Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998
Vika hinna
beygluðu bfla
ÖKUMÖNNUM varð mörgum hált
á svellinu í liðinni viku, en alls varð
31 umferðaróhapp á Akureyri,
færðin enda ekki upp á marga fiska
og má rekja mörg óhappanna til
mikillar hálku. Engin meiðsl urðu á
fólki í þessum óhöppum, enda aka
menn hægar við slíkar aðstæður en
ella. Tjón á bifreiðum varð þó um-
talsvert og er rætt um viku hinna
beygluðu bfla á lögreglustöðinni á
Fuglinn
fraus
fastur
KULDINN um helgina bitnaði
ekki einungis á mönnum held-
ur líka málleysingjum. Lög-
reglu var á sunnudag tilkynnt
um veiðibjöllu sem frosin væri
fóst í ísnum á Pollinum.
Brugðust lögreglumenn við, en
ekki reyndist unnt að komast
að fuglinum og losa hann þar
sem ísinn var ótraustur og
þótti ekki annað fært en að
lóga honum til að lina þjáning-
ar hans. Vetur konungur hefur
þannig enn tekið sinn toll.
Akureyri en þar á bæ vænta menn
þess að ekki komi önnur eins það
sem eftir er ársins.
Það var ekki bara hálkan sem
gerði ökumönnum erfitt fyrir, í of-
análag bættist að umferðarljós á
hinum fjölfömu gatnamótum Þór-
unnarstrætis og Þingvallastrætis
biluðu um helgina og urðu nokkir
árekstrar þar sem rekja má til bil-
unarinnar.
Árekstrar urðu þó einnig á öðrum
ljósastýrðum gatnamótum þar sem
bifreiðar mnnu inn á gatnamótin
gegnt rauðu ljósi, svo vísast má
kenna slæmum akstursskilyrðum
um flest óhöppin.
Vélsleðamenn eins
og kýr á vorin
Þótt ökumenn bifreiða ættu í erf-
iðleikum, kættust eigendur vélsleða
og voru sumir eins og kýr að vori er
þeir brunuðu um götur og torg bæj-
arins. í gleði sinni yfir að fá loks
tækifæri á að reyna tækin gleymdu
margir þeim reglum sem gilda um
akstur þessara ökutækja í þéttbýli.
Fyrir brot á þessum reglum voru 9
ökumenn vélsleða kærðir í liðinni
viku og beinir lögregla þeim tilmæl-
um til vélsleðaeigenda að taka mið
af reglunum svo kvörtunum yfir
akstri þeirra linni.
Morgunblaðið/Kristján
Frostið beit ekki
á skíðamenn
MJÖG góð aðsókn var að skíða-
svæðinu í Hlíðarfjalli um helgina
þó svo að napurt hafi verið þar
efra, allt upp í 20 stiga frost þegar
mest var.
ívar Sigmundsson forstöðu-
maður sagði aðstæður hinar
ákjósanlegustu, bjart veður og
gott skíðafæri. Auk þess sem
heimamenn þyrptust á skíði var
fjöldi aðkomufólks á svæðinu, frá
nágrannabyggðum og einnig
lengra að komnir. Þannig voru
um 80 unglingar í fjallinu að
renna sér á snjóbrettum, en þeir
komu á vegum verslunarinnar
Týnda hlekksins í Reykjavík og
sagði ívar þá á allan hátt hafa
verið til mikillar fyrirmyndar.
„Krakkarnir voru komnir út í
brekkumar kl. 10 á morgnana og
renndu sér þar til lyftur vom
lokaðar kl. 17 og voru á allan
hátt til mikils sóma,“ sagði ívar.
„Ég er sannfærður um að
þessa miklu aðsókn nú í upphafi
megi rekja til mikils áhuga sem
verður í kjölfar góðs gengis
Kristins Björnssonar," sagði Iv-
ar.
Lyftugjöld vom einnig lækkuð í
byijun janúar og þá eru lyftur
opnar lengur en vant er í miðri
viku, opið er til kl. 21 á kvöldin á
þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöldum.
AKUREYRI
JÓN Knútsen varðstjóri kom fyrstur og einn á brunastað við Lækjargil á
laugardagsmorgun, en á myndinni sést hann inni í húsinu.
Slökkviliðsmenn hafa barist fyrir fjölgun vaktmanna
Vilja ijóra á hveija
vakt og einn á bakvakt
Morgunblaðið/Kiistján
TÓMAS Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri og Birgir Finnsson vara-
slökkviliðsstjóri athuga hvort tækin séu örugglega ekki á sínum rétta
stað í yngsta bíl Slökkviliðsins á Akureyri.
SLÖKKVILIÐSMENN á Akureyri
hafa í um áratug barist fyrir því að
mönnum á vakt verði fjölgað, en síð-
ustu rúm tuttugu ár hafa þrír
slökkviliðsmenn verið á vakt hverju
sinni. Þetta á við um tímabilið eftir
kl. 16 virka daga og um helgar. Þeg-
ar eldur kom upp í gömlu íbúðar-
húsi við Lækjargil snemma á laug-
ardagsmorgun voru tveir af þremur
vaktmönnum í sjúki-aútkalli og því
einungis einn maður á stöðinni er
tilkynnt var um eldinn. Hann byrj-
aði á að kalla út mannskap, beið
þess að lögregla kæmi og leysti
hann af á stöðinni og hélt svo einn á
brunastað. Þeir sem voru í sjúkra-
útkallinu voni nýlega komnir með
sjúkling á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, en þar sem stutt var að
fara voru þeir fljótir á staðinn.
„Þetta er staða sem við höfum
lengi óttast að kæmi upp,“ sagði
Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðs-
stjóri á Akureyri. „En erum heppn-
ir að aðstæður voru ekki miklu
verri.“
Slökkviliðið á Akureyri hefur kynnt
tillögu um að fjórir menn verði á
hverri vakt og að fimmti starfsmað-
urinn verði á bakvakt og hafa undir-
tektir verið jákvæðar. Gert er ráð
fyrir að kostnaður við rekstur
slökkviliðs muni aukast um 13 millj-
ónir króna á ári verði tillögurnar að
veruleika. „Bæjaryfirvöld hafa sýnt
skilning, en meira þaif að koma til,“
sagði Birgir Finnsson varaslökkvi-
liðsstjóri. Frá árinu 1990 hefur ver-
ið í gildi samningur milli heilbrigðis-
ráðuneytis og Akureyrarbæjar um
að slökkvilið sjái um sjúkraflutn-
inga á svæðinu. Þeir Tómas og
Birgir segja slíkt fyrirkomulag
tíðkast í stærri bæjarfélögum og
hafi það gefist vel og af því sé mikil
hagræðing. Ráðuneyti og bær
skipta með sér kostnaði við rekstur
almenns slökkviliðs, en nokkrir liðir
falla af meiri þunga á bæinn en
ráðuneytið. Ákvæði eru í samningn-
um um að hann verði tekinn til end-
urskoðunar við breyttar aðstæður
og er það skilningur forsvarsmanna
slökkviliðsins að þar kæmi m.a. til
fjölgun starfsmanna á vakt. „Við
höfum lengi leitað eftir því við ráðu-
neytið, en menn hafa verið tregir til
að hlusta á okkar sjónarmið," segja
þeir Tómas og Birgir. Benda þeir
m.a. á að sú þjónusta sem nú er
veitt í sjúkraflutningum sé betri en
var þegar samningurinn var gerður,
útköllum hafi fjölgað og meira sé
um lengri ferðir en áður.
Sjálfviljugir á
bakvakt
Engar bakvaktir eru hjá slökkvi-
liðsmönnum á Akureyri og segir
Tómas misjafnt hversu vel gangi að
ná í menn komi upp eldur. „Það má
segja að slökkviliðsmenn hér séu
sjálfviljugir á bakvakt, þó menn séu
í fríi láta þeir vita af ferðum sínum
svo hægt sé að rekja slóð þeirra.“
Eldsupptök eru ekki kunn en
rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri hefur málið til rannsóknar.
Bæjarráð Akureyrar
Skuggi sækir um
hlutaíj árframlag
SKUGGI ehf. sælgætisgerð hef-
ur sent bæjaryfirvöldum erindi
þar sem sótt er um hlutafjár-
framlag til Framkvæmdasjóðs
Akureyrar að upphæð 5 milljón-
ir króna. Bæjarráð vísaði erind-
inu til atvinnumálanefndar til
umsagnar.
Á fundi bæjarráðs í gær var
einnig lagt fram bréf frá for-
eldrafélagi við leikskólann Kiða-
gil og foreldrafélagi Giljaskóla,
en í því er mótmæít vinnubrögð-
um eða aðgerðarleysi sem bygg-
inganefnd, framkvæmdanefnd,
skólanefnd og leikskólanefnd
Akureyrarbæjar hafa viðhaft við
byggingu og eftirlit fram-
kvæmda við Giljaskóla.
Bæjarráð hefur samþykkt að
kaupa fasteign og erfðafestuland
býlisins Þingvalla við Norður-
landsbraut og er kaupverð 7
milljónir króna.
Þá hefur einnig verið samþykkt
að kaupa 2. hæð í húsinu númer
6 við Lækjargötu 6 á um 3,1
milljón króna.