Morgunblaðið - 01.02.1998, Side 1
104 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
26. TBL. 86. ÁRG.
Ginsburg dregur
segulbandsfull-
yrðingar í efa
WILLIAM Ginsburg, lögfræðingur Monicu
Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku Hvíta
hússins, andmælti í fyrrakvöld mörgum lyk-
ilatriðum í þeim fullyrðingum sem haldið
hefur verið fram að væru á segulbandsupp-
tökum þeim sem Linda Tripp, þáverandi
vinkona Lewinsky, gerði af samtölum
þeirra um meint ástarsamband Lewinsky
við Bill Clinton Bandarfkjaforseta. Lét
Ginsburg að því liggja að skjólstæðingur
sinn ýkti oft eða færði frásögn sína í stílinn.
Hann sagði Lewinsky samt „fullkomlega
áreiðanlega". Ginsburg vísaði líka á bug
sem helberum ósannindum fullyrðingu
Lindu Tripp um að hún hefði verið viðstödd
eitt sinn er forsetinn hringdi seint að kvöldi
í Lewinsky.
Náðist „hvíti bfllinn“
á myndband?
BREZKA götublaðið The Daily Mirror
greindi frá því í gær að það hefði komizt yfir
myndband sem tveir erlendir ferðamenn
hefðu tekið við Ritz-hótelið í París kvöldið
sem Díana prinsessa af Wales og vinur henn-
ar Dodi al Fayed létu lífið í bflslysi, 31. ágúst
sl. Segir blaðið að á myndbandinu sjáist hvít-
ur smábfll sem ekið er ofsaakstri. Haft er eft-
ir franska rannsóknardómaranum sem hefur
yfirumsjón með rannsókn Díönu-slyssins að
þetta myndband geti verið rannsókninni
mikilvægt. Að sögn blaðsins er þarna ekki
um að ræða Fiat Uno, þ.e. þá bfltegund sem
talið er að hafí lent í árekstri við Mercedes-
Benz-bifreið Dionu, heldur Citroen AX, en
þessum bflum svipar mjög saman.
Klámbarsheimsokn
í „göfugum tilgangi“
ÍSRAELSKUR rabbíni sem tekin var mynd
af á klámbar í Jerúsalem nýlega verst nú
þrýstingi sem hann er beittur til að segja af
sér sem skólastjóri skóla þar sem fræði gyð-
ingdóms eru kennd.
Nemendur í skólanum voru æfir er ljós-
myndir, sem sýndu rabbínann í fullum her-
klæðum kúreka sitjandi á nektardansbar,
lentu í höndum þeirra. Þeir sökuðu hann
um „siðferðisspillingu“ og kröfðust þess að
hann yrði rekinn. En stjórnendur skólans
héldu því staðfastlega fram að hinar göfug-
ustu hvatir hefðu rekið rabbínann inn á um-
ræddan skemmtistað.
„Hann fórnaði miklu með því að láta sig
hafa það að fara inn á þennan viðurstyggi-
lega stað í þeim tiigangi að athuga hvort
einhver af nemendum hans vendi komur
sínar þangað," sagði einn skólastjórnend-
anna í samtali við blaðið Yediot Ahronot.
Hann hafði hins vegar enga skýringu á
reiðum höndum um hvernig stæði á kúreka-
útbúnaði rabbínans. Samkvæmt frásögn
blaðsins rakst hinn frómi lærdómsmaður á
mann á staðnum, sem hann hafði tekið í við-
tal sem umsækjanda um skólavist, en sá tók
af honum myndirnar sem síðan ollu
hneykslinu.
SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vetrarsólsetur
Morgunblaðið/RAX
LJÓSIN á Kársnesinu,
í Hafnarfirði og Straumsvík blika í kvöldhúminu er sólin sezt að baki Keili og gyllir hafflötinn í vetrarstillunni.
Líkur dvína á samningalausn í Iraksdeilunni
Albright segir tím-
ann að renna út
Lundúnum, Moskvu. Reuters.
MADELEINE Albright, utanríkisráðheiTa
Bandaríkjanna, sagði í gær að tíminn til að taka
úrslitaákvarðanir um aðgerðir í Iraksdeilunni
væri að nálgast hröðum skrefum.
„Glugginn er að lokast (...) Það lítur út fyrir
að samningaleiðin skili engu,“ sagði Albright á
blaðamannafundi með hinum brezka starfs-
bróður sínum, Robin Cook, í Lundúnum.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sagði á sama tíma á öðrum fundi í brezku höfuð-
borginni að bandamenn á Vesturlöndum gætu
ekki leyft Saddam Hussein að bjóða Sameinuðu
þjóðunum birginn öllu lengur og myndu ekki
hika við að beita valdi ef nauðsyn krefði.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti fyrirskipaði
í gær sérlegum erindreka sínum, Viktor
Posuvaljúk, að halda til baka til Baghdad í því
skyni að reyna til hlítar að ná samningalausn
á deilunni um vopnaeftirlit í landinu.
Albright sagði að þau Cook hefðu orðið
sammála um að eina viðmiðunin sem kæmi til
greina til að íausn næðist með samningum
væri að írakar uppfylltu í einu og öllu skilyrði
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og veittu
vopnaeftirlitsnefnd SÞ ótakmarkaðan aðgang
að hvaða stað sem þeir kysu að skoða.
Staðan „mjög alvarleg"
Albright sagði ástandið í íraksdeilunni
„mjög alvarlegt" og að Bandaríkin og Bret-
land sneru „bökum saman“ í málinu. Cook
sagði að enginn valkostur væri útilokaður í
stöðunni og möguleikarnir á að ná samninga-
lausn yrðu bezt styrktir með því að sýna
Saddam Hussein svo að ekki yrði um villzt að
alþjóðasamfélagið væri staðráðið í að láta
hann ekki komast upp með að framleiða ger-
eyðingarvopn.
„Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að
eina leiðin til að knýja fram viija öryggisráðs-
ins sé hemaðaraðgerðir, munum við ekki hika
við að beita þeim,“ sagði Tony Blair.
Reuters
Flóð í Perú
MAÐUR nokkur lætur ungan pilt síga nið-
ur í björgunarbát úr húsi í suður-perúsku
borginni Ica í fyrradag þar sem fólk er
strandaglópar í hrikalegum eðju- og
vatnsflóðum sem steypiregn af völdum E1
Nino-hafstraumsins hefúr orsakað á síð-
ustu dögum.
GÖNGIN NÍU MÁNUÐUM
Á UNDANÁÆTLUN
SUNNUDAGUR