólinn hófst við tíu ára aldur. (Svo getur hver og einn metið það í sínum huga, hvort þetta var farsælli uppeldisgrunnur eða það sem sums staðar tíðkast nú að böm hafa fyrir augunum glæpamyndir í sjónvarpinu, fí’á því er þau fá sjónina.) Skólaganga Guðnýjar var í fáeinar vikm- á ári í fjóra vetur. Kennt vai’ í Lunansholti og kennari var Ágúst Eyjólfsson í Hvammi. 1920 lét móðir hennar af búskap og gerðist þá Ámi, bróðir hennar, bóndi í Holtsmúla. Varð hún þá vinnukona hjá honum um tíma. Þótti henni þá ekki lakara að geta gengið í útistörfin ásamt inni- verkum sem hún og gerði lengst af sína búskapartíð. Alit var þó myndar- legt hjá henni innanhúss - það er undarlegt hvað þessar konur gátu af- kastað í verkum sínum. Það átti nú ekki fyrir Guðnýju að liggja að verða áratuga vinnukona hjá bróður sínum (og koma þannig í veg fyrir að hann næði sér í konu). Guðný brá sér til Reykjavíkur og var í fisk- vinnu á a.m.k. tveimur stöðum. Þar vann hún við að þvo fískinn í akkorðsvinnu, breiða hann út til þurrkunar og taka hann svo saman þegar úrkomu var von. Fiskþvottur- inn fór fram í lélegum skúr og þá varð fólld stundum illa kalt á höndunum. Þetta var nú áður en „eldsálir" verka- lýðsins fóm að ná árangri í réttinda- baráttu alþýðunnar. Þá var Guðný kaupakona í tvö sumur uppi í Norður- árdal í Borgarfírði, fyrst í Brekku og svo hjá Katrínu og Eiríki á Glitstöð- um. Kannske var Borgarfjai’ðarveran og fiskvinnan eins konar „framhalds- skóli“ fyrir Guðnýju, því að fara að heiman vfltkar sjóndeildarhringinn flestra. En tengsl hennar við átthagana rofnuðu ekki, þvi þangað leitaði hún aftur. Á þessum tímum vai’ starf ung- mennafélaganna þróttmikið. Fólk kom saman, hlustaði á ræður m.a. um mátt samtakanna og framtíð lands og lýðs. Spilakvöld voru haldin og dans- leikir. Á veturna lagði fólk oft talsvert á sig til að sækja þessar samkomur, það fór fótgangandi um langan veg, stundum í misjöfnu veðri. Fólk hafði með sér kaffi á brúsa og pönnukökur í skjóðu. Var þess neytt í danshléi. Harmonikuleikarinn í þinghúsinu í Marteinstungu var bóndasonur á Skammbeinsstöðum, Jón Oskai’ Pét- ursson. Það var einmitt á slíkum böll- um sem þau Guðný og Óskar kynnt- ust og felldu þau hugi saman. (Þó liggja jai’ðfrnar Holtsmúli og Skamm- beinsstaðir saman en á milli þessara tveggja bæja var mikil foráttukelda, sem þó var ekki óyfirfaranleg.) 1931 verða tímamót í lífi Guðnýjai’. Kannske er það þá við 29 ára aldur - sem megin ævistarf hennar hefst. Hún flytui’ að Skammbeinsstöðum, en Pétur og Guðný foreldrar Óskars bjuggu þar áfram og einnig Karl bróðir Óskars. Fólkið heyjaði saman og skepnumar voru í sömu húsunum. Bústofn ungu hjónanna var nú ekki stór í sniðum í upphafi; tvær kýr og fáeinar ær. Pétur var aðalbóndinn á bænum fram til ársins 1939 en hann lést ári síðai’. Eg ætla að það hafi þó verið ungu bænduniir sem réðu mestu um það að byggt er þrílyft, tveggja íbúða hús í byrjun fjórða ára- tugarins. „Höllin“ sómdi sér vei „fremst" á „Skammbeinsstaðaholt- inu“ og sjónarsviptfr varð nú við ný- legt niðurrif hússins. Þrátt fyrir ytri glæsileika hússins mun ekki hafa ver- ið eins þægilegt að vinna inni í því, þar sem eidhús voru í kjallara, stofur og svefnherbergi á miðhæð, svefnher- bergi ennfi’emui’ uppi á efsta lofti og brattfr, þröngir stigar á milli hæða. Fáeinum árum eftir lát Péturs er túnum og jörð austurbæjarins skipt milli bræðranna og eftir það annaðist hvor um sig sinn heyskap og sitt bú- fjárhald. Þótt jarðarhluti hvors um sig yrði einungis um 200 hektarar búnaðist þeim mjög vel enda fór þar saman vinnusemi, ráðdeildarsemi og framkvæmdahugur. Og sem miklir búhyggindamenn kunnu þeir að nýta sér hið mikla fi’amfaraskeið landbún- aðai'ins er brátt gekk í garð. Þess var þó vel gætt að vefja sig ekki í skulda- fjötra. Um 1950 fara þeir í stórfram- kvæmdir. Hvor um sig byggir sextán kúa, tvístætt fjós með fóðurgangi. Haughús voru undir og framanvið. Ennfremur voru byggðar stórar hlöð- ur og votheysgryfjur (því þeir bjuggu jú á Suðm’landi þar sem óþurrkasum- ur eru tíð). Þessi mannvirki voru vel staðsett og eins og spegilmynd hvort af öðru. Óskar, maður Guðnýjar, var fjöl- gáfaður maður. Honum voru falin ýmis trúnaðarstörf. Hann sat m.a. í skólanefnd, sóknamefnd (enda kirkjuorganisti), þá var hann í stjóm sjúkrasamlags og um tíma í hrepps- nefnd. Hann las allt sem hann komst yfir um dýralækningar enda var til hans leitað þegar skepna veiktist á bæjum og ekki náðist í dýralækni. Þá las hann sér mjög til um allt er laut að búfjárhaldi, ræktun, heyverkun og byggingum í sveitum. Vissulega má segja að þar hafi „bókvitið verið í ask- ana látið“ í þeirra orða fyllstu merk- ingu. + Ástkær móðir okkar, SIGRÚN FINNSDÓTTIR frá Skriðuseli I Aðaldal, Kleppsvegi 68, Reykjavfk, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 6. janúar. Börn hlnnar látnu. + Látinn er í Boulder, Colorado í Bandarlkjonum, GEORGE C. WILLIAMS. Fyrir hönd aðstandenda, Hulda Pétursdóttir. + Elskulegur elginmaður minn, félagi, vinur, bróðir, afi og stjúpfaöir, EIRÍKUR SIGURSTEINSSON, Skriðustekk 11, andaðist þrlðjudaglnn 23. desember sl. Útförin hefur farlð fram I kyrrþey að ósk hins látna. Ásta Aðalheiður Garðarsdóttir, barnabörn, stjúpbörn og fjölskyldur. Ég tel að sambýli þeirra bræðra hafi verið farsælt, þrátt fyrir ein- hvern skoðanamun þegar túnum og úthögum var skipt, eins og oft vill verða undir þannig kringumstæðum. Bræðurnir létu hvor annan í friði og hvor fjölskylda um sig leysti sín bú- störf með sóma. Þeir voru líka bless- unarlega lausir við það að vera að hendast í verk hvor hjá öðrum enda valda slík „vinnuskipti" oft vandræð- um og eru „óhreinir" slumpu“reikn- ingar“. Ég skynjaði það svo að „andi“ frjálslegrar glaðværðar hafi einkennt samskipti fjölskyldna þeirra. Þetta hefði nú getað orðið með öðrum brag ef húsfreyjurnar, þær Guðný og Sólveig hefðu verið annarrar gerðar en þær voru. Báðar voru þær góðmenni, léttar í huga og ijúfar í lund. I meira en 200 ár voru formæður og frænkur Guðnýjar ljósmæður - yfirsetukonur. Gíslunn, móðir Guð- nýjar, var hálfsystir merkiskonunn- ar Ingibjargar ljósmóður á Hellum (ömmu Filippusar, sem þar býr nú). Þefrra móðir var Helga í Lun- ansholti og á Bjalla, dóttir Ingibjarg- ar ljósmóður í Flagbjarnarholti (f. 1790). Hennar móðir var Guðný Jónsdóttir yfirsetukona í Ásólfsskála undir Eyjafjöllum fædd árið 1764. Ritaðar heimildir um yfirsetukonur ná ekki lengra aftur, en á þeim tíma var það títt að starf þetta lærði gjaman dóttir af móður. Þannig má það vel vera að formæður þeirra hafi gegnt starfi yfirsetukvenna hver fram að annarri allt frá landnámsöld. Þetta voru nú oft „læknar" síns tíma sem líknuðu jafnt mönnum sem mál- leysingjum. Sé hugsað til þeirrar mannlífsreynslu sem formæður Guð- nýjar öðluðust í þessu starfi, má kannske betur skilja hvers vegna lífsviðhorf hennar sjálfrar var svo mjög jákvætt og það, með hvaða hætti hún tók öllu því sem að hönd- umbar. Ég tel Guðnýju gæfukonu. Þó varð hún - eins og flestir verða einhvern tíma - að standa frammi fyrir því sem hún hefði öði-u vísi viljað láta fara. Ég hugsa að hún hefði heldur kosið að Bragi sonur þeirra hefði ekki flutt frá Skammbeinsstöðum. (?) Að missa tvö barnabörn sín af slysförum, með tæpiega tíu ára milli- bili hlýtur að hafa snert hana illa. Og það, að Oskar maður hennar fór að smámissa heilsuna snemma á sjö- unda áratugnum hlýtur að hafa reynt mjög á hana. Sálaifræðin seg- ir, að það sé ekki mótlætið sjálft sem skipti höfuðmáli heldur það, hvernig fólk tekur því sem miður fer. Til þeiira sanninda varð mér stundum hugsað, þegar ég horfði í andlit Guð- nýjar sem hvergi var „rúnum rist“. Áföll höfðu hvorki „beygt“ hana né „brotið“. Hugarfar hennar var ein- staklega jákvætt og hún var full af þakklæti í garð annarra. Þegar Oskar varð að fara á sjúkrahús (1972) fiuttist Guðný til Eyrúnar dóttur sinnar. Hún var síð- an í hennar skjóli og Sæmundar manns Eyrúnar, fyrst á Laugalandi og síðar á heimili þeirra hér á Hellu. Það var mikil hamingja fyrir Guð- nýju í ellinni hve mikiar vinkonur og samrýndar þær urðu, hún og Peta dóttir Sæmundar og Eyrúnar. Á sumrin dvaldi Guðný oft hjá Unni dóttur sinni og Gísla á Syðri- Hömrum og með glettni í svipnum sagðist hún þá vera að fara í kaupa- vinnuna. Síðustu þrjú árin var Guðný á Dvalarheimili aldraðra á Lundi. Þeg- ai’ hún fór þangað kom enn og aftur fram hennar jákvæða lífsviðhorf. Hún sagði að það væri alveg sjálf- sagt að sleppa ekki plássinu fyrst sér byðist það, enda væri það ekki hættulaust fyrir sig - þetta gamla - að vera alein heima heilu dagana, þegar ailir aðrir væru að heiman í vinnu. Hún talaði um hve sér liði vel á Lundi. Lífsgöngu vandaðrar konu er lok- ið. Hún mundi timana tvenna og taldi að flest hefði breyst til batnað- ar í heiminum. Hún talaði um hve unga fólkið væri nú blessunarlega ófeimið, aðbúnaður fólks hefði gjör- batnað og vélarnar afnumið mesta þrældóminn. Mættu nú ekki fleiri skoða veröldina frá svona jákvæðum sjónarhóli? Ég minnist Guðnýjar með þakklæti. Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.