Morgunblaðið - 08.01.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 08.01.1998, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Tommi og Jenni 10-10 • 1W» TlMNfH E"TE«I*'NUfMTCO OST.COnOKÍPRtSS&ERVCe Ljóska Ferdinand THEJWAN AT TH6 STORE TH0U6HT IT WA5 VERY FUNNY THAT YOU WEAR OUT 50 MANY 5UPPER PI5HE5.. Manninum í búðinni þótti það Hann sagði að hundurinn hans Hann sleikir sennilega aldrei mjög fyndið hvað þú slitir mörg- hefði átt sama dallinn alla botninn á dallinum ... um matardöllum ... ævi... BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Tvískinnungur sljórnvalda? Frá Guðjóni Bergmann: OFT hefur því verið fleygt að mið- að við allt sem við vitum um skað- semi tóbaksreykinga í dag, þá væri varningi sem þessum aldrei hleypt inn á markaðinn af opinber- um eftirlitsaðilum. Reykingar hafa verið útnefndar sem einn helsti skaðvaldur aldarinnar af Samein- uðu Þjóðunum, við vitum að hundruð manna látast af völdum reykinga ár hvert á íslandi og nýlegar tölur benda til þess að reykingar séu að aukast í grunn- skólum þrátt fyrir aukinn áróður Tóbaksvamanefndar. Menn yppa öxium og spyija: „Hvað veldur?“ Því miður hefur enginn svarið sem stendur, en þess er ötullega leitað hjá ungviði landsins. Einn sökudólgur gæti hinsveg- ar vel verið tvískinnungur þeirra sem eldri eru og þá sérstaklega stjórnvalda. Gott dæmi um tvö- föld skilaboð er þegar foreldri reykir og segir barni sínu gegnum reykinn að það sé sko alls ekkert sniðugt að reykja. Það er mjög ruglandi fyrir yngri kynslóðina þegar yfirvaldið segir eitt og ger- ir annað. Stjórnvöld á |slandi hafa einka- sölu á tóbaki. A íslandi í dag eru seldir um 60.000 sígarettupakkar á dag. Ekki veit ég um heildsölu- verðið eða álagninguna, en í smá- sölu veltir þessi vara milljörðum á ári hverju. Mótvægi þessarar sölu er fyrirbyggjandi starfsemi Tób- aksvarnanefndar. Nefndin fær út- hlutun uppá 35 milljónir ár hvert og starfar þannig af veikum mætti. Tvöföld skilaboð? Lyfjaeftirlit Ríkisins hefur verið ötult við að halda ýmiskonar fæðu- bótarefnum, vítamínum, litarefn- um, hnetum o.s.frv. utan landsins, en leyfir tóbak sem inniheldur meðal annars ammóníak, benzen, blásýru, brennisteinsvetni, metan- ól (tréspírítus), fenól og margt fleira, því í heildina inniheldur ein sígaretta um 4000 efnasambönd. Tvöföld skilaboð? Ef miðað er við söluvaming apóteka landsins ætti tóbak að sjálfsögðu að vera seld undir eftirliti, en í dag getur hvaða smásali sem er keypt inn tóbak og selt. Tvöföld skilaboð? Svo er það aldurstakmarkið. Allir þeir sem eru yngri en 18 ára mega ekki kaupa sér tóbak, en því er ekki framfylgt og aldurstak- markið því ekki virt, sérstaklega þegar starfsmenn smásalanna eru oft undir tilskildum aldri. Tvöföld skilaboð? Það er enginn vafi í huga mínum um að ef tóbak væri ekki í einka- sölu stjórnvalda hér á landi, væri það alls ekki til sölu. Mín ábyrgð felst í því að benda á þennan sann- leika, ekki að þegja. GUÐJÓN BERGMANN, námskeiðahaldari, Leiðarljósi ehf. Cameron eða Carpenter? Frá Stefáni Halldórssyni: ÉG hripa niður þessar örfáu línur vegna kvikmyndagagnrýni sem birtist í Morgunblaðinu 7. janúar síðastliðinn. Þar fjallar Sæbjörn Valdimarsson af stakri fag- mennsku um stórmyndina Titanic og er ég í stuttu máli sammála hon- um í flestum at- riðum. Eitt stakk þó í stúf við fagmennsk- una og var það sú tvítekna villa að kalla leikstjóra myndarinnar, James Cameron, „Carpenter“. Kannski hefur Sæ- björn ekki verið með það á hreinu hver leikstýrði myndinni eða þá að hann hefur verið að rugla sam- an leikstjóranum og kvikmynda- tökumanninum Russel Carpenter. Nú einnig má leiða að því líkum að Sæbjörn haldi svo mikið upp á John Carpenter hinn mistæka að hann vilji halda að sá ágæti hroll- vekjuleikstjóri hafi haft hönd í bagga við gerð Titanic. Morgun- blaðið er eflaust tengt Internetinu og ætti því að vera léttur leikur að nálgast upplýsingar af þessu tagi. Ég fínn mig knúinn til að minn- ast á þessi mistök því mér finnst villur af þessu tagi hafa færst í aukana á síðustu árum í annars ágætri kvikmyndagagnrýni Morg- unblaðsins. Það er spurning hvort það ætti ekki að gefa gagnrýnend- um að minnsta kosti eitt tækifæri til að prófarkalesa greinar sínar áður en rokið er með þær í prent- un. Varla liggur lífið sjálft við. Þess væri óskandi að þessi bón mín yrði tekin til greina því að Morgunblaðið er nú víst mest lesna blað landsins og ætti því að vera fyrirmynd annarra blaða hvað varðar frágang og gæði. STEFÁN HALLDÓRSSON, 020476-4869, Túngötu 51, Rvk. Stefán Halldórsson MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérbloð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL<a)CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.