Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 45

Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 45 SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR + Sigríður Þórð- ardóttir var fædd í Jórvík í Breiðdal 5. desem- ber 1906. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 20. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðný Helga Bjarnadóttir og Þórður Sigurðsson frá Jórvík. Bræður hennar voru Bjarni Andrés, f. 17.2. 1896, Björgvin, f. 24.2. 1899 og Hannes, f. 4.2. 1902. Sambýlismaður Sigríðar var Þorleifur Jóhann Filippusson, f. 18.8. 1900. Börn þeirra eru Dagur, f. 13.10. 1933, sagnfræðingur, ókvæntur, Svan- björt, f. 17.9. 1936, ljósmóðir, nú dag- móðir, maki Hrafn- kell Gunnarsson, verslunarmaður og Lilja, f. 8.1. 1939, ritari við Háskól- ann, maki Pálmi Guðmundsson, starfsleiðbeinandi. Barnabörn Sigríð- ar eru 12 og barna- barnabörn 8. Útför Sigríðar hefur farið fram í kyrrþey. Sigríður Þcrðardóttir, tengda- móðir mín, lést hinn 20. desember sl. í Sunnuhlíð í Kópavogi. Þegar leiðir skiljast finnst mér ég knúinn til að minnast svo ágætrar konu sem hún var. Hún fæddist í Jórvík í Breiðdal og ólst þar upp ásamt þremur bræðrum sínum. Góðar meðfæddar gáfur voru henni ekki nægt veganesti, því réðst hún í afla sér meiri menntunar og fór í lýð- skóla einn vetur, en hann var starf- ræktur í Mjóanesi á Völlum. Þar aflaði hún sér nægrar menntunar til að geta gerst farkennari í sinni heimabyggð. Leiðir hennar liggja svo til Seyðisfjarðar þar sem hún menntar sig í saumaskap. Þar kynntist hún síðar sambýlis- manni sínum, Þorleifi Jóhanni Filip- pussyni, sem fæddur var og uppal- i inn í Hróarstungu en átti ættir að rekja til Skaftafellssýslna og Snæ- fellsness. Á Seyðisfirði heíja þau búskap og eignast þar þijú börn, Dag, Svanbjörtu og Lilju. Fljótlega eftir að síðasta barnið fæddist slitu þau samvistum og Sigríður flutti í sína heimabyggð ásamt börnunum. Erfitt er að gera sér í hugarlund I ástæður svo örlagaríkrar ákvörðun- ! ar. Eitt er víst að þau voru mjög ólík, hann ákaflega glaðsinna en I hún dul og hæg í öllum sínum gerð- um og framkomu. Ekki er að efa að hennar fagra heimabyggð hafi átt þar einhvern þátt. Ég er ekki í vafa um að henni þótti vænt um æskustöðvar sínar þó að hún flíkaði ekki tilfinningum sínum við aðra. Það var erfið ákvörðun þegar hún ákvað að yfirgefa æskustöðvar og I vini og sjá á eftir skepnum sínum. I En menntun barnanna varð að ganga fyrir. Eftir komuna til Reykjavíkur hóf hún störf við saumaskap, lengst af hjá Sjóklæða- gerðinni og síðan hjá Max. Þar voru störf hennar metin að verðleik- um sem kom fram í því að hún fékk að vinna þar meðan hún vildi. Eftir 30 ár, þá 80 ára að aldri, hætti hún störfum en þá stóð henni til boða að vinna hálfan daginn ef henni leiddist, eins og það var orð- að. Þetta sýnir hvað hún hefur ver- ið vel liðin af samstarfsfólki, tryggð og trúnaður var hennar aðalsmerki. Eitt atvik er mér minnisstætt. Eitt sinn kemur hún með regnstakk til okkar hjóna og vill endilega gefa mér hann. Þetta var vönduð og dýr flík en ég færðist undan að þiggja hann. Við eftirgrennslan segir hún mér að sér hafi orðið á mistök, ein smellan hafi farið skakkt á stakk- inn. Það var ekki við það komandi, hún vildi borga sín mistök og fékk það að lokum. Þetta hafa sennilega verið hennar einu mistök í margra ára starfi því ekki fékk ég fleiri slíkar flíkur. Hún vildi umfram allt skila dagsverki sínu þannig að allir væru sáttir. Sigríður var hagmælt vel þó að hún talaði lítt um það, því það var ekki að hennar skapi. Þó kom á prenti ljóð eftir hana í bókinni Aldr- ei gleymist Austurland. Gullfallegar vísur sem hún orti til barna sinna eru svona: Bjart er úti bðmin mín, brosir morgunn fagur sælt er meðan sólin skín Svanbjört, Lilja og Dagur. og Bregður að hausti bömin góð bliknar morgunn fagur HÉÐINN HANNESSON + Héðinn Hannes- son fæddist í j Vopnafirði 24. febr- úar 1929. Hann lést ' á Landspítalanum 25. desember síðast- liðinn. Foreidrar hans voru Hannes Runólfsson og Ing- veldur Petra Jóns- dóttir, þau eru bæði látin. Héðinn átti fimm systkini, talin í aldursröð: Jónína j Ingibjörg, Runólfur, I Sveinn, Kristmann, " látinn, og Erna Álf- heiður. Útför Héðins fer fram frá Vopnafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kæri frændi, við þökkum þér samfylgdina í gegnum öll okkar uppvaxtarár. Þegar við minnumst þín er okkur efst í huga að þú lifð- ir þínu lífi, óháður öðrum og óháður lífsins þægindum. Þú varst um margt sérstæður maður, líf þitt var bundið búskap í Böð- varsdal og bóndi varst þú fram í andl- átið sem bar að með vofveiflegum hætti á sjálfri jólahátíðinni. Okkur systkinun- um varst þú ætíð góð- ur og reyndist okkur vel. Við kveðjum þig með þakklæti og hlý- hug. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ægir, Alma og Hrannar. .sjáið i vestri sólarglóð Svanbjört, Lilja og Dagur. Sigríður átti miklu barnaláni að fagna. Hún var stolt af afkomendum sínum og vildi veg þeirra sem mest- an og þung var sorg hennar vegna veikinda Hlyns dóttursonar hennar og stjúpsonar míns, en hann lést úr krabbameini fyrir rúmum þremur árum. Þá sorg bar hún í hljóði. Ekki er hægt að enda þessar lín- ur án þess að minnst sé á alla þá ást og umhyggju sem þau Svanbjört dóttir hennar og Hrafnkell tengda- sonur hennar, ásamt börnum þeirra, sýndu henni alla tíð, allt til loka. Sigríður mín, þakka þér fyrir allar góðu samverustundirnar. Ég mun ávallt minnast þess þegar þú heilsað- ir mér og kvaddir og ég fékk léttan koss á kinnina. Þá sagðir þú ætíð, komdu blessaður og sæll, elsku góði drengurinn minn og söm voru orðin sögð að loknum samfundum. Nú sný ég þessum fallegu orðum upp á þig sjálfa, vertu blessuð, elsku góða tengdamamma mín. Pálmi Guðmundsson. Með klökkva, heimur, kveð ég þig þótt kvíða til ei finni. Ég veit að góður geymir mig guð í hendi sinni. (Sigríður Þórðard.) Elsku amma og langamma okk- ar. Það fyrsta sem Alexander ívar sagði þegar ég sagði honum að þú værir dáin, var: þá er henni batnað og hún orðin engill hjá guði, situr uppi í himninum og fylgist með okkur. Tveimur dögum síðar vorum við í göngutúr, þá benti hann upp í himininn og sagði, mamma, sjáðu þetta fallega ský, ég held að lang- amma sitji á því. Vinkum henni. Já, amman okkar, þó að við sökn- um þín, þá vitum við að þér líður betur núna og gleðjumst yfir því. Þú varst alltaf svo sterk og dug- leg. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig að og munum alltaf geyma mynd af þér í hjörtum okkar. Við starfsfólkið á Sunnuhlíð segj- um við takk fyrir að hugsa um ömmu okkar. Elsku mamma, Lilla, Dagur, og öll hin sem elska og sakna hennar ömmu okkar, við samhryggjumst ykkur og biðjum guð að blessa ykk- ur og passa. Hrönn og Alexander Ivar. Frágangur afmælis- og minning- argreina Mikii áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfund- ar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Hjartkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSDÍS KÁRADÓTTIR, áður húsfreyja á Garðskagavita, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi gamlársdags, verður jarðsungin frá Útskálakirkju á morgun, föstudaginn 9. janúar, kl. 14.00. Sigrún Sigurbergsdóttir, Tómas Þ. Sigurðsson, Kári Sigurbergsson, Karítas Kristjánsdóttir, Valgerður Marinósdóttir, Valdimar Þ. Valdimarsson, barnaböm og barnabarnabörn. Bróðir okkar, HÉÐINN HANNESSON, Böðvarsdal, Vopnafirði, verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn 8. janúar, kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Jónína Hannesdóttir, Runólfur Hannesson, Sveinn Hannesson, Erna Hannesdóttir. + Elskuieg sambýliskona mín, móðir, tengda- móðir og amma, SVANFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Hjaltabakka 32, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 1. janúar sl., verður jarðsungin frá Breiðholtskirkju föstudaginn 9. janúar kl. 15.00. Haraldur Kristjánsson, Jón Bergþór Hrafnsson, Anna Ólafsdóttir og barnabörn. + Okkar ástkæra, JÓHANNA EINARSDÓTTIR bókbindari, Hátúni 10B, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 2. janúar sl„ verður jarðsungin frá Fossvogskapellu á morgun, föstudaginn 9. janúar, kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Sigfríður M. Vilhjálmsdóttir. Stjúpmóðir mín, STEFANÍA VALGERÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Hvassaleiti 20, Reykjavík, sem andaðist á Landspítalanum laugardaginn 3. janúar sl„ verður jarðsungin frá Háteigskirkju á morgun, föstudaginn 9. janúar, kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Kári Fanndal Guðbrandsson. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát föður okkar, sonar og bróður, HEIMIS GUÐMUNDSSONAR, Varberg, Svíþjóð. Guðmundur Heimisson, Henrik Guðmundsson, Júlía Guðmundsson, Matthildur Bjömsdóttir, systkin og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.