Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Fjármálaráðherrar ESB ræða myntbandalagið
Stuðningur með fyrir-
vörum við aðild Italíu
Afsagnar
Suhartos
krafíst
AÐ MINNSTA kosti 200 manns
efndu til mótmæla við þinghús
Indónesiu í gær til að krefjast
þess að Suharto, forseti lands-
ins, segði af sér og að stjórnin
gerði ráðstafanir til að draga
úr hækkun matvælaverðs vegna
fjármálakreppunnar í landinu.
Mótmælendurnir sögðust
hlynntir því að Megawati
Sukarnoputri, helsti Ieiðtogi
sljórnarandstöðunnar og dóttir
fyrsta forseta landsins,
Sukarnos, tæki við forsetaemb-
ættinu.
„Við þurfum nýjan leiðtoga
sem getur bjargað þjóðinni,"
sagði einn ræðumannanna. „Við
tilnefnum Megawati
Sukarnoputri í forsetaembætt-
ið.“
Kinnock
gerir
Sviss tilboð
• NEIL Kinnock, sem fer með
samgöngumál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, hefur til-
kynnt svissneskum stjórnvöldum
að ESB sé reiðubúið að fallast á að
Sviss innheimti að meðaltali 330
franka gjald af vörubílum ESB,
sem aka um svissneska vegi. Sviss
hefur viljað rukka bílstjórana um
410 franka. Deilan um gjaldið er
meginhindrunin í vegi samkomu-
lags um tvíhliða samning Sviss og
ESB, sem unnið hefur verið að allt
frá árinu 1992, er Svisslendingar
felldu EES-samninginn í þjóðarat-
kvæðagreiðslm
• AUSTURRÍSK stjómvöld hafa
snúizt öndverð gegn tillögum Neil
Kinnocks um samræmdar ESB-
reglur um takmarkanir á umferð
vörubíla. í Austurríki er umferð
vörubíla bönnuð á öllum frídögum,
sem eru þrettán á ári, og frá klukk-
an 3 á laugardögum til kl. 22 á
sunnudögum, auk þess sem vöru-
bílaakstur er bannaður á nóttunni.
Framkvæmdastjómin vill fækka
banndögunum í átta og takmarka
helgarbannið við kl. 6 til 22 á
sunnudögum, auk þess sem hún vill
engar hömlur á næturumferð vöm-
bíla.
• FRANSKIR kommúnistar boð-
uðu til útifundar í París um helg-
ina, þar sem krafizt var þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðild Frakk-
lands að Efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópu (EMU). Kommúnistar
segja 20.000 manns hafa sótt fund-
inn en lögreglan segir að þar hafi
verið 9.000 manns. Ekki er búizt
við að samstarfsflokkur kommún-
ista í ríkisstjóm, Sósíalistaflokkur-
inn, taki mark á þessum kröfum.
Brussel. Reuters.
FJÁRMÁLARAÐHERRAR Evr-
ópusambandsríkjanna lýstu í gær
yfir stuðningi við aðild Italíu að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU, en með fyrirvörum.
Ráðherrarnir fimmtán lögðu á
fundi sínum í Brussel í gær áherzlu
á að of snemmt væri að fullyrða um
hvaða ríki yrðu stofnaðilar að EMU
um næstu áramót, þar sem sú
ákvörðun verði ekki tekin fyrr en í
maí. En þeir sögðu að Italía væri á
réttri leið með að uppfylla skilyrði
Maastricht-sáttmálans um aðhald í
ríkisfjármálum og önnur atriði f
efnahagsstjóm landsins. Efst á
dagskrá fundarins var hvort Italíu
tækist á þessu ári að halda fjárlaga-
hallanum undir þriggja prósenta
markinu (sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu), í annað árið í
röð, og að stjóm landsins takizt
ennfremur að minnka skuldabyrði
ríkisins.
„ítalska ríkisstjórnin hefur náð
góðum árangri," sagði Gerrit Zalm,
fjármálaráðherra Hollands, en í lið-
inni viku sögðu hollenzkir fjölmiðl-
ar frá því að Zalm hefði hótað af-
sögn ef Ítalíu yrði hleypt í hóp
stofnríkja EMÚ. Þessar fregnir
ýfðu aftur upp umræður um aðild-
arhæfni Italíu að myntbandalaginu.
Hollenzka fjármálaráðuneytið
vísaði þessum fréttum á bug og í
gær sagði Zalm að Holland væri
ekki haldið „neinum sögulegum eða
landfræðilegum fordómum" um
Ítalíu.
En efasemdir um aðildarhæfni
Ítalíu eru engu að síður útbreiddar.
Ítalíustjóm heldur því fram, að
henni hafi tekizt að minnka fjár-
lagahallann á síðasta ári í 2,8% úr
6,8% árið áður, og að það muni
takast að halda hallanum undir 3%
á þessu ári einnig.
Jafnvel embættismenn fram-
kvæmdastjómar ESB, sem er það
mikið kappsmál að Italía verði með-
al stofnríkja EMU, viðurkenna að
þessar tölur er fyrst og fremst að
rekja til mjög lágs vaxtastigs.
Vaxtagreiðslubyrði ítalska ríkisins
mun um þessar mundir vera í kring
um 3.600 milljarðar króna, sem
samsvarar um 3% af landafram-
leiðslu.
Athyglin beinist að þessu atriði
vegna þess að opinberar skuldir
Italíu eru að langmestu leyti (um
3/4) skammtímalán. Sveiflur á
skammtímavöxtum eru miklu meiri
en á langtímavöxtum. Talið er að ef
skammtímavextir á peningamörk-
uðum hækki um eitt prósentustig
eða þar um bil þá sé úti um árangur
Italíustjórnar í viðleitninni til að
bæta stöðuna í ríkisfjármálum.
Og sérfræðingar telja að Italía
njóti nú þegar þessara hagstæðu
vaxta eingöngu vegna þess að pen-
ingamarkaðirnir reikni fastlega
með því að Ítalía verði á meðal
stofnríkja myntbandalagsins.
Brögð í tafli
Samkvæmt skýrslu sem fjárfest-
ingarbankinn J.P. Morgan tók sam-
an um ítölsku ríkisfjármálin og
vitnað er til í Siiddeutsche Zeitung
hafa ítölsk stjórnvöld nýtt sér ýmis
konar brögð til að þrýsta hinum
mælda fjárlagahalla niður, og það
um allt að 1,5% af VLF. Dæmi um
slík brögð er hvernig ítalska stjórn-
in minnkaði fjárlagahallann einfald-
lega með því að endurmeta verð-
mæti gullforða ríkisins með því að
reikna verðmætið út frá gullverði
sem var langt yfir markaðsverði.
Einnig var hinn sérstaki „Evrópu-
skattur“ sem lagður var á alla
ítalska skattgreiðendur 1997 áber-
andi og umdeilt bragð.
Án þess sem græðist á hinu hag-
stæða vaxtastigi og hinar margvís-
legu „fegrunaraðgerðir" á fjárlög-
unum væri fjárlagahallinn að mati
J.P. Morgan nær átta prósentum
en þeim 2,8% sem stjómin í Róm
gefur upp. Og ríkisskuldir sem
hlutfall af þjóðarframleiðslu er enn
yfir 120%, þ.e. 100% yfir 60% mark-
inu sem kveðið er á um í Ma-
astricht-sáttmálanum. En það vill
ítölum til happs að á þetta atriði er
ekki lögð nándamærri eins mikil
áherzla við mat á aðildarhæfninni
eins og á fjárlagahallann.
Auk þess sem að ofan er talið
nefnir J.P. Morgan fleiri dæmi um
fjárlaga“fegrandi“ brögð sem ítal-
íustjóm hefur leyft sér, svo sem
tímabundna stöðvun útgjalda, en
slíkt era ítalir ekki einir um. Og
þeir hafa náð óvéfengdum árangri á
sumum sviðum, svo sem með end-
urskoðun lífeyriskerfisins. En
hvort það dugir Ítalíu til að fá
blessun fjármálaráðherra allra
ESB-ríkjanna sem stofnríki EMU
er enn óvíst.
Andstaða við evróið eykst skyndilega meðal Þjóðverja
71% á móti EMU-
aðild Þýzkalands
Bonn. Reuters.
ANDSTAÐA þýzkra kjósenda við
aðild Þýzkalands að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU) og
upptöku evrósins í stað þýzka
marksins hefur aukizt skyndilega,
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
skoðanakönnunar. Fátt bendir þó
til að gildistaka EMU verði hindr-
uð úr þessu.
Svokallaðar Politbarometer-
kannanir eru gerðar mánaðarlega.
I desember sögðust 59% svarenda í
könnuninni andvígir EMU-aðild
Þýzkalands en nú í janúar segist
71% ekki vilja fórna markinu fyrir
evróið.
Könnunin er gerð fyrir ríkissjón-
varpið ZDF, sem sagði í fréttatíma
sínum að almenningsálitið virtist
vera að snúast til sama vegar og er
EMU-umræðan var að hefjast á
áranum 1992 og 1993.
Málshöfðun prófessoranna
hefur áhrif
Fréttaskýrendur telja líklegt að
málshöfðun fjögurra háskólapró-
fessora, sem telja EMU-aðild and-
stæða stjómarskránni, hafi haft
áhrif á almenningsálitið.
Talið er ósennilegt að stjórnar-
skrárdómstóllinn úrskurði EMU-
andstæðingum í hag en málið hefur
mjög verið til umfjöllunar í fjöl-
miðlum og telja sérfræðingar í
skoðanakönnunum að það hafi haft
áhrif á niðurstöðuna.
Verður stöðugur gjaldmiðili
Prófessoramir telja réttindi al-
mennra borgara skert með því að
******
EVROPA^
fóma hinu styrka marki iyrir evróið,
sem ennþá er óþekkt stærð. Helmut
Kohl kanzlari, sem leggur ofurá-
herzlu á EMU-aðild Þýzkalands,
svaraði málflutningi háskólaprófess-
oranna í blaðagrein fyrr í vikunni:
„Evróið verður stöðugur gjaldmiðill.
Launþegai-, eigendur sparifjár, fjár-
festar; allir geta treyst á að fjár-
munir þeirra munu halda verðgildi
sínu í framtíðinni," skrifaði Kohl.
Fuglaflensa
í Guang-
dong?
DAGBLAÐ í Peking skýrði
frá því í gær að veira, sem ylli
„fuglaflensu,“ hefði fundist í
kínverska héraðinu Guang-
dong, skammt norðan við
Hong Kong. Blaðið sagði að
villtar gæsir kynnu að breiða
veirana út, en gat þess ekki
hvenær hún hefði fundist eða
hvort þetta væri sama veira
og sú sem hefur valdið
fuglaflensunni í Hong Kong,
þar sem sex menn hafa látið
lífið og tólf smitast af sjúk-
dómnum.
Embættismenn í Guang-
dong sögðu hins vegar að ekki
hefðu fundist nein
fuglaflensutilfelli í héraðinu,
„hvorki í alifuglum né mönn-
um“.
Yfirvöld í nágrannahérað-
inu Hainan bönnuðu á laugar-
dag sölu á kjúklingum frá Gu-
angdong vegna hugsanlegrar
hættu á útbreiðslu
fuglaflensu.
Mugabe
fellur frá
eignarnámi
ROBERT
Mugabe,
forseti
Zimbabwe,
hefur í
reynd
neyðst til að
falla frá
áformum um
Mugabe að taka Jarð-
ir hvítra
bænda eignamámi vegna
þrýstings frá Evrópusam-
bandinu og Alþjóðabankan-
um. Stjórn hans hefur fengið
lán til að afstýra efnahags-
hrani í landinu gegn loforðum
um að hún virði stjórnar-
skrárbundinn eignarrétt
bændanna og rétt þeirra til
sanngjarnra bóta fyrir jarð-
imar.
Andstaða við
NATO-aðild
Svía eykst
ANDSTAÐAN við aðild Svía
að Atlantshafsbandalaginu
(NATO) jókst á liðnu ári,
samkvæmt nýlegri við-
horfskönnun. 47% Svía sögð-
ust andvíg inngöngu Svía í
NATO og 31% var hlynnt að-
ildinni. Andstaðan við NATO-
aðildina er nú næstum því
jafnmikil og árið 1995, en árið
eftir jókst stuðningurinn við
hana meðal Svía.
Vildi út í
10.000 m hæð
DRUKKINN Norðmaður
stefndi lífi farþega í þotu á
leiðinni frá Kaupmannahöfn
til Bangkok í hættu á dögun-
um þegar hann reyndi að
opna neyðarútgang í 10.000
metra hæð. Maðurinn hafði
setið að drykkju í fjórar
klukkustundir þegar hann
reyndi að opna útganginn til
að „taka leigubíl heim“. Áhöfn
þotunnar tókst ekki að stöðva
Norðmanninn fyrr en
hamrammur Dani kom henni
til aðstoðar.