Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR MINNINGAR Konum má ekki fækka NÚ LÍÐUR að því að velja á fólk til að skipa sæti á listum Jlokkanna fyrir kom- andi sveitarstjórnar- líosningar. Kannanir /sem gerðar hafa verið á þátttöku kvenna í sveitarstjórnum sýna að mjög margar konur gefa ekki kost á sér oftar en einu sinni. tAstæður þessa virðast ýmsar en rauði þráður- inn þó sá að konum finnist þær standa ein- ar þegar á hólminn er komið. Lítill stuðning- ur komi frá ílokknum og stjórnmálastarfið komi ofan á önnur störf. Einnig er það staðreynd að konur sem þó gefa kost á sér eiga erfítt uppdráttar þegar verið er að velja á listana - og enn erfiðara þegar um prófkjör er að ræða - og fæstar vilja ekki taka þátt í slíku ati oftar en einu sinni. Konum í sveitarstjórnum fer því fækkandi og þeirri þróun verður að snúa við. • Linda Blöndal, stjórnmálafræði- nemi, vann skýrslu fyrir skrifstofu jafnréttismála um þátt- töku kvenna í sveitar- stjórnum á yfirstand- andi kjörtímabili. Þar kom fram að færri kon- ur starfa nú í sveitar- stjómum en á síðasta kjörtímabili og á þetta við um alla flokka. Verst er þó staða kvenna í Alþýðuflokkn- um. Af 41 sveitar- stjómarmanni flokks- ins eru aðeins 11 konur. A síðasta kjörtíma- bili,1990-1994, vora þær þó 13 og í ljósi þess sem að ofan segir er það athyglisvert að að- eins 5 af þessum 13 gáfu kost á sér eða náðu kjöri fyrir þetta kjörtímabil. Þegar skoðað var hvemig fólk raðaðist á lista, sem flokkurinn átti aðild að, var áberandi hversu fáar konur voru í svokölluðum öruggum sætum og einnig að í mörg- um sveitarfélögum er engin kona í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn. Konur jafnt og karla á listana Forysta flokksins hefur sýnt til Bryndís Kristjánsdóttir þess vilja að bæta þarna úr og á flokksstjórnarfundi í október sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga Sam- bands Alþýðuflokkskvenna: „Flokksstjórn Alþýðuflokksins - jafnaðarmannaflokks Islands skor- ar á fulltrúaráð og stjórnir flokksfé- laga að við uppröðun eða val á fólki til að skipa sæti á framboðslistum flokksins við komandi kosningar verði tryggt að jafnræði ríki á milli kynjanna og að konur jafnt sem karlar skipi efstu sæti á framboðs- listum sem Alþýðuflokkurinn á aðild að.“ Ennfremur tilkynnti fonnaður, Sighvatur Björgvinsson, að hann Færri konur starfa nú í sveitarstjórnum, sefflr Bryndís Kristjánsdótt- ir, en á síðasta kjör- tímabili. myndi skrifa formönnum fulltrúa- ráða og félaga flokksins bréf um þetta efni. Nú væntum við þess að sjá merki um þessi sinnaskipti í flokknum. Enda má það ekki gerast að aftur komi út skýrsla sem sýnir að i jafnaðarmannaflokki Islands séu konur ekki jafnar körlum! Höfundur er formaður Sambands alþýðuflokkskvenna og frambjóð- andi t prófkjöri R-listans. Nýjung í rekstri Sund- laugar Kópavogs A SIÐASTLIÐNU 0. vori gerðu Iþróttaráð Kópavogs og sænska fyrirtækið Medic Oper- ating Ab með sér samning um rekstur líkamsræktarstöðvar í kjallara Sundlaugar Kópavogs. í kjölfarið, eða hinn 28. septem- ber, opnaði sænski aðil- inn líkamsræktarstöð- ina Nautilus í sund- lauginni. Það er óhætt að full- yrða að eftir opnuninni var beðið með eftir- væntingu. Viðtökumar létu heldur ekki á sér standa, því næiri 1200 •'Sinanns festu kaup á árskortum þegar á fyrsta degi, enda er þarna boðið upp á fullkomna heilsuræktarstöð ásamt aðgangi að góðri sundlaug fyrir sanngjarnt verð svo ekki sé meira sagt. Hinir sænsku rekstr- araðilar reka margar stöðvar sem þessa, bæði í Svíþjóð og eins í Noregi. Þeir hafa hins vegar aldrei kynnst eins góðum móttökum og Nautilus fékk í Sundlaug Kópavogs. En hvað vakti íyrir Iþróttaráði Kópavogs þessum samningi? Jú, hugmynd ráðsins var að stórbæta aðstöðu fyrir almenning til að stunda líkamsrækt í tengslum við sundlaug- ina. Ohætt er núna, þegar stöðin hefur starfað í hartnær fjóra mánuði, að fullyrða að þetta hefur gengið eftir. Þetta merka framtak hefur náð til fjölda fólks, Gunnsteinn Sigurðsson Fordæmi um forgangsröðun STJÓRNMÁL snú- ast um forgangsröðun verkefna og fjármuna. Fyrsta kjörtímabil ^tokkar i Reykjavíkur- listanum hefur því snúist um að breyta forgangsröðun fortíð- ar í þágu framfara og almannahags í borg- inni. Fordæmi um for- gangsröðun höfum við fulltrúar Reykjavíkur- listans í stjóm Veitu- stofnanna borgarinnar sýnt. Auk þess að ráð- ast í hagkvæmar virkj- unarframkvæmdir, auka atvinnu og flækka raforkuverð til almennings 5.910 milljóna arði veitu- stofnana, segir Helgi Hjörvar, hefur verið skilað í borgarsjóð. hefur 5.910 milljóna króna arði verið skilað í borgarsjóð á kjör- tímabilinu. Það sam- svarar öllum bygging- arkostnaði allra skóla og leikskóla borgar- innar og öllum fram- kvæmdum í íþrótta- og æskulýðsmálum á sama tíma. Áður var mestum hluta hagnað- arins eytt í að byggja veitingastað, en skuld- um safnað á borgar- sjóð handa ungu kyn- slóðinni. Hinn 31. janúar nk. hefst kosningabarátta Reykjavíkur- listans með opnu prófkjöri. Svo að sú barátta leiði til sigurs í vor og festi í sessi nýja forgangsröðun er mikilvægt að sem flestir mæti í prófkjörið og taki þátt í að velja list- ann. Eg vil þig í prófkjörið. Höfundur er varahorgarfulltrúi og tekur þátt í prófkjöri R-listans. Helgi Hjörvar Líkamsræktarstöð er rekin í kjallara Sund- laugar Kópavogs. Gunnsteinn Sigurðsson segir samstarf heilsu- ræktarstöðvar og sund- staðar styrkja sam- keppnisstöðu Sund- laugar Kópavogs. sem ekki hefur áður lagt markvisst stund á líkamsrækt. Fólk greip tæki- færið fegins hendi og þá er tilgangin- um náð að mínu mati. Þarna hefur tekist að ná til fólks sem er að stíga sín fyrstu skref í markvissri líkams- rækt og þeirra sem hafa æft árum saman. Fólkið getur skipulagt iðkun sína eftir þörfum. Það getur notað alla þá aðstöðu sem sundlaugin hefur upp á að bjóða. Ánnað atriði, sem vó einnig þungt, var að með tilkomu samningsins við Svíana var stórbætt búnings- og sturtuaðstaða við sundlaugina. Hin nýja búningsaðstaða nýtist einnig mjög vel fyrir skólafólk. Aðstöðu fyr- ir sundkennslu var orðið mjög brýnt að bæta. Síðast en ekki síst var með þess- um samningi verið að stórbæta sam- keppnisstöðu Sundlaugar Kópavogs, sem sést best á því að á þessu ári munu útgjöld bæjarins til sundlaug- arinnar lækka um 50%. Fullyrða má að þessar tvær rekstrareiningar þ.e. sundlaugin og líkamsræktarstöðin styrki hvor aðra. Árið 1996 kostaði rekstur Sund- laugar Kópavogs bæjarsjóð tæpar 15 milljónir kr. en á þessu ári er gert ráð fyrir að hann verði um 7,7 millj- ónir, þrátt fyrir að sundlaugargest- um hafi fjölgað verulega. Iðkendur líkamsræktarinnar Nautilus láta mjög vel af henni og eru mjög ánægðir með þetta framtak íþróttaráðs Kópavogs. Óhætt er að fullyrða að opnun stöðvarinnar sé eitt mesta framfaraspor, sem stigið hafi verið í þágu almenningsíþrótta á Islandi um langan tíma. Höfundur er varaformaður íþrótta■ ráðs Kópavogs GUÐMANN Þ. G UNNARSSON + Guðmann Þ. Gunnarsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1929. Hann lést á Landspítalan- um 13. janúar síðast- iiðinn. Foreldrar hans voru Gunnar Grímsson, f. 16.3. 1902, d. 8.6. 1950, og kona hans Sigríður Þorkelsdóttir, f. 13.3. 1907, d. 13.10. 1954. Árið 1952 giftist Guðmann Þrúði Júlí- usdóttur. Börn þeirra eru: 1) Nanna Sigríður, f. 30.8. 1951, hún var gift Gunnari Ólafssyni en hann Iést, árið 1980. Þau eignuðust tvö börn: Bylgju Mist og Ómar Örn. Ómar á dótt- urina Söru Lind. Seinni maður Nönnu er Halldór Guðmundsson og eiga þau tvö börn: Bryndísi Fanný og Guðmann Ásgeir. 2) Konkordía Svandís, f. 10.4. 1957, sambýlismaður hennar er Guð- Þegar sest er niður til þess að skrifa í minningu vinar brjótast um í brjósti margar og oft andstæðar tilfinningar. I okkar huga ber hæst gleðina yfir að hafa fengið tækifæri til þess að kynnast góðum félaga og sorgina yfir að missa hann allt of fljótt. Kynni okkar hófust er Guðmann Gunnarsson flutti að sunnan með fjölskyldu sína hingað í Hörgárdal árið 1974. Hér undi hann vel hag sínum. Hann var fljótur til allra verka og var einstaklega gott til hans að leita. Ef punkteraði dekk eða bilaði vél var hringt í Guð- mann eða brennt í Staðartungu. Maður fór ekki bónleiður til búðar af hans fundi og aldrei var um það fengist þótt komið væri með erindi til hans á öllum tímum sólarhrings. Fyrir þetta einstaka viðmót og hjálpsemi viljum við þakka. Og svo allar aðrar samvenistundir. Það var gott að koma í Staðartungu til Guðmanns og Þrúðu. Við hér í Skriðu misstum mikið þegar þau fluttu búferlum suður til Hafnar- fjarðar fyrir nokkrum árum I sum- ar sem leið komu þau hingað í Hörgárdalinn, sem státar af einum tignarlegustu fjöllum á íslandi, f björtu og fallegu veðri og við átt- um saman ánægjulegar stundir. Þau gistu í húsbílnum sínum hér neðan við Skriðu, á bökkum Hörg- ár. Þá gerði sér enginn grein fyrir því að þetta yrði síðasta ferð Guð- manns í dalinn sinn nema ef til vill almættið sem skartaði sínu feg- ursta - fjöllin, túnin og engjarnar, áin - allt blasti við í mikilfenglegri morgunkyrrð. Við sendum ykkur, elsku Þrúða og fjölskylda, okkar dýpstu samúð- arkveðjur og langar að gera orð spámannsins að okkar: „Þegar þú ert sorgmædd skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund Guðs síns.“ Sverrir og Sigurbjörg. Nú þegar sólin tekur að hækka á lofti á nýjan leik og birta og ylur framundan hneig lífssól Guðmanns tengdafóður míns til viðar. Fyrir liðlega hálfum mánuði kom fjöl- skylda hans saman heima hjá hon- um og Þrúði konu hans í tilefni mann Steingríms- son, þau eiga þrjár dætur: Þrúði Höllu, Sigríði Ernu og Auði Steinunni. 3) Þórunn Sigurbjörg, f. 10.3. 1958, sambýlismað- ur hennar er Magn- ús Rúnar Runólfs- son, þau eiga tvær dætur: Maríu Helgu og Söndru Helenu. 4) Gunnar, f. 12.8. 1961, sambýliskona hans er Guðrún Ósk Sigurðardóttir. Gunnar á tvær dæt- ur af fyrri sambúð: Hönnu Krist- ínu og Sigríði Sif. 5) Júlíus Her- bert, f. 14.9. 1966, sambýliskona hans er Lára Halldórsdóttir og á hún tvo syni frá fyrri sambúð: Brynjar Inga Jónsson og Halldór Georg Jónsson. Júh'us á einn son frá fyrri sambúð: Sindra Fanndal. IJtför Guðmanns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fermingar dótturdóttur þeiira Mar- íu Helgu. Átti fjölskyldan þai- sam- an ánægjulega stund og naut þar mikillar gestrisni þeirra hjóna. Ekki grunaði mig þá er ég kvaddi hann daginn eftir, að það yrði okkar hinsta kveðja hér ofar moldu. Guðmann í Staðartungu. Þannig vil ég helst minnast hans vegna þess að þar kunni ég best við hann og þar held ég að hann hafi unað sér best. Eg rifja upp ferðir er við Nanna og krakkarnir heimsóttum þau hjón í Staðartungu. Stóð bóndi þá gjarnan úti á hlaði eða kom út úr skemmunni, þéttur fyrir, þykk- ur undir hönd, með derhúfu á höfði og heilsaði hlýlega, gestrisinn mjög. I skemmunni var hann með verkstæði og stundaði viðgerðir á ýmsum tækjum og tólum fyrir fólk á svæðinu. Var hann lagvirkur vel og í reynd bráðflinkur og hug- myndaríkur járnsmiður. Bera smíðisgripir hans þess vott, svo sem kertastjakar, borð o.fl. gripir. Fannst mér hann ætíð vera á heimavelli er við hittumst í skemm- unni og hann fór að útskýra fyrir mér hitt og annað er verkfærum viðkom. Leitaði ég oft ráða hjá honum er mitt vit þraut varðandi vélar og einnig hvað varahluti og þess háttar snerti. Fyrir það mun ég ætíð verða þakklátur. Eitt sinn er við komum að Stað- artungu bauð hann mér í ökuferð inn Hörgárdalinn, lýsti hann þar vel fyrir mér staðháttum og bú- skap á hverjum stað. I þeirri ferð og einnig síðar fann ég að hann var fróður um land og þjóð. Hross voru fáein hjá þeim hjón- um. Eitt sinn fór ég að gefa þeim með honum að vetri til. Jörð var þá nær alauð. Vel var gefíð svo mig nær óaði við. Þau verða að fá eitt- hvað í sig greyin sagði hann aðeins og ekki meir um það. Þess skal getið að hrossin voru akfeit og var gaman að sjá hann hirða hrossin og hversu vel hann naut þess að um- gangast þau. Fyrir fáeinum árum seldu þau hjón Staðartungu og fluttu til Hafnarfjarðar. Hóf Guðmann þá störf við sendibílaakstur og stund- aði þá vinnu meðan heilsan leyfði. Hann barðist við krabbamein og lauk því stríði að morgni 13. jan. sl. Kynni okkar voru ekki löng, liðlega 15 ár, ekki langur tími í tilverunni en góður samt. Þakka vil ég sam- veruna, hún var mér hlý á alla grein. Halidór Guðmundsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. N.ánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.